Morgunblaðið - 11.11.1989, Page 26
MOBG.UNBLAÐIÐ LAUGABPAGUR ll.,NÓ,VEMBEIU9,89
r<26
Morgunoiaoio/Kunar por
íbúar við Skarðshlíð vilja að bann verði lagt við bifreiðastöðum stórra bíla við götuna og afhentu
þær Herdís Ólafsdóttir, Guðlaug Kristinsdóttir og Sigríður Guðrún Árnadóttir, Sigfúsi Jónssyni
bæjarstjóra áskorun 114 íbúa götunnar þess efnis.
íbúar við Skarðshlíð:
Vilja að bæjaryfirvöld banni
bift*eiðastöður við götuna
SIGFÚSI Jónssyni, bæjarstjóra voru í gær afhentar undirskriftir
114 íbúa úr fimm íjölbýlishúsum við Skarðshlíð þar sem þess er
farið á leit við bæjaryfirvöld að leggja bann við bifreiðastöðum
stórra bíla við götuna.
Fulltrúar íbúanna við
Skarðshlíð, þær Herdís Ólafsdótt-
ir, Guðlaug Kristinsdóttir og
Sigríður Guðrún Árnadóttir af-
hentu Sigfúsi Jónssyni bæjar-
stjóra undirskriftir íbúanna, en
alls rituðu 114 aðilar nöfn sín
undir áskorun til bæjaryfirvalda.
„Við undirritaðir íbúar fjölbýlis-
húsa við Skarðshlíð, norðan Únd-
irhlíðar að Ásbyrgi, förum þess á
leit við bæjaryfirvöld að bannað
verði að leggja stórum bílum,
tengivögnum og þess háttar, á
þessu svæði,' og þeim útbúin að-
staða annars staðar. Einnig að
komið verði fyrir hraðahindrunum
og gönguljósum svo öryggi gang-
andi fólks, t.d. skólabarna verði
aukið.“ frannig hljóðar áskorun
íbúanna til bæjaryfirvalda.
Þær Herdís, Guðlaug og Sigríð-
ur sögðu á fundi með bæjarstjóra,
að iðulega væri 5 til 8 stórum
bílum lagt við götuna, en það
hefði mikið óöryggi í för með sér
t.d. fyrir börn sem væru á leið
úr skóla. Þær bentu á að börn
hefðu orðið fyrir slysum vegna
þessa og því væri brýnt að eitt-
hvað yrði gert í málinu. Þá bentu
þær bæjarstjóra einnig á mjög
mikla umferð um götuna, sem
færi vaxandi í kjölfar lokunar
Höfðahlíðar og einnig væri leik-
skóli starfandi við götuna. Einnig
nefndu þær að hraðaakstur væri
mikill og hefðu ökumenn verið
teknir þar á yfir 90 kílómetra
hraða.
Sigfús Jónsson tók vel í erindi
íbúanna og sagði að athugað yrði
hvað hægt væri að gera í þessu
máli.
Frosti hefíir keypt Hjalteyrina II af Samherja:
Kvóti Grenvík-
inga hefur þre-
faldast á tæpu ári
Samstaða, bjartsýni og þor, sem ráða
þar mestu um, segir Þorsteinn Pét-
ursson framkvæmdastjóri Kaldbaks
KVÓTI Grenvíkinga hefúr þrefaldast frá síðustu áramótum, en þá
var heildarkvóti byggðarlagsins um 1.000 tonn, en með skipa- og
bátakaupum það sem af er þessu ári hafa hafa Grenvíkingar nú yfir
um 3.000 tonna kvóta að ráða. í vikunni keypti Frosti hf. togarann
Hjalteyrina II af Samheija á Akureyri, en hafði áður keypt Rán BA
og hlutafélagið Hlaðir hf. keypti Akureyna frá Hornafirði síðastliðið
vor. Þá keypti Kaldbakur hf. tvo kvótabáta af Suðurnesjum fyrr í
haust.
„Það er fyrst og fremst samstaða
heimamanna, bjartsýni og þor, sem
mestu ráða um að við höfum þre-
faldað kvóta byggðarlagsins," sagði
Þorsteinn Pétursson framkvæmda-
stjóri Kaldbaks á Grenivík.
Um síðustu áramót var útlitið
ekki bjart, en þá var einungis til
staðar kvóti tveggja báta, Frosta,
sem er um 130 tonn að stærð og
Sjafnar, sem er um 60 tonn. Sam-
tals höfðu þessir tveir bátar um
1000 tonna kvóta. í vor komst á
samvinna milli Sjafnarmanna og
Kaldbaks um kaup á Akureynni frá
Hornafirði, sem nú heiti Sjöfn og
bættist þar með við um 400 tonna
þorskkvóti auk síldar- og rækju-
kvóta sem fyigdi skipinu. Síðla sum-
ars keypti Frosti hf. Rán BA og
fyrr í haust keypti Kaldbakur tvo
kvótabáta frá Suðurnesjum. Með
þessum kaupum tvöfaldaðist kvóti
byggðarlagsins.
Nú í vikunni var gegnið frá samn-
ingum á milli Frosta hf. og Sam-
heija á Akureyri um kaup þeirra
fyrrnefndu á ísfisktogaranum
Hjalteyrinni II, en skipið keypti
Samheiji snemma síðasta vor.
Hjalteyrin II var áður Álftafell, sem
gert var út frá Stöðvarfirði. Heild-
arkvóti Hjalteyrarinnar II er um
2100 tonn.
