Morgunblaðið - 09.08.1989, Page 39
.M()UGUNÍ5L\D1D MU)V1KU0ACUK 9. ÁGÍ'ÍST.'l'iíl'Í ... ............ 39
Sólveig Ólafs-
dóttir - Minning
Kveðja frá barnabörnum
Fædd 23. febrúar 1896
Dáin 2. ágúst 1989
I dag, miðvikudaginn 9. ágúst,
er kvödd hinstu kveðju elskuleg
amma okkar, Sólveig Ólafsdóttir,
en hún lést-á Borgarspítalanum
2. ágúst eftir rúmlega tveggja
mánaða legu þar.
Hún fæddist á konudaginn 23.
febrúar 1896 á Hrófbjargarstöð-
um í Kolbeinsstaðahreppi í norðan-
verðum Hítardal. Foreldrar hennar
voru Guðbjörg Benjamínsdóttir frá
Hrófbjargarstöðum og Ólafur Vig-
fússon. Eignuðust þau 9 börn sem
öll eru nú látin. Sólveig var þar
sjöunda í röðinni. Þijú af þeim dóu
í bernsku, þar af tveir bræður í
desembermánuði aldamótaárið.
Var sá atburður ömmu okkar mjög
minnisstæður. Á lífi er uppeldis-
bróðir og systursonur ömmu, Ólaf-
ur Magnússon, sem ætíð hefur
verið henni mjög kær.
Þegar horft er yfir náttúru
Hítardals og Borgaríjarðar þar
sem amma okkar fæddist og ólst
upp, snertir mann fegurð Ijallanna
og jöklanna sem sjást þegar
heiðskírt er. Þegar sú sem þetta
skrifar var fyrir nokkrum árum
að kanna frumbernskuslóðir
ömrnu í Hítardal skildi maður fyrst
frásagnir hennar frá bernskudög-
um.
Þessi mikla fegurð og hlýja þeg-
ar sólin skein í heiði og Ijallahring-
urinn þröngi skýldi fyrir vindum
og huldufólk í leynum í hólum og
steinum. Erfitt hefur það verið að
búa á slíkum stað, þegar vetrar-
veðrin geisuðu og hríðin var dimm,
því Hítará hefur ekki alltaf verið
auðveld yfirferðar, yfir hana þurfti
oft að sækja björg í bú.
Það mun hafa verið árið 1904
er amma var 8 ára að foreldrar
hennar fluttust að bænum Lækjar-
koti í Borgarhreppi, sem þau höfðu
fest kaup á og bujggu þar rausnar-
búi. Þar ólst hún upp á mann-
mörgu heimili sem alltaf stóð öll-
um opið, ekki síst þeim sem minna
máttu sín.
Um tvítugsaldurinn yfirgaf
amma æskuheimilið sitt og fluttist
til Reykjavíkur og vann þar m.a.
í fiskvinnu og við ýmis þjónustu-
störf í nokkur ár. Til eru mjög listi-
lega fallega unnir munir sem hún
gerði á þessum árum, því hann-
yrðakona var hún mikil á meðan
heilsa hennar leyfði.
Afa okkar, Árna Erasmussyni,
kynntist amma árið 1924. Hann
fæddist á Syðri-Steinsmýri í Með-
allandi ,8. apríl 1880. Foreldrar
Minning’:
^ ____
Oskar Guðmunds-
son9 fyrrum bóndi
Fæddur 2. ágúst 1905
Dáinn 29. júlí 1989
Afi í Traðarkotssundi, eins og
við systur kölluðum hann, verður
jarðsettur í dag.
Þegar við systur fæddumst voru
afi og amma flutt til Reykjavíkur,
í Traðarkotssund 3. Traðarkots-
sundið er nánast í miðri Reykjavík
enda var aldrei farið í bæinn, að
ekki væri komið við hjá afa og
ömmu. Þangað komu systkini
mömmu og þeirra börn. Og líka
fólk úr sveitinni, þar sem afi og
amma bjuggu.
Allir sem komu urðu að fá kaffi
og kökur, en krakkarnir mjólk.
Meðan afi var hraustur var hann
oftast að smíða niðri í kjallara.
Þangað var gaman að koma og
skoða alls konar verkfæri, gömul
og ný. Afi taldi heldur ekki eftir
sér að smíða handa okkur dúkku-
rúm, rólur, sleða og ýmislegt ann-
að.
Svo var afi alltaf að segja sögur
og fara með gamlar vísur. Afi kom
líka oft til okkar í Garðabæinn á
honum Gána sínum, en svo var
gamli jeppinn hans kallaður. •
En fyrir sjö árum fékk afi þann
sjúkdóm sem hann lést úr. Síðustu
tvö ár var afi alveg rúmfastur, en
var heima hjá ömmu, sem annað-
ist hann af alúð og nærgætni.
Síðustu vikurnar var afi svo í
Landskotsspítalanum í Reykjavík
þar sem hann andaðist.
Við systurnar þökkum elsku afa
okkar fyrir allar góðu stundirnar,
og minnumst hans með þakklæti.
Freydís og Berdís
Örlygsdætur
hans voru Margrét Jónsdóttir frá
Leiðvöllum og Erasmus Árnason
frá Botni í Meðallandi. Hann var
húsasmíðameistari og vann við
húsabyggingar í hálfa öld. Einnig
var hann hagyrðingur góður. eftir
hann kom ljóðakverið „Flugur“
árið 1939 og kafli í Vestur-Skaft-
fellskum ljóðum árið 1962, auk
þess eru til eftir hann ógrynni ljóða
sem ekki hafa birst á prenti.
