Morgunblaðið - 31.10.1989, Page 49
MQRG,lJNPL4PtÐ;í»RIfijypAfiUR,?l.;pfiTÓBjER
i9
FALSKT FLAGG?
Prínsessan vill giftast
poppara sínum
Stefanía prinses&a af Mónakó
hefur oft gert Rainer fursta
föður sinn gráhærðan með ýmsum
uppátækjum, ekki síst í karlamálum
sínum, en meðal svo tigins fólks sem
þau eru, skiptir miklu að öll slík
mál séu slétt og felld til að koma
í veg fyrir hneyksli síðar meir. I
seinni tíð hefur farið lítið fyrir
hneykslismálum og almennt álitið
að það væri merki þess að stúlkan
væri að þroskast. Hefur eitt og
annað í fari hennar stutt þá kenn-
ingu. En nú er karli ekki skemmt,
því Stefanía segist nú ætla að gift-
ast sambýlismanni sínum Ron Blo-
om og athöfnin verði heima í Món-
akó Um jólin.
Rainer hefur aldrei verið sáttúr
við Bloom, telur hann vera á höttun-
um eftir auðæfum Stefaníu. Bloom
er poppsöngvari sem hefur bæði
lítið að gera auk þess ber hann sig
ekki beinlínis eftir vinnu. Hann
kann afar vel við sig meðal fræga
fólksins. Hvað sem því líður þá
hefur Rainer fursti nú farið fram á
að Bloom kvitti undir pappíra fyrir
brúðkaupið og skuldbindi sig til
þess að eiga enga kröfu á hendur
Stefaníu ef til skilnaðar kemur.
Bloom er sagður hneykslaður, en
hvað verður veit nú enginn vandi
er um...o.s.frv.
Hjónaleysin prinsessan og popparinn...
COSPER
Síðan i gærkveldi á ég engin leyndarmál, sem konan mín ekki
veit um.
INNISTÆÐA
Dropar sem deilandi er um
Söng- og leikkonan Cher hefur
fundið sér nýjan lagsmann
eftir að slitnaði.upp úr sambandi
hennar og Rob Camiletti. Nýi
drengurinn er enn yngri en sá
fyrri, 23 ára gamall að nafni Ric-
hie Sambora, sem er gítarleikari
í þungarokkssveitinni Bon Jovi.
Þau eyða nú öllum stundum sam-
an, en hafa þó nóg að sýsla bæði
tvö þar fyrir utan, endalausar
stundir í upptökustúdíóum og
hljómleikaferðalög.
Eitt er það þó öðru fremur sem
hefur sett tímaskipulag Cher úr
skorðum síðustu vikurnar og það
er málarekstur hennar gegn
sínum fyrrverandi vini Camiletti.
Fregnir herma að hann hafi „lagt
inn“ í sæðisbanka og munu
pappírar sem ánafna Cher dro-
pann liggja fyrir. Nú vill Cami-
letti ekki láta vökvann góða af
hendi og krefst auk þess milljóna
af Cher í miskabætur fyrir að slíta
við sig samvistum þrátt fyrir að
sannað sé að rót þess sé fram-
hjáhald hans með jafnaldra sínum.
Já, ýmsir vegir eru órannsakan-
legir, en allt um það lýsir Cher
því yfir að Sambora sé margfald-
ur karlmaður á við Camiletti og
sonur hennar Elijah segir einnig
Camiletti engan samanburð þola,
Sambora sé sér mikill félagi, hinn
vænsti piltur....
SUÐURVER
Sfyadta mzrné&ú}
Hefst 6. nóvember.
HRAUNBERG
★ Morgun-, dag- og kvöldtímar.
★ Flokkar fyrir alla aldurshópa.
★ Byrjendur - framhald.
★ Miserfiðir tímar.
★ Allir finna flokk við sitt hœfi hjá J.S.B.
Innritun hafin
SUDURVER[ S. 83730| HRAUNBERG | S.79988
F.I.D.
Saumum brúðarkjóla eftir máli. \ * ' ' \ \/ \A
Glæsileg efni og snið. * ^TÍZKAN Laugavegi 71 II hæö Símr10770