Morgunblaðið - 11.11.1989, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1989
Jónas Þorbjarnarson
Skjaldborg:
Minningar Sigurjóns
Rist og viðtalsbækur
ENDURMINNINGAR og viðtöl við Qölda íslendinga setja svip sinn á
bókaútgáf'u Skjaldborgar hf. að þessu sinni. Þar að auki koma m.a.
út sex þýddar skáldsögur og ein islensk, tvær barnabækur og árbækur.
Endurminningabækut-nar eru
Vadd út í. Endurminningar Sigur-
jóns Rist vatnamælingamanns, eftir
Hermann Sveinbjörnsson, Af lífi og
sál, þar sem Þóra Einarsdóttir í
Vernd segir frá og Glampar á götu,
sem er endurminningar Björns Jóns-
sonar læknis í Kanada.
Viðtalsbækurnar heita Betri
helmingurinn, sem hefur að geyma
viðtöl við eiginkonur fimm þekktra
manna í íslensku þjóðlífi, Aldnir
hafa orðið, sem er 18. og síðasta
bindi, eftir Erling Davíðsson og Við
manninn mælt, sem í eru viðtöl við
12 íslendinga, eftir Valgeir Sigurðs-
son.
Sekur flýr þó enginn elti, er ný
skáldsaga eftir Birgittu H. Halldórs-
dóttur.
Árbækurnar heita Hestar og
menn 1989. Árbók hestamanna, eft-
ir Guðmund Jónsson og Þorgeir
Guðlaugsson og íslensk knattspyma
1989. Árbók um íslenska knatt-
spyrnu, eftir Víði Sigurðsson.
Þýddu skáldsögurnar eru Pelli
signrsæli 1. bindi, eftir Martin And-
ersen Nexö í þýðingu Gissurs 0.
Erlingssonar, Syngjum og dönsum
dátt sem um jól, þriðja bók endur-
minninga Maya Angélou, Eitt sinn
skal hver deyja, eftir Agatha
Christie, í skugga ofsókna, eftir
Howard Fast, Neyðaróp um nótt,
eftir Mary Higgins Clark. og Ge-
stapo, eftir Sven Ha'ssel.
Einnig koma út bækurnar Hvers
vegna elska karlmenn konur - Hvers
vegna yfirgefa karlmenn konur, eft-
ir dr. Connell Cowan og dr. Melvyn
Kinder. Þýðandi er Gissur Ó. Erl-
ingsson og Unaður kynlífs og ásta,
eftir dr. Andrew Stanway. ’
Barna- og unglingabækur Skjald-
borgar eru: Kaupstaðaferð dýranna
eftir Atla Vigfússon með teikningum
Hólmfríðar Bjartmarsdóttur, Fagri-
Blakkur, eftir Ann Sewell í þýðingu
Vilborgar Dagbjartsdóttur, Fyrsta
talnabókin mín, sem ætluð er til
aðstoðar ungum börnum við að læra
að þekkja tölur og hafa gaman af
þeim og Leyniskjalið, eftir Indriða
Úlfsson.
Forlagið:
Síldarsaga
eftir Birgi
Sigurðsson
í frétt; Morgunblaðsins um
bókaútgáfú Forlagsins féll ein
bók niður, en það er bókin:
Svartur sjór af síld - Síldarævin-
týrin miklu á sjó og landi eftir
Birgi Sigurðsson rithöfúnd.
í bókinni segir Birgir síldarsögu
þjóðarinnar með skáldlegu innsæi.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Ragnhildur Jóhannsdóttir t.v. og Erik Edward Sverrisson, bæði 12 ára, virða fyrir sér mvnd eftir
Ragnhildi.
Iðnaðarbankinn í Haftiarfirði 25 ára:
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sigríður Ásgeirsdóttir glerlistakona við nokkur verka sinna.
Gallerí einn einn:
Glerið hefiir bein
áhrif á sálina
- segir Sigríður Ásgeirsdóttir
„GLERIÐ hefur bein áhrif á sál-
ina,“ sagði Sigríður Ásgeirsdótt-
ir myndlistarmaður í samtali við
Morgunblaðið en hún sýnir nú
tíu verk í sýningarsalnum Gallerí
einn einn á Skólavörðustíg 4 A.
Verkin eru teikningar frá árinu
1985 og grafikverk, sem unnin
voru í sumar. Sýningin, sem er
sölusýning, stendur tii næstkom-
andi fimmtudags. Sigríður sagði
að verkin á sýningunni fjölluðu
annars vegar um ástina og hins
vegar það að maðurinn væri að
tortíma sjálfúm sér.
Þetta er fjórða einkasýning
Sigríðar Ásgeirsdóttur, en hún var
með sýningu á steindu gleri í sýn-
ingarsal Norræna húsinu í vor.
Verkin á sýningunni nú sagði Sigr-
ún að væru undanfarar glerver-
kanna, sem voru á sýningunni í
Norræna húsinu bæði í tækni og
útfærslu hugmynda.
Sigríður Ásgeirsdóttir fæddist í
Reykjavík 1953. Hún stundaði nám
við Myndlistarskólann í Reykjavík
1976-’78, Edinburgh College of Art
1979-’83 og Hein Derix Studio í
Vestur-Þýskalandi 1984. Auk ijög-
urra einkasýninga hefur hún tekið
þátt ? samsýningum, bæði hér á
landi og erlendis.
