Morgunblaðið - 02.11.1989, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1989
Stykkishólmur:
••
Ollum starfsmönnum
Skipavíkur sagt upp
Skipasmíðastöðin Skipavík hf. í Stykkishólmi hefiir sagt upp öllum
starfsmönnum sínum, 35 að tölu. Framkvæmdasljóri fyrirtækisins
segir ástæðuna vera verkefhaskort, sem megi rekja til slæmrar stöðu
útgerðarinnar.
Skipavík hf. er einn stærsti
vinnuveitandinn í Stykkishólmi og
ársveltan er á annað hundrað millj-
ónir króna. Ólafur Kristjánsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins og
einn eigenda, segir að fyrirtækið
standi ve! og hagnaður hafi verið
af rekstri þess undanfarin ár. „Hins
vegar er nú svo komið, að við höfum
ekki verkefni fyrir starfsfólkið,"
sagði hann. „Útgerðarfyrirtæki
standa illa og við höfum því ekki
fengið verkefni frá þeim sem ætla
mætti. Til marks um stöðu útgerð-
arinnar má nefna, að Skipavík hef-
ur gengið illa að fá greitt fyrir verk-
in og nú eru útistandandi skuldir
um 30% af ársveltu. Við sjáum fram
á að hafa aðeins verkefni næstu
2-3 vikur.“
Ólafur sagði að fram að þessu
hefði verið full vinna í skipasmíða-
stöðinni. „Við sögðum að visu upp
yfirvinnunni fyrir tveimur mánuð-
um, en höfum ekki þurft að láta
það koma til framkvæmda," sagði
Einlægur vilji til að styrkja
Viðræður Jóns Baldvins Hannibalsonar við ungverska ráðamenn:
hann. „Það verður þó í næstu viku.
Þessar uppsagnir eru neyðarúrræði
og við höldum áfram að leita verk-
efna. Hingað til hefur fremur vant-
að starfsmenn hér.“
Skipasmíðastöðin er að stofni til
frá árinu 1928, en fyrirtækið hefur
verið rekið undir Skipavíkur-nafn-
inu frá árinu 1968. Engar nýsmíðar
hafa verið í stöðinni undanfarin
fjögur ár, heldur hafa verkefnin
verið fólgin í breytingum og lagfær-
ingum, auk smíða á tækjum fyrir
sjávarútveginn, svo sem skel-
vinnsluvélum. Aðaleigendur
Skipavíkur eru fjórir einstaklingar,
en Stykkishólmsbær á rúm 30%
hlutaljár.
Interfoto
Viðræður Jóns Baldvins Hannibalssonar og Gyula Horn utanríkisráðherra Ungverjalands í Búdapest í
gær. Við hlið Jóns sitja Tómas Tómasson sendiherra og Guðni Bragason starfsmaður utanríkisráðuneyt-
isins.
tengslin við vestrænar þjóðir
Spennandi viðræður á tímum mjög örra breytinga, segir utanríkisráðherra
Búdapest. Frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
EINLÆGUR vilji ungverskra stjórnvalda að styrkja tengslin við
vestrænar þjóðir og stofnanir kom fram í viðræðum Jóns Baldvins
Hannibalssonar, utanríkisráðherra, við ráðamenn þjóðarinnar í Búda-
pest í gær. „Það kom skýrt fram að þeim er mikið kappsmál að
styrkja tengslin svo að það verði ekki aftur snúið af braut pólitískra
og efnahagslegra umbóta í Ungverjalandi þótt “perestrojka Gor-
batsjovs mistakist," sagði Jón Baldvin í samtali við Morgunblaðið.
„Og þeim liggur mikið á.“
Lézt í um-
ferðarslysi
Bjöm Þór Árnason, skipstjóri,
Smáravegi 8, Dalvík, lézt í um-
ferðarslysi á Ólafsfjarðarvegi að-
fararnótt sl. þriðjudags. Björn Þór
var 31 árs að aldri, og lætur eftir
sig 10 ára dóttur.
