Morgunblaðið - 02.11.1989, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 02.11.1989, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR- 2. NOVEMBER 1989 „ Úg vw meé hciwsinn -FuLian láuíum p^ar'egvard þinum aldrL." Með morgunkaffinu Ég vil segja þetta svona: Þú hefiir tryggt umsetn- inguna í mánuðinum og það er allnokkuð ... HÖGNI HREKKVÍSI r, pETTA £TR <50 SKyRASTA ÚT- 5ENPING S&M VlOHÖFUM N'A£>! " -\ Landbúnaðinn vantar samkeppni Til Velvakanda. Áhrifa Evrópubandalagsins gætir æ meir í nágrannalöndum okkar og nú er komið að íslending- um sjálfum að velja og hafna hvort þeir vilja verða samstiga Evrópu eða ekki. Þetta er ekki auðveld ákvörðun og flestir sem um málið hafa fjallað hafa talið ráðlegast að ná fram einhvers konar aukaðild. Auðvitað væri það hagkvæm lausn í bili en vafasamt er hvort hægt er að halda sig við takmarkaða aðild til frambúðar. Það er ekki vafi að aðild að Evrópubandalaginu myndi lækka vöruverð verulega hér á landi og sérstaklega á það við um ýmsar nauðsynjavörur og nauðþurftir. Landbúnaðarafurðir myndu til dæmis lækka um mörg hundruð prósent og yrði margur ánægður Týnd læða Þessi gulbröndótta læða tapað- ist í Ártúnsholtinu og er hennar sárt saknað. Hún var með gula ól með nafnspjaldi en skriftin var orðin mjög dauf. Vinsamlegast hringið í síma 672171 ef kisa hef- ur einhvers staðar komið fram. með það. Á móti kemur að t.d. grundvöllur landbúnaðar hér á landi myndi hrynja samdægurs og sennilega allir bændur, nema þá örfáir, myndu flosna upp. Þetta gæti einnig átt við um ýmsar iðn- greinar þó þar sé dæmið ekki eins skýrt. Áðildin gæti með öðrum orðum leitt af sér mikið atvinnu- ■ leysi. Hin raunverulega spurning er hins vegar sú hvort við Islendingar getum komist hjá því til lengdar að ganga í Evrópubandalagið. Landbúnaðurinn hér hefur blómstrað í skjóli innflutnings- banns og þar með hafa þeir sem stjórnað hafa á hveijum tíma get- að handstýrt verðlaginu án minnsta tillits til neytenda. Gengd- arlaus offramleiðsla hefur líka verið stunduð á kostnað neytenda og hún hefur hleypt verðinu upp úr öllu valdi. Ég tel að leyfa ætti takmarkaðan innflutning á land- búnaðarafurðum til að veita land- búnaðinum hæfilega samkeppni. Slíkt gæti orðið mjög til góðs sem undirbúningur fyrir það að stíga skrefið til fulls og fella niður allar hömlur á innflutningi landbúnað- arvara. Við íslendingar höfum um langt skeið reynt að leysa vanda- mál okkar með því að reisa eins konar „Kínamúr" í kring um eyj- una okkar. Nú þegar heimurinn er allur að skreppa saman getur orðið erfitt að viðhalda slíkri að- stöðu. T n Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánu- daga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundur óski nafnleyndar. Víkverji skrifar Heimavinnandi fólk stofnaði sam- tök á dögunum og hyggst beij- ast sameiginlega fyrir margvíslegum hagsmunamálum. Fram kom í frétt- um að mörg mál brenna á þessum hópi og víða þörf úrbóta. I tengslum við stofnfundinn frétti Víkveiji af einstæðri móður, sem starfar sem dagmamma. Sjálf á hún þijú böm, sem eru hjá annarri konu lungann úr deginum. Ástæða þess er sú, að móðirin fær hjálp frá sveitarfélaginu til að greiða dagmömmunni. Ef hún ætlaði sér hins vegar að passa börn- in sín sjálf fengi hún ekkeit greitt og þess vegna valdi hún þessa Ijár- hagslega hagkvæmu lausn. Hins veg- ar má spytja hvort þetta sé gott fyrir- komulag og eðlilegt íyrir konuna og börnin hennar. xxx Upplýsingaþjónusta landbúnaðar- ins gaf fyrir nokkfu út fjölritað- an bækling þar sem er að finna skipu- rit yfir landbúnaðarsamtök, síma- númer samtaka, fyrirtækja og stofn- ana í greininni, atriðisorðalista með tilvísun á aðila sem íjalla um viðkom- andi mál, kort yfir búmarkssvæði og staðsetningu fyrirtækja, upplýsingar um verksvið nokkurra aðila og orða- safn með skýringum um nokkur hug- tök. Ekki þarf að hafa mörg orð um hversu mikill fengur er fyrir blaða- menn og fleiri að uppsláttarriti sem þessu og er framtak Upplýsingaþjón- ustunnar lofsvert. Fullvirðisréttur er eitt þeirra orða sem sífellt er verið að tönnlast á og efast Víkveiji um að mat'gir aðrir en sérfræðingámir viti nákvæmlega hver þýðing orðsins er. Með það í huga birtist hér skýr- ing upplýsingaritsins á orðinu: „Fullvirðisréttur - Framleiðsluk- vóti, það afurðamagn sem bóndinn fær fullvirði (fullt verð) fyrir. Heildar- fullvirðisrétturinn er í raun aðallega það magn afurða sem felst í búvöru- samningum ríkis og bænda á tilteknu tímabili. Allt landið hefur einn heild- arfullvirðisrétt, sem skipt er á milli búmarkssvæða og síðan bænda, mið- að við framleiðslu þeirna á ákveðnu viðmiðunartímabili. Fullvirðisrétti er nú úthiutað í sauðfiárafurðum og mjólk. Framleiði bóndinn yfir fullvirð- isrétt, er hann kominn út fyrir samn- ing milli Stéttarsambands bænda og ríkisins um ákveðið hámark af búvör- um á ári hveiju. Fullvirðisrétt hefur verið hægt að leigja og selja. Einnig er hægt að flytja hluta hans milli ára.“ Við verðlagningu búvara koma hinar og þessar nefndir til sögunnar. Ætli menn viti muninn á fimm- mannanefnd og sexmannanefnd? Sú fyrr talda ákveður hámarkssmásölu- verð þeirra búvara sem háðar eru verðlagsákvæðum, en sexmanna- nefndin ákveður heildsöluvei'ðið sam- kvæmt upplýsingariti landbúnaðar- ins. 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.