Morgunblaðið - 09.08.1989, Blaðsíða 25
25
Færeyjar;
Þórshafin-
arbúar fá
sjónvarps-
liungrið satt
Þórshöfh. Frá N.J.Bruun, fréttaritai*a
Morgunblaðsins.
Þórshafiiarbúar eiga þess nú
kost að sitja fyrir framan sjón-
varpið alla daga vikunnar og
næstum því sólarhringinn út. Er
svo fyrir að þakka bæjaryfirvöld-
unum, en í síðustu viku tóku þau
að senda út gervihnattasjónvarp
á þremur rásum.
MORQUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR|9./ÁQÚST 1989
■
Sjónvarp-Foroya, sem tók til
starfa fyrir fimm árum, fær aðeins
að senda út í takmarkaðan tíma
fimm daga vikunnar. Eru mánudag-
ur og miðvikudagur sjónvarpslausir
og hefur öllum tilmælum um aukna
starfsemi verið vísað á bug. Krist-
ianna Rein, formaöur sjónvarps-
ráðsins, segir, að með sjónvarps-
lausum dögum hafi ráðsmennirnir
viljað hlúa að félagslífinu í bænum
og á eyjunum en nú hafa sjálf
bæjaryfirvöldin gert þá hugmynd
að engu. Það var landsstjórnin, sem
bauð bænum að taka á móti allt
að átta rásum um bæjarsendinn,
en fyrst um sinn verða stöðvarnar
þrjár, Scansat, BBC og MTV.
Um næstu mánaðamót verða
auglýsingar birtar í færeyska sjón-
varpinu í fyrsta sinn, í fimm mínút-
ur hveiju sinni þrisvar í viku.
Rekstrarfé færeyska sjónvarpsins
er nú um 145 milljónir ísl. kr. á ári
en búist er við, að auglýsingarnar
auki það um 24 millj. Á það fé að
fara til innlendrar þáttagerðar.
Fiskblóð
hinn besti
frostlögur
Washington. Reuter.
BLÓÐ fisktegundar nokk-
urrar, sem finna má í íshöf-
unum sitt hvoru megin á
jarðkúlunni, hefiir reynst
hafa í sér fjölda efiia, sem
kunna að reynast úrvals
írostlögur. Tveir banda-
rískir vísindamenn tilkynntu
þessa uppgötvun í grein í
nýjasta tölublaði vísindarits-
ins Science.
Fiskurinn, sem á latínu heit-
ir Dissostichus mawsoni, fram-
leiðir vatnsleysanleg peptíð,
sem fara út í blóðstrauminn,
en þau hægja á ískrystöllun í
frosti. Fiskurinn heldur aðal-
lega til við suðurheimskautið,
en hann finnst einnig i köldum
sjó á norðurhveli jarðar. Hann
mun ekki hafa fundist hér við
land.
Sérstaka athygli vísinda-
mannanna, þeirra C.A. Knight
og A.L. DeVries við Illinois-
háskóla, vakti þó að eitt
peptíðanna kemur í veg fyrir
að ís þiðni.
„Notkunarmöguleikarnir
eru gífurlegir," sagði Knight
við Reuters-fréttastofuna.
„Það er að vísu ekki hægt að
hella fiskblóðinu á vatnskass-
ann í bílnum í stað frostlagar,
en það er hægt að nota peptíð
úr blóðinu til þess að koma í
veg fyrir að ís og aðrar frysti-
vörur þiðni þótt hitastigið sé
vel fyrir ofan frostmark. Það
eitt gæti sparað mikið fé.“
Knight sagði að einhver
gæti vafalítið „grætt sand af
seðlum“ á framieiðslu efnisins,
en það er enn ekki bundið
einkaleyfi.
Sértu að hugleiða að bæta við eða
endurnýja veiðibúnað þinn, skaltu
kynna þér hið góða úrval Abu Garcia
veiðivara. Það ætti að tryggja að þú
finnir búnað sem hæfir þér.
Abu Garcia hefur í áratugi verið
. leiðandi í tækniþróun veiðibúnaðar.
Það kemur meðal annars fram í
aukinni notkun á sérlega sterkum
en fisléttum efnum eins og t.d. grafiti í
veiðihjól. Þetta, ásamt góðri hönnun
_ lAbu
Garcia
og útfærslu í smæstu atriðum gerir
Abu Garcia að eftirsóttum veiðivör-
um, enda einstaklega öruggar og
þægilegar í notkun.
Hafnarstræti 5, símar 16760 og 14800
Opið til kl. 19 föstudaga
Opiðfrá kl. 10—16 laugardaga
16. ágúst leggjast dráttarvextir á lán með lánskjaravísitölu.
1. september leggjast dráttarvextir á lán með bYggiflgarvísitöiu.
d^3 HÚSNÆDISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUOURIANDSBRAUT 24 108 REVKJAVÍK SSM! 696900
Sparaðu þér óþarfa útgjöld af dráttarvöxtum.
Greiðsluseðlar fyrir 1. ágúst hafa verið sendir gjaldendum og greiðslur má inna af hendí í öllum bönkum og sparisjóðum landlsins.
fjármálunum áþínu heimili^
Þar með sparar þú óþarfa
útgjöld vegna dráttar-
vaxta, svo ekki sé minnst
á ínnheímtukostnað. I
I
var gjalddagi húsnæðislána, í
Þegar kemur að
afborgunum lána er það
í þínum höndum
að borga á réttum tíma.
agust
Metsölublað á hvetjum degi!