Morgunblaðið - 09.08.1989, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989
37
Daisy Hill hefur ekki leikið nema
á einum tónleikum síðan að platan
kom út, en þeir tónleikar voru mis-
lukkaðir fyrir vömm skipuleggj-
enda. Platan hefur svo ekki verið
leikin í útvarpi utan að hún er stöku
sinnum leikin á Eff emm og á Rás
2. Umsjónarmaður Rokksíðu hitti
að máli tvo Hundabúgarðsdrengi
til að forvitnast um Spraycan og
sveitina sjálfa.
> i/
VI/.4 FYKJK CJAUMMCA
"i. ■
'1 %1
■ ■
/\.V/.1Í XV \ CjAlJMf.U.
A-Rll
HjáVBB starfa nú 9 ráðgjafar og
hver og einn þeirra getur gefið þér
upplýsingar um Verðbréfa-
bókina og alla aðra þjónustu VIB. Þú
getur komið við á skrifstofunni í
Armúla 7 eða hringt og fengið upp-
lýsingabæklinga mn þjónustu okkar
senda hebn.
Verið velkomin í VIB.
Hvemig er hægt aö bæta
við lífeyrisréttindin?
Halda raunvextír áfram að lækka?
Veita öll verðbréfafyrirtækin sömu
þjónustu? Er hagstætt að íjárfesta í
hlutabréfum? Hvað þýða vaxtábætur
fyrir húsbyggjendur?
Mánaðarfréttir VIB flytja þér í
hveijum mánuði ítarlegar upplýsing-
ar um það sem efst er á baugi í ijár-
málum hveiju sinni. Þar er einnig
yfirbt um verðbréf, verðbréfasjóði og
ávöxtun þeirra sem og upplýsingar
um verðbólgu. Reglulega eru send
fylgiblöð með Mánaðarfréttunum
þar sem t.d. er fjallað um almenn-
ingshlutafélögin og hlutabréf þeirra.
Mánaðarfréttimar fást í áskrift hjá
VIB og kosta 65 kr. á mánuði.
Verðbréfabókin fæst í afgreiðslu
VIB að Armúla 7 og henni fylgir
áskrift að Mánaðarfréttum VIB fram
til áramóta.
VERÐBREFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30
hafa 3 skólastjórar verið við skólann
og ótaldir kennarar, og er mér
óhætt að fullyrða að Jóhann hefur
notið virðingar þeirra allra og vin-
sælda jafnt af samkennurum sem
nemendum. Á heimili þeirra Ingu
Hrefnu og Jóhanns var jafnan gott
að koma, þar ríkti glaður andi og
góður og þau hjón hafa átt því láni
að fagna sem öðru láni er meira,
en það er barnalán. Þau hafa eign-
ast 5 börn, þar af tvenna tvíbura.
Börn þeirra Jóhanns og Ingu
Hrefnu eru Orri, f. 1956, Asta Sif
og Óttar, f. 1957, og Heiðbjört og
Helena, f. 1960. Af fyrra hjóna-
bandi á Jóhann einnig einn son,
Jóhann, f. 1951, starfsmann
Reykj avíkurborgar.
Margt er það sem rennt hefur
stoðum undir þeirra farsæla hjóna-
band, Ingu Hrefnu og Jóhanns,
þótt börnin verði þar að sjálfsögðu
fyrst að telja. Þau hafa alla tíð átt
sameiginleg áhugamál og lík við-
horf í þjóðfélagsmálum, verið rót-
tæk og vinstrisinnuð. í upphafi 7.
áratugarins reyndu ýmsir mætir
menn að sameina vinstri sinnað
fólk á Seyðisfirði í sameiginlegu
framboði til bæjarstjórnar og tókst
það á tímabili og var Jóhann í þeim
hópi. Þau nefndust Samtök vinstri-
manna og óháðra og fengu hægt
andlát eftir skamma hríð. Gekk þá
Jóhann til liðs við Alþýðubandalag-
ið og var 'á árunum 1970-1982
ýmist fulitrúi eða varafulltrúi í
bæjarstjórn á Seyðisfirði. Á þessum
árum hefur hann einnig unnið mörg
nefndarstörf fyrir bæjarfélagið,
bæði sem skólanefndarmaður o.fl.
