Morgunblaðið - 11.11.1989, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NOVEMBER 1989
15
t."..''u;
'l'rLO’J/ul UHiUT
Leiðir ekki til verð-
lækkunar á matvælum
- segir framkvæmdastj óri Kaupmannasamtakanna
VERÐ á matvörum mun ekki lækka þótt frumvarp um greiðslukorta-
viðskipti sem lagt hefur verið fram á Alþingi verði samþykkt. í frum-
varpinu er ákvæði um að kostnaður af greiðslukortaviðskiptum færist
af greiðsluviðtíikanda til korthafa sem að öllu jöfnu hefði átt að leiða
til lækkunar vönjverðs. Magnús Finnson, framkvæmdasfjóri Kaup-
mannasamtaka íslands, sagði að verð á matvælum hefði lækkað á
undanförnum árum vegna aukinnar samkeppni og að álagning í mat-
vöruverslun standi ekki lengur undir dreifíngarkostnaði. Magnús sagði
að með frumvarpinu væri sýnt að kaupmenn fengju hluta þess kostnað-
ar til baka sem þeir hefðu hingað til þurft að bera.
Magnús sagði að kaupmenn fögn- Sigurður Hafstein, framkvæmda-
uðu þessu frumvarpi sem bæta stjóri Sambands íslenskra sparisjóða
myndi stöðu matvöruverslana sem
væru allar reknar á núllinu eða með
tapi. Hann taldi eðlilegt að trygging-
arvíxlar sem greiðslukortafyrirtækin
hafa krafist verði bannaðir. „Við
þekkjum það ekki í viðskiptum að
fólk útfylli víxla sem eru án fjár-
hæðar, hvorki á milli kaupmanna
og viðskiptavina né kaupmanna og
heildsala,“ sagði Magnús.
sem átt hefur sæti í stjóm Greiðslu-
miðlunar hf. (Visa ísland), frá stofn-
un fyrirtækisins, sagði að engin
rannsókn hefði farið fram hér á landi
til undirbúnings fyrir lagasetningu
um greiðslukortaviðskipti. Þess í
stað hefði verið tekin upp dönsk lög-
gjöf sem gæti ekki komið í stað
mats á aðstæðum hérlendis.
Varðandi ákvæði í frumvarpinu
Mývatnssveit: -
Starfsmönnum Létt-
steypunnar sagt upp
STARFSMÖNNUM Léttsteypunnar hf. í Mývatnssveit hefúr verið sagt
upp störfúm. Framkvæmdasljóri fyrirtækisins segir að endurskipu-
leggja þurfi Qárhag fyrirtækisins, til dæmis með aukningu hlutafjár
og skuldbreytingum lána, og sé daufasti tími í framleiðslu nú nýttur
til þess. Framleiðsla heQist að nýju um áramót.
Léttsteypan hefur framleitt hol-
steina í útveggi og milliveggjaeining-
ar, auk grillkola á liðnu sumri.
Starfsmenn hafa verið sex og hætta
nú fjórir störfum í byijun næsta
mánaðar, en uppsagnir hinna tveggja
koma til framkvæmda í lok febrúar
á næsta ári. Haraldur Bóasson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að
hann vonist til að starfsemin verði
aftur komin í eðlilegt horf um ára-
mót. „í raun er nóg að hafa fjóra
fastráðna starfsmenn og bæta við
starfsfólki eftir þörfum, til dæmis-
þegar framleiðsla grillkola hefst að
nýju í mars á næsta ári,“ sagði Har-
aldur. „Ástæður þess að við grípum
til uppsagnanna á þessum tíma eru
þær helstar, að við verðum að endur-
skipuleggja fjárhag fyrirtækisins.
Það verðum við að gera með því að
fá lánum skuldbreytt og auka hlut-
afé. Það er nú 5 milljónir króna, en
við vonumst til að bæta við 2 milljón-
um. Þá er hentugast að nota þennan
tíma til endurskipulagningarinnar,
því þetta er daufasti tíminn í fram-
leiðslunni."
