Morgunblaðið - 11.11.1989, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGURi 11-: NÓVEMBER.I989
Tryggvi Árnason við eitt af verkum sínum.
■ TRYGGVI Árnason sýnir um
þessar mundir grafíkmyndir í List
Gallerí. Á sýningunni eru 25 nýjar
grafíkmyndir, silkiþrykk og
„collograph." Sýningin er opin frá
kl. 14 til 20 um helgina en síðasti
dagur sýningarinnar er á morgun,
sunnudag.
■ LYFJAFRÆÐINGAFÉLAG
íslands gengst fyrir degi lyfjafræð-
innar í dag, laugardag. Yfirskriftin
að þessu sinni er Lyf og aldrað
fólk og verður rætt um ýmislegt
tengt þessu efni í stofu 101 í Odda.
Umræðurnar hefjast kl. 13.
■ FÍM-SAL URINN og hús-
gagnaverslun Kristjáns Siggeirs-
sonar standa fyrir myndlistarkynn-
ingu að Hestahálsi 2-4. Myndlistar-
maður nóvembermánaðar er Björg
Orvar. Hún stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands og Kaliforníuháskóla. Björg
hefur haldið sjö einkasýningar hér
á landi.
■ BISKUP íslands, herra Ólafur
Skúlason, vígir tvo guðfræðinga
k til prestþjónustu á morgun, sunnu-
dag, í Dómkirkjunni. Vígsluþegar
eru Bragi Jóhann Ingibergsson
og Eiríkur Jóhannsson. Bragi hef-
ur verið kjörinn prestur í Siglu-
fjarðarprestakalli, Eyfjarðar-
prófastdæmi. Hann tekur við af
Vigfúsi Þór Árnasyni, sem þjónað
hefur í rúm þrettán ár. Vigfús hef-
ur fengið veitingu fyrir Grafar-
vogsprestakall. Eiríkur Jóhanns-
son, hefur verið kjörinn prestur í
Skinnastaðaprestakalli, Þing-
eyjaprófastdæmi. Hann tekur við
af Sr. Sigurvin Eliassyni, sem
hefur þjónað prestakallinu í 23 ár
en lætur nú af störfum vegna ald-
urs. Sr. Ingiberg J. Hannesson
prófastur, faðir Braga, lýsir
vígslunni.
■ ÁTTA ljóðskáld lesa úr nýút-
komnum verkum sínum næstkom-
andi sunnudagskvöld, 12. nóvem-
ber, í listasalnum Nýhöfn, Hafnar-
stræti 18. Skáldin kalla sig Orð-
menn og eru bækur þeirra allra
nýútkomnar hjá forlaginu Goðorði.
Ljóðskáldin átta eru Eiríkur
Brynjólfsson, Eyvindur Eiríks-
son, Gísli Gislason, Guðlaug
María Bjarnadóttir, Ragnhildur
Ófeigsdóttir, Gunnvör Rósa 'Ey-
vindsdóttir, Þór Stefánsson og
Þórður Helgason.
■ EINAR Sigurbjörnsson, próf-
essor flytur fyrirlestur um Maríu
Guðsmóður á fundi sem Félag
kaþólskra leikmanna heldur í
safnaðarheimili kaþólskra, Hávalla-
götu 16, mánudagskvöld 13. nóv-
ember klukkan 20.30.
■ BOCCÍANEFND íþróttafélags
fatlaðra heldur kökubasar í
Blómavali við Sigtún á morgun,
sunnudag, klukkan 14. Tekið á
móti kökum frá klukkan 11. f.h.
■ RÆÐUKEPPNI milliJCHafn-
arfjarðar og JC Akureyrar í
fyrstu umferð Mælsku- og rök-
ræðukeppni JC íslands fer fram
á morgun kl. 14. Keppnin verður
háð í félagsmiðstöðinni Vitanum
við Strandgötu í Hafnarfirði. Rætt
verður um tillögu JC Hafnarfjarð-
ar, um að aldurtakmörk innan JC-
hreyfingarinnar verði lögð niður.
■ MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi athugasemd frá
Samtökum dagmæðra Kópavogi
og Hafnarlírði: „Vegna fréttar í
Morgunblaðinu sunnudaginn 5.
nóyember sl. um hækkun gjaldskrár
dagmæðra, vilja Samtök dagmæðra
í Kópavogi og Hafnarfirði taka fram
eftirfarandi: í umræddri frétt er
einungis átt við dagmæður í
Reykjavík, sem hækkuðu gjaldskrá
sína um 20% 1. október. Við dag-
mæður í Kópavogi og Hafharfirði
hækkuðum gjaldskrá okkar um tæp
3% 1. nóvember. Við dagmæður í
Kópavogi og Hafnarfirði, ásamt
dagmæðrum víða um land, miðum
okkar gjaldskrá við ákveðinn flokk
í launatöflu Sambands íslenskra
sveitarfélaga og fylgdum lög-
bundinni hækkun þeirrar Iaunatöflu
ásamt lögbundinni hækkun fram-
færsluvísitölu og matvöruvísitöiu
1. nóvember sl. Launaliður okkar,
miðað við 8 tíma gæslu, hækkaði
því 1. nóvember um 321 krónu á
barn á mánuði, en ekki um 2-.500
krónur á barn eins og í Reykjavík".
■ LITLI Ieikklúbburinn á
Isafirði frumsýnir Þrjá ærslabelgi
í Félagsheimilinu í Hnífsdal í dag,
laugardag, kl. 21. Einþáttungarnir
eru 15 mínútna Hamlet, eftir einn
vinsælasta leikritahöfund Breta,
Tom Stoppard, og Krimmi og IL
Fonrnicazione (Hórkarlinn) eftir
Michael Green. Þetta er frum-
flutningur þessara verka á Islandi,
en þýðandi er félagi Litla leik-
klúbbsins, Guðjón Ólafsson. Er
þetta í þriðja sinn sem LL frum-
flytur verk, sem hann hefur þýtt.
Leikstjóri sýningarinnar er Árni
Blandon. Önnur sýning verður á
morgun kl. 21.
■ LESIÐ verður úr bréfum þeim
sem þýska höfuðskáldið Johann
Wolfgang von Goethe og Bettina
von Arnim skiptust á árunum
1807-1811, mánudaginn 13. nóv-
ember í Norræna húsinu. Upplest-
urinn hefst klukkan 20.30 og er í
leikrænu formi: Margrit Stras-
burger les upp úr bréfunum, en
Thomas Böttger leikur inn á milli
„Bagatellen" eftir Ludwig van
Beethoven. Skáldkonan Bettina
von Arnim var systir rómantíska
skáldsins Clemens von Brentano.
Hún sóttist snemma eftir vinfengi
við Goethe og í aðdáun sinni á
skáldinu og manninum gerðist hún
svo áleitin, að Goethe hætti að svara
bréfum hennar upp úr 1811. Þá
giftist hún skáldinu Achim von
Arnim, sem m.a. gaf út fyrsta safn
þýskra þjóðkvæða, „Des Knaben
Wunderhorn", ásamt Brentano.
■ LEIKFÉLA GIÐ „Allt milli
himins og jarðar" frumsýndi fyrir
skömmu í Verslunarskólanum,
leikritið „Láttu ekki deigan síga
Guðmundur" eftir þær Eddu
Björgvinsdóttur og Hlín Agnars-
dóttur. Næstu sýningar verða á
morgun, sunnudag, mánudaginn
13. nóvember, og lokasýning verður
miðvikudaginn 15. nóvember. Sýnt
er klukkan 20.30 öll kvöídin.
