Morgunblaðið - 11.11.1989, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1989
9
i Aksturogáfengieigaaldreisamleið
I/eitingahusið Á Alþingi, í Mjódd, býður nú matar-
r gestum sínum úr Breiðholti akstur að heiman og
heim í eðalvagni frákl. 18 til 24, fimmtudags til laug-
cu-dagskvöld séu þeir 4 saman eða fleiri.
Auk þess viljum við kynna nýja rétti
þinggestum til lystar- og gleðiauka.
Meðvonumánœgjulegaþingför. . .
VEITINGAHÚSIÐ í MJÓDD
S.79911
Opið til kl. 1 föstudags- og laugardagskvöld
BIZAMPELS
Stæróir 38-42
Tilboðsverð kr. 155.000.-
Góð greiðslukjör
Opið til kl. 16.00 laugardag.
PELSINN
Kirkjuhvoli -simi 20160
Hækkun um sex þúsund
milljónir!
Lögin um virðisaukaskatt gera ráð fyrir
22% skatti. FjárlagahugmyndirÓlafs Ragnars
Grímssonar fela hins vegar í sér hækkun
skattsins í 26%! Gangi það eftir klófestir ríkis-
stjórnin 6.000 m.kr. í hærra verði vöru og
þjónustu 1990. Staksteinar stinga nefi grein
Friðriks Sophussonar alþingismanns um
þetta efni.
Virðisauka-
stigið spaiínar
1.500 m.kr.
Friðrik Sophusson al-
þingismaður segir m.a. í
DV-grein:
„í flárlagafrumvarpi
fýrir árið 1990 er sagt
að virðisaukaskatturinn
verði 26% en ekki 22%
eins og lögin gera ráð
fyrir. Samkvæmt fjár-
lagafrumvarpinu mun
hvert virðisaukastig gefa
1,5 milljarða króna í
ríkissjóð. Þetta þýðir að
ríkisstjórnin ætlar sér að
klófesta 6 milljarða með
slíkri breytingpi. Jalh-
framt er vitað að skatt-
hlutfallið verður það
hæsta sem um er vitað.
Þegar lögin voru sett
á sínum tíma lá fyrir að
23,5% virðisaukaskattur
myndi skila sömu fekjurn
í ríkissjóð og 25% sölu-
skattur enda yrðu skatt-
skil hin sömu. Miðað við
þær forsendur er það
ásetningur ríkisstjómar-
innar að auka tekjur
ríkissjóðs um 3,6-3,8
milljarða króna. Þetta
gerizt ofan á margra
milljarða skattahækkan-
ir á yfirstandamli ári.
Samt er fjárlagafrum-
varpið fyrir árið 1990
lagt fram með þriggja
miHjarða halla. Fróðir
menn telja að hallinn
verði mun meiri í reynd
eins og gerðist á yfir-
standandi ári“.
Skattur á
heimilis-
útgjöldin!
Þær tekjur sem ríkis-
sjóður sækir með virðis-
aukaskatti segir til sín í
verði vöm og þjónustu,
heimilsútgjöldum fólks.
Friðrik segir: „Ríkis-
stjómin gerir ráð fyrir
að virðisaukaskatturinn
verði jaíhliár á allar vör-
ur og þjónustu sem bera
skattinn. Hins vegar er
ætlunin að endurgreiða
það sem nemur helmingi
skattsins á vissar matvör-
ur. I Qárlagafrumvarpinu
er gert ráð fyrir slíkri
endurgreiðslu á dilka-
kjöt, mjólk, fisk og iim-
lent grænmeti. í stefhu-
ræðu sirnii bætti forsætis-
ráðherrann við grófu
brauði. Nýlega viðraði
fiármálaráðherra þá
hugmynd að endur-
greiðsluniar næðu ein-
ungis til dilkakjöts og
mjólkur enda em hinar
vömtegundimar ckki
liáðar verðlagsákvæðum.
