Morgunblaðið - 11.11.1989, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1989
11
Sóknarkvóti
eftir Sigurð Ólafsson
Eftir lestur tillagna um stjórn
fiskveiða að undanförnu get ég ekki
staðist að taka mér penna í hönd
og lýsa skoðun minni á málinu.
Fleiri og fleiri virðast aðhyllast auð-
lindaskatt, sölu á óveiddum fiski og
alls konar reglum, sem ekki fylgja
náttúrlögmálum. Þar tel ég að við
séum komin á villigötur og er leitun
að sjómanni, sem væri ánægður
með slíkt fyrirkomulag.
Aðalatriðið að mínu mati er að
veita öllum sambærilegan sam-
keppnisrétt. Leiðin til þess er að
hefta sókn allra jafn mikið. akveða
skal því af hve miklum krafti flotinn
skal sækja miðin. Á það að vera
60%, 70% eða 80% af fullri getu?
Þetta er aðalmálið að mínu mati.
Ef ákveðið yrði að 70% sóknar-
heimild yrði veitt, ætti hver bátur
að fá 79% af sóknardögum, sem
álíka bátur hefði nýtt í fijálsum
veiðum. Smæstu bátarnir fengju
fæsta sóknardaga og því stærri, sem
þeir væru, því fleiri sóknardaga
hefðu þeir.
Þetta er hreinn sóknarkvóti, en
menn ættu að gera sér ijóst að sókn-
arkvóti hefur verið ríkjandi um allan
aldur á íslandi og hann hefur verið
takmarkaður af náttúrulegum hlut-
um, svo sem veðri, hafís, fiski-
göngum og veiðitækjum.
Ýmsar aukareglur þyrftu að
fylgja þeirri aðalreglu að sóknin
takmarkaðist við vissa prósentu og
ætla ég að nefna hér nokkrar hugs-
anlegar aukareglur, en slíkar reglur
ættu að breytast eftir ástandi hvers
tíma.
í upphafi árs skal úthlutað dögum
á hvern skipaflokk fyrir fyrstu fjóra
mánuði ársins. Ef afli reynist meiri
en áætlað var fyrstu fjóra mánuðina
skal enn fækka sóknardögum næsta
tímabils, en fjölga þeim ef aflinn
reynist minni en áætlað var. Þetta
mun tryggja að sókn verður í fisk-
inn allt árið, en kosturinn við það
er jafnari vinna í landi og væntan-
lega jafnbetra verð á erlendum
mörkuðum. I núverandi kerfi eru
margir orðnir kvótalitlir eða kvóta-
lausir mörgum mánuðum fyrir ára-
mót, en hinir' fyrirhyggjusamari,
sem héldu eftir kvóta fyrir haustið
gætu lent í því að veiða ekki upp
sinn kvóta vegna náttúrulegra að-
stæðna (náttúrusóknarkvótans).
Hámarksdagsafli skal settur á og
skal hann ákvarðaður eftir veiðitæk-
inu (skipinu), og fiskitegundinni.
Sem dæmi mætti segja að skutttog-
ari yfir 39 metra mætti aðeins veiða
25 tonn af þorski á dag. Síðan kem-
ur slíkur togari með 175 tonn af
þorski eftir tvo daga. Þá skal reikn-
að með að þessi togari hafi notið 7
sóknardaga í þessari tveggja daga
veiðiferð. Þessi regla er hugsuð til
þess að draga úr aflahrotum, sem
oft hafa leitt af sér lélegt hráefni
til vinnslu hér heima og lágt mark-
aðsverð ytra.
Þeir, sem hafa keypt varanlegan
kvóta á fyrri árum skulu halda hon-
um og skal hann bætast við í sóknar-
dögum. Dæmi: Skip hefur 3.000
tonna kvóta og til viðbótar keyptan
750 tonna kvóta til eignar. Þetta
„Menn ættu að gera sér
ljóst að sóknarkvóti
hefiir verið ríkjandi um
allan aldur á Islandi og
hann hefur verið tak-
markaður af náttúru-
legum hlutum, svo sem
veðri, hafís, físki-
göngum og veiðitækj-
um.“
skip skal fá 25% auka sóknardaga.
