Morgunblaðið - 09.08.1989, Síða 38
38
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
ViÖburðaríkt ár
Það er óhætt að segja að
næsta ár verði viðburðaríkt
hjá Krabbanum (21. júní til
22. júlí), því margar sterkar
afstöður verða á Sólina frá
Júpíter, Satúmusi, Úranusi og
Neptúnusi.
Vinnutímabil
Afstaða Satúmusar á Sól
þeirra sem eru fæddir frá 27
júní til 16. júlí getur táknað
margt, en algengast er að
henni fylgi aukið raunsæi,
jarðbundnari viðhorf, þörf fyr-
ir sjálfsaga og áþreifanlegan
árangur. Satúmus kallar yfir-
leitt á vinnu og því má kalla
þetta vinnutímabil. Satúrnus
hægir á lífsorkunni og leiðir
gjaman til sjálfsskoðunar og
raunsæs endurmats. Ef fyrra
lífsmunstur hefur verið
óraunsætt getur tímabil Sat-
úrnusar verið óþægilegt, ein-
kennst af hömlum, árekstmm
og samdrætti, en getur jafn-
framt leitt til þess að viðkom-
andi vaknar upp. Eigi að síður
má segja að yfirvegun, skipu-
lag og geta til að ná áþreifan-
legum árangri aukist.
Byltingar
Úranus verður á Sól þeirra
sem era fæddir frá 23. júní
til 1. júlí. Sú orka kallar á
þörf fyrir nýjungar og uppbrot
á gömlu formi. Þegar Úranus
er sterkur vaknar þörf fyrir
aukið sjálfstæði, spennu og
breytingar. Það gamla góða
verður ekki lengur fullnægj-
andi, né heldur vani og hefð-
bundið lífsmunstur.
Uppstokkun
Þar sem Satúmus og Úranus
verða báðir á Sól hjá þeim
Kröbbum sem fæddir era frá
27. júní til 1. júlí ætti árið að
einkennast af raunsæi, vinnu
og breytingum. Þeir Krabbar
sem fæddir era síðar í merkinu
koma til með að fá þessa orku
inn í líf sitt á næstu áram.
Úranus er 7 ár í merki og
Satúmus 2'/2 ár. Það táknar
að nú er að byija 7 ára breyt-
ingartímabil hjá Kröbbum,
breytingar sem munu taka 1
til 2 ár hjá hveijum einstakl-
ing.
Neptúnus
Þriðja plánetan sem verður
sterk í lífi Krabbans er Nept-
únus. Orka hennar verður
áberandi hjá þeim sem era
fæddir frá 1. til 6. júlí.
Nœmleiki
Neptúnusi fylgir yfirleitt auk-
inn næmleiki og opnun gagn-
vart lífinu og tilverunni.
ímyndunaraflið verður sterk-
ara en áður og áhugi á listum
og andlegum málum eykst.
Það verður þó að segjast að
allir era ekki opnir fyrir göf:
ugri hliðum Neptúnusar. í
sumum tilvikum kallar hann á
sókn í áfengi eða draumlyndi
sem birtist í þörf fyrir það að
horfa á sjónvarp og lifa í
óraunveralegum heimi. Þar
sem Satúmus verður einnig
sterkur má búast við að um
einhveija togstreitu verði að
ræða, eða baráttu milli
drauma og jarðbundins raun-
sæis. Hið jákvæða er að orka
Neptúnusar gefur viðkomandi
Kröbbum tækifæri til að auka
andlegan þroska sinn og
llfeskilning.
Þensla
Fyrir viku fór Júpíter inn í
Krabbamerkið. Veturinn
1989-1990 og árið 1990 verð-
ur því tími þenslu og nýrra
sjóndeildarhringa. Þegar á
heildina er litið þurfa Krabbar
því ekki að búast við rólegri
tíð á næstunni. Þeir verða í
miðju atburðanna og þurfa að
fara varlega, því margt togast
á en jafnframt geta þeir afrek-
að margt á komandi tíma.
MQRGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989
GARPUR
pBTTA BRRBTTHJÁ U£PU■
ÞABBG EITTHV/IBSV&ðG DUU
/tRfVLirM FEfZDIKIUI HÉ!?.
