Morgunblaðið - 09.08.1989, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Fækkun
mjólkurbúa
Tillögur þær, sem afurða-
stöðvanefnd hefur lagt
fram um fækkun mjólkurbúa
úr sautján í sjö eru til marks
um, að nýr skilningur er að
vakna meðal þeirra, sem starfa
að landbúnaðarmálum á nauð-
syn mikilla umskipta í þessari
atvinnugrein. Höfundar tillög-
unnar gera ráð fyrir veruleg-
um sparnaði í mjólkurvinnslu
nái tillögur þessar fram að
ganga. Það liggur auðvitað í
augum uppi, að verulegur
samdráttur í mjólkurfram-
leiðslu hlýtur að kalla á að-
gerðir . til þess að aðlaga
vinnslukerfið þeim breyttu að-
stæðum.
Sá breytti hugsunarháttur,
sem lýsir sér í tillögum af
þessu tagi er sérstakt fagnað-
arefni. Ef talsmenn landbún-
aðarins tileinkuðu sér almennt
þá hugarfarsbreytingu, sem
liggur að baki þessum hug-
myndum mundu þeir fljótt
verða þess varir, að skattgreið-
endur væru tilbúnir til að
styðja viðleitni til að ná skyn-
samlegum tökum á aðlögunar-
vanda landbúnaðarins. Það er
tregða og andstaða við sjálf-
sagðar og augljósar breyting-
ar, sem hleypir illu blóði í fólk.
Það er orðið mjög aðkall-
andi að aðlaga undirstöðuat-
vinnuvegi þjóðarinnar, sjávar-
útveg o g landbúnað, gjör-
breyttum þjóðfélagsháttum og
aðstæðum. Þær aðgerðir hefðu
þurft að hefjast fyrir a.m.k.
áratug. Góðærið, sem við
bjuggum við lengst af þennan
tíma olli því, að menn sáu
vanda þessara atvinnugreina
ekki í jafn skýru ljósi og nú.
Þegar saman fer djúpstæður
samdráttur í efnahagslífi okk-
ar og sú staðreynd, að þessar
atvinnugreinar hafa mátt búa
við jákvæða raunvexti í fyrsta
sinn í áratugi, verður ljóst, að
íjárfestingarmistökin eru
gífurleg. Þau munu halda
lífskjörum þjóðarinnar niðri
um nokkurra ára skeið og til
frambúðar, ef ekki verður
brugðizt rétt við.
Þau rök, sem mæla með
fækkun mjólkurbúa eiga áreið-
anlega við um aðrar vinnslu-
stöðvar landbúnaðarins. Vandi
landbúnaðarins er ákaflega
skýr. Framleiðslan er alltof
mikil og vinnslu- og dreifingar-
kostnaður í engu samræmi við
þarfir markaðarins. Á þennan
vanda verður að ráðast. Engir
eru betur færir um það, en
bændur sjálfur og starfsmenn
þeirra í hagsmunasamtökum
landbúnaðarins. Þessir menn
verða hins vegar að gera sér
grein fyrir, að breytingar eru
óhjákvæmilegar og óumflýjan-
legar. Ríkið hefur ekki lengur
efni á því að halda uppi
óbreyttu landbúnaðarkerfi.
Verði gerð tilraun til þess að
skattleggja þjóðina frekar til
þess að halda uppi úreltu land-
búnaðarkerfi og allt of stóru
ríkisbákni rísa skattgreiðendur
upp.
Því miður virðist núverandi
landbúnaðarráðherra,
Steingrímur J. Sigfússon, ekki
skilja nauðsyn breytinga í
landbúnaði. Á þeim mánuðum,
sem hann hefur setið í emb-
ætti hefur hann gerzt einn
helzti talsmaður stöðnunar í
landbúnaði. Þetta er þeim mun
merkilegra, sem landbúnaðar-
ráðherra er einn af þingmönn-
um Alþýðubandalagsins og
ætti að vera annt um hags-
muni launþega í þéttbýli ef
marka má áróður þess flokks,
sem hann er fulltrúi fyrir. En
svo virðist ekki vera. I stuttu
fréttasamtali við Morgunblað-
ið sl. laugardag virtist ráð-
herrann ekki sjá neitt athuga-
vert við það, að skattgreiðend-
ur greiði útflutningsuppbætur
með hrossakjöti og hann telur
sjálfsagt, að skattgreiðendur
leggi fram fé til þess að standa
undir kanínurækt í landinu!