Þorsteinn sagði að stefnan væri
sú að Kaldbakur og Giýtubakka-
hreppur stofnuðu með sér einhvers
konar félag sem kaupa myndi Rán-
ina af Frosta. Kvóti Ijögurra báta,
gömlu Sjafnar, Ráninnar og Suður-
nesjabátanna verður færður yfir á
Hjalteyrina II og nýju Sjafnar.
„Möguleikar okkar hafa vaxið
mjög eftir að þessi skipakaup hafa-
farið fram og þetta hefur líka í för
með sér mikla hagræðingu í
rekstri," sagði Þorsteinn. Hann
sagði þó að sá viðbótarkvóti sem
komið hefði inn í byggðarlagið nýtt-
ist ekki nema að litlu leyti á þessu
ári. Útlit væri því fyrir að vinnsla
í frystihúsinu stöðvaðist um miðjan
desember.
Heildsöiubirgðir:
KARL K. KARLSSON & CO.
Skúlatúni 4, ReykjavflG, sími 62 32 32
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Unnið hefur verið að kappi við safnaðarheimili Akureyrarkirkju og
er norðurhluti hússins nú tilbúin. Á myndinni er frá vinstri Einar
og Helgi, málarar, smiðirnir Jón, Stefán, Magnús og Bragi, þá Sveinn
staðarhaldari, Kristinn símamaður og Jón rafvirki, en þeir voru að
leggja síðustu hönd á frágang norðurhluta heimilisins, enda verður
fyrsti ftmdur sóknarnefndar haldinn þar í dag.
Akureyrarkirkja:
Byggðastofnun:
178 smábátaeig-
endur fengu 255
milljóna króna lán
BYGGÐASTOFNLIN hefur lokið við að afgreiða lán til smábátaeig-
enda. Alls fengu 178 aðilar lán að upphæð 255 milljónir króna.
Stjórn Byggðastofnunar ákvað
að veita smábátaeigendum þessi lán
á síðasta vori og skyldu lánin veitt
eigendum báta sem smíðaðir voru
á árinum 1987 og 1988 og voru
undir tíu brúttólestir að stærð. Þá _
var einnig gerð krafa um að lánin
yrðu veitt gegn fyrsta veðréttin í
viðkomandi bát.
Að sögn Valtýs Sigurbjarnarson-
ar forstjóra Byggðastofnunar á
Akureyri fór lokaafgreiðsla á lánun-
um fram í fyrradag. Alls fengu 178
aðilar lán að uppæð 255 milljónir
króna, eða sem svarar til 1,4 millj-
ónum að meðaltali til hvers þeirra.
Lánin eru til sex ára. Valtýr sagði
að upphaflega hefði ekki verið vitað
hversu margir teldu sig þurfa á
þesáum lánum að halda. „En ég
býst við að ívið fleiri hafi sótt um
en reiknað var með.“
Norðurhluti saftiaðarheimilis tilbúinn
SÓKNARNEFND Akureyrarkirkju heldur sinn fyrsta fundi í nýju
safnaðarheimili sem verið hefur í byggingu við kirkjuna í dag, en
síðustu vikur hefur verið unnið af kappi í norðurhluta safnaðar-
heimilisins. Stefnt er að því að byggingin verði tekin formlega í
notkun fyrir páskahátíð á næsta ári, en á afmæli kirkjunnar 17.
nóvember næstkomandi verður hluti safnaðarheimilisins komin í
notkun.
Það var Fanney Hauksdóttir
arkitektanemi sem teiknaði safnað-
arheimilið við Akureyrarkirkju, en
fi-amkvæmdir hófust við byggingu
þess vorið 1987. Sveinn Jónsson
byggingastjóri sagði að unnið hefði
verið af miklum krafti síðustu vikur
og í gær þegar Morgunblaðið kom
við í safnaðarheimilinu var allt í
fullum gangi, enda fyrsti fundur
sóknarnefndar í nýjum húsakynn-
um haldinn í dag.
í norðurhluta hússins sem nú er
tilbúin verða skrifstofur prestanna,
aðstaða fyrir starfsmenn og organ-
ista og þar fer einnig fram öll fé-
lagsstarfssemi sem áður var í kap-
ellunni. I vetur verður áfram unnið
í suðurhlutanum, en þar er anddyri
og samkomusalur, sem einnig verð-
ur notaður sem tónleikasalur. Safn-
aðarheimilið er 710 fermetrar að
stærð og er innan gegnt úr því í
kirkjuna.
Akureyrat'kirkja á 50 ára afmæli
í nóvember á næsta ári. Miklar
framkvæmdir hafa verið í gangi í
sumar og verður þeim haldið áfram
svo allt verði sem glæsilegast á
afmælinu. Hitakerfi var lagt í allt
svæðið umhverfis kirkjuna og voru
lagðir 9,5 kílómetrar af rörum í
það. Þá hefur verið sett upp flóðlýs-
ing fyrir framan kirkjuna og verið
er að útbúa lýsingu umhverfis hana.
Einnig voru gerðar nýjai' tröppur
við kirkjuna. Fyrir liggur að mála
kirkjuna innan, skoða lýsingu og
laga gólfið, en í það er komin nokk-
ur fúi. Einnig verða lagðar hellur
í anddyri kirkjunnar.
Heildarkostnaður við byggingu
safnaðat'heimilisins liggur ekki fyr-
ir, en byggingin er fjármögnuð með
sóknargjöldum og framlagi úr jöfn-
unarsjóði kirkna.