Morgunblaðið - 02.11.1989, Page 15

Morgunblaðið - 02.11.1989, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. NOVEMBER 1989 15 Píanókonsert er með skýrar línur og miklum syngjanda - segir Edda Erlendsdóttir, einleikari eftir Rafh Jónsson Á TÓNLEIKUM Sinfóníuhljóm- sveitarinnar, fímmtudaginn 2. nóvember, kl. 20.30, verða flutt þrjú verk; Sinfónía nr. 3 eftir Schubert, Píanókonsert eftir Grieg og að lokum Adagio úr Sin- fóníu nr. 10 eftir Mahler. Hljóm- sveitarstjóri verður Grikkinn Mi- litiades Caridis og einleikari Edda Erlendsdóttir. Edda hlaut píanókennslu sína hjá Hermínu Kristjánsson, Jóni Nordal og Áma Kristjánssyni í Tónlistar- skólanum í Reykjavík. Hún útskrif- aðist þaðan með kennarapróf 1972 og hélt tii framhaldsnáms til Parísar en kennir tvo daga í viku í Tónlistar- ' skólanum í Lyon. í rúman áratug hefur hún haldið einleikstónleika í ölíum Norðurlönd- um, Frakklandi, Þýskalandi, Beigíu, Sviss, Sovétrlkjunum og Banda- ríkjunum og fyrir tæpu ári hélt hún fyrstu einleikstónleika sína í Lundún- um. í mars í vor lék hún píanókon- sert Griegs með Sinfóníuhljómsveit Harrisborgar I Bandaríkjunum, en sama konsert leikur hún nú með Sin- fóníuhljómsveit Islands. Um Chopin norðursins Um pianókonsertinn sagði Edda: „Mér finnst þetta mjög fallegt verk, með skýrar línur og miklum syngj- anda. Það er mikill náttúrukraftur í því, sem er tiitölulega auðvelt fyrir Islendinga að skilja. Verkið stendur okkur nærri, því það er með skýra tilvísun í norræna skapgerð og menn- ingu, sem Norðmenn og ísiendingar eiga að mörgu leyti sameiginlega." Edda sagði einnig að þrátt fyrir að smá form virtust henta Grieg betur sem tónskáldi, eintogtil dæmis laga- flokkurinn Ljóðræn smáverk, sem hún lék á styrktartónleikum í ís- lensku óperunni í sumar, hafi hann tengt píanókonsertinn meistaralega saman í eina heild og skapað þannig stílfagran og glæsilegan konsert. Edvard Grieg frumflutti sjálfur píanókonsertinn, 25 ára gamall, á tónleikum í Kaupmannahöfn 1869, fyrir 120 árum. Grieg var þó fyrst og fremst tónskáld og viðurkenndur á þessum tíma sem eitt mesta tón- skáld samtíðar sinnar. Hann hlaut margháttaða viðurkenningu fyrir tónsmíðar sínar, var m.a. gerður að heiðursdoktor í Cambridge og Oxford og meðlimur í sænsku akademíunni sem og hinni frönsku. Hann var kall- aður Chopin norðursins og lýsir það kannski betur en margt annað hversu ljóðræn tónlist hans er. Edda segir, að nokkur tónskáld höfði sterkar til hennar en önnur, eins og til dæmis Schubert, en hún nýtur þess einnig að spila verk eftir tónskáld, sem hún þekkir lítið til, því það sé mjög spennandi að fást við ný og krefjandi verkefni. Tvær sinfóníur Austurríska tónskáldið Franz Schubert lifði ekki langa ævi (1797- 1828) en afkastaði ótrúlega miklu. Hann lést aðeins 31 árs að aldri. Eftir hann liggja hundruð ljóða- söngva, kirkjuverka, verka fyrir píanó, dansa fyrir píanó og kamm- erverk auk 8 sinfónía og nokkurra annarra