Morgunblaðið - 09.08.1989, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989
51
í hana. Snorri tók af honum skýrslu
um atburðina. „Hann sagði mér að
hann hefði verið þama á gangi
þegar bílarnir komu að ánni og fóru
að reyna að fara yfir. Bíllinn hafi
verið kominn langleiðina yfir þegar
hann byrjar að spóla þama í sand-
bleytu," segir Snorri. Síðan berst
bíllinn niður í hy! og fer þar á bóla-
kaf. „í því koma þrjár manneskjur
út úr bílnum og fljóta niður ána.“
Samkvæmt frásögn Jóns Helga-
sonar, ökumanns jeppans, var hann
með hliðarglugga opinn. Honum
tekst að komast út og draga eigin-
konu sína og mágkonu út úr bílnum.
Þau reyna að ná til telpnanna, en
straumurinn hrífur þau með sér.
Konumar vom báðar dregnar á land
allnokkra neðar, en Jón komst upp
á kjarrivaxinn árbakkann, fer upp
með ánni og hendir sér út í hana
aftur og lætur sig reka að bílnum.
Sverrir Örn og Jón Helgi koma sér
á sama hátt út í bílinn og í samein-
ingu tókst þeim þremenningum að
ná telpunum út og hófu þegar í
stað lífgunartilraunir.
„Sverrir kom með stóran stein.
Ég held að hann hafi gert þijár
atrennur og það er eins og mig
minni að ég hafi togað hann að
bílnum í síðustu atrennunni. Við
reyndum að brjóta rúðuna, hann
sló steininum niður, en vatnið dró
úr þunganum, þannig að þetta var
eins og að banka á rúðuna. Ég
veit ekki hvort hún brotnaði þá, en
hún er brotin núna. Ég fór hins
vegar ekki inn um gluggann til að
land og björgunarmenn tóku við
telpunni og héldu lífgunartilraunum
áfram. Þeirra á meðal var Magni
Jónsson læknir og tók hann við
umönnun stúlkunnar. Strax og
komið var í land var fólkið drifíð
inn í húsbíla, sem komið var með
og var þar hægt að gefa því hress-
ingu og halda á því hita.
„Þegar Margrét kom á land var
hún meðvitundarlaus, en hún and-
aði sjálf og hjartað var komið í
gang, en hún andaði mjög illa,“
segir Magni. Erfitt var um vik að
hjálpa stúlkunni vegna stífkrampa
vegna kuldans og þar sem hún er
astmaveik. Magni vissi af astma-
veikum dreng sem var með fjöl-
skyldu sinni á ferð skammt frá og
voru astmalyf sótt til hans, þar sem
lyf stúlkunnar vora til inntöku, en
drengurinn hafði úðalyf sem hægt
er að gefa meðvitundarlausum. Þá
tókst Magna að soga upp úr öndun-
arvegi stúlkunnar með slöngu, sem
skorin var frá rúðusprautu í einum
nærverandi bíla og þannig að halda
öndunarvegi hennar opnum.
Eftir að Magni hafði hlúð að
stúlkunni í um 45 mínútur sýndi
hún fyrst lífsmark. „Ég var orðinn
ansi vonlítill eftir 45 mínútur og
hún sýndi engin viðbrögð,“ segir
Magni. „Þá allt í einu, þegar ég var
að athuga viðbrögðin með því að
nudda fingri við bringubeinið, greip
hún í fingurinn á mér. Þá vissi ég
að það var góð von, því að það era
viðbrögð við sársauka, hún grípur
í fingurinn til að íjarlægja hann,
sækja þær, heldur kafaði ég niður
á hlerann og gat svo sparkað honum
upp. Síðan dró ég þær yfir aftursæt-
ið og undir efri hlerann. Það gekk
auðveldar með yngri telpuna, en
hin var föst í bílnum vegna þess
að hún var með bakpoka og ég
þurfti að gera nokkrar atrennur
áður en mér tókst að losa hana við
bakpokann og ná henni út.
Þetta tók vikuskammt af orku
okkar eldra fólksins, en telpurnar
virðast hafa náð sér að fullu og
haldið allri sinni orku. Sú eldri sagð-
ist bara hafa sofnað smá stund í
bílnum,“ sagði Jón Helgason.
Yngri telpan tók strax við sér
við lífgunartilraunir, en sú eldri
hafði verið lengur á kafi í vatninu
og sýndi ekkert lífsmark. Sverrir
Öm blés í hana og beitti hjarta-
hnoði allt þar til þau vora drifin í
SLYS helgarinnar
AKVBGIfíþeir sem hér eru sýndir eru
einungts númeraðir vegir, hrmgvegurinn, tveggja og
þriggja tölu vegirsvoog fjallvegir með F-númerum.
Kortið sýnir þá fjölmörgu staði þar sem slys urðu um verslunarmannahelgina. Tölustafimir vlsa í fréttina
Ohöpp og slys settu svip á
verslunarmannahelgina
Morgunblaðið/Bjarni
Bronco jeppinn eftir óhappið. Rúðan í afturhleranum er brotin, en
systrunum var bjargað út um neðri hlerann á gafli bílsins.
það gerir fólk ekki þegar heilinn
er skaddaður mikið, þetta er merki
um vilja."