Utanríkisráðherra átti samtals
þriggja klukkustunda fund með
Gyula Hom, utanríkisráðherra,
Miklos Nemeth, forsætisráðherra,
og Matyas Szuros, þingforseta og
skipuðum forseta þjóðarinnar.
„Þetta vom spennandi viðræður á
tímum mjög örra breytinga í Ung-
veijalandi,“ sagði Jón Baldvin.
„Þróunin í átt að markaðskerfi og
lýðræði kostar mikla vinnu og mér
virtust viðmælendur mínir vera
þreyttir." Tómas Tómasson, sendi-
herra íslands í Ungveijalandi með
aðsetur í Moskvu, og Guðni Braga-
son í upplýsingadeild utanríkisráðu-
neytisins, tóku einnig þátt í fundun-
um af íslands hálfu.
Eitt mikilvægasta umræðuefnið
var ósk Ungveijalands að EFTA-
ríkin lýsi sig reiðubúin að hefja
undirbúningsumræður um nánara
og formlegra samstarf við Ung-
veija. Þetta var rætt við Jón Bald-
vin bæði sem núverandi formann
ráðherranefndar EFTA og sem ut-
Verkfall flugvirkja hjá Flugrnálastjórn:
Ofremdarástand að mynd-
ast við flugvelli landsins
- segir Pétur Einarsson flugmálastjóri
PÉTUR Einarsson flugmálasfjóri segir að senn líði að því að
ófremdarástand verði við flugvelli landsins vegna verkfalls flug-
virkja þjá Flugmálastjórn sem staðið hefur yilr í einn mánuð.
Vegna verkfallsins hefúr ekki reynst unnt að nota flugvél Flug-
málastjórnar til að flugprófa blindflugstæki á flugvöllum landsins.
Flugvirkjar hjá Flugmálastjórn
krefjast sömu kjara og starfs-
bræður þeirra í Flugvirkjafélagi
íslands njóta. Sagði Pétur í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að
hann vonaði að eitthvað færi að
þokast í samkomulagsátt í deil-
unni. Sagði hann að enginn fund-
ur hefði enn verið haldinn með
deiluaðilum. Forsvarsmenn fjár-
málaráðuneytisins hafa neitað að
setjast að samningaborði og borið
því við að flugvirkjar Flugmála-
stjórnar, sem eru þrír, séu opin-
berir starfsmenn og hafi ekki
verkfallsrétt. Bjóst Pétur við því
að haldinn yrði fundur annaðhvort
í dag, fimmtudag, eða á næstu
dögum.
Birgir Guðjónsson, sem sæti á
í samninganefnd ríkisins, sagði
að þrír starfsmenn Flugmála-
stjórnar sem aðallega sinntu skrif-
stofustörfum, eins og því að gefa
út flughæfnisskírteini og öðru
þvílíku, hefðu á undanfömum
árum einnig þjónustað einkavél í
eigu Flugmálastjómar enda hefðu
þeir allir flugvirkjamenntun.
„Þetta em opinberir starfsmenn
sem vinna við öryggisstörf. Sam-
kvæmt öllum lögum bijóta þeir
gegn skyldum sínum með því að
leggja niður störf.“
I máli Birgis kom fram að Flug-
virkjafélagið hefði sent flugvirkj-
um hjá Flugmálastjóm bréf þar
sem þeim, er bannað að vinna við
flugvirkjun. Aldrei fyrr hefði verið
amast við störfum þessara manna
enda væri flugvirkjun ekki lög-
verndað starfsheiti. Birgir kvaðst
ekki skilja að eitthvert stéttar-
samband „úti í bæ“ gæti tekið
upp á því að semja fyrir opinbera
starfsmenn hjá Flugmálastjórn og
vísaði þar til afskipta Flugvirkja-
félagsins af launadeilu flugvirkja
hjá Flugmálastjórn. Hann sagðist
ekki sjá aðra lausn á þessari deilu
en að starfsmennimir þrír segðu
upp störfum og létu á það reyna
hvort þeir yrðu endurráðnir á þeim
kjömm sem flugvirkjar hjá Flug-
virkjafélaginu njóta.
