Morgunblaðið - 02.11.1989, Síða 17

Morgunblaðið - 02.11.1989, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1989 17 þeir túlkun hennar á Bellini og Strauss hápunkta kvöldsins. Enn einu sinni gátum við verið hreykin af fulltrúa okkar í Heims- söngvarakeppninni. Keppnin heldur áfram Pjórða keppniskvöldið _ komu fram söngvarar frá Norður-írlandi, Argentínu, Austurríki, Danmörku, Bandaríkjunum og Brasilíu. Mesta athygli þetta kvöld kvöktu þau Asa Báverstam frá Danmörku og Dam- on Evans frá Bandaríkjunum. Asa er ung sópransöngkona af sænsku bergi brotin og söng m.a. lag eftir Mellnás við undirleik Ingrid Surg- enor. Ingrid sló einn tón, með „ped- alann“ niðri og Ása sneri baki við áheyrendum og söng inn í flygilinn. Þetta var hressandi og skemmtileg uppákoma. Damon Evans, tenór, söng m.a. lög úr Porgy og Bess eftir Gershwin og lék með af innlif- un, áhorfendum til mikillar skemmtunar. Fimmtudaginn 15. júní fengum við að sjá söngvara frá Portúgal, írlandi, Italíu, Svíþjóð og Sovétríkj- unum. Sænska sópran-söngkonan Hillevi Martinpelto, söng lög eftir Purcell, Brahms, Puccini og Mozart frábærlega vel og rússneski bari- tón-söngvarinn Dmitri Hvorost- ovskíj valdi verk eftir Hándel, Wolf, Rakhmanínov, Tsjajkovskíj og söng „Perfidil-Pietá, rispetto, amore“ úr Macbeth eftir Verdi af einstakri snilld. Það komu því ekki á óvart að fulltrúi Sovétríkjanna var valinn sigurvegari kvöldsins. í lok tónleikanna var tilkynnt hveijir yrðu í úrslitum Heimssöngv- arakeppninnar þann 17. júní; Helen Adams frá Ástralíu, Bryn Terfel frá Wales, Monica Groop frá Finnlandi, Hillevi Martinpelto frá Svíþjóð og Dmitri Hvorostovskíj frá Sovétríkj- unum. Því fengum við tvo keppend- ur af öðru og fimmta keppniskvöldi og einn af því fyrsta. Glöggt má sjá hversu miklu þessar nýju keppn- isreglur breyta og hversu úrslita- keppnin hefði verið frábrugðin ef sigurvegarar undanriðla hefðu einir komist áfram. Stund milli stríða Þann 16. júní var farið með kepp- endur í skoðunarferð um Cardiff og nágrenni, m.a. var skoðað „Ár- bæjarsafn" þeirra Cardiffbúa, St. Fagans, sem er safn gamalla húsa og muna. Mikil náttúrufegurð er á þessum slóðum, fögur stöðuvötn og ár og sýnishorn af því besta í garð- yrkjumenningu Walesbúa. Úrslitakeppnin Þjóðhátíðardagur íslendinga. 17. júní var haldinn hátíðlegur í Cardiff og tilefni hátíðahalda í borginni fögru, var úrslitadagur Heims- söngvarakeppninnar 1989. íslenski fáninn blakti við hún ásamt fánum hinna 27 þátttökulandanna. Lokatónleikarnir hófust á söng Monicu Groop, messósópran, frá Finnlandi, en hún söng lög eftir Bach, Mozart og Massanet. Helen Adams, sópran, frá Ástralíu söng lög eftir Strauss, Charpentier og Verdi og velski baritón-söngvarinn Bryn Terfel söng „Non piu Andrai" úr Brúðkaupi Fígarós snilldarlega. Þar næst söng hann þtjú lög eftir Schumann og endaði á „Die Frist ist um“ úr Hollendingnum fljúgandi eftir Wagner og var ákaft hylltur, enda á heimavelli. Eftir hlé söng Hillevi Martinp- elto, sópran, lög eftir Sibelius, Schubert, Bizet og Verdi af miklu öryggi og hljómleikunum lauk með söng Dmitri Hvorostovskíj,.baritón, frá Sovétríkjunum. Hann söng aríur úr Grímuballinu eftir Verdi, Spaða- drottingunni eftir Tsjajkovskíj og endaði á „Dauða Rodrigo" úr Don Carlos eftir Verdi. Áhorfendur voru vongóðir