Morgunblaðið - 31.10.1989, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1989
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Undanfama daga hef ég
fjallað um frumþættina, eld,
jörð, loft og vatn. í dag er
það umfjöllun um veikleika
þeirra sem er á dagskrá eða
það hvað getur gerst þegar
of lítið eða of mikið er af t.d.
eldi í stjörnukorti.
Frumþœttirnir
Til upprifjunar má geta þess
að Hrútur, Ljón og Bogmað-
ur eru eldur, Naut, Meyja og
Steingeit jörð, Tvíburi, Vog
og Vatnsberi loft og Krabbi,
Sporðdreki og Fiskur vatn.
Þegar talað er um að of lítið
sé af eldi í korti er átt við
að engin persónuleg pláneta,
rísandi eða miðhiminn sé í
Hrút, Ljóni eða Bogmanni.
Sagt er að of mikið sé af
ákveðnum þætti þegar meiri-
hluti pláneta er í einum og
sama frumþætti.
Sterkur eldur
Þegar of mikið er af Hrút,
Ljóni og Bogmanni í einu og
sama kortinu er hætta á að
viðkomandi verði óbilgjam
og eigingjam. Ég-hyggja
getur orðið of sterk og útfrá
því ábyrgðarleysi. Þetta er
sérstaklega áberandi í kort-
um karlmanna. Önnur hætta
er sú að viðkomandi verði of
ákafur og fljótfær og eigi til
að fljúga of hátt og tapa jarð-
sambandinu. Hugsjónir sem
em úr tengslum við raun-
veruleikann má t.d. rekja til
eldsins.
Bruni
Önnur hætta er sú að við-
komandi brennur upp, eða
lifir of hátt og gleymir t.d.
að borða og sofa í ákafa
sínum, eða fer á annan hátt
illa með líkama sinn. Að lok-
um má geta þess að eldurinn
gétur verið niðurrífandi og
eyðileggjandi, skapar fólk
sem vill breyta breytinganna
vegna og eirir engu fyrr en
það hefur rutt öllum hindrun-
um úr vegi. Eldsmerkjunum
fylgir oft óróleiki og óhemju-
gangur.
Skortur á eldi
Skortur á eldi, lýsir sér yfir-
leitt í deyfð, áhugaleysi og
lífsleiða. Það er fátt sem
tendrar hjarta viðkomandi.
Fólk sem hefur lítinn eld er
oftast nær rólegt í fasi og
framkomu, stundum yfirveg-
að en er oft hreinlega leiðin-
legt. Skortur á hugsjónum
og ákafa er einkennandi.
Þetta fólk fær sjaldan brenn-
andi áhuga á mönnum og
málefnum. Orð þess og æði
kveikir því sjaldan í með-
bræðrum sínum eða lýsir
veginn, svo notuð séu nokkur
orð sem geymast í tungunni
og lýsa eldinum.
Sterk jörð
Þeir sem hafa of mikið af
jörðinni, Naut, Meyju og
Steingeit, á kostnað annarra
þátta, eiga til að vera of jarð-
bundnir. Þetta er fólk sem
trúir ekki á annað en það sem
það sér og getur snert á.
Þröngsýni er því einn af
stærri veikleikum jarðarinn-
ar. Sjón jarðarinnar er oft
takmörkuð við skynfærin og
hinn áþreifanlega heim. Hið
andlega og listræna verður
útundan og er dæmt óþarft,
en mikill tími fer í vinnu og
aðsöfnun dauðra hluta og það
að gæla við vömbina. Jarðar-
persónuleikinn er því oft á
tíðum takmarkaður.
Skortur á jörð
Skortur á jörð lýsir sér yfir-
leitt í óhagsýni eða erfiðleik-
um með að koma hugmynd-
um og áformum niður á jörð-
ina og framkvæma og sjá
eftir sig árangur. Veraldlegt
raunsæi getur verið of skom-
um skammti og illa getur
gengið að finna fótfestu í til-
verunni.
GARPUR
GRETTIR
BRENDA STARR
ÉG SAGÐ! UNG£RJU STAgJZ ££/C-
ER.T UM þ>/iE> SiPAST/iÐþú l'ÆIHþ
EKX.I L/es. ÉG VILDI EAUC/
GEEA L-'lTIÐ
ÞA& se AABKGURJNN Al'ALS/NS,
AAA/yWA, ET BHTNDA KEAAST
AÐ þUÍAÐ LEFTV Eþ BÆ£>/ 'OL/ES
OG ÓSKE/FANP/, þX A1UN HON .
