Morgunblaðið - 02.11.1989, Side 51
r ^ rrj^ ,, -r-MA£vniL'I ri’ Wí'T T iJ- .,r...
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER'1989
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA
Morgunblaðið/Linden
Félagar Ásgeirs fagna honum (númer 10) eftir að hann hafði skorað fyrra mark sitt og annað mark Stuttgart í gær
— eftir aukaspymu; markið á myndinni að ofan.
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI BIKARHAFA
„Siggi,Siggi
besti...“
- sungu áhorfendur á Neckar-leikvanginum þar
sem Ásgeir gerði tvö mörk og lagði upp önnurtvö
í 5:0 sigri Stuttgart gegn Zenit
Arnórog
félagar
áfram
ARNÓR Guðjohnsen og félagar í Anderlecht
eru komnir í átta liða úrslit Evrópukeppni
bikarhafa. Anderlecht tapaði 2:1 gegn Barc-
elona eftir framlengdan leik í gærkvöidi, en
vann fyrri leikinn í Belgíu 2:0.
Marc Van der Linden tryggði Anderlecht sæti
. í 3. umferð, er hann skoraði í framlenging-
unni. Gestirnir fengu reyndar upplagt tækifæri á
5. mínútu til að gulltryggja áframhaldandi þátt-
töku, en Van der Linden skallaði framhjá úr opnu
færi og skömmu síðar, er markvörður Barcelona
varði frá Degryse og varnarmenn náðu að hreinsa.
Roberto Fernandez fékk besta færi heimamanna
í fyrri hálfleik, en skaut naumlega framhjá. 105
þúsund áhorfendur fengu loks tækifæri til að fagna
í byrjun seinni hálfleiks, er Salinas, sem virtist
vera að inissa jafnvægið, skoraði. Leikmenn And-
erlecht höfðu varla jafnað sig eftir áfallið, er Begui-
ristain bætti öðru marki við.
Barcelona sótti stíft út hálfleikinn, en Henrik
Andersen fékk besta færið 13 mínútum fyrir leiks-
lok — skaut naumlega framhjá marki heimamanna.
í framlengingunni voru leikmenn Barcelona nær
útkeyrðir, en leikmenn Anderlecht voru mun hress-
ari og þeim tókst ætlunarverkið.
Arnór Guðjohnsen og félagar hans hjá Anderlecht gerðu
góða ferð til Barcelona í gær, þar sem þeir tryggðu sér rétt
til að leika í 8-Iiða úrslitum Evrópukeppni bikarhafa.
Ásgeir Sigurvinsson, í hvítum
búningi á miðri mynd, horfir á eftir
knettinum í netið hjá Zenit. Þetta var
fyrra mark Ásgeirs í gær — markvörð-
urinn á greinilega ekki möguleika á
að verja fast skot hans.
„Ekki
alveg
dauður
úr öllum
æðum!f<
„ÞETTA gekk Ijómandi vel —
vonum framar," sagði Ásgeir
Sigurvinsson í samtali við
Morgunblaðið i gærkvöldi, eftir
sigurinn á Zenit Leníngrad.
Ásgeir lék frábærlega í gær;
skoraði tvö glæsileg mörk og
lagði uppönnurtvö.
Asgeir sagði að sovéská liðið
hefði ekki verið sannfærandi.
„Þeir byijuðu þó kröftuglega, en
eftir að við komumst í 1:0 var þetta
búið hjá þeim. Við hefðum getað
unnið enn stærri sigur — komumst
í 5:0 snemma í seinni hálfleik og
eftir það gáfust færi á að skora
meira. En við megum ekki taka of
mikið mark á þessum leik; úrslitin
í honum hjálpa okkur ekkert í Bun-
desligunni. Við leikum á móti sterk-
ari liðum þar.“
Ásgeir var hógvær þrátt fyrir
frammistöðu sína — „maður er ekki
alveg dauður úr öllum æðum enn!“
sagði hann og bætti við: „ég velti
framhaldinu þó ekki of mikið fyrir
mér. Daninn Rasmussen er tilbúinn
aftur; var á bekknum í kvöld, og
Argentínumaðurinn Basualdo er í
liðinu. Tveir útlendingar mega að-
eins leika í einu, en ég verð þó að
segja að ég óttast ekki að ég verði
settur út á næstunni. Það er dýr-
mætt að hafa skorað þessi tvö
mörk nú — þegar ég er að vinna
mig inn í liðið aftur,“ sagði Ásgeir,
sem var nálægt því að skora þrennTi
í leiknum. Hann átti þrumuskot í
þverslá í fyrri hálfleiknum.