GENGISSKRÁNING Nr. 216 10. nóvember 1989 Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 62,49000 62,65000 62,11000
Sterlp. 98,95600 99,20900 97,89800
Kan. dollari 63,49000 63,62700 52,86600
Dönsk kr. 8,69730 8,71960 8,70500
Norsk kr. 9.01990 9.04300 9,03680
Sænsk kr. 9,71700 9,74190 9,71840
Fi. mark 14,60050 14,63790 14,65900
Fr. Iranki 9,94760 9.97290 9,98070
Belg. franki 1,60810 1,61220 1,61420
Sv. franki 38,44360 38,54200 38,74610
Holl. gyllini 29,88740 29,96390 30,02590
V-þ. mark 33.72280 33,80910 33,89360
ít. líra 0,04614 0,04626 0,04614
Austurr. sch. 4.78940 4,80170 4,81490
Port. escudo 0,39480 0.39580 0,39510
Sp. peseti 0,53490 0,53620 0,53360
Jap. yen 0,43744 0,43856 0,43766
írskt pund 89,73300 89,96200 89,99700
SDR (Sérst.) 79,61100 79,81480 79,47600
ECU, evr.m. 69,33270 69,51020 69.33650
Tollgengi fyrir nóvember er sölugengi 30. október
Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70.
Ingibjörg Eyþórsdóttir.
■ INIGBJÖRG Eyþórsdóttir
opnaði fyrstu einkasýningu sína í
gær í FIM-salnum. Sýningin ber
yfirskriftina Bautasteinar. Ingi-
björg stundaði nám við Myndlista-
skóla Reykjavíkur og Myndlista-
og handíðaskóla íslands. Sýning-
arsalurinn er opinn frá kl. 13-18 á
virkum dögum en frá kl. 14-18 um
helgar.
H HIN árlega minningarathöfn
um fallna hermenn breska sam-
veldisins verður haldin á morgun,
sunnudag, við hermannagrafreitinn
í Fossvogskirkjugarði og hefst
hún að venju klukkan 10.45. Flug-
vél úr hinum konunglega breska
flugher mun fljúga yfir kirkjugarð-
inn klukkan 10.55, til heiðurs hin-
um föllnu. I hermannagrafreit
breska samveldisins í Fossvogs-
kirkjugarði eru grafir 128 breskra
hermanna og 84 grafir hermanna
frá öðrum löndum, þar á meðal 47
Kanadamanna og 5 Ástr^líubúa.
■ EDI-FÉLAGIÐ á íslandi efnir
til ráðstefnu á Hótel Loftleiðum,
í salnum Höfða, þriðjudaginn 14.
nóvember nk. um EDI-framtíðina:
Pappírslaus viðskipti í Evrópu.
Ráðstefnan stendur frá kl. 9.30-
16.30. Á ráðstefnunni verður rætt
um hagræðið sem íslenskum fyrir-
tækjum býðst með notkun EDI,
staðlaðra skjalaskipta milli tölva.
Erlendir fyrirlesarar verða á ráð-
stefnunni, Maurice Walker frá
Tollaráðneyti Evrópubandalags-
ins og Hans B. Thomsen frá Ut-
flutningsráði Noregs. Aðrir sem
flytja fyrirlestra eru Karl F. Garö-
arson frá Ríkistollstjóra, Jón H.
Magnússon, lögfræðingur VSI,
Gunnhildur Mannfreðsdóttir,
bókasafnsfræðingur, Arnþór
Þórðarson frá Félagi ísl. iðnrek-
enda, Sigmar Þormar hjá Versl-
unarráði og Þór Svendsen
Björnsson frá Reiknistofu ban-
kanna.
I TVÆR danskar myndir verða
sýndar í fundarsal Norræna húss-
ins, á morgun kl. 15. Fyrri myndin
heitir „Eventyret om den vidund-
erlige kartoffel“ og er teiknimynd.
Ein af „hetjum hversdagslífsins“
er aðalsögupersónan í þessari
teiknimynd, sem lýsir á fróðlegan
og skemmtilegan hátt sögu kartöfl-
unnar. Leikstjóri er Anders Sor-
ensen. Síðari myndin heitir „Natt-
erytter". Hanna er 12 ára gömul
telpa sem blandar gjarnan saman
draumi og veruleika. Hún fer í vetr-
arfrí til móðurömmu sinnar sem býr
uppi í sveit. Dvölin í sveitinni eykur
á hugmyndaflug hennar og ótta við
hið óþekkta. Leikstjóri er Svend
Johansen.