hljómsveitarverka. Tii dæm- is um afköst hans, samdi hann 140 ljóðasöngva árið 1815, aðeins 18 ára að aldri. Sama ár samdi hann 3. sin- fóníuna, þá sem flutt verður á tón- leikum Sinfóníuhljómsveitarinnar. Hún þykir lýsa Schubert best sem tónskáldi. Brian Newbouid lauk við hefjast bráðlega hjá ÆTTFRÆÐIÞJÓNUSTUNNI (lýkur um miðjan desember). Leiðbeinandi Jón Valur Jensson. Innritun í síma 27101 daglega. Ættfræðiþjónustan hana og þykir hafa haldið stílbrigð- um Schuberts með afbrigðum vel. Schubert lifði og starfaði í Vínarborg og kom þar fram á tónleikum, þar sem hann lék eigin verk á píanó og söng. Austurríkismaðurinn Gustav Mahler var ekki aðeins tónskáld, heldur afkastamikill framkvæmda- stjóri í uppbyggingu tónlistar. Hann starfaði við óperuna í Prag og varð rúmlega þrítugurtónlistarstjóri óper- unnar í Búdapest, þar sem hann varð jafnframt frábær hljómsveitar- stjóri. Honum var boðin staða við óperuna í Vínarborg, en fékk þó ekki, þar sem hann var gyðingur. Hann lét þó slíkt ekki aftra sér og tók kaþólska trú og var fram- kvæmdastjóri Vínaróperunnar í ára- tug. Á þessum tíma var hún hafin til þeirrar virðingar, sem hún hefur haldið æ síðan. Það var svo ekki fyrr en í byrjun þessarar aldar, sem hann sökkti sér ofan í tónsmíðar, eftir að hafa sleppt flestum stjórnun- arstörfum að sinni. Árið 1907 varð hann aðalstjórnandi Metropolitan- óperunnar í New York. Hann náði frábærum árangri í starfi sínu þar, en ienti upp á kant við stjórnendur óperunnar. Haft var eftir eiginkonu hans, Ölmu Mahler, að í Austurríki hefði sjálfum keisaranum ekki dottið í hug að skipa Mahler fyrir, en í Bandaríkjunum varð hann að lúta duttlungum tíu fáfróðra kvenna! Gustav Mahler hlaut ekki verðskuld- Edda Erlendsdóttir einleikari. aða viðurkenningu sem tónskáld fyrr en á þt'iðja áratug þessarar aldar. 10. sinfónían er í tveimur þáttum, Adagio, sem verður flutt á tónleikun- um og Purgatorio. Nokkrar útgáfur eru til af þessari sinfóníu, sem seinni tíma menn hafa lagað tii og sú síðasta er frá 1972. Hljómsveitarstjóri á tónleikunum er Militiades Caridis. Hann er af grísk-þýskum uppruna, ólst upp í Dresden og Aþenu en stundaði nám við Tónlistarháskólann í Vínarborg. Hann hefut' starfað víða um lönd, var meðal annars um skeið fastur stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar danska útvarpsins og í meira en ára- tug var hann aðalstjómandi Fílharm- óníusveitarinnar í Ósió. Á aldaraf- mæli ungverska tónskáldsins Béla Bartók var hann sæmdur heiðurspen- ingi, sem kenndur er við tónskáldið, og felst í því hin mesta viðurkenning. Militiades hefur tvisvar áður stjórnað Sinfóníuhljómsveit íslands, i fyrsta skipti 1985. Höfundur er kynningarfulltrúi Sinfóníuhljómsveitarinnar. í: Stiórnmálaskóli Sjálfstæöisflokksins Kvöld- og helgarskóli 7.