Morgunblaðið - 02.11.1989, Side 16

Morgunblaðið - 02.11.1989, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. NOVEMBER 1989 Heimssöngvara- keppnin í Cardiff eftir Tage Ammendrup Sjónvarpið sýnir á laugardag 4. nóvember upptöku BBC í Wales frá Heimssöngvarakeppninni í Cardiff, „Singer of the World Competition“, sem haldin var í ijórða sinn í Card- iff, dagana 11.—17. júní. Meðal þátttakenda var ung íslensk söng- kona, Rannveig Bragadóttir og munum við sjá þann undanriðil sem hún keppti í, auk þess sem við sjáum upptöku frá úrslitum keppninnar. Sjónvarpinu var að venju boðin þátttaka í Heimssöngvarakeppninni og er þetta í fjórða sinn sem við sendum fulltrúa. Sveinn Einarsson, dagskrárstjóri, fékk Jón Þórarins- son, tónskáld, Bergþóru Jónsdóttur, tónlistarfræðing, og Þorstein Hann- esson, óperusöngvara, til að velja fulltrúa Islands að þessu sinni. Valið var erfitt, því við eigum mikið af ungum og efnilegum söngvurum, en eftir nokkrar vanga- veltur valdi nefndin Rannveigu Bragadóttur, messósópran, sem hefur nýverið lokið námi og starfar nú við ríkisóperuna í Vín. í þætti sem Sjónvarpið lét gera um Rann- veigu af þessu tilefni, söng hún lög eftir innlenda og erlenda höfunda, jafnframt því sem við kynntumst nokkuð uppvexti hennar, námi hér og erlendis og framtíðaráformum. Fyrsti fulltrúi okkar, Sigríður Gröndal, tók þátt í keppninni 1983, eftir sigur í keppni, sem fram fór í beinni útsendingu í sjónvarpssal. Ingibjörg Guðjónsdóttir hélt til Cardiff 1985, að undangengnum sigri í keppni Sjónvarpsins og 1987 var Kristinn Sigmundsson valinn fulltrúi íslands í Heimssöngvara- keppninni. Þessir glæsilegu fulltrúar okkar hafa vakið mikla athygli ytra og undrast menn, hve tónlistarmenn- ing er mikil og áhugi almennur hjá svo^ fámennri þjóð. Árið -1987 kom fram hörð gagn- rýni á dómnefnd keppninnar og rit- aði greinarhöfundur stjórnendum hennar ítarlegt bréf, þar sem bent var á ýmsar leiðir til úrbóta. Varð það til þess að keppnisreglum var breytt, m.a. á þann veg að nú ræð- ur stigaijöldi því, hverjir komast í úrslit, í stað þess að sigurvegarar í undanriðlum komust undantekn- ingalaust áfram í aðalkeppnina. Ástæða þótti til að útiloka nemend- ur dómnefndarmanna frá keppni og nú voru veitt sérstök verðlaun fyrir ljóðasöng. Þessar breytingar eru til mikilla bóta og var vel tekið af þátttakendum og dómnefndar- mönnum. Dómnefnd skipuðu Brian McMaster, stjórnandi Velsku óper- unnar, Irina Arkhipova, söngkona og prófessor við Tsjajkovskíj tón- listarskólann í Moskvu, Matthew Epstein frá Bandaríkjunum, Donald Mclntyre, óperusöngvari, Vera Rozsa, óperusöngkona og kennari, Elisabeth Söderström, óperusöng- kona, og Shen Xiang, prófessor við tónlistarháskólann í Peking. Þátttakendur voru 28 talsins, frá jafnmörgum löndum, þar af sex löndum sem ekki höfðu tekið þátt í keppninni áður. Keppnin fór fram í St. David’s Hall, tónlistarhöllinni i Cardiff, sem er sannkölluð lista- miðstöð borgarbúa og landsmanna allra, enda hljómar tónlist frá St. David’s Hall alla daga og öll kvöld. Rannveig kemur til Cardiff Rannveig Bragadóttir kom til Cardiff 10. júní og hafði sambandi við undirleikara sinn í keppninni, Catherine Roe-Williams, sem marg- ir íslendingar kannast við, en