Morgunblaðið - 31.10.1989, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTOBER 1989
. . í ' I 'I ?II<)T>.( i . [ ’ 1 ; i \ ' t r .< i ■
Vmsældir Margaret Thatcher aldrei minni:
Verð áfram bæði ljúf
manneskja
- sagði breski forsætisráðherrann í sjónvarpsviðtali
St. Andrews. Frá Guðnúindi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter.
MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, sagðist í sjón-
varpsviðtali á sunnudag hafa gert allt til að fá Nigel Lawson, fyrr-
um fjármálaráðherra, ofan af því að segja af sér og vísaði á bug
allri gagnrýni á sljórnarhætti sína. Skoðanakannanir sýna að af-
sögn Lawsons heíur veikt mjög stöðu breska forsætisráðherrans.
Allar gefa kannanirnar til kynna að Thatcher hafi aldrei verið
jafn óvinsæl sem nú og í könnun sem birtist í gær í breska dag-
blaðinu The Independent kemur fram að enginn breskur forsætis-
ráðherra hefur notið minna fylgis í þau 50 ár sem leitað hefur
verið eftir afstöðu kjósenda á Bretlandi.
og sanngjöm
Skoðanakannanir, sem birtust í
mörgum blöðum um helgina, sýna
að Verkamannaflokkurinn hefur
í sjónmáli.
Thyssen-safnið er talið næst-
verðmætasta málverkasafn í eigu
einstaklings á eftir safni Elísa-
betar Bretadrottningar. í því eru
1.500 málverk, þar á meðal verk
eftir Tizian, Tintoretto, Rubens,
E1 Greco, Goya, Van Gogh, Mo-
net, Cezanné; Degas, Kandinsky,
Braque og Picasso.
Eigandi safnsins er svissnesk-
ur barón, Hans Heinrich Thyss-
en-Bornemisza, og ákvað hann
fyrir ári að bjóða helming ver-
kanna til leigu til að auðveldara
yrði fyrir almenning að skoða
þau. Uppi varð fótur um fit í lista-
heiminum þegar fréttist af
ákvörðun hans. Bandarískar og
vestur-þýskar borgir kepptust
um að fá verkin að láni og Marg-
aret Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands, sendi baróninum bréf
með eigin hendi þar sem hún
bauðst til þess að reisa byggingu
fyrir verkin í Lundúnum eða
Birmingham. Svissnesk stjórn-
völd buðust einnig til að greiða
honum sem nemur 1,5 milljörð-
um ísl. kr. til að hann gæti byggt
við sveitasetur sitt og aukið rý-
mið fyrir safnið.
að jafnaði 7% meira fylgi en
Ihaldsflokkurinn. í einni könnun,
sem birtist í BBC-sjónvarpinu á
Baróninn hafnaði öllum þess-
um tilboðum þegar yfirvöld í
Madrid buðust til þess að sýna
málverkin í Villahermosa-höll,
sem var keypt til að auka rými
Prado-safnsins. Spánveijar
fengu málverkin að láni í tíu ár
gegn greiðslu sem nemur 305
milljónum ísl. kr. á ári. Málverk-
in verða afhent fyrir árið 1991
og eru þau alls 787.
í Prado er fyrir stærsta safn
verka eftir spænska meistara,
alls 8.500 málverk. Safnið getur
þó aðeins sýnt 12% verkanna
vegna skorts á rými. Villaher-
mosa var keypt til að hægt yrði
að efna til sérstakra sýninga.
„Núna höfum við misst höllina
og við erum að leita að annarri
byggingu en ég óttast að sú leit
taki langan tíma,“ sagði Alfonso
Perez, forstöðumaður Prado.
„Skorturinn á rými veldur okkur
miklum vandræðum."
Spænskir embættismenn eru
nú í slæmri aðstöðu og reyna að
sefa forstöðumenn Prado án þess
að móðga baróninn. Þeir vonast
til þess að Spánverjar fái Thyss-
en-málverkin að lokum til eignar.
sunnudagskvöld , hafði Verka-
mannaflokkurinn 13% forskot.
Kjósendur hafa aldrei verið jafn
óánægðir með Thatcher á öllum
valdaferli hennar. Samkvæmt
könnun sem The Mail on Sunday
birti telja 54% prósent kjósenda
að hún eigi að segja af sér.
í könnun, sem The Indenpend-
ent birti í gær, kemur fram að
einungis 24% kjósenda eru ánægð
með frammistöðu Thatcher en 62%
óánægð. Hefur enginn forsætis-
ráðherra á Bretlandi notið minna
trausts í þau 50 ár sem kannanir
sem þessi hafa verið gerðar. í
könnun sem gerð var á vegum
Gallup-fyrirtækisins árið 1981
kváðust aðeins 25% aðspurðra
vera sátt við frammistöðu hennar.