-17. nóvember 1989 Staður: Valhöll, Háaleitisbraut 1. Tími: Mánud. - föstud. kl. 17.30- 22.00 og helgardaga kl. 10.00-17.00. Dagskrá: Þriðjudagur 7. nóvember: Kl. 17.30 Skólasetning. Kl. 17.50-19.00 Raeðumennska: Gísli Blöndal, framkvæmdastjóri. Kl. 19.30-22.00 Saga stjórnmálaflokkanna: Sigurður Líndal, prófessor. Miðvikudagur 8. nóvember: Kl. 17.30-19.00 Atvinnurekstur í almenningseigu: Baldur Guðlaugsson, hrl. og Sigurður B. Stefáns- son, framkvæmdastjóri. Kl. 19.30-19.45 Myndataka Stjórnmálaskólans. Kl. 19.50-21.00 Stjó’rnskipan og stjórnsýsla: Sólveig Pétursdóttir, lögfr. Kl. 21.10-22.00 Grundvallarhugtök stjórnmálanna: Guðmundur Magnússon, sagnfræðingur. Fimmtudagur 9. nóvember: Kl. 17.30-19.00 Fjölmiðlaþróun og breytingar gagnvart stjórn- málaflokkunum: Styrmir Gunnarsson, ritstjóri. Kl. 19.30-22.00 Ræðumennska: Gísli Blöndal, framkvæmdastjóri. Föstudagur 10. nóvember: Kl. 17.30-22.00 Heimsókn á Alþingi. Starfshættir Alþingis og meðferð þingmála: Sigurbjörn Magnússon, framkvæmdastjóri þing- flokksins. Sjálfstæðisstefnan: Friðrik Sophusson, alþingismaður. Sjálfstæðisflokkurinn í stjórnarandstöðu: Friðrik Sophusson, alþingismaður. Laugardagur 11. nóvember: Kl. 10.00-17.00 Sjónvarpsþjálfun og ræðumennska: Björn G. Björnsson, dagskrárgerðarstjóri, og Gísli Blöndal, framkvæmdastjóri. Sunnudagur 12. nóvember: Kl. 18.00-20.00 Heimsókn á Stöð 2. Mánudagur 13. nóvember: Kl. 17.30-19.00 Sjálfstæðisflokkurinn í 60 ár: Hannes H. Gissurarson, lektor í stjórnmálafræði. Kl. 19.30-20.40 Skipulag og starfshættir Sjálfstæðisflokksins: Inga Jóna Þórðardóttir, viðskiptafræðingur. Kl. 20.50-22.00 íslensku vinstri flokkarnir: Geir H. Haarde, alþingismaður. Þriðjudagur 14. nóvember: Kl. 17.30-19.00 Útbreiðslu-og kynningarmál flokksins: Jón Hákon Magnússon, framkvæmdastjóri. Kl. 19.30-20.40 Útgáfustarf-, greina- og fréttaskrif: Þórunn Gestsdóttir, ritstjóri. Kl. 20.50-22.00 Hvernig á að kynna Sjálfstæðisflokkinn - opnar umræður: Sigurbjörn Magnússon, Ólafur Hauksson, Jón Hákon Magnússon, Þórunn Gestsdóttir. Miðvikudagur 15. nóvembeh,5*' * • * Kl. 17.30-19.00 Heimsókn f fundarsal borgarstjórnar. Hlutverk borgarstjórnar: Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjórnar. Kl. 19.30-20.40 Sveitarstjórnarmál - dreifbýlið: Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri. KI.20.50-22.00 Vinnumarkaðurinn. Fimmtudagur 16. nóvember: Kl. 17.30-19.00 ísland á alþjóðavettvangi: Björn Bjarnason, lögfræðingur. Kl. 19.30-22.00 Pallborðsumræður - Sjálfstæðisflokkurinn: Þorsteinn Pálsson, Davíð Stefánsson, Sigríður Þórðardóttir og Guðmundur Hallvarðsson. Föstudagur 17. nóvember: KL 17.00 Skólaslit. Nýtt námsefni: Handbók. í Stjórnmálaskólanum er meðal námsefnis handbók Sjálfstæðisflokks- ins, sem geffn er út i tilefni 60 ára afmælis flokksins. í handbókinni er fjallað um Sjálfstæðisflokkinn, sögu hans, stefnu og skipulag. Ei.ijn- ig er gerð grein fyrir öðrum stjórnmálaflokkum, ræðumennsku, fjöl- miðlun og fleira. Innritun er hafin. Upplýsingar eru veittar í síma 82900 - Þórdís.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.