— En hvað sem líður pólitík og fé-
lagsmálum Jóhanns þá er það hafið
yfir allan vafa að hann nýtur vin-
áttu og vinsælda allra þeirra er
honum hafa kynnst, því þeir eru
mannkostir hans og fáir honum
trygglyndari og vinfastari. Á þess-
um tímamótum á ævi hans færi ég
honum þakkir mínar og ijölskyldu
minnar fyrir tryggð hans og vináttu
alla og vona að komandi ár verði
sveipuð þeirri sömu birtu sem um
okkur lék febrúardaginn forðum er
við héldum yfir Fjarðarheiði upp á
Hérað á vit sólarinnar og góðra
vina.
Rögnvaldur Finnbogason
sóknarprestur, Staðastað.
Ræðum nú um plötuna.
Segja má að þessi plata sé það
fyrsta almennilega sem við gerum;
í það minnsta er þetta mun betri
plata en sú fyrri. Síðast þegar við
fórum í hljóðver vissum við ekkert
hvað við vildum, bara mættum og
spiluðum, en nú vissum við ná-
kvæmlega hvað við vildum með
hvert lag og þó ekki hafi allt orðið
eins og ætlað var, var allt gert að
vel íhugu máli.
Það teljast vart mikil afköst
hjá sveit að gefa ekki út nema
flögur lög á ári.
Við semjum bara ekki meira.
Þetta eru eiginlega einu lögin sem
við höfum samið á árinu og það er
ekki hægt að gefa út meira en
maður semur.
Það verður þá bið eftir LP-
plötu.
Það verður ekki á næstu árum,
við höfum ekkert með það að gera.
Við gefum frekar út nokkrar 12
tommur, en það verður ekki eins
langt á milli næst.
Mér finnst merkjanleg stefiiu-
breyting í tónlistinni; það beri
meira á gítarnum.
Það ber nú ekki mikið meira á
gítarnum, því hann er miklu lægri.
Helsta breytingin er líklega sú að
við kunnum betur á hljóðfærin.
Þetta er allt mjög einfalt hjá
okkur en þetta er „heavy metal“,
Youngblood t.a.m. Það er skrítið
að fólk hafi ekki minnst á það
meira.
Þið sögðuð um síðustu plötu
að þetta væri bara popp.
Þetta er ennþá popp, en poppst-
impillinn á ekki við allt sem við
höfum gert. 17 er t.d. eitt af elstu
lögunum okkar og er mjög þungt.
Við höfum alltaf spilað þung lög
líka.
Breytir það ekki lagasmíðun-
um að þið hafið betra vald á
hljóðfærunum?
Það eru nú sjaldnast notaðir fleiri
en 3 hljómar í lagi, 4 hljómar í einu
lagi. Fyrri platan var miklu flókn-
ari, meiri kaflaskifti og mollhljóm-
ar. Það er enginn mollhljómur á
Sprayean. Lögin verði altaf einfald-
ari og einfaldari hjá okkur. Bráð-
lega verða þau bara ein nóta.
Kynning á plötunni hefúr verið
með minnsta móti, hér á landi
og í Bretlandi.
Við erum að fara í gang núna,
en útgefandinn breski hefur tekið
því rólega lika, þar hafa selst
kannski 10 eintök. Þetta er frábær
plata og þeir eru bara heimskir sem
ekki kaupa hana ekki.
Þetta er frábær plata
§ | Q |^| Daisy Hill á útgáfútónleikum i Casablanca.
Ljósmynd/BS
Nokkuð er um liðið síðan Da- Spraycan. Fyrsta platan, sjö-
isy Hill Puppy Fram sendi frá sér tomma sem á voru fjögur lög,
aðra plötu sína, tólftommuna þeirra á meðal Blondie-lagið góð-
kunna Heart of Glass, vakti á
sveitinni nokkurn áhuga hér á
landi sem og í Bretlandi. Ekki
hefúr borið eins á Spraycan, þó
sú plata sé í flestu mun betri en
sú fyrri.