Líflegt viðtal
Margaret Thatcher sagði í sjón-
varpsviðtali um helgina, að hún
hefði gert allt til að Nigel Lawson
hætti við afsögnina á fimmtudag
i síðustu viku en honum hefði ekki
verið haggað. Kvaðst hún ekki
vita hvort Lawson hefði setið
áfram ef hún hefði vikið efna-
hagsráðgjafa sínum, Sir Alan
Walters, frá en þá greindi á um
aðild Breta að evrópska myntkerf-
inu. Thatcher lagði áherslu á að
Bretar tækju ekki þátt í evrópska
myntkerfinu fyrr en önnur Evr-
ópuríki hefðu tekið upp sama
fijálsræði í peningamálum og þeir
og verðbólgan í Bretlandi væri
komin niður á sama stig og ann-
ars staðar.
Reuter
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, í sjónvarpsvið-
tali á sunnudag.
Sjónvarpsviðtalið þótti sérlega
líflegt og greinilegt var að Thatc-
her var ákveðin í að láta ekki slá
sig út af laginu. Hún sakaði spyij-
andann um að hafa móðgað bresku
ríkisstjórnina er hann gaf í skyn
að hún gæti aðeins starfað með
mönnum sem væru viljalaus hand-
bendi hennar. Hún visaði því al-
gjörlega á bug að ósveigjanleiki
einkenndi stjórnarhætti hennar og
boðaði að engin breyting yrði gerð
á þeim: „Eg verð áfram sama ljúfa
og sanngjarna manneskjan."
Agreiningur um evrópska mynt-
kerfið heldur áfram að valda
spennu innan rikisstjórnarinnar.
Sir Geoffrey Howe aðstoðarfor-
sætisráðherra lýsti því yfir, að
stjórnin myndi standa við ákvörð-
unina frá þvi fyrr á árinu um að
taka þátt i myntkerfinu og vitað
er, að Douglas Hurd utanríkisráð-
herra er því mjög fylgjandi.
.Gengi pundsins hefur haldist
nokkuð stöðugt þrátt fyrir þessi
átök í stjórninni og verð á hluta-
bréfum einnig.
Stórt málverkasafii
veldur Spánverj-
um vandræðum
Madrid. Reuter.
THYSSEN-málverkasafnið, næststærsta salh einstaklings í heim-
inum, hefur komið spænskum stjórnvöldum í bobba. Þau ákváðu
nýlega að taka helming verka saftisins á Ieigu í tíu ár gegn
hárri greiðslu og fólu Prado-Iistasafiiinu að varðveita þau.
Prado-safhið á hins vegar í stökustu vandræðum með að fínna
rými fyrir eigin verk og engin lausn á þessu vandamáli virðist
Er Svíþjóð
griðastaður
illvirkja?
„Svíþjóð má ekki verða paradís
og öruggt athvarf fyrir verstu
þorpara heimsins, hryðjuverka-
menn og morðingja," segir í grein
eftir P.O. Hallquist, yfirmann
þeirrar deildar Iljálparstofuunar
Sameinuðu þjóðanna (UNWRA) er
annast Palestínuflóttamenn.
Hallquist gagnrýnir í Svenska
Dagbladet sænsk stjórnvöld fyrir
stefnu þeirra í málefnum innflytj-
enda. Hann telur að Svíar eigi að
heimila fleiri flóttamönnum að flytj-
ast til landsins en þeir verði hins
vegar að athuga betur feril þeirra.
Að hans áliti hafa 0,25% þeirra
50.000 manna, sem flytjast til lands-
ins á ári hveiju, gerst sekir um alvar-
lega glæpi, svo sem hryðjuverk og
morð. Því sé Svíum mjög íþyngt með
komu 125 slíkra manna til landsins
á ári.
Caddy 130 fylgir þér hvert sem er
Caddy 130 er einfasa, jafnstraums-rafsuðutæki
fyrir pinnasuðu og tig-suðu. Það tekur basískan
vír frá 1,60-3,25 mm.
Caddy 130 vegur aðeins 8 kg og er því sérlega
meðfærilegt!
Hafðu samband við sölumenn okkar sem veita
þér faglega ráðgjöf.
pinnasuða
tig-suða
= HEÐINN =
SEUAVEGI 2.SÍMI 624260
ALLUR FYLGIBÚNAÐUR TIL SUÐU
27
Heildarupphæð vinninga
28.10. var 4.750.573.
3 höfðu 5 rétta og fær
hver kr. 729.071.
Bónusvinninginn fengu 2
og fær hver kr. 189.884.
Fyrir 4 tölur réttar
fær hver kr. 7.444
og fyrir 3 réttar tölur
fær hver um sig kr. 530.
Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir út-
drátt í Sjónvarpinu.
Sími685111.
Upplýsingasímsvari 681511.
Lukkulína 99 1002
FESTINGARJÁRN FYRIR BURÐARVIRKI
b-ÞDRGRÍMSSON&CI)
ÁRMÚLA29. SlMI 38640