hún "hefur verið undirleikari hjá Söng- skólanum og stjórnaði Karlakór Reykjavíkur. Catherine er nýflutt til Cardiff, þar sem maður hennar leikur með sinfóníuhljómsveit BBC í Wales. Hún saknar íslands mikið og er í fersku minni þegar karla- kórsmenn kvöddu hana á flugvellin- um og færðu henni eina rauða rós hver í kveðjuskyni. Eftir að hafa rætt við Catherine, hófust æfingar með hljómsveitar- stjóra óperuhljómsveitarinnar, Richard Armstrong, og tónlistar- stjóranum, Julien Smith. Að lokinni æfingu hélt starfslið BBC Wales gestum veislu, þar sem keppendum og gestgjöfum gafst tóm til að kynnast. Keppnin hafín Sunnudaginn 11. júní var haft viðtal við Rannveigu í garði gömlu hallarinnar í Cardiff, en um kvöldið hófst keppnin sjálf, með því að Gareth Price, yfirmaður BBC Wales og borgarstjórinn í Cardiff, Beti Jones, buðu gesti velkomna og settu keppnina. Á þessu fyrsta keppniskvöldi komu fram keppendur frá Sviss, Noregi, Englandi, ísrael, Þýska- landi og Ástralíu. Hljómsveit óper- unnar lék, undir stjórn Richards Armstrongs. Það sem mesta at- hygli vakti þetta kvöld, var söngur norðmannsins Trond Halstein Moe, á vísum Eiríks konungs, eftir Rang- ström. Sigurvegari kvöldsins varð ástralska söngkonan Helen Adams. Mánudaginn 12. júní æfði Rann- veig með undirleikara sínum og óperuhljómsveitinni, en um kvöldið var önnur umferð keppninnar í St. David’s Hall. Fram komu söngvarar frá Nýja-Sjálandi, Hollandi, Japan, Finnlandi, Wales og Búlgaríu. Sér- staka athygli vakti söngur japönsku sópransöngkonunnar Saori Ádachi, finnsku messósópran-söngkonunn- ar Monicu Groop og baritón-söngv- arans Bryn Terfel frá Wales, sem vann keppnina þetta kvöld. Hann söng lög eftir Mozart, Vaughan Williams og Wagner, en túlkun hans á „Was duftet doch der Flied- er“ úr Meistarasöngvurunum frá Núrnberg var stórkostleg. Rannveig syngur Þriðudagskvöldið 13. júní átti Rannveig að keppa og var ekki laust við að Islendingar í Wales væru nokkuð spenntir fyrir hennar hönd og reyndar okkar allra. Hún æfði með undirleikara sínum og hljóm- sveitinni um daginn og gengu æf- ingar vel. Hljómleikarnir hófust með söng Lyne Fortin frá Kanada, en næst í röðinni var Rannveig og hún söng „Laudamus te“ úr c-moll messu Mozarts, „Piercing eyes“ eftir Haydn, „Tu sola, o mia Giuli- etta“ eftir Bellini og að lokum „Sein wir wieder gut“ úr Ariadne frá Naxos eftir R. Strauss. Þetta var glæsileg efnisskrá og var Rann- veigu fagnað vel og innilega, enda stóð hún sig frábærlega vel. Rannveig Bragadóttir „Þessir glæsilegu fiill- trúar okkar hafa vakið mikla athygli ytra og undrast menn, hve tón- listarmenning er mikil og áhugi almennur hjá svo fámennri þjóð.“ Á eftir Rannveigu kom kínversk sópran-söngkona, Zhang Li Ping, og hafði hún mjúka og áferðarfal- lega sópranrödd. Eftir hlé komu söngvarar frá Mexíkó, Skotlandi og Póllandi og söng pólska söngkonan Izabella Klosinski „Sucido! In questi fieri momenti“ úr Gioconda eftir Ponch- ielli og „Pace, pace, mio Dio“ úr Valdi örlaganná, eftir Verdi af mikl- um skaphita og með tilþrifum. Dómnefndin valdi Zhang Li Ping frá Kína sigurvegara kvöldsins, en gagnrýnendur blaðanna lofuðu mjög söng Rannveigar og töldu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.