Léttsteypan hefur starfaö frá
1961. Hluthafar í fyrirtækinu eru
heimamenn, en hreppurinn keypti sig
inn í fyrirtækið á þessu ári og á nú
tæplega helming hlutafjár. Að sögn
Haraldar eru eignir Léttsteypunnar
metnar á 16 milljónir, en skuldir eru
um 11 milljónir. Haraldur sagði þó
erfitt að meta eignirnar til ljár, þar
sem þær, til dæmsi vélar og tæki,
nýttust ekki nema í framleiðslu af
þessu tagi. Velta fyrirtækisins er
áætluð um 10 milljónir á þessu ári.
um töku greiðslutrygginga .sagði
Sigurður að hafa bæri í huga að
greiðslukortafyrirtækin hér á landi
væru byggð upp á mismunandi hátt.
„Visa Island er að öllu leyti í eigu
banka og sparisjóða. Eignaaðilamir
taka við umsóknum og meta þær.
Hver einstakur banki eða sparisjóður
ber beina ábyrgð á þeim aðila er
hann ákveður að veita kort. Verði
um vanskil að ræða eru þau eins
og hver önnur vanskil vegna útlána
eða ábyrgða í bankanum. Innheimta
og ákvörðun um kortasviptingu er
tekin af bankanum og sama er að
segja um töku greiðslutrygginga.
Þetta þýðir að útilokað er að með-
höndla þennan hluta starfseminnar
með öðrum hætti en hina. Ef setja
á sérstök lög um tryggingatöku
varðandi ábyrgðaveitingu í þessum
þætti starfseminnar er verið að
hrófla við grundvallaratriðum í
bankastarfsemi sem eru á þann veg
að taka skuli tryggingar fyrir lánum
eða ábyrgðum sem bankar og spari-
sjóðir veita. Að setja takmörkun á
grundvallaröryggisreglur í starf-
semi, sem gengur út á að ávaxta
sparifé almennings er fráleitt enda
hefur reynslan sýnt að nauðsynlegt
er að fyllsta öryggis sé gætt. Það
er svo annað mál að ég get vel hugs-
að mér að breytt verði þeim vinnu-
reglum sem sumstaðar gilda varð-
andi töku trygginga í formi óút-
fylltra víxla en á milli þess og að
taka alls engar tryggingar er óbrú-
anleg gjá,“ sagði Sigurður.
Um ákvæði í frumvarpinu um
heimild til ráðherra til að ákveða
hámarksgjald sem kortafyrirtækjum
er heimilt að krefja greiðsluviðtak-
anda um sagði Sigurður að skerði
almennan samningsrétt og geti í
einu vetfangi kippt grundvelli undan
starfsemi greiðslukortafyrirtælqa sé
því beitt af ósanngimi.
„Sé hugmyndin sú að ákveða eitt
gjald fyrir alla þjónustuaðila er verið
að horfa fram hjá áhættuþáttUnum
í þessari starfsemi.“
„Að óreyndu verður því ekki trúað
að opinberir aðilar telji sig þess
umkomna að meta alla þætti viðskip-
tanna við einstakar verslunar- og
þjónustugreinar og fer best á því
að þeir sem gleggsta hafa vitneskj-
una um þessi mál fari með þau hér
eftir sem hingað til,“ sagði Sigurður.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Helgfi Sigurðsson, dýralæknir, að störfúm.
Upplýsingar um flest
það sem hrjáir hesta
- segir Helgi Sigurðsson dýralæknir
um bók sína Hestaheilsa
„ÞAÐ var orðið löngu tímabært að skrifa svona bók, enda þörfin
fyrir upplýsingar af þessu tagi sífellt að aukast,“ sagði Helgi Sigurðs-
son dýralæknir i samtali við Morgunblaðið, en hann hefiir sent frá
sér bókina HESTAHEILSA, handbók hestamanna um hrossasjúk-
dóma, sem Eiðfaxi hf. gefúr út. En þótt bókin sé ætluð til upplýs-
inga fyrir hestamenn um sjúkdóma, fjallar hún einnig almennt um
meðferð á hestum, þjálfún, fóðrun, járningar og fleira og lögð er
áhersla á fyrirbyggjandi aðgerðir.
