Morgunblaðið - 09.08.1989, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989
+ Móðir okkar,
INGVELDUR ÁSTGEIRSDÓTTIR
frá Brúnastöðum,
lést 6. ágúst. Útför hennar fer fram frá Hraungerðiskirkju föstu-
daginn 11. ágúst kl. 14.00. Börnin.
+
Eiginmaður minn,
ÓSKAR GUÐMUNDSSON,
fyrrum bóndi á Brú, Biskupstungum,
síðast til heimilis í Traðarkotssundi 3, sem andaðist 29. júlí, verð-
ur jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, miðvikudaginn 9.
ágúst kl. 13.30. Jarðsett verður i kirkjugarðinum í Gufunesi. Blóm
og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hins látna er
bent á Landakotsspítala.
Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna, barnabarna og barnabarna-
barna,
Marta Einarsdóttir.
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ÁGÚSTÍNU EIRÍKSDÓTTUR,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. ágúst kl. 15.00.
Anna Steinunn Sigurðardóttir,
Flosi Hrafn Sigurðsson, Hulda Sigfúsdóttir,
Ágústa Flosadóttir, Sigurður Flosason.
+
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
SÓLVEIG ÓLAFSDÓTTIR,
Sólheimum 44,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, 9. ágúst, kl. 13.30.
Ársól M. Árnadóttir, Björn Sigurðsson,
Margrét Björnsdóttir,
Sigurður Björnsson,
Ólaffa Björnsdóttir,
Sólveig Björnsdóttir
og fjölskyldur þeirra.
+
Faðir okkar og tengdafaðir,
KARLKVARAN
listmálari,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 10.
ágúst kl. 13.30.
Ólafur Kvaran, Anna Soffía Gunnarsdóttir,
Gunnar B. Kvaran, Danielle Kvaran,
Elfsabet Kvaran, Helgi Haraldsson.
+
Hjartkær eiginmaður minn, tengdasonur, faðir, tengdafaðir, afi,
langafi og bróðir
GUÐMUNDUR ÓLAFUR GUÐMUNDSSON
vélvirki,
Skarðshlíð 38F,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju, föstudaginn 1 1. ágúst nk.
kl. 13.30.
ingibjörg Tómasdóttir, Sóley Sveinsdóttir,
Sólveig Guðmundsdóttir, Jón Hallgrímsson,
Tómas Guðmundsson, Rebekka Björnsdóttir,
Sigurlaug Guðmundsdóttir, Hermann Jónsson,
Guðmundur Guðmundsson, Helga Ásgeirsdóttir,
Sóley Guðmundsdóttir, Ævar Pálsson,
Kjartan Guðmundsson,
barnabörn, barnabarnabarn og systkini hins iátna.
Fanney Magnús-
dóttir — Minning
Fædd 14. september 1914
Dáin 28.júlí 1989
Fanney Magnúsdóttir húsfreyja
Drápuhlíð 44 í Reykjavík lést á
Landspítalanum föstudaginn 28.
júlí síðastliðinn. Útför hennar fór
fram frá Langholtskirkju þriðjudag-
inn 8. ágúst að viðstöddu fjöl-
menni. Fanney Magnúsdóttir fædd-
ist 14. september 1914 á Halllkels-
staðahlíð í Hnappadal. Hún var lang
yngst níu systkina, dóttir hjónanna
Sigríðar Herdísar Hallsdóttur, sem
ættuð var frá Óspaksstöðumí
Hrútafirði, og Magnúsar Magnús-
sonar bónda á Hallkelsstaðahlíð,
sem fæddur var í Mýrdal í Kolbeins-
staðahreppi, en átti ættir að rekja
um Vesturland, Dali og Strandir
sunnanverðar. Systkini Fanneyjar
voru þessi: Guðrún Bjarnrún fædd
1888, húsfreyja í Reykjavík, gift
Matt.híasi Eyjólfssyni sjómanni.
Magnús Sumarliði fæddur 1890,
bóndi í Hraunholtum í Hnappadal,
kvæntur Borghildi Jónasdóttur.
Guðmundur Hákon fæddur 1892,
bóndi á Hafursstöðum í Hnappadal
og síðar í Önundarholti í Flóa,
kvæntur Kristínu Björnsdóttur,
Guðbrandur fæddur 1894, bóndi í
Tröð í Kolbeinsstaðahreppi og síðar
á Álftá í Hraunhreppi, kvæntur
Bjargeyju Guðmundsdóttur. Gunn-
laugur fæddur 1897, bóndi í Mið-
felli í Hrunamannahreppi, kvæntur
Margréti Sigurðardóttur, Hallur
fæddur 1899, bóndi á Hallkels-
staðahlíð, kvæntur Hrafnhildi Ein-
arsdóttur. Jófríður fædd 1902, hús-
freyja í Kópavogi, gift Óskari Guð-
mundssyni húsasmíðameistara.
