Morgunblaðið - 11.11.1989, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NOVEMBER 1989
"M j---:-----------r ?—7——--
Rútuslysið við
Skálafellsjökul:
Hemlakerf-
ið var í ólagi
TÆKNIDEILD Bifreiðaskoðun-
ar íslands hefur lokið rannsókn
á orsökum slyssins sem varð þeg-
ar fólksflutningabifreið fór út af
veginum skammt neðan Skála-
fellsjökul í sumar. Við rannsókn-
ina kom í ljós að hemlakerfi bif-
reiðarinnar var í ólagi.
Rannsóknin leiddi í ljós, að stirð-
Íeíki í annarri höfuðdælu hemla-
kerfisins, ásamt með leka í hjól-
dælu, olli því að við síendurtekna
hemlun urðu hemkr á afturöxii
bílsins óvirkir.
Jón Bafdur Þorbjörnsson deildar-
stjóri tæknideildarinnar segir að
ökumanni og eigendum bílsins hafi
verið ljóst að hemlarnir voru ekki
í lagi, samkvæmt því sem fram
kemui' í lögregluskýrslum. Hins
vegar hafi þeim ef til vill ekki verið
ljóst hvaða afleiðingar þessi bilun
gæti haft. Hann segir þetta.atvik
sýna hvaða afleiðingar of lítil fag-
mennska í víðhaldi geti haft í för
með sér, fagmenn myndu hafa gert
sér grein fyrir þessari hættu.
Þetta var annað slysið á skömm-
um tíma í sumár, þar sem rúta fór
út af veginum vegna bilunar í
hemlakerfi. Jón Baldur segir að
Bifreiðaskoðunin muni meðal ann-
ars bregðast við þeim slysum sem
orðið hafa með því, að kalla saman
til fundar alla eigendur og rekstrar-
aðila lang- og hópferðabíla sem til
næst upp úr áramótum og ræða við
þá hvað betúr þurfi að fara í rekstri
og viðhaldi bílanna.
Kirkjustræti 10:
Hélt að búið
væriaðaf-
lífa húsin
- segirGuðrún
Helgadóttir for-
seti Sameinaðs
Alþingis
„ÉG hélt að búið væri að aflífa
þessi hús,“ sagði Guðrún Helga-
dóttir forseti Sameinaðs Alþing-
is, þegar hún var spurð álits á
tillögu Katrínar Fjeldsted borg-
arfulltrúa, um að gert yrði við
Kirkjustræti lOa, sem er í eigu
Alþingis.
„Það er búið að halda samkeppni
um nýtt þinghús á þessari lóð og
ég hélt að þar með væri komin við-
urkenning á að húsin ættu að
víkja,“ sagði Guðrún. „Auðvitað
erum við tilbúin til að taka þetta
mál upp að nýju og hef ég falið
Gunnari Ingibergssyni húsameist-
ara Alþingis, að kanna sögu málsins
fyrir samkeppnina um nýtt þing-
hús. Við viljum ekki vera að eyði-
leggja gömul hús í miðbænum en
hvernig við eigum að nýta þlssi
hús, það get ég ekki séð í fljótu
bragði. Það sem við hugsuðum okk-
ur var, að úr því búið væri að drepa
þessi hús þá væri þarna rúm fyrir
ráðherrabílana."
Lofta-
plötur
og lím
Nýkomin sending
Þ.ÞORGRÍMSSON&CO
Ármúla 29, Reykjavik, simi 38640
SYNDMGIDAG
VIÐSKIPTABÚNAÐUR
FRAMTÍÐARINNAR FRÁ SHARP
Viðskiptaumhverfið gerir sí-strangari kröfur,
geturðu mætt þeim?
KON®b UV’ttN ■ . alntat
ÆjKBB
Í M tot
s”ARP CX-7500
HLJOMBÆJARHUSINU HVERFISGOTU
slmi25999