Aukinn hámarksdagsafli kæmi
einnig til greina. Þessi réttur fyrnist
með áranum.
Mismunandi sókn í tegundir skal
ákvarðast eftir landshlutum og
veiðiskipinu sjálfu. Samkvæmt
þessu ættu t.d. Sunnlendingar að
fá fleiri sóknardaga í karfa en Vest-
firðingar, en aftur á móti fengju
Vestfirðingar fleiri sóknardaga í
þorsk en Sunnlendingar. Sóknar-
dagar í hveija tegund skulu reiknað-
ir í hlutfalii af aflasamsetningu.
Sala á sóknardögum og þar með
öllum óveiddum fiski skal óheimil,
en skiptast má á sóknardögum á
milli skipa í sama flokki. Dæmi:
Skip vill einhæfa sig í karfaveiðum
og lætur því þá sóknardaga sem það
á í öðrum tegundum í skiptum fyrir
karfasóknardaga. Þannig sóknar-
dagaskipti ætti einnig að stuðla að
því að skip geta haldið sig meira
Nauðsyn brýtur lög
eftirPál
Skúlason
Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga
fyrir 1990 hyggst fjárveitingavaldið
bijóta tvenn lög á næsta ári: lög
um Þjóðarbókhlöðu frá 1. júní 1989
og lög um Happdrætti Háskóla Is-
lands. Skyldi þetta vera dæmigert
fyrir vinnubrögð við fjárlagagei'ð
íslenska ríkisins? Ég vona sannar-
lega að svo sé ekki. Ég vona að hér
hafi orðið mistök eins og gerast á
bestu bæjum.
Hljótum við þá ekki að vænta
þess að mistökin verði leiðrétt? Ég
er ekki viss um að þeir sem að þessu
standa séu fúsir til þess, og ég held
ég kunni ofurlitla skýringu á því.
Höfuðrök þeirra í þessu máli og fjöl-
mörgum öðrum virðist rnér að megi
draga saman í orðin „nauðsyn brýt-
ur lög“. Nú er ástand efnahagsmála
slæmt eins og oftar, og ástand
ýmissa þjóðarbygginga til mikillar
vanvirðu, og þetta réttlætir að
þeirra dómi að lög séu brotin. Neyð-
in kennir stjórnniálamönnum að
btjóta lög.
Þessi hugsunarháttur gagnsýrir
íslensk stjórnmál á okkar dögum.
Og fólk fellur fyrir honum, því að
allt sem ráðamenn hafast að gera
þeir í góðu skyni. Þeir gera það til
að tryggja velferð og hamingju sem
flestra. Gæðin era að vísu takmörk-
uð. Þess vegna fá ekki allir allt sem
þeir vilja. Jafnvel enginn. Allir eiga
því að vera hógværir og taka því
með þökkum sem að þeim er rétt.
Páll Skúlason
„Það er ekki aðeins
sjálfstæði háskólans
sem er ógnað. I frum-
varpi til flárlaga er ver-
ið að höggva að rótum
þess réttarríkis sem
flestir landsmenn vilja
vonandi að hér fái að
rísa.“
Annað er frekja, yfirgangur og
hroki. Á þessum erfiðu tímum verð-
um við — og svo framvegis.
Þessi hugsunarháttur gengur
þvert á hugsjónina um réttarríki þar
sem stjórna skal með lögum og að
lögum, en ekki bijóta lög eða breyta
þeim eftir geðþótta. Setningin
„nauðsyn brýtur lög“ merkir að
réttu lagi að frá lögum sé einungis
heimilt að víkja ef réttlætið nær
ekki fram að ganga nema lögin víki.
Nauðsyn er hér neyðarréttur sem
leyfir örþrifaráð í baráttu gegn lög-
helguðu ranglæti. Menn geta til að
mynda neýðst til borgaralegrar
óhlýðni við stjórnvöld þegar fremja
skal á þeim ranglæti J nafni gild-
andi laga.