Helgi Sigurðsson hefur stundað „Fólk þarf að geta gengið að
hestalækningar í ellefu ár og bygg- upplýsingunum vísum,“ sagði
ir bókin á reynslu hans auk þess
sem hann leitar fanga í ýmsum
heimildum, erlendum og innlendum.
Meðal heimilda er Dýralækninga-
bók Magnúsar Einarssonar, en hún
kom út árið 1931. Síðan hefur ekki
komið út bók um dýralækningar,
en um hrossalækningar hefur verið
fjallað í greinum sem birst hafa
víða.
Helgi sagði að hugmyndin að
þessari bók hefði fæðst eftir að
hann hafði skrifað greinar um ýmis-
legt er varðar heilsufar hrossa í
tímaritið Eiðfaxa um nokkurt skeið.
í greinaskrifum sínum hefði hann
leitast við að fjalla um efni sem
áttu við þann árstíma þegar þær
birtust. Hann komst þó að því að
þegar á þurfti að halda fletti fólk
ekki upp í gömlum blöðum til að
fá upplýsingar, enda erfitt að muna
hvenær einstök grein birtist.
Hann ákvað þá að bera þessa
hugmynd upp við forsvarsmenn
Eiðfaxa hf., sem tóku henni vel og
ákváðu að gefa bókina út. Helgi
hefur unnið að bókinni frá því í júlí
í fyrra.
Íslending’ur varaformaður Al-
þjóðasambands Rauða krossins
GUÐJÓN Magnússon formaður Rauða kross íslands, hefúr verið kjör-
inn einn af átta varaformönnum Alþjóðasambands Rauða krossins
og Rauða hálfmánans. Sambandið samanstendur af 149 landsfélögum
með 250 milljón félagsmanna um allan heim. Guðjón er fyrsti Norður-
landabúinn sem kjörinu er varaformaður fyrir V- Evrópu. Hlaut hann
84 atkvæði í skriflegri kosningu á móti mótframbjóðanda sínum lafði
Limrick, formanni breska Rauða krossins en hún hlaut 78 atkvæði.
Aðalskrifstofa Alþjóðasambands
Rauða krossfélaga er í Genf í Sviss
en það starfar í fjórum heimsálfum.
Á aðalfundi samtakanna sem hald-
‘inn er annað hvert ár nú síðast fyr-
ir skömmu fyrir árið 1989, er kosin
stjórn, sem í eiga sæti 16 landsfélög
og átta varaformenn, tveir fyrir
hverja álfu og eru þeir kosnir til
fjögurra ára. Frambjóðendur til
va'raformennsku bjóða sig fram sem
einstaklingar og verða að sjá um
að kynna sig og fyrri störf fyrir
kjósendum. „Þetta var búið að vera
nokkuð hörð kosningabarátta og
endaði í skriflegri kosningu, þar sem
ég fékk 84 atkvæði," sagði Guðjón.
„Eg var frambjóðandi Norðurland-
anna og fékk mikinn stuðning frá
latnesku Ameríku og Afríku enda
hafa Norðurlöndin verið með mikil
verkefni í þessum löndum." Er þetta
í fyrsta sinn, sem Norðurlandámað-
ur er varaformaður alþjóðasam-
bandsins en formaður sænska
Rauða krossins var í kjöri 1985 án
þess að ná kosningu.
„Þetta er mikill heiður," sagði
Guðjón. „Hreyfingin er mjög öflug
og talin til öflugustu mannúðarsam-
taka í heiminum." Alþjóðasamband-
ið hefur sérhæft sig í neyðaraðstoð
ef upp koma náttúruhamfarir eða
hernaðarátök. Rík áhersla hefur
verið lögð á þróunarstaf, þar sem
reynt er að byggja upp félögin í
þriðja heiminum.
Meðal þeirra mála sem fjallað var
um á þinginu í Genf, var stefna
Alþjóðasambandsins fyrir tíunda
áratuginn og var hún samþykkt.