Þegar forpokuð afturhalds-
sjónarmið af þessu tagi ráða
ferðinni í landbúnaðarráðu-
neytinu er ekki við góðu að
búast. En m.a. orða: hversu
lengi ætlar Alþýðuflokkurinn
að sætta sig við þessa stöðnun
í landbúnaðinum? Talsmenn
þessa flokks hafa í áratugi
krafizt breytinga í þessari at-
vinnugrein. Nú sýnist Alþýðu-
flokkurinn tilbúinn til að leggja
það baráttumáítil hliðar. Hvað
veldur?
En hvað sem dægurpólitík-
inni líður er alveg ljóst, að
breytingar í landbúnaðinum
verða ekki umflúnar. Tillögur
afurðastöðvanefndar eru sér-
stakt fagnaðarefni, ekki sízt.
vegna þess, að þær eru
vísbending um hugarfars-
breytingu í landbúnaðinum
sjálfum.
VERSLUNARMANNAHELGIN
Metaðsókn á mörgu
hátíðum og tjaldsva
Unglingarnir flestir í Húnaveri og Þórsmörk
Gestir ornuðu sér við varðeld í Vík.
GERA má ráð fyrir að hátt í
40.000 manns hafi gist í tjöldum
um verslunarmannahelgina,
flestir í Herjólfsdal, Skaftafelli,
Þórsmörk, Galtalæk og Húna-
veri. Astæðan fyrir miklum
ferðamannastraumi um suður-
landið telja menn vera góða veð-
rið sem þar var spáð um helgina.
Mótshald fór yfírleitt vel fram
að sögn þeirra sem að mótshaldi
stóðu. Engin meiri háttar slys
urðu á fólki á tjaldsvæðum ef frá
eru talin nokkur beinbrot.
Ekki búist við svo mörgum
í Húnaver
Ein fjölmennasta útihátið versl-
unarmannahelgarinnar var í Húna-
veri, en þangað komu hátt í 7000
manns að því er talið er. Flestir
voru á aldrinu 16-19 ára og ölvun
áberandi.
Gæsla á svæðinu í Húnaveri var
í höndum lögreglunnar á Blöndu-
ósi, sem fékk aðstoð frá lögregl-
unni á Siglufirði, Akureyri og
Reykjavík. Þegar ljóst var á föstu-
dagskvöld að fjöldi mótsgesta ætl-
aði að fara iangt fram úr því sem
búist hafði verið við þáði lögreglan
á Blönduósi frekari liðsauka frá
Akureyri og Reykjavík, að sögn
Kristjáns Þorbjörnssonar, varð-
stjóra á Blönduósi. En þá hafði
dómsmálaráðuneytið farið fram á
það við lögregluna á Akureyri að
hún byði fram frekari aðstoð. Einn-
ig kom Magnús Einarsson aðstoðar-
ýfirlögregluþjónn norður frá
Reykjavík að beiðni dómsmálaráðu-
neytisins. „Hann var ekki kominn
til að stjórna, sagði Kristján heldur
vegna þeirrar reynslu sem hann
hefur af skipulagningu gæslu. Að-
stoð hans var vel þegin, en hann
fór aftur suður á sunnudagsmorg-
un.“ Ásamt lögreglunni sáu björg-
unarsveitarmenn um gæslu á svæð-
inu og féiagar í Sniglunum.
Áfengisleit óþörf
„Það hefði verið óvinnandi fyrir
okkur að leita að áfengi hjá ölíum
þessum fjölda,“ sagði Kristján að-
spurður um þá umræðu sem verið
hefur i fjölmiðlum um mikla öivun
á svæðinu. „Áfengi var aftur á
móti tekið af þeim sem voru að
sveifla flöskum og því hellt niður
að eigandanum viðstöddum." Jón
ísberg sýslumaður sagði að ekki
hefði verið talin ástæða til að leita
að áfengi á mótsgestum, enda
tíðkaðist slíkt ekki.
Engin meiri háttar slys urðu á
fólki í Húnaveri, en að sögn Ómars
Ragnarssonar læknis leytuðu ná-
lægt 400 manns í sjúkratjaldið.