Eftir ríkjandi hugsunarhætti
stjórnmálamanna virðist á hinn bóg-
inn mega setja ýmislegt annað en
neyðarrétt í stað nauðsynjar í setn-
ingunni „nauðsyn brýtur lög“. Þeir
geta alveg eins sagt „velferð brýtur
lög“, „hagsmunir bijóta lög“, „geð-
þótti brýtur lög“. Og ef þetta er
gagnrýnt fá menn að heyra — eins
og ég hef nýheyrt frá ráðamanni —
„þá breytum við bara lögunum".
Þar með eru lög og réttur orðin öld-
ungis marklaus. Þá stendur ógn af
stjórnvöldum, því að enginn getur
vitað upp á hveiju þau finna næst.
Þess vegna er ég ekki að ræða
eingöngu um hagsmunamál háskól-
ans og allrar fræðilegrar starfsemi
í landinu. Það er ekki aðeins sjálf-
stæði háskólans sem er ógnað. í
frumvarpi til fjárlaga eí verið að
höggva að rótum þess réttarríkis
sem flestir landsmenn vilja vonandi
að hér fái að rísa.
Ilöfundur er prófessor í
heimspeki.
vera
Sigurður Ólafsson
við heimamiðin, en við núverandi
kerfi.
Veiðiskip skal teljast vera að nota
sóknardaga frá þeirri stundu sem
það leggur úr höfn og þar til það
kemur í höfn aftur. Skip sem selur
afla erlendis notar því marga sókn-
ardaga í keyrslu. Þannig verður
þetta að vera, því ef skipið gæti
haldið veiðum áfram hindrunarlaust
teldist það vera á 100% sóknar-
kvóta.
Hér held ég að nóg sé upptálið
af hugsanlegum hliðarreglum, en
slíkar reglur verða ætíð umdeildar.
Helstu kosti þessa kerfis tel ég vera
að allir hafa sömu samkeppnisað-
stöðuna og sölur á óveiddum fiski
hverfa. Einnig verða viðmiðunarárin
1981-’83 úr sögunni því þau geta
ekki ákvarðað aflamun skipa um
alla framtíð. Svindl á stærðarmati
báta mun ekki hjálpa í þessu kerfi
eins og það gerir í dag. Ef um það
er að ræða í dag að fiski sé kastað,
þar sem hann er ekki nógu verð-
mætur mun því sjálfkrafa verða
hætt í þessu kerfi. Ekki er hér fund-
in leið til þess að minnka fiskiskipa-
flotann en sjálfsagt er að unnið sé
ötullega að því á öðrum vettvangi.
Þó mætti hugsanlega leyfa aðilum
að kaupa skip til þess að hirða af
honum sóknarkvótann, en mér
finnst að slíkur réttur á aukasóknar-
dögum ætti að fyrnast með árunum
svo jafnvægi verði milli skipa í sókn.
Að endingu vil ég hvetja menn
til að hlusta á sjónarmið sem flestra
í þessu mikilvæga máli og reyna
að finna lausnir, sem eru okkur öll-
um íslendingum til góðs í nútíð og
framtíð, en láta ekki blindast af eig-
in hagsmunum.
Höfundur er stýrimadur á
skuttogara.
PELSFOÐURSKAPA
Stærðir 38-46
Tilboðsveró kr. 39.000.-
Opið til kl. 1 6.00 laugardag.
PELSINN
Kirkjuhvoli - simi 20160
■■
SJEHSKU 6ŒBADYHURHAR - YMSAR STCRÐHt - 15 ARA REYHSLA
+ ^gSSHgH
KYNNIST
GREIÐSLUKJORUM
TILB0ÐSVERÐ I NOVEMBER
Húsgagnaverslun Kristjáns Siggeirssonar hff., Hesthálsi
Opiö laugardaga frá kl. 10-14 - Simi 91-672110