Þá voru samþykktar nýjar grund-
vallarreglur fyrir þróunarverkefni á
vegum sambandsins og samþykkt
ályktun um að styrkja stöðu og
Jakobína Þórðardóttir deildarstjóri Alþjóðadeildar Rauða kross ís-
lands, Guðjón Magnússon ný kjörinn varaformaður Alþjóðasambands-
ins og dr. Mario Villarroel Lander formaður sambandsins.
áhrif kvenna í starfi Rauða kross-
ins. Undirritað var samkomulag við
Alsheijarráð Rauða krossins, sem í
eiga sæti 25 Svisslendingar en ráð-
ið fylgist með því að ríkin haldi
Genfarsáttmálana og er sá aðili sem
er á ófriðarsvæðum, heimsækir
pólitíska fanga og sér til þess að
sáttmálum sé fylgt og verndar
óbreytta borgara í stríði. Sagði
Guðjón að til þessa hefðu þessir
aðilar unnið hver á sínu sviði en
samkomulagið gerði ráð fyrir aukn-
um samskiptum og samvinnu.
Helgi. „Það leitar kannski ekki til
læknis ef það veikist sjálft, en ef
dýrin eru veik vill það fá upplýsing-
ar og aðstoð strax.
Fyrir u.þ.b. tveimur áratugum
stunduðu tiltölulega fáir hesta-
mennsku. Ungt fólk lærði að um-
gangast hestana smám saman af
sér eldra og reyndara fólki. Breyt-
ingin hefur orðið gífurleg á undan-
förnum árum og nú er fólk, sem
aldrei h'efur verið í sveit eða um-
gengist dýr, að byija í hesta-
mennskunni í auknum mæli. Það
fer á námskeið til að læra að sitja
hest og reynir að lesa sér til um
hvemig á að umgangast þessi dýr.
En það er fjölmargt sem vefst fyrir
þessu fólki og það er kannski hrætt
við að spyija sér reyndara fólk og
afhjúpa þannig vankunnáttu sína.
Þörfin fyrir slíka bók fyrir þetta
fólk var því gífurleg, en hún hentar
ekki síður öllum öðrum hestamönn-
um og bændum."
Helgi sagðist hafa lagt töluvert
í bókina meðal annars vegna þess
að hann á ekki von á að svona
b?pkur verði skrifaðar á hveiju ári.
Hann hefur reynt að teygja sig inn
í nútímann, enda hefur þekkingin
á hrossasjúkdómum aukist og mikl-
ar breytingar hafa einnig orðið á
notkunai-máta hestsins á undan-
förnum árum.
„Ég leitast við að vera ekki of
fræðilegur og hef reynt að setja
textann fram á auðskiljanlegan
hátt. Það þarf að vera fljótlegt að
fletta upp í bókinni og til þess að
hún nýtist sem handbók er atriðis-
orðaskrá aftast í henni. Ég lagði
líka mikla áherslu á myndir. Eg
vildi ekki hafa myndir af erlendum
hestum, þar sem í bókinni er ein-
göngu fjallað um íslenska hesta.
Um leið og ég hafði gert mér grein
fyrir hvernig bókin ætti að vera
byijaði ég að taka myndir. Ég tók
myndavélina með mér í vitjanir í
eitt og hálft ár. Þannig tókst mér
að safna saman myndum sem nýt-
ast mér einnig til dæmis á fræðslu-
fundum."
í formála bókarinnar kemur fram
að auk þess að vera handbók hesta-
manna um hrossasjúkdóma er í
henni fjallað um flest það sem
hestamenn eru að fást við.
„Dýralæknar eru oft svo upp-
teknir að þegar þeir koma í vitjanir
hafa þeir ekki tíma til að veita svör
við öllum þeim spurningum sem
hestaeigendurnir spyija. Stundum
situr fólk jafnvel uppi með fleiri
spurningar. En í þessari bók ættu
menn að geta fengið upplýsingar
um nánast allt sem hijáir hestana
þeirra," sagði Helgi Sigurðsson að
lokum.