Báðar stúlkurnar, ásamt móður
þeirra, voru fluttar með þyrlu Land-
helgisgæslunnar á sjúkrahús í
Reykjavík. Að sögn Snorra Haf-
steinssonar mátti ekki tæpara
standa með veður að þyrlan næði
að komast á staðinn og burtu aft-
ur, því að nokkrum mínútum eftir
að hún fór, var komin niðaþoka við
Núpsá. Lögregla flutti hitt fólkið
síðan til Reykjavíkur. Stúlkurnar
komu heim af sjúkrahúsi á mánu-
dag og hafa náð sér að fullu.
I samtali við Morgunblaðið bað
Jón Helgason, fóstri telpnanna, fyr-
ir sérstakar þakkir til allra þeirra
sem veittu hjálp við björgun og
aðhlynningu þeirra Margrétar og
Ásthildar.
UMFERÐ um verslunarmanna-
helgina var um 8,5% minni en í
fyrra. Það ár var þó metár hvað
umferð varðar og var umferðin
í ár sambærileg við umferðina
um verslunarmannahelgina
1987. En þó umferðin hafi verið
minni var Qöldi slysa í hærri
kantinum. Alls urðu 42 óhöpp
um verslunarmannahelgina,
langflest þeirra minniháttar, en
eitt banaslys og nokkur önnur
þar sem fólk varð fyrir alvarleg-
um meiðslum. Meiðsli urðu á
fólki í 26 tilvikum þar af alvar-
leg í 9. Alls voru 98 teknir grun-
aðir um ölvun við akstur og kom
ölvun við sögu í nokkrum slysum
og óhöppum.
Töluvert mikið var að gera hjá
þyrluflugmönnum Landhelgis-
gæslunnar um helgina. Minni þyrla
Landhelgisgæslunnar var í flugi
með lögreglunni um helgina en
Sif, stærri þyrla Landhelgisgæsl-
unnar, sem biluð var í síðustu viku,
var aftur orðinn flughæf og komin
í gagnið á laugardaginn. Þá var
flogið að Núpsá (1) og sótt þar
stúlkubörn ásamt móður þeirra
sem höfðu verið í bíl er farið hafði
í kaf í ánna.
Aðfaranótt sunnudags, skömmu
eftir miðnætti, var farið í Þórs-
mörk (2) og sótt þar stúlka með
opið beinbrot. Var hún flutt á
Borgarspítalann. A sunnudags-
kvöld, skömmu fyrir miðnætti, var
þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð
út á ný til að sækja Frakka er
ekið hafði út af veginum við Dyr-
hólaey (3) á bifhjóli og hrygg-
brotnað.
Aðfaranótt mánudagsins var svo
flogið í Norðurárdal (4). Ökumaður
bifreiðar, sem var að koma að
norðan, missti hana út af í beygju
og kastaðist út úr bifreiðinni. Var
hann fluttur mikið slasaður til
Reykjavíkur. Tveir farþegar sluppu
hins vegar ómeiddir.
Fimm óhöpp á
N orðurdalsávegi
Alls urðú níu umferðaróhöpp í
umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi
um verslunarmannahelgina, þar af
þijú þar sem meiðsl urðu á fólki.
Fimm óhappanna urðu á Norðurár-
dalsvegi (4-8), tvö í Hvalfirði (9,10)
og tvö undan Hafnaríjalli (11,12).
Þar fauk bifreið með hjólhýsi út
af veginum og gjöreyðilagðist hjól-
hýsið. Einhver meiðsl urðu á fólki.
Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi
var áberandi hvað það hefði haft
mikið að segja að fólk hefði verið
í beltum og sloppið þar með við
meiðsli þó miklar skemmdir hefðu
orðið á bifreiðum þeirra.
Við Branná í Lóni (13) strakust
á föstudagskvöld tvær bifreiðir
saman er þeir mættust og önnur
þeirra lenti á brúarstólpa. - Engin
teljandi slys urðu á mönnum. Þetta
var á föstudagskvöld. Að sögn lög-
reglunnar á Höfn í Hornafirði var
talsverð umferð um helgina en hún
gekk samt vonum framar.
A laugardaginn' brotnaði hjól
undan jeppabifreið sem var á ferð
í Jökuldal (14). Bifreiðin valt og
þurfti að flytja tíu ára strák með
sjúkraflugi suður til Reykjavíkur.
Á sunnudagsmorgun keyrði bíll á
stein fyrir utan veg við Hallorms-
stað (15) og urðu einhver meiðsli
Ifólki. Granur leikur á að um ölv-
unarakstur hafí verið að ræða.
Alls vora þrír teknir granaðir um
ölvun við akstur af lögreglunni á
Egilsstöðum og nokkrir til viðbótar
fyrir hraðaakstur.
Lögreglan á Blönduósi veitti þær
upplýsingar að í Langadal (16,17)
hefði bíll ekið út af veginum og
þurfti að flytja farþega til
Reykjavíkur með mikla höfuðá-
verka. Ökumaður bifreiðarinnar
slapp hins vegar með skrámur. í
Víðidal (18) ók ökumaður á brú
og fór brúarhandriðið inn í bílinn.
Hlaut hann alvarlega höfuðáverka
og var fluttur til Reykjavíkur. Far-
þegar í bifreiðinni sluppu hins veg-
ar án meiðsla. Allir bílarnir eru
að sögn lögreglunnar á Blönduósi
gjörónýtir.
Taktu lífið ekki of alvarlega, þú kemst
hvort sem er ekki lifancli frá því.
Mlt IIMS'MIIIÍ í MIIIBMIM
ÓPERUKJALLARINN OPNAR Á FÖSTUDAGSKVÖLD
Hverfisgötn H—W ■ Sitni IHHJ.i