■ BAZAR Kirkjunefndar
kvenna Dómkirkjunnar verður í
Casa Nova við Bókhlöðustíg í
dag, laugardag, kl. 14. Á boðstólum
verður ýmiss konar handavinna,
sem kirkjunefndarkonur hafa unn-
ið, og aðrir eigulegir gripir. Þá verð-
ur kökubazar með ýmsum tegund-
um af jólabakstri. Bazarinn er að
þessu sinni haldinn til ijáröflunar
fyrir safnaðarheimilið, sem Dóm-
kirkjusöfnuðurinn á í vændum í
gamla Iðnskólahúsinu við Lækjar-
götu.
■ AÐALFUNDUR Landvernd-
ar verður haldinn í dag í Félags-
heimili Kópavogsog hefst kl. 10.
Kosin verður ný stjórn og gerður
upp reikningar ársins, aukannarra
aðalfundarstarfa.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 10. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 96,00 61,00 78,59' 4,853- 381.334
Þorskur(ósl.) 105,00 35,00 81,25 2,924 237.537
Ýsa 95,00 69,00 84,24 7,244 610.292
Ýsa(ósl.) 97,00 44,00 73,88 11,070 817.890
Karfi 39,00 20,00 34,01 108,006 3.673.515
Ufsi 41,00 23,00 39,27 15,428 605.836
Steinbítur 76,00 51,00 69,35 1,288 89.328
Keila 20,00 17,00 19,20 1,096 21.054
Keila(ósl-) 17,00 16,00 16,88 1,347 22.739
Langa ' 35,00 30,00 33,39 0,790 26.403
Samtals 42,69 155,834 6.652.257
Selt var úr Hjalteyrinni EA, Þorláki ÁR og bátum. Á mánudag
verða meðal annars seld 50-60 tonn af þorski, ýsu og fleiri
tegundum úr Stakkavik AR og bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 90,00 59,00 68,51 31,635 2.167.222
Ýsa 85,00 40,00 53,72 27,307 1.466.838
Karfi 34,00 30,00 33,09 44,864 1.484.480
Ufsi 44,00 20,00 37,80 82,103 3.103.409
Steinbítur 60,00 30,00 58,95 5,726 337.524
Hlýri 60,00 60,00 60,00 0,082 4.920
Langa 53,00 33,00 46,02 1,383 83.639
Lúða 295,00 125,00 185,43 0,463 85.855
Grálúða 58,00 54,00 57,03 3,478 198.323
Keila 16,00 12,00 14,95 0,233 3.484
Samtals 44,92 199,933 8.980.824
Á mánudag verður selt úr línu- og netabátum.
SKIPASÖLUR í Bretlandi 6. til 10. nóvember.
Þorskur 134,86 64,800 8.738.710
Ýsa 132,10 1,390 183.615
Ufsi 47,42 8,120 385.018
Karfi 67,53 0,360 24.311
Samtals 125,08 76,765 9.601.839
Selt var úr Ottó Wathne NS í Grimsby 8. nóvember.
GÁMASÖLUR í Bretlandi 6. til 10. nóvember.
Þorskur 118,33 449,116 53.145.666
Ýsa 123,11 222.776 27.426.747
Ufsi 59,53 43,658 2.598.740
Karfi 53,97 37,460 2.021.575
Koli 119,01 80,096 9.532.034
Samtals 114,63 906,969 103.965.898
SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 6. til 10. nóvember.
Samtals 83,15 518,813 43.141.369
Selt var úr Engey RE 6. nóvember, Barða NK 8. nóvember og Má SH 9. nóvember. Selt var úr öllum skipunum i Bremerhaven.