Fyrir utan eitt ökkla- og handleggs-
brot var aðallega um að ræða skurði
í andliti og á fótum eftir glerbrot
og áverka eftir högg eða spörk í
andlit. Þegar Kristján Þorbjörnsson
lögregluþjónn var inntur nánar eft-
ir þessu með spörkin sagðist hann
halda að þar hefði verið á ferðinni
ákveðinn hópur eða jafnvel einn
maður, en vildi ekki tjá sig um það
nánar. Sagðist annars ekki hafa
orðið var við nein meiri háttar slags-
mál, aðeins smá pústra.
Upp komu tvö tilfelli um meinta
nauðgun á svæðinu, en þau höfðu
ekki verið kærð til lögreglu í gær.
Hreinlætisaðstaða var ekki nóg
til að anna öllum fjöldanum og taldi
Kristján Þorbjörnsson skýringuna
vera þá að ekki hefði verið búist
við svo mörgum.
Tjöld og svefnpoka eru í hundr-
aða tali í óskilum í Húnaveri eftir
heigina að sögn Kristjáns, mest af
því ómerkt og því ekki nokkur veg-
ur fyrir lögregluna að koma því
öllu í réttar hendur. Þeir sem sakni
einhvers verði því helst að bera sig
eftir eigum sínum sjálfir.
Vel heppnað mót í Galtalæk
Svipaður fjöldi og í Húnaveri, eða
hátt í 7000 manns, var í Galtalækj-
arskógi um verslunarmannahelgina
á bindindismótinu sem þar var hald-
ið. „Þetta er metaðsókn ef frá er
talið mótið árið 1975, sagði Karl
Helgason mótsstjóri í samtali við
Morgunblaðið. Allt fór vel fram
enda flestir mótsgestir fjölskyldu-
fólk komið til að taka þátt í
skemmtuninni og njóta dvalarinnar
í fögru umhverfi.“
Nokkrir urðu þó til að setja blett
á mótið. Ungingar á aldrinum 16-18
ára voru fleiri en venjulega og
nokkru ami af þeim, að sögn Karls.
Þeir höfðu komist með áfengi inn
á svæðið þrátt fyrir leit og einnig
Séð yfir mótssvæðið í Húnaveri.
Vestmannaeyjar:
Fjölmem
heppnuð]
Skreytingarnar skemn
Vestmannaeyjum.
ÞJÓÐHÁTIÐIN í Vestmannaeyjun
vel fram, að sögn lögreglunnar í
hátíðinni og skemmtu sér vel í ág;
Þjóðhátíðin hófst eftir hádegi á
föstudag og stóð fram á mánudags-
morgun. Þijár hljómsveitir sáu um
tónlistarflutning á dansleikjunum
og fjöldinn allur af skemmtikröftum
sá um að skemmta hátíðargestum.
Að sögn lögreglunnar í Eyjum
er hátíðin einhver sú rólegasta sem
menn muna eftir. Litið var um að
lögreglan þyrfti að hafa afskipti af
fólki og mjög fáir gistu fanga-
geymsfur lögreglunnar um helgina.
Lítið var um þjófnað og mjög lítið
fannst af fíkniefnum, þrátt fyrir
strangt eftirlit.
Veður um heigina var ágætt til
hátíðarhalda. Logn og heitt í veðri
fram til sunnudags en þá fór að
kalda dálítið. Aðfaranótt mánudags
var kominn strekkings vindur, en
Húnaver:
Fótbrotnaði á föstudegi -
meðhöndlaður á mánudegi
EKIÐ var á sautján ára pilt á
bílastæði á samkomusvæðinu við
Húnaver um miðnætti á föstu-
dagskvöld. Pilturinn meiddist á
fæti og var þjáður um helgina
en hélt þó kyrru fyrir í Húnaveri.
Hann kom heim til sín í Reykjavík
á mánudag og fór þá á slysadeild
Borgarspítralans. Þar leiddi rann-
sókn í ljós að hann var fótbrotinn.
Ekki er vitað hver ók á piltinn en
um er að ræða dökkan fólksbíl.
Ökumaður hans eða vitni að
óhappinu eru beðin að snúa sér til
slysarannsóknadeildar lögreglunn-
ar í Reykjavík.