ALÞB.EI G/SKA ‘A þAÐ AÐ HANNSEA
EF TIL- l/ILL HET és D/EMT
AHENCJCEN OTHAR.T ÞAÐ ER.
EÞFITTAD lAtA SÉEEkJa 6BÐXAST
AÐ /yioNNUM S&fl EEU ALÚB;
Já, kennari, svarið liggur í augum
uppi.
I CAN'T take apvantage
OF YOU 6Y 6IVIN6 AN
AN5WEKTHAT 15 50 0BVI0U5....
I HAVE T00 MUCH INTEGKITY...
Ég get ekki hlunnfarið þig með því
að koma með svar sem er svona
augljóst... ég hef of mikla sjálfs-
stjórn...
SMÁFÓLK
Lastu ekki rétt einu sinni, eða hvað?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Svíning er neyðarúrræði þeg-
ar aðrar leiðir eru ekki færar.
Þetta vita reyndir spilarar og
reyna því að skapa sér önnur
færi.
Austur gefur; NS á hættu.
Vestur
Norður
♦ Á964
¥ DIO
♦ KG8
♦ 7532
♦ D83
¥ G652
♦ 7
♦ ÁK1094
Suður
Austur
♦ 1052
¥ ÁK9874
♦ 3
♦ DG6
♦ KG7
¥3
♦ ÁD1096542
♦ 8
Vestur Norður Austur Suður
— — 1 hjarta 4 tíglar
4 hjörtu 5 tíglar Pass Pass
Dobl Pass Pass Pass
Útspil: laufás.
NS hafa augljóslega unnið
sigur í sögnum. Vinningshorfur
í 5 tíglum eru ágætar, og 4
hjörtu eru óhnekkjandi í AV.
Vestur spilar laufkóng í öðr-
um slag og nú þarf suður að
huga að fleiri vinningsmöguleik-
um en svíningu í sj)aða. Þegar
vestur hefur sýnt ÁK í laufi er
nokkuð ljóst að austur á sömu
spil í hjarta. Tvöföld kastþröng
gæti því verið inni í myndinni.
Til að eyðileggja ekki hjartahót-
unina er best að henda hjarta í
laufkónginn.
Vestur skiptir væntanlega
yfir í hjarta, tía, kóngur og
trompað. Síðan er ein innkoma
á tígul notuð til að trompa lauf,
til að einskorða valdið á þeim lit
við vestur. Og þá eru skilyrðin
rétt fyrir þvingunina. Trompun-
um er spilað til enda og í lokin
verða báðir mótheijarnir að
kasta spaða til að standa vörð
um hæstu spilin í laufi og hjarta,
Og þá er óhætt að taka ÁK í
spaða — drottningin hlýtur að
koma, hvoru megin hryggjar
sem hún liggur.
Umsjón Margeir
Pétursson
Þeir sem tefla bréfskák njóta
þess munaðar að geta flett upp í
fræðibókum og tímaritum um leið
og þeir tefla skákina. I undanrás-
um yfirstandandi heimsbikar-
keppni í bréfskák höfðu Gunnar
Hannesson, Reykjavík, og Sovét-
maðurinn I.V. Áleksejev fylgt 46.
einvígisskák Kasparovs og
Karpovs 1984/85 26 fyrstu leik-
ina, en þá fannst Gunnari nóg
komið, en hann hafði hvítt og átti
leik.
27. Bxh6! (Kasparov lék 27. Bd5,
en eftir 27. — Bxd5, 28. exd5 —
Re7, tókst Karpov að bjarga sér
í jafntefli) 27. — gxh6, 28. Hxd6
- Db7 (Hvitur vinnur eftir 28. -
Bxd6, 29. Rxh6+ - Kh8, 30.
Rxf7+ og 31. Rxd6) 29. IU5 —
Bxe4, 30. Dg3 ( Hótar máti í
öðrum leik) 30. — Kh8,31. Rgxh6
- Bxh6, 32. Rxh6 — Bg6, 33.
Bxe6 — De7, 34. Dxe5+ og svart-
ur gafst upp. Sovézkir skákfræð-
ingar stungu upp á 27. Bxh6! fljót-
lega eftir einvígið, en það breytir
því ekki að þetta var mjög lagleg
úrvinnsla hjá Gunnari, sem er
reyndar ritstjóri Bréfskáktíðinda.
Þar fást hvers konar upplýsingar
fyrir þá sem hafa áhuga á að tefla
bréfskák. (Heimilisfang: Grettis-
gata 42, 101 Reykjavík.)