Sigríður á verk á ýmsum opin-
berum stöðum, auk þess sem hún
hefur unnið fjölda steindra glugga
fyrir einkaaðila, bæði hér heima og
erlendis, en vinnustofa hennar er í
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu.
SÝNING á 153 myndverkum
eftir hafnfirsk börn á aldrinum
6—12 ára verður opnuð í Hafii-
arborg í dag, laugardag, kl. 14.
Verkin voru valin úr rúmlega
sexhundruð myndum sem bár-
ust í myndlistarkeppni sem Iðn-
aðarbankinn efiidi til í tilefni
25 ára afmælis útibúsins í Hafii-
arfirði. Börn úr Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar syngja við opn-
unina og Lúðrasveit skólans
leikur. Ollum börnum á aldrin-
um 6—12 ára í Hafnarfirði og
foreldrum þeirra hefur verið
boðið að vera við opnunina.
Bankastjórar Iðnaðarbankans
fóru þess á leit við myndmennta-
kennara og skóiastjóra grunnskói-
anna fimm í Hafnarfirði við upp-
haf skólastarfs í haust að nemend-
ur sendu myndverk í keppni sem
bæri nafnið „Hafnarfjörður —
bærinn okkar“. Viðbrögð kennara
og nemenda voru mjög góð, rúm-
lega 600 myndir bárust dómnefnd
en þær höfðu myndmenntakenn-
arar valið úr yfir þúsund myndum.
Dómnefndina skipuðu listamenn-
irnir Hringur Jóhannesson og
Eiríkur Smith, Bragi Hannesson
bankastjóri Iðnaðarbankans og
Jóhannes Egilsson útibússtjóri
Iðnaðarbankans í Hafnarfírði.
Tuttugu myndir hafa verið
valdar áhugaverðastar og fá höf-
undar þeirra viðurkenningarskjöl
frá bankanum. Einnig mun bank-
inn leita eftir kaupum á þeim og
munu þær prýða húsakynni bank-
ans í framtíðinni.
Þetta er í fimmta sinn sem Iðn-
aðarbankinn gengst fyrir mynd-
listarkeppni meðal skólabarna og
sýningum á þeim. Fyrsta sýningin
var í Garðabæ fyrir átta árum,
Fyrsta ljóðabók Jón-
asar Þorbjarnarsonar
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur gefið út bókina í jaðri bæjarins
eftir Jónas Þorbjarnarson. Þetta er fyrsta Ijóðabók hans en áður
hafa birst eftir hann Ijóð í tímarítum. A liðnu ári hlaut Jónas einnig
fyrstu verðlaun í ljóðasamkeppni Morgunblaðsins.
„Svo glæsilegt byijendaverk sem þokkafullt að lesandinn fær strax
þetta ljóðasafn sætir vissulega
tíðindum í íslenskum bókmennta-
heimi,“ segir í kynningu Forlagsins.
„Þó að augum sé beint að jarðnesk-
um veruleika, þá er sá veruleiki hér
þéttar ofinn jarðneskum þáttum en
við eigum að venjast. Hér er eins
og land, sjór og himinn renni eðli-
lega saman við hugsun skáldsins
og ljóðmálið er svo lífrænt og
aðgang að ljóðunum án þess að
vera krafinn um skilning. Hann
gengur inn í Ijóðheim höfundar,
hlustar þar og horfir í kringum sig
- á mann og náttúru. Þetta er í
senn fágaður og íhugull skáldskap-
ur.“
í jaðri bæjarins er 48 bls. Guðrún
Ragnarsdóttir hannaði kápu. Prent-
verk Austurlands hf. prentaði.
Sýning á myndverkum
barna í Hafnarborg*
Jóhann Egilsson, útibússljórí Iðnaðarbankans í Hafúarfirði og
dómnefndarmaður, og Albert Sveinsson skrifstofustjóri, sem unn-
ið hefúr að undirbúningi sýningarinnar.
síðan á Selfossi, á Akureyri, í
Reykjavík og nú í Hafnarfirði.
Aldrei hefur þátttaka verið jafn-
mikil og nú og mun þetta vera
stærsta sýning á myndlist eftir
íslensk börn sem sett hefur verið
upp.
Jóhanna Ragnarsdóttir mynd-
menntakennari í Víðistaðaskóla
og Setbergsskóla sagði þátttöku
í keppninni hafa verið mjög upp-
örvandi fyrir börnin. Þeim fannst
gaman að taka þátt í alvöru
keppni með alvöru dómnefnd og
að fulltrúar frá Iðnaðarbankanum
skyldil heimsækja skólana og
fylgjast með vinnunni. Eina
ástæðu þess hve vel tókst til sagði
Jóhanna vera þá að keppnin var
kynnt í skólunum strax í upphafi
skólaárs en ekki þegar búið var
að skipuleggja vetrarstarfið.
Pétrún Pétursdóttir, forstöðu-
maður Hafnarborgar, sagði mjög
ánægjulegt að hýsa þessa sýn-
ingu. Börnin væru framtíðargestir
Hafnarborgar og væri þetta því
góð kynning fyrir listamiðstöðina.