■ NÆSTU helgar mun leikhúsið
Frú Emilía standa fyrir leiklestri
helstu verka sovéska rithöfundarins
Maxims Gorki. Þau verk sem lesin
verða: í Djúpinu (eða Náttbólið), í
dag, laugardag, á morgun. Sumar-
gestir helgina 18. og 19. nóvember
og að lokúm Börn sólarinnar helg-
ina 25. og 26. nóvember. Geta má
þess að Börn sólarinnar hefur aldr-
ei fyrr verið flutt opinberlega á ís-
landi. Lestrarnir heíjast alltaf á
sama tíma klukkan 15. Um næstu
helgi munu þau Rúrik Haraldsson,
Helga Þ. Stephensen, Rósa Þórs-
dóttir, Theódór Júlíusson, Ellert
A. Ingimundarson, Jón Júlíusson,
Bryndís Petra Bragadóttir, Vil-
borg Halldórsdóttir, Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Kjartan
Ragnarsson, Signrður Skúlason,
Sigurður Karlsson, Hallmar Sig-
urðsson, Karl Guðmundsson, Val-
geir Skagfjörð, Árni Tryggvason
og Stefán Sturla Sigurjónsson
flytja í djúpinu í þýðingu Halldórs
Stefánssonar. Eins og ætíð gefur
leikhúsið út á prenti verkin, sem
lesin verða.
Hluti muna er verða til sölu á
basar Kvenfélags Kópavogs.
■ ÁRLEGUR basar Kvenfélags
Kópavogs verður á morgun, sunnu-
daginn 12. nóvember, í Félags-
heimili Kópavogs og hefst hann
kl. 14. Þar verða margskonar hand-
unnir munir s.s. jóladúkar, pijónles,
jólasvuntur fyrir börn og fullorðna,
kökur, Iukkupokar o.fl. Einnig verð-
ur selt kaffi með heitum vöfflum
og þeyttum íjóma. Kvenfélag Kópa-
vogs hefur innan sinna vébanda
„Líknarsjóð Áslaugar Maack“ og
rennur hluti ágóðans til hans, en
afgangurinn fer til annarra líknar-
mála.
■ / sunnnudagsmorgungöngu
Náttúruverndarfélags Suðvest-
urlands verður gengið um
Öskjuhlíð og nágrenni, en þetta
er annar áfanginn á leiðinni upp í
Bláfjöll. Farið verður frá Loft-
leiðahótelinu kl. 10 og gengið út
að Nauthóli með viðkomu í gamla
flugturninum, síðan verður gengið
um skógarstíga í Öskjuhlíð og niður
að Stóra-Lyngbergi við Naut-
hólsvík. Þaðan gengið austur
með Fossvoginum að Tjaldhóli
v/Kringlumýrarbraut.
■ EDWIN Kaaber verður með
málverkasýningu í húsgagnaversl-
uninni Bústofni við- Smiðjuveg í
Kópavogi 11.-30. nóvember.
Myndirnar eru flestar unnar í akrýl
en einnig eru gvass og vatnslita-
myndir.
■ / MATSAL sjúkrahússins á
Isafirði verður haldin kynning á
verkum Gunnars Gunnarssonar,
rithöfundar, í dag, laugardag,
klukkan 16. Gunnarsvakan er
haldin í minningu feðganna Úlfs
Gunnarssonar yfirlæknis á ísafirði
og heiðursborgara kaupstaðarins,
sem andaðist fyrir rúmu ári, en
hefði orðið sjötugur 12. nóvember,
og Gunnars Gunnarssonar rithöf-
undar, en á þessu ári eru liðin eitt
hundrað ár frá fæðingu hans. Á
kynningunni flytur Sveinn Skorri
Höskuldsson prófessor erindi um
skáldskap Gunnars lesið verður úr
nokkrum bóka hans, m.a. Fjall-
kirkjunni og Svartfugli, og Erling
Sörensen frumflytur á flautu Milli-
spil, stutt tónverk eftir Jónas Tóm-
asson, samið í tilefni af kynning-
unni. I hléi verða Jéttar veitingar.
Menningarráð Isafjarðar og
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði
gangast fyrir Gunnarsvökunni. Að-
gangur er ókeypis.
HLionessuklúbbur Reykjavíkur
heldur flóamarkað í Lionsheimilinu
Sigtúni 9 A í dag, laugardag, klukk-
an 14.