Morgunblaðið - 09.08.1989, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989
FRAMHALDSSKÓLANEMAR
Upprifjun fyrir prófin
Innritun í síma 79233 kl. 15-18
Nemendaþj ónus tan sf. Leiðsögn sf.
ÍSLENSKUR FERÐAMÁLA-
OG EARARSTJÓRASKÓLI
í PALMA Á MALLORCA
Hótelstörf, fararstjórn, flugvallarstörf, farseðla-
útgáfa, og fleira tengt ferðaþjónustu.
Samstarf héfur tekist á milli íslenskra og spaénskra aðila umstarf-
rækslu íslensks ferðamála- og fararstjóraskóla á komandi vetri í
Palma á Mallorlja. Skólinn verður starfræktur frá 30. október til
20. desember.
Skólinn er sniðinn fyrir þá sem vilja á skömmum tíma öðlast stað-
góða þekkingu á helstu undirstöðuatriðum ferðaþjónustu og far-
arstjórnar. Skólinn nýtur stuðnings spænskra ferðaaðila sem um
árabil hafa aðstoðað við hliðstæða skóla fyrir ferðaþjónustufóik
frá ýmsum löndum. Þátttakendur búa á ráðstefnuhóteli við höf-
uðborgina Palma á Mallorka, en þar fer kennslan einnig fram.
Kennt verður 5 daga vikunnar, 6 tíma á dag. Meðal námsgreina
má nefna:
HÓTELSTÖRF: Fjallað um grundvallaratriði hótelstarfa m.a.
gestamóttöku,bókunar-og sölukerfi auk annarser viðvíkur hótel-
störfum. Kennari: Jónas Hvannberg aðstoðarhótelstjóri á Hótel
Sögu.
FARSEÐLAÚTGÁFA OG
FLUGVALLARSTÖRF: Kennsla og þjálfun í útgáfu farseðla, upp-
slætti í handbókum um alþjóðlegt áætlunarflug, fargjaldareglum,
afgreiðslustörfum á flugvöllum og fleiru.
SPÆNSKA: Veitt undirstaða í málinu er nægja á til einfaldra sam-
ræðna og skilnings á venjulegu rituðu máli. Nemendum verður
skipt í 3 bekki fyrir byrjendur og lengra koma. Yfirkennari: Hall-
dór Þorsteinsson MA, skólastjóri Málaskóla Halldórs.
SPÆNSK SAGA OG
MENNING: Saga og menning Spánar og annarra miðjarðarhafs-
landa. Komið verður víða við og drepið á helstu einkennum
landa, fólks og lífshátta. Kennari: Órnólfur Árnason rithöfundur
og kvikmyndaframleiðandi.
KYNNISFERÐIR: Skipulagning og framkvæmd skoðunar- og
skemmtiferða. Kennari: Örnólfur Arnason.
SÁLFRÆÐI: Mannleg samskipti í þjónustustörfum. Kennari
Sjöfn Ágústsdóttir MS í sálarfræði.
HEILSUFAR: ftarleg umfjöllun um heilsufar, heilsugæslu, matar-
æði o.s.frv. einkum með tilliti til dvalar á ströndum miðjarðar-
hafsins.
FRAMKOMA, FRAMSÖGN: Tilsögn í meðferð talaðs máls og al-
mennri framkomu í ferðaþjónustu. Kennari: Gunnar Eyjólfsson
leikari.
SPÆNSK LÖG: Drepið á helstu atriði er við koma dvöl erlendra
ferðamanna og starfsemi erlendra ferðaskrifstofa á Spáni. Jafn-
framt aimennt um réttarstöðu útlendinga þar í landi þ.á m. varð-
andi íbúðarkaup, langdvalarleyfi o.s.frv. Kennari Gabriel Ferrer
hæstaréttarlögmaður í Palma.
Skólanum lýkur með prófum í helstu námsgreinunum og fær
hver nemandi skírteini til staðfestingar á þátttöku sinni og náms-
árangri.
Nánari upplýsingar um skólann eru veittar á skrifstofu TRANSA,
Vesturgötu 12 Rvk. í síma 91-22525 eða hjá skólastjóranum Örn-
ólfi Árnasyni í síma 91-27514.
VERSLUNARMANNAHELGIN
_ Morgunblaðið/Kristján Ármannsson
Á miðri myndinni sést brjóta á bílnum, þar sem hann er á bólakafí i Núpsá, skömmu eftir að telpunum
hafði verið bjargað á land.