um að þeirra maður, Btyn Terfel, myndi sigra, en dómnefndin var á öðru máli, Bryn fékk ljóðaverðlaunin, en sigurvegari kvöldsins var Sovét- maðurinn Dimitri Hvorostovskíj og var honum vel fagnað er hann sveiflaði hinna ótrúlegu kristalsskál yfir höfði sér og fagnað kærkomn- um sigri. Hinni miklu söngveislu, sem staðið hafði í sex kvöld lauk með því að keppendur voru kallaðir inn á svið og þeim þökkuð skemmtunin og síðan risu áheyrendur úr sætum og sungu þjóðsöng Walesbúa, svo að undir tók í St. David’s Hall. Tuttugu og átta ungir söngvarar höfðu glatt augu og eyru hljóm- leikagesta og sjónvarpsáhorfenda, en keppnin var sent út í BBC 2, auk þess sem hún er sýnd víða um heim. Því geta söngvararnir varla fengið betri kynningu, auk þeirrar góðu reynslu sem slík keppni veitir. BBC í Wales þökkum við frábær- ar móttökur og góðan undirbúning, þar sem tekið var tillit til hvers ein- staks keppenda. Anne Williams fær sérstakar þakkir, en hún stjórnaði allri skipulagningu keppninnar og aðstoðaði listamennina í hvívetna. Sjónvarpsáhorfendur mega eiga von á góðri skemmtun í söngveisl- unni miklu á laugardag. Ilöfundur er upptökustjórí hjá Sjónvarpinu. Macintosh fyrir byrjendur Skemmtilegt og fræðandi 22 kennslustunda námskeið um forritið Works. Macintoshbók, 180 blaðsíður, innifalin. Síðdegis-, kvöld- og helgarnámskeið. Stýrikerfi, ritvinnsla, gagnasöfnun og áætlanagerð. Tölvu- og verkfræðiþjónustan Grensásvegi 16 • stmi 68 80 90 LJÓÐA TÓNLEIKAR Margareta Haverinen, sópmn Collin Hansen, píanó í íslensku óperunni laugardaginn 4. nóvember kl. 14.30. Lög eftir Brahms, Duparc, Liszt og Tchaikovsky. Miðasala í íslensku óperunni. Tónlistarfélagið BILL FRÁ HEKLU BORGAR SIG H] HEKLAHF vlf V,' nf.o K Laugavegi 170 -174 Simi 695500 0 /25 .UUU Þú átt skilið að fá áheyrn og öruggan sess Sparisjóður vélstjóra er traustur og áreiðanlegur, með mikið eigið fé. Þar er áhersla lögðápersónulegaþjónustu. Allir fá áheyrn, öruggan sess, leiðsögn og greið svör. En Sparisjóður vélstjóra er ekki aðeins traustur og óreiðanlegur, heldureróhersla lögð þaró persónulega þjónustu. Sparisjóður vélstjóra veitir öllum óheyrn, öruggan sess, leiðsögn og greið svör. Það er enginn stofnanabragur ó Sparisjóði vélstjóra. Fljót lónafyrirgreiðsla er einn meginkosta þjónustu Sparisjóðs vélstjóra. Þetta laðar einstaklinga og lítil fyrirtæki í viðskipti. Lægri lónabeiðnir eru afgreiddar samdægurs eða með eins dags fyrirvara, beiðnir um stór lón eru einnig afgreidd- ar ó skömmum tíma. Símabankinn sparar viðskiptavinum sporin. Með einu sím- tali fær reikningseigandi upplýsingar um viðskipti sín. símabankinn svarar hvenær sem er sólarhringsins. Hann veitir upplýsingar um stöðu reiknings og um síðu$tu hreyfingar, tekur við beiðnum um millifærslu og veitir ýmsar upplýsingar. Það er rétt að kynna sér símabankann. Góð bilastæði eru við bóðar afgreiðslur Sparisjóðs vél- ,stjóra, við Borgartún og í Síðumúla. Fótt er viðskiptavinum banka og sparisjóða kærara en greiður aðgangur að viðskipta- stofnun og næg bílastæði. Það er auðvelt að komast að bóðum afgreiðslustöðum okkar, sem eru í alfaraleið. QS SPARISJÓDUR VÉLSTJÓRA .BORGARTUNI 18 SÍMI 28577 — SÍOUMÚLA 1 SÍMI 685244 Það er enginn stofnanabragur á Sparisjóði vélstjóra <

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.