ENGLAND
Stórsigur Forest
Wottingham Forest vann örugg-
an sigur, 5:0, yfir Crystal
Palace í ensku deildarbikarkeppn-
inni í gærkvöldi. Steve Hodge skor-
aði tvö mörk, Nigel Clough og Stu-
art Pearce skoniðu eitt. Jeff Hopk-
ins hjá Crystal Palace varð fyrir
því óhappi að skora sjálfsmark í
leiknum.
„SIGGI, Siggi, þú ert sá besti“
sungu 15 þúsund áhorfendur á
Neckar-leikvanginum í Stutt-
gart ígærkvöldi, er heimamenn
með Asgeir í broddi fylkingar
unnu sovéska liðið Zenit 5:0 f
Evrópukeppni félagsliða.
m
Asgeir var yfírburðaleikmaður
á vellinum og kunnu áhorfend-
ur svo sannarlega að meta snilli
hans. Hann átti heimsklassaleik í
annars góðu liði
FráJóni Stuttgart; gerði tvö
Halldórí mörk, lagði upp
Garðarssyni önnur tvö, átti nokk-
iV-Þýskalandi ur giæsj]eg þnjmu-
skot að auki og mataði samheija
sína óspart með góðum, löngum
sendingum, sem sköpuðu ávallt
hættu. „Það verður mikill missir
af þessum sendingum, þegar Ás-
geir hættir með Stuttgart," sagði
fréttamaður sjónvarps, en leikurinn
var í beinni útsendingu.
Arie Haan, þjálfari Stuttgart,
sagði fyrir leikinn að ef sínir menn
spiluðu hraðan bolta, þá ætti Zenit
enga möguleika, því sovésku leik-
mennirnir virtust ekki vera í góðu
úthaldi. Þetta gekk eftir. Stuttgart
tók strax völdin í sínar hendur,
Ásgeir var mikið á ferðinni og lagði
upp tvö fyrstu færin.
Á 27. mínútu gaf Schmáler fyrir
frá hægri á Ásgeir, sem tók knött-
inn á lofti og skaut viðstöðulaust.
Markvörður Zenit varði, en hélt
ekki boltanum og Fritz Walter
fylgdi vel á eftir og skoraði.
Gestimir fengu sína fyrstu hom-
spyrnu á 37. mínútu, en tveimur
mínútum síðar var Ásgeir me#
þmmuskot af um 20 metra færi,
en boltinn fór í slá. Skömmu síðar
gerði hann annað mark Stuttgart
af 22 metra færi. Hartmann renndi
á Ásgeir úr aukaspyrnu og Ásgeir
skaut í stöng og inn.
Allgöwer gerði þriðja markið eft-
ir sendingu frá Walter og á 45.
mínútu skaut Walter framhjá úr
dauðafæri. Á síðustu sekúndum
fyrri hálfleiks geystist Ásgeir upp
völlinn. „Siggi, Siggi“ hrópuðu
ákafir áhorfendur og Ásgeir brást
ekki; negldi af 20 metra færi — 4:0.
Buchwald gerði síðan fimmta
markið í byijun seinni hálfleiks eft-
ir hornspyrnu Ásgeirs, en eftir það
tóku heimamenn lífinu með ró án
þess að missa tökin á leiknum.
HANDBOLTI
Valur lagði
kvennalands-
lið Tanzaníu
Valsstúlkurnar, sem leika í 1. -
deild, sigruðu landslið Tanz-
aníu í Valsheimilinu í gærkvöldi,
29:26. Afrísku stúlkumar höfðu
yfir í leikhléi, 13:12. Þær eru stadd-
ar hér á landi í æfinga- og keppnis-
fei-ð og mæta íslenska landsliðinu
tvívegis um helgina, á laugardag
og sunnudag.
AUKASEÐILL GETRAUNA: 111 111 X 1 1 111