Tvær telpur bjargast naumlega frá drukknun í Núpsá:
Einfold blástursaðferð
og hjartahnoð á fyrstu
mínútum skipti sköpum
Morgunblaðið/Kristján Ármannsson
Systurnar fluttár um borð í þyrluna við slysstaðinn.
- segirMagni
Jónsson læknir
„ÞAÐ VAR einföld blástursað-
ferð og hjartahnoð á fyrstu
mínútunum sem skipti sköpum.
Þetta hefur verið gíftirleg þrek-
raun hjá björgunarmönnunum,
þeir hafa verið 20 til 30 mínútur
úti á bilnum, hálfir á kafi mest
allan tímann, enda voru þeir ör-
magna um það bil sem allt fólkið
náðist á land,“ segir Magni Jóns-
son læknir um björgun systranna
Margrétar og Asthildar Reynis-
dætra úr Núpsá síðastliðinn laug-
ardag. Magni var staddur við
Núpsá og annaðist lífgunartil-
raunir eftir að telpurnar voru
komnar á land.
Margrét, átta ára, og Ásthildur,
sjö ára, voru á ferð í jeppa, ásamt
fósturföður sínum, Jóni Helgasyni,
móður sinni, Sigrúnu Magnúsdóttur
og móðursystur, Ásu Magnúsdótt-
ur, um hálf sjö leytið á laugardag.
Þau höfðu farið yfir Núpsá til að
skoða fossa sem eru við ármót
Hvítár og Núpsár skömmu ofar.
Þegar komið var til baka uppgöt-
vaðist að eitthvað af farangrinum
hafði gleymst á hinum bakkanum
og var því lagt á ána í þriðja sinn
til að sækja það. Bíllinn stöðvaðist
og straumurinn hreif síðan bílinn
með sér og færði á kaf í hyl í ánni.
Það vildi þeim til happs að Jóni, sem
ók, tókst að snúa jeppanum upp í
strauminn þannig að hann hélst á
hjólunum allan tímann. Fullorðna
fólkið komst út úr bílnum um aðra
hliðarrúðuna, en telpurnar náðust
ekki strax. Jóni og tveimur nær-
stöddum mönnum, Sverri Erni Sig-
uijónssyni og Jóni Helga Guð-
mundssyni, tókst að komast út í
bílinn og ná stúlkunum. Ásthildur
komst fljótt til meðvitundar, en hin
eldri var meðvitundarlaus nærri því
klukkustund. Að sögn Magna Jóns-
sonar læknis var líkamshiti þeirra
kominn niður í 33 gráður þegar þær
komust í land og telur hann að
Margrét hafi verið fimm til tíu
mínútur á kafi, áður en tókst að
ná henni út úr bílnum.
„Þetta var slys, það var ekki
vaðið út í óvissu," sagði Jón Helga-
son í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir rangt að þarna hafi
verið vatnavextir og íjarri lagi að
tengja Súlu eða vatnavexti í henni
á nokkurn hátt við slysstaðinn. Að
sögn Jóns var búið að kanna vaðið
i ánni rækilega áður en fjölskyldu-
bílar fóru yfir og segir hann að um
tugur bíla hafi farið yfir ána á þess-
um stað á laugardaginn.
Snorri Hafsteinsson, formaður
Hjálparveitar skáta í Kópavogi, var
skammt frá slysstaðnum ásamt
fleiri hjálparsveitarmönnum. „Þeg-
ar við komum að ánni stndur fólk
sitt hvorum megin við hana og bíll
úti í miðri ánni og þrír karlmenn
uppi á honum, með tvö börn í fang-
inu. Annað barnið var að taka við
sér og var byijað að gráta. Það var
hægt að koma því, ásamt öðrum
karlmanninum á bandi norður yfir
ána. Síðan var eldra barnið meðvit-
undarlaust og karlmaður, nakinn,
að reyna að blása í það og hnoða
það við mjög erfiðar aðstæður og
greinilega var maðurinn að ör-
magnast sjálfur, þannig að við
hrópuðum til hans og báðum hann
að setja bandið um sjálfan sig og
barnið, sem hann gerði, og drógum
þau síðan í land í einum hvelli.“
Það var Sverrir Örn sem var með
stúlkuna í fanginu á bílnum og blés