Sesselja Ingibjörg fædd 1905, gift
Kristni Á. Magnússyni kaupmanni
á Reyðarfirði. Öll eru þau systkinin
nú látin nema Jófríður, en hún hef-
ur átt við langvarandi vanheilsu að
stríða mestan hluta ævinnar. Þrátt
fyrir það er andlegt þrek og
lífskraftur óbugaður, ér hún nú
kveður það síðasta af systkinum
sínum. Margrét Sigurðardóttir,
kona Gunnlaugs í Miðfelli, lést fyr-
ir fáum vikum. En milli þeirra
Margrétar og Fanneyjar var mikið
og náið samband alla tíð. Ekki fer
hjá því, þegar hugsað er til þeirra
tíma er þessi stóri bamahópur var
að alast upp, að á hugann leiti frá-
sagnir um erfiðleika, hungur og
barnadauðann, sem var svo algeng-
ur fram á 20. öldina. Foreldrar
máttu oft sjá á eftir öðru hvoru
bami í gröfina strax eftir fæðingu
eða fárra mánaða gömlu. Og sókn-
arprestarnir töluðu opinskátt um
sóðadauða. Það hefur því verið ein-
stakt afrek hjá hjónunum á Hlíð,
eins og bærinn er jafnan kallaður
þar vestra, að koma öllum barna-
hópnum snum til manns á af-
skekktri fjallajörð og fátt hlunn-
inda. Eldri systkinin fóm að sjálf-
sögðu snemma að vinna fyrir sér á
öðrum bæjum, en Sigríður og
Magnús létu ekki staðar numið við
sín eigin börn heldur tóku fóstur-
börn og ólu upp, þegar elstu bömin
héldu að heiman. Þegar að því kom
að einhver stofnaði nýtt heimili og
hóf búskap var hjálpast að. Ef vel
veiddist á einum bænum var aflan-
um miðlað til systkina og frænd-
fólks. Og þeir bæir, sem betur lágu
við samgöngum stóðu ávallt opnir
sem greiða- og gististaðir fyrir
ferðalanga á leið heim eða að heim-
an. Um langskólagöngu var naum-
■ Innilegar þakkir fyrir samúö og Y vinarhug við andlát og útför
GUÐRÍÐAR ERLU MAGNÚSDÓTTUR SHETTY.
Vithal Shetty,
Ravindra Thor Shetty, Teresa Shetty,
Axel Magnússon, Karl Magnússon,
Elísabet Magnúsdóttir, Sverrir Magnússon.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu
minnar og móður okkar,
SVEINFRI'ÐAR ÖLDU ÞORGEIRSDÓTTUR,
Smyrlahrauni 42,
Hafnarfirði,
Vilhjálmur Sveinsson,
börn og tengdabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÞORBJÖRNS JÓHANNESSONAR
kaupmanns,
Sigríður H. Einarsdóttir.
Elín Þorbjörnsdóttir, Othar Hansson,
Einar Þorbjörnsson, Astrid Björg Kofoed-Hansen,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
MÖRTU ÓLAFSSON,
Sunnuvegi 13,
Reykjavík,
sem lést þann 4. júli sl.
Páll Bragason, Guðbjörg Hjörleifsdóttir,
Ólafur Bragason,
Helga Bragadóttir, Magnús Halldórsson,
og barnabörn.
+
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
INGILAUGAR TEITSDÓTTUR,
Tungu.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Sjúkrahúsi Suðurlands
sem annaðist hana síðustu árin.
Oddgeir Guðjónsson, Guðfinna Ólafsdóttir,
Sigurlaug Guðjónsdóttir, Guðmundur Guðnason,
Guðrún Guðjónsdóttir,
Þórunn Guðjónsdóttir.
ast að ræða hjá bammörgum al-
þýðufjölskyldum. En á heimilinu var
mikill bóklestur. Lestrarfélag starf-
aði í sveitini og bækur voru sendar
bæ frá bæ og alltaf lesnar spjald-
anna á milli. Kvæðin lærðu börnin
sjálfkrafa utan að, því að þau voru
svo oft höfð yfir. Lögin voru sungin
aftur og aftur þangað til allir kunnu
þau og gátu verið fullgildir þatttak-
endur í söngnum á kvöldvökunni
eða við samkomuhaldið. Til þess var
tekið hvað Sigríður Herdís, móðir
Fanneyjar, hafði mikið yndi af söng
og kunni ógrynni af sönglögum.
Söngurinn var h'ka eina tónlistarfor-
mið, sem fólk gat iðkað á þeim
tímum vegna skorts á hljóðfærum.
Og þegar mikið stóð til á hrepps-
samkomum og í mannfagnaði var
líka sungið og dansað af lífi og
sál. Inn í þetta samfélag fæddist
lítil stúlka einn septemberdag árið
sem heimsstyijöldin fyrri braust út.
Fanney var níu árum yngri en
næsta systirin Sesselja og á milli
elstu og yngstu systranna voru 26
ár. Þeirra samband hefur því ekki
mótast af því að leika sér saman
að legg og skel heldur hafa eldri
systykinin verið þeim yngri sem
fósturforeldrar eins og tíðkaðist á
fyrri ölum, þegar hverju barni var
fenginn ákveðinn fullorðinn aðili,
sem gekk að hluta inn í móður-
hlutverkið. Húsfreyjan var oft svo
upptekin af sínu umfangsmikla
starfi, að sinna um matvæli, klæðn-
að og hirðingu á fjölmennu heimili.
Á húsfreyjunni hvíldi þung ábyrgð.
í hennar höndum var velferð allra
heimilismannanna geymd. Þegar
Fanney Magnúsdóttir óx úr grasi -
voru tímarnir að breytast. Straumar
lágu úr sveitunum í þéttbýlið. Marg-
ir fluttu þó hálf nauðugir úr byggð-
arlaginu vegna skorts á jarðnæði
eða vegna atvinnuleysis. En hugur-
inn dvaldi oftast þar heima. Á
hverju sumri var snúið aftur og
reynt að heimsækja alla bæi þar
sem skyldmenni var að finna. Þetta
frændfólk að sunnan var líka auð-
fúsugestir á sveitaheimilunum. Því
fylgdi hressandi andblær úr fjar-
lægum landshornum en fréttir og
frásagnir þessara gesta voru fjöl-
miðlar þess tíma. Fanney ílentist í
Blómastofa
Friðfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnlg um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
m