Afi og amma bjuggu allan sinn
búskap í Reykjavík. Heimili þeirra
var mannmargt því afi var með
marga menn í vinnu og lærlinga
í húsasmíðum, hafði amma því
marga kostgangara. Þau eignuð-
ust tvö börn, Guðjón Atla fæddan
18. júní 1927. Hann lést 1976
barnlaus en sambýliskona hans,
Engilberta Sigurðardóttir, lést árið
1975. Eftirlifandi er dóttirin Ársól
Margrét fædd 19. júlí 1928. Eigin-
maður hennar er Björn Sigurðsson
frá Efstadal í Laugardal, eignuð-
ust þau 4 börn. Alls eru afkomend-
ur orðnir 16 talsins.
Við systkinin urðum þeirrar
gæfu aðnjótandi að hafa afa og
ömmu til staðar á heimilinu, þar
sem foreldrar okkar hófu búskap
í húsi afa og ömmu, síðan þegar
foreldrar okkar fluttu í hús sitt í
Sólheimum 44 fluttu afi og amma
þangað líka. Þegar afi lést 3. októ-
ber 1963 bjó amma áfram á heim-
ilinu og alla tíð síðan.
Amma var mjög hæglát kona
og vel gerð og hafði einstaklega
gott lundarfar, því aldrei sást hún
skipta skapi eða finna að við neinn.
Hún leiðbeindi, með sinni miklu
þolinmæði. Hún tók öllu and-
streymi á sinn hljóða og hægláta
hátt. Návist við hana veitti manni
ætíð frið og ró. Hún var mjög trú-
uð kona og ræktaði trú sína vel.
Fyrir utan það að fyigjast með
öllu trúarlegu efni í ijölmiðlunum
las hún mikið Passíusálmana og
Sálmabókina og kunni mikið af
sálmum, einnig ógrynni af kvæð-
um og þulum. Margt af því kenndi
hún okkur barnabörnunum og
seinna barnabarnabörnunum.
Einnig kenndi hún okkur margar
fallegar bænir. Gott þótti okkur
að leita til hennar með heimalest-
urinn, því hún hafði alltaf nægan
tíma. Þrátt fyrir háan aldur fylgd-
ist hún vel með fjölmiðlum og þjóð-
málin voru hennar áhuga- og
áhyggjuefni. Þakklæti var alltaf
efst í huga hennar fyrir allt sem
var gert fyrir hana. Hún bar mikla
umhyggju fyrir sínum nánustu og
allt til dánardægurs hugsaði hún
til þeirra og bað fyrir þeim, því
andleg heilsa hennar hélst þótt
líkaminn væri þrotinn að kröftum.
Við kveðjum elskulegu ömmu
okkar með virðingu og miklu
þakklæti fyrir allt sem hún var
okkur öllum. Við munum varðveita
í hjörtum okkar allt sem hún
kenndi okkur og börnum okkar
og miðla öðram af því. Hennar
verður sárt saknað. Við kveðjum
hana með bæninni sem afi okkar
samdi og henni þótti svo vænt um:
Góði Jesús, veg mér vísa,
veikan styrk minn andans þrótt.
Kærleiks geisla láttu lýsa
lífi mínu dag og nótt,
vetur, sumar, vor og haust.
Vertu hjá mér endalaust.
Gefðu síðast frið ég finni,
frið í dýrðar birtu þinni.
(Ámi Erasmusson)
Fari hún í friði.
Margrét
t
Eiginmaður minn,
ÓLAFURTH. ÓLAFSSON
vélstjóri,
er lést 31. júlí verður jarðsunginn frá Fosvogskirkju fimmtudaginn
10. ágúst kl. 10.30.
Laufey Ásgeirsdóttir,
Hólmfríður Kragh,
Kristján Ólafsson,
Sigriður Mackenzie,
Erlendur Steinar Ólafsson,
Bergþóra Halldórsdóttir.
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
Sólstofur - Svalahýsi
Islensk framleiðsla
úr viúhaldsfríu PVC-efni:
Rennihurðir
útihurdir
fellihurdir
rennigluggar
gluggar
skjólveggir
o.m.fl.
eHrert víðhald_
ailtafsem ný«
:=T=þQluggar og Gardhús hf.
Smiðsbúð 8, 210 Garðabæ, sími 44300.
w
Blombera
eldavélar - úrvals
vestur-þýskt merki.
5 gerðir - 5 litir.
Hagstætt verð.
Góð greiðslukjör.
Einar Farestveit&Co.hf.
BORQARTÚNI28, SÍM116996.
Lelð 4 stoppar við dymar
Lausnin
fyrir
lagerinn
STAKAR HILLUR EÐA
HEIL HILLUKERFI
Lagerinnþarfaðverarétt
skipulagöur til
að rétt nýting náist fram.
Kynntuþérmöguleikana
sem við bjóðum.
LAGERKERFIFYRIR
VÖRUBRETTI
Mjög hentugt kerfi og sveigjanlegt við
mismunandi aðstæður. Greiður
öðgangur fyrir lyftara og vöruvagna.
STÁLHILLUR FYRIR
SMÆRRIEININGAR
Níðsterkarog
hentugar stálhillur.
Auðveld
uppsetning.
Margarog
stillanlegar stæröir.
Hentar nánast
alisstaðar.
UMBOÐS ■ OB HEILDVERSLUNIN
BlLDSHÖFÐA 16SÍMI6724 44 TELEFAX672580