Það má því segja að til
umræðu séu þijár útgáf-
ur af hugmyndum um
endurgreiðslur á mat-
væli.“
Rýtingnrinn
og sjón-
hverfingin
Síðar í greininni segin
„Mönnum er enn í
fersku minni að Jón Bald-
vin kallaði það rýtings-
stungu í bakið á sér þeg-
ar Þorsteinn Pálsson
gerði tillögu um lægra
skatthlutfall á matvæli.
Sú tiliaga lciddi til stjóra-
arslita. Ekkert hefiir
heyrzt frá fyrrgreindum
Jóni um tillögur fjár-
málaráðherra nú. Ekkert
er mimist á lýtingsstung-
ur eða stjómarslit. Þvert
á móti sýnist téður Jón
ætla að kyngja skatt-
hækkuninni og undan-
þágunum til að halda í
ráðherrastólinn og ferða-
lögin.
Það alvarlegasta við
endurgreiðslumar er
samt að þær 700 rn.kr.
sem það kostar að endur-
greiða hclming skattsins
á mjólk og dilkakjöt em
teknar altur með hlut-
fallslegri lækkun niður-
grciðslna á næsta ári.
Þetta þýðir að verðáhrif
endurgreiðslna verða
engin þegar líða tekur á
árið.“
Erfið fæðing
reglugerða
Þá segir í tilvitnaðri
grein:
„Ríkisstjórnin ákvað
að fresta gildistöku um
hálft ár til að fá meiri
tíma til undirbúnings og
vegna þess að hún taldi
að skattkerfisbreytingpn
myndi rýra tekjur ríkis-
sjóðs á yfirstandandi ári.
Þrátt fyrir lengri und-
irbúningstíma hefiir fjár-
málaráðherra aðeins gef-
ið út tvær reglugerðir af
þeim fjórtán sem nauð-
synlegt er að liggi fyrir
áður en kerfisbreytingin
á sér stað. Þetta hefur
þegar valdið miklum erf-
iðleikum og við bætist,
að ríkisstjómin hefur
ekki enn leyst margs
konar ágreiningsefiii
sem varða framkvæmd-
ina.“
Heimsmethafi
í neyzlu-
sköttum
Sú var tíð að Ólafur
Ragnar Grimsson, þá
ckki orðinn fjármálaráð-
herra, hafði hátt um
matarskatta sem sópuðu
tíl sín of miklu af heimilis-
peningum fjölskyldna í
landinu.
Annað hvort talaði
hann þvert um hug sinn
eða hann breytír gegn
betri vitund þegar hann
leggur til heimsmets
neyzluskatt ,-það er 26%
virðisaukaskatt.
Skattmeistari rikisins
sagði í þingræðu að setja
þyrfli orkuveitur sveitar-
félaga undir Verðlags-
ráð. Þar sýnist hann sjálf-
ur þó bezt geymdur.
Rimlagluggatjöld í yfir 20
litum. Sérsniðin fyrir
hvern glugga eftir máli.
pli-sol
Pli-sol gluggatjöld í mörg-
um litum og gerðum. Tilval-
in í sólhúsið, glugga mót
suðri og alla vandamála-
glugga.
Einkaumboð á íslandi
Siðumúla 32 s. 31870 & 688770
Þ.ÞORGRfMSSON&CO
t.tarma
PLAST
ÁRMÚLA 1 6 OG 29, S. 38640
® KVENFtiAGID j®
< ■ - ® HEIMAEY J®
I '
kOkub&sar oe ulutavelta
Kvenfélagið Heimaey heldur sinn árlega
kökubasarog hlutaveltu
í dag, laugardaginn 11. nóvember.
Móttaka á basarinn
verðurfrá kl. 10.00ídag.
Stjórnin.
• - -----------------------&
BASAR!
Kvenfélags Fríkirkjunnar
í Reykjavík er í dag
á Laufásvegi 13
og hefst kl. 14.00.
Úrval af handunnum munum til
jólanna, kökur og happdrætti.
Basarnefndin.