APAM TAíHDU VIÐDKOT7MIN<3-
OHA- 0PR.1. HniYiDU Mes> __—r
O'leUZu'AFSAKADUAD V/£> 1
Tf&rum, vdar hatign
, euÞ&SAR reeiA eR-> mur-
f VER& SÍHUSEM HÖniexSfABUR
VEfíÐA A LUR AE> HU/DA
SklPUNUM HENHAR!
SKÖMMU SEINNA iSVEFNHEfZ-
BER&t PROTTNINGAfZT
E<3 VEITAD fíS
VAR MEÐ ÞÁ A
BALUNU iSiB
US-nj VtkU
MA/V/VA ■■■SEGDd
ÞAÞ EKJCl- - HLUTt
IAT; S/CARTGR.IPUAI
þlKIUIM Se -*■
tVanv/p 1 H
BRENDA STARR
hANN gbtur
e*aa glbvaat
Fy&RWEfíA ND/
KONUSlSJMI.
HANN ER £NN
■Svo SHor/UN /
HENfM, EM
/Vnrv/LLHANN
EKKBRX SEGJA
/VleR. UM HANA
St/t/ EINUS/M
AIAFN fiENNAi
I HÆTT/Ð Þessuslúdrj, stelpur
V/Ð VE&DUM AB VeRA REIDU8O1N 1
T/L ADVteiTA Kóœ/NUP) AZ>HUN<p-\
i..ui.i...:ii...i..■........ 1 111 ~ --------
SMAFOLK
I KEEP TRACK 0F ALL THE
PEOPLE WHO PIPN'T 5ENP ME
A CHRlSTMAS CARP, ASIP THEKI I
HOLP A GRUP6E AéAlSIST THEM..
Ég held skrá yfír allt fólk sem sendi
mér ekki jólakort og er svo í fylu
við það ...
Þú virðist hissa ...
Bíddu þangað til ég sýni þér listann
yfir fólk sem sendi mér engar gjafir!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þeir voru fáir sagnhafarnir
sem unnu 4 hjörtu í suður eftir
tígulgosann út. Spilið er fra EM
í Turku. í leik íslands og ísrael
fór Birman 2 niður gegn Þorláki
Jónssyni og Guðmundi P. Arnar-
syni, en á hinu borðinu unnu
Valur Sigurðsson og Jónas P.
Erlingsson þijú grönd eftir
þægilega vöm.
Vestur gefur; allir á hættu.
Vestur
♦ 1062
¥ 10854
♦ G9
♦ D1095
Norður
♦ ÁD8743
¥9
♦ 8753
♦ 72
Austur
♦ K95
¥Á7
♦ KD1062
♦ 643
Suður
♦ G
¥ KDG632
♦ Á4
+ ÁKG8
Eftir opnun Þorláks í þriðju
hendi á 1 tígli stökk Birman
beint í 4 hjörtu og þar við sat.
Hann dúkkaði síðan tígulgos-
ann, fékk næsta slag á tígulás,
tók svo ÁK í laufi og trompaði
lauf. Eftir þessa byijun missti
hann vald á spilinu og gaf 3 slagi
á tromp.
Lena Karrstrand í sænska
kvennaliðinu fann betri áætlun.
Hún drap strax á tígulás og
spilaði spaðagosa. Vestur lét
lítinn spaða umhugsunarlaust,
svo Lena stakk upp ás og tromp-
aði spaða. Spilaði svo laufi þrisv-
ar og trompaði í blindum. Aftur
trompaði hún spaða heim og
spilaði sig síðan út á tígli:
Norður ♦ D87 ¥ — ♦ 87 ♦ -
Vestur Austur
♦ - ♦ -
¥ 10854 II ¥ Á7
♦ - ♦ KD10
♦ D Suður ♦ - ¥ KDG6 ♦ - ♦ G ♦ -
Austur var inni og hélt auðvit-
að áfram með tígulinn. Lena
stakk hátt og losaði sig út á
laufgosa. Austur gerði sitt besta
með því að trompa laufdrottn-
ingu makkers og spila enn tígli.
En Lena var með stöðuna á
hreinu, trompaði hátt og spilaði
hjartasexunni.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á móti í Tmava í Tékkóslóv-
akíu um daginn kom þessi staða
upp í skák alþjóðlegu meistaranna
Ostenstad, Noregi, og Stohl,
Tékkóslóvakiu, sem hafði svart
og átti leik. Hvítur lék síðast 27.
cxd5?
27. - Hxfl+!, 28. Kxfl - Dg3!
og hvítur gafst upp.