Misjafnt er hve langur tími má
líða frá flugprófun á blindflugs-
tækjum en á Reykjavíkurflugvelli
hefði sú prófun átt að fara fram
fyrir 28. október síðastliðinn.
anríkisráðherra íslands. Hann sagði
að EFTA vildi bíða og sjá hvernig
fýrirhugaðir samningar þess við
Evrópubandalagið um evrópsk
efnahagssvæði þróast áðar en sam-
tökin gefa út samstarfsyfirlýsingu
með Ungveijalandi en það kæmi
ekki í veg fyrir að einstök ríki sam-
takanna ættu tvíhliða samskipti við
Ungverjaland. Sem utanríkisráð-
herra Islands og stjórnmálamaður
sagði Jón Báldvin Morgunblaðinu
að hann væri mjög hlynntur auknu
samstarfi við Ungveijaland og sú
stefna að bíða og sjá til væri mis-
tök. „Ef Ungveijar þurfa að sýna
í verki að þeir hyggjast breyta þjóð-
félagsskipulaginu til að skapa for-
sendur fyrir samstarfi þá veit ég
ekki hvað menti vilja að þeir geri
meira en þeir hafa nú þegar gert,“
sagði hann.
Utanríkisráðherra og kona hans,
frú Bryndís Schram, fara ásamt
fylgdarliði í skoðunarferðir í dag
en á morgun eru viðræður í við-
skiptaráðuneytinu fyrirhugaðar.
Frjálst verð á síld til frystingar:
Kaupendur yrðu sett-
ir í einokunaraðstöðu
- segir Guðjón A. Kristjánsson
„KAUPENDUR yrðu settir í einokunaraðstöðu ef verð á síld til fryst-
ingar yrði gefíð frjálst núna. Seljendur hafa einungis þá kosti að
selja síldina til frystingar og bræðslu á meðan ekki er búið að semja
við Sovétmenn um saltsíldarkaup þeirra," sagði Guðjón A. Kristjáns-
son, einn af fúlltrúm seljenda í verðlagsráði sjávarútvegsins, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Síldarverkendur hafa sagt upp
verði á síld til frystingar, þar sem
verð á millisíld hefur verið óhag-
stætt að undanförnu, að sögn
Bjarna Lúðvíkssonar, fulltrúa kaup-
enda í verðlagsráði sjávarútvegsins.
Kaupendur hafa ákveðið að fara
fram á fijálst verð en fulltrúar selj-
enda hafa alfarið hafnað því.
„Sjómenn hafa almennt viljað
frjálsa verðlagningu á fiski en kaup-
endurnir vilja einungis hafa verðið
fijálst þegar þeim hentar, sýnist
mér,“ sagði Guðjón A. Kristjánsson.
2% gengislækkun varð
á krónunni í október
MEÐALGENGI íslensku krónunnar lækkaði um 2% miðað við við-
skiptavog á tímabilinu frá 30. september til 31. októbér síðastliðins,
samkvæmt upplýsingum Seðlabanka Islands.
Kaupgengi hinna ýmsu gjald-
miðla breyttist misjafnlega á þessu
tímabili. Sterlingspund og japanskt
yen lækkuðu, pundið um 0,6% og
er nú skráð á 97,919 kr., yenið um
0,8% og er skráð á 0,4337 kr.
Bandaríkjadollar hefur hækkað
um 2,1%, dönsk króna um 4%, hol-
lenskt gyllini um 3,8%, vestur-þýskt
mark um 3,8%, ítölsk líra um 3%,
spænskur peseti um 3,4%, sérstök
dráttarréttindi, SDR, um 1,8% og
Evrópumynt, ECU, um 3%.
Kaupgengi Bandaríkjadals var í
gær skráð 62,23 krónur og hefur
hækkað úr 60,98 krónum í byijun
október.
Sjá gengisskráningu á bls. 28.