Morgunblaðið - 11.11.1989, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1989
41
VELXAKANDI
SVARlR í SÍMA
691282KL. 10-12
FRÁ NÁNUDEGI
TIL FCSTUDAGS
HRÆVCIR IoEIM jRFNHiRC?OFqN UPPÍjRsfRRPTm"
Fæðingarheimilið við Eiríksgötu
Mér brá ónotalega þegar ég las
um það í Morgunblaðinu í gær að
borgarráð Reykjavíkur hefði sam-
þykkt að gengið yrði til viðræðna
við ellefu lækna um leigu á 1. og
2. hæð Fæðingarheimilisins við
Eiríksgötu. Ég er sammála Elínu
B. Ólafsdóttur, borgarráðsmanni,
um að full þörf sé fyrir þau rúm,
sem ei-u á Fæðingarheimilinu fyrir
konur, sem þurfa á lengri
hvíldartíma að halda eftir fæðingu
en nú er unnt að veita.
Sú þjóð ein er sterk, sem á sér
sterkan, ungan stofn. Vilji þjóðin
verða langlíf í landinu, verður það
að hafa algjöran forgang að hiúð
sé að ungu lífi og ungum fjölskyld-
um. Það er mjög viðkvæmur tími í
lífi konu þegar hún elur barn, og
henni er nauðsynlegt að vita að
allt sé gert, sem í mannlegu valdi
stendur, til að henni og barninu
megi líða sem best fyrstu dagana
eftir fæðingu og að henni sé ekki
gert að fara fyrr heim af sjúkra-
húsi en hún treystir sér til.
Ég hringdi í Gunnlaug Snædal,
prófessor, forstöðumann kvenna-
deildar Landspítalans, og sagði
hann mér að miklir erfiðleikar væru
framundan fyrir fæðandi konur ef
Fæðingarheimilið yrði leigt.
I bréfi, sem hann og Guðjón
Guðnason, yfirlæknir á Fæðingar-
heimili Reykjavíkur (FHR), sendu
stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkur
þann 30. mars sl. segir m.a.: „Fæð-
ingum fer nú aftur fjölgandi hér-
lendis og er aukning milli áranna
1985-88 21,5%. Einnig fjölgar
þeim konum, búsettum utan
Reykjavíkursvæðisins, sem kjósa
að fæða í Reykjavík.“ í bréfinu
segir einnig að 2.800 konur hafi
fætt á Kvennadeild Landspítalans
í fyrra en að deildin sé byggð og
skipulögð fyrir hámark 2.500 fæð-
ingar á ári og að vandræðaástand
hafi því skapast á deildinni þá. 311
börn fæddust þá á FHR. Segja þeir
að full þörf sé fyrir allt húsnæði
FHR (18 rúm í stað 10 núna) til
að sinna fæðingum á Stór-
Reykjavíkursvæðinu á komandi
árum.
Gunnlaugur tjáði mér að sængur-
konur á fæðingardeildinni fari að
jafnaði heim á 5. degi eftir fæð-
ingu, en þegar mestu topparnir
hafi verið, hafi þær þurft að fara
fyrr heim en ella. Þær fá líka að
vera lengur ef þær æskja' þess og
pláss leyfir.
Fæðingarheimilið við Eiríksgötu.
Hulda Jensdóttir stjórnaði Fæð-
ingarheimilinu í 29 ár. Hún segist
hafa lagt áherslu á að konurnar
færu ekki heim fyrr en á 7. eða
8. degi til að þær væru færar um
að takast á við hlutina. Það sé svo
geysilega mikilvægt að mjólkur-
framleiðslan sé komin vel af stað
áður, ella geti þær misst mjólkina
vegna erils og gestanauðar. Hún
segir að konur hafi ekki nýtt Fæð-
ingarheimilið sem skyldi síðustu
árin, að þær virðist ekki hafa skilið
gildi þess að eiga svona stofnun.
Hún segir það ástæðu þess að svona
er komið. „í raun og veru,“ segir
Hulda, „hafa borgaryfirvöld og
borgarstjóri þar fremstur í flokki
viljað gera allt til þess að Fæðingar-
heimilið væri starfrækt.“
Ég spyn.Hvað hefur breyst?
í Morgunblaðinu í dag,-9. nóvem-
ber, er stutt grein á bls, 27, sem
ber yfirskriftina „Mikill sparnaður
ríkisins." Greinin er svohljóðandi:
„Borgarráð hefur ákveðið að ganga
til samninga við sérfræðinga á leigu
Fæðingarheimilisins við Eiríksgötu.
Ellefu sérfræðingar hafa óskað eft-
ir því að fá leigðar tvær neðstu
hæðir hússins og hyggjast notaþær
sem skurðstofur. Að sögn Árna
Ingólfssonar, læknis, er gert ráð
fyrir því að ríkið borgi kostnað við
stofuna. „Þetta hefur verið gert í
nágrannalöndum okkar í mörg ár
enda mun ódýrara en að fara með
þessar aðgerðir inii á skurðstofur
spítalanna,“ sagði Árni. Árni sagði
að hugsanlega myndu fleiri læknar
bætast í hópinn og sameinast um
skurðstofuna. „Okkur vantar skurð-
stofu og teljum þetta góða og hag-
kvaema lausn,“ sagði hann.“
Út um alla borg er vannýtt hús-
næði, sem ætti að geta hentað sem
skurðstofur lækna. Að borgarráð
skuli ætla að leigja skurðlæknum 2
hæðir Fæðingarheimilisins, sem er
steinsnar frá Kvennadeild Landspít-
alans, og sem nýta átti til að auka
fjölda leigurúma fyrir stækkandi
hóp sængurkvenna, er fullkomið
tillitsleysi við þær og börn þeirra