Morgunblaðið - 02.11.1989, Page 12

Morgunblaðið - 02.11.1989, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1989 Viðskiptajöfur í Vestmannaevjum Hús Gísla Gíslasonar, sem hvarf uiidir hraun. eftir Aðalstein Jóhannsson Ég hef greint nokkuð frá merk- um athafnamönnum í Eyjum í greinum hér í blaðinu síðustu árin, aðallega mönnum, sem komnir voru á fullan skrið eða meira en það, þegar ég var að alast þar upp. Að þessu sinni langar mig til að bæta í safnið yngri manni, sem ég kynnt- ist raunar nokkuð síðar á ævinni. Hér á ég við Gísla M. Gíslason, sem rak lengi heildverzlun í Eyjum og átti aðild að mörgum öðrum fyrirtækjum, bæði á heimaslóð og í Reykjavík. Hjá honum beygðist snemma krókurinn til þess, er verða vildi, því að 15-16 ára gamall fór hann að fást við umboðsverzlun á eigin spýtur. Honum fannst fljótt hæfa að mennta sig í viðskiptafræð- um og gekk í Verzlunarskóla ís- lands. Þaðan útskrifaðist hann 18 ára gamall vorið 1936. Eftir heimkomuna þaðan gerðist hann starfsmaður Útvegsbankans í Eyjum um skeið en sigldi síðan til Bretlands til framhaldsnáms í verzlunarfræðum. Þegar hann hafði þannig fengið góða innsýn í viðskiptalíf á breiðum grundvelli, stofnsetti hann umboðs- og heildverzlun heima í Vestmanna- eyjum og stýrði henni með ágætum í fulla þijá áratugi. Þá setti eldgos- ið í Eyjum strik í reikninginn, því að hraunflóðið færði hús hans í kaf. Fór þar með búslóð heimilis- ins. En Gísli og konan hans, Guðrún Sveinbjarnardótti'r, létu ekki bug- ast. Ekki hafði ijölskyldan dvalið lengi á fastalandinu, þegar byijað var að leggja grunninn að nýju íbúð- arhúsi. Og svo fór að þau hjónin og böm þeirra fjögur fluttu öll til Eyja á ný eins fljótt og kostur var og settust þar að til frambúðar. Gísli tók sæti í stjórn Viðlagasjóðs, sem stóð að uppbyggingu í Vest- mannaeyjum, og með atfylgi sínu þar sýndi hann ræktarsemi við átt- hagann og varð mörgum samborg- urum sínum að liði, því að honum var hjálpsemi í blóð borin. Hann átti líka hvað mestan þátt í að út- vega öflugar dælur frá Banda- ríkjunum, þegar farið var að kæla nýja hraunið með sjó. Gísli Magnús Gíslason hét hann fullu nafni, fæddur 22. nóv. 1917, sonur Gísla Þórðarsonar vélstjóra og Rannveigar Vilhjálmsdóttur konu hans. Gísli 'vélstjóri drukknaði í fiskiróðri frá tveimur börnum, Gísla á þriðja ári og nýfæddri dótt- ur. Slík atvik og slys voru mjög tíð í Eyjum á þessum árum. Rannveig móðir barnanna giftist aftur Viggó Bjömssyni bankastjóra í Eyjum, og með þeim ólst Gísli upp við bezta atlæti, en systur hans tók vinafólk í fóstur. Árið 1941 kvæntist Gísli góðri konu, Guðrúnu Sveinbjarnardóttur, sem er einnig Vestmannaeyingur. Þau hjónin eignuðust fjögur börn, einn son og þrjár dætur, sem eru öll búsett í Eyjum. Sonurinn Har- aldur veitir forstöðu fyrirtæki föður „Þótt Gísli hefði ekki nema tæp 63 ár að baki, þegar hann féll frá, var ferill hans óvenju ijöl- þættur, og má óefað telja hann einna um- svifamestan athafna- og félagsmálamann í Eyj- um á síðari hluta aldar- innar.“ síns, Umboðs- og heildverzlun Gísla Gíslasonar hf. Eins og fyrr var’nefnt hafði Gísli hönd í bagga við stofnun og rekstur ýmissa annarra fyrirtækja. Árið 1945 stofnsetti hann Prentsmiðjuna Eyrún, sem var raunar hlutafélag, en hann var aðaleigandi og stjórn- arformaður. Bækistöð Eyrúnar var í húsi Gísla, sem fór undir hraun. Gísli var líka meðeigandi í Prent- smiðjunni Odda hf. og Sveinabók- bandinu hf. í Reykjavík og lengi stjórnarformaður beggja. Timbur- salan hf. var eitt þeirra fyrirtækja, sem Gísli var aðaleigandi að meðan hún starfaði, og hann var meðal stofnenda Hafskips hf. 1958 og í stjórn þess fyrstu sextán árin, stjórnarformaður um hríð. Allt sýnir þetta, hver hugur var í Gísla á sviði kaupsýslu, en þar að auki tók hann verulegan þátt í mörgum félagsmálum. Hann var m.a. lengi stjórnarmaður í Odd- fellowstúkunni Heijólfi og stóð að stofnun Rotaryklúbbs Eyjamanna. Hann tók virkan þátt í starfi Sjálf- stæðisflokksins og sat í bæjarstjórn Eyjanna um 12 ára skeið og var þar forseti og varaforseti í tvö kjörtímabil. Eitt ár (1960-61) gegndi hann stöðu bæjarstjóra. Þá var hann árum saman varaþing- maður Sjálfstæðisflokksins í Suður- landskjördæmi. Gísli Gíslason var heiðraður fyrir ýmis störf sín, fékk t.d. gullmerki Vestmannaeyjakaupstaðar 1969 og heiðurskrossinn þýzka, Das Ver- dienstkreuz, af fyrstu gráðu skömmu fyrir andlátið, sem bar að haustið 1980. Hafði Gísli þá verið vararæðismaður Vestur-Þýzka- lands um árabil. Þótt Gísli hefði ekki nema tæp 63 ár að baki, þegar hann féll frá, var ferill hans óvenju fjölþættur, og má óefað telja hann einna um- svifamestan athafna- og félags- málamann í Eyjum á síðari hluta aldarinnar. Vart mun annar maður honum fróðari og reyndari í við- skiptum hafa varið ævistarfi sínu Vestmannaeyjum. Til áréttingar því, sem að framan er sagt, sk'al í lokin'birtur dálítill kafli úr minningarorðum Jóns í. Sigurðssonar, sem komu á sínum tíma í heimablaði Eyjamanna: „Ungur að ánjm haslaði Gísli sér völl við þjónustu- og viðskiptastörf. Hann var kappsamur og ruddi braut mörgum nýjungum, sem hann sá af glöggskyni sinni að varð til heilla og framfara fyrir meðborgara sína. Gísli einskorðaði sig ekki við sín eigin verkefni, heldur tók mikinn þátt í störfum og starfsemi fyrir heimabyggð sína, Eyjarnar, sem hann unni af heilindum. Hann var um tíma í forsvari fyrir okkur í sveitarstjórninni og- átti í áraraðir setu þar sem fulltrúi og stjórnandi í bæjarmálum. í stjórnmálum nutu sín vel mannkostir hans, trú- mennska og lipurð og margþætt reynsla á öðrum sviðum. Á Gísla hlóðust allskonar félagsstörf, í nefndum og stjórnum, og í öllum Gísli M. Gíslason þeim félögum, sem hann var í reyndist hann styrk stoð og var víðast við stjórnvölinn á þeim fé- lagsgnoðum, þar sem hann var skráður. Þá eru ótalin þau störf, sem hann vann að af ósérhlífni fyr- ir félaga sína og samferðamenn. Honum stóð ætíð hjaHanlega á sama, hvaða lífsskoðun var á vett- vangi eða stjórnmálaskoðun í fyrir- rúmi. Fullkomið drenglyndi var að- alsmerki hans í öllum þeim málum, sem hann hafði afskipti af, og skipti engu hver í hlut átti. Gísli naut trausts og trúnaðar stjórnvalda og fór í margar sendi- ferðir fyrir þeirra hönd til samn- ingagerðar um viðskipti. Enda voru þeir ekki margir samningahnútarn- ir, sem hann leysti ekki með lipurð sinni og sanngirni. Á þennan hátt naut þjóðin öll sérþekkingar hans. Auk þessa gegndi hann trúnaðar- störfum hér í Eyjum fyrir erlenda stórþjóð, og í því starfi komu eink- ar vel fram hæfileikar hans og glæ- simennska, svo að landi og þjóð var til mikils sóma“. Höfundur er tæknifræðingur. Nýja húsið, sem Gísli reisti eftir gos. Málningarverksmiðjurnar: Byggja á íslenskri hefð í meira en hálfa öld eftirMagnús Helgason í tilefni íslenskra daga sem standa yfir um þessar mundir hjá BYKO og Byggt og búið, og sem Félag íslenskra iðnrekenda er aðili að, langar mig að rifja upp nokkrar staðreyndír um íslensku málningar- verksmiðjurnar, en einn tilgangur íslensku dagana er að fræða al- menning um innlendan iðnað. Hér á landi starfa fjórar málning- arverksmiðjur, sem allar byggja á áratuga reynslu. í Reykjavík eru Málningarverksmiðja Slippfélags- ins, Málning og Harpa, en á Akur- eyri er Efnaverksmiðjan Sjöfn. Hjá þessum fjórum verksmiðjum starfa nú á bilinu 150 til 180 manns. Islensku verksmiðjurnar eiga í harðri samkeppni við tollftjálsan innflutning, enda nýtur greinin engrar verndar af neinu tagi. Röng gengisskráning og skattpíningar- stefna stjórnvaida hefur íþyngt rekstrinum um sinn, eins og raunar flestum öðrum atvinnugreinum. Nýjasta dæmið er 9% vörugjald, sem núverandi ríkisstjórn lagði á við upphaf ferils síns. Þá má geta þess að sl. sumar er eitt mesta rign- ingarsumar í manna minnum á Suðvesturlandi, og hefur það að sjálfsögðu dregið mjög úr málning- arsölu, en það hvarflar ekki að mér að kenna ríkisstjórninni um það! Þrátt fyrir þetta er enginn barlómur í íslenskum málningar- „Þrátt fyrir þetta er enginn barlómur í íslenskum málning'ar- framleiðendum, en markaðshlutdeild þeirra er nú um 50%, en hefur reyndar farið minnkandi á undan- förnum árum.“ framleiðendum, en markaðshlut- deild þeirra er nú um 50%, en hefur reyndar farið minnkandi á undan- förnum árum. Samkeppni erlendis frá hefur stöðugt farið vaxandi, og Magnús Helgason er á stundum mjög óvægin. Til að mynda hefur það gerst að málning, sem bar.nað hefur verið að selja á Norðurlöndum vegna mengunar, hefur verið séld til Islands á mjög niðursettu verði. Hjá íslensku máiningarverk- smiðjunum hefur um áratuga skeið verið unnið rannsóknar- og vöru- þróunarstarf. Efnafræðingar verk- smiðjanna vinna stöðugt að þróun málningar, sem sérstaklega hentar íslenskum aðstæðum og hinni um- hleypingarsömu veðráttu okkar. Vegna gæða og aðlögunar að íslenskum aðstæðum hefur innlend framleiðsla yfirburði á ýmsum svið- um. Til marks um það-má nefna, að markaðshlutdeild íslensku verk- smiðjanna í húsamálningu, utan- húss- og innan, er yfir 90%. Það ber að fagna frumkvæði Félags íslenskra iðnrekenda, BYKO og Byggt og búið, til kynningar á íslenskum byggingarvörum. Fag- menn og aðrir þeir sem nota í íslenska málningu efast ekki um ‘gæði hennar. Ég tel hana ekki gefa erlendri framleiðslu neitt eftir, nema síður sé. Ég hvet menn til að prófa sjálfa. Ég óttast ekki sam- anburðinn. Á tímum minnkandi atvinnu er okkur öllum hollt að hafa í huga að íslensk framleiðsla er íslensk atvinna. Höfundur er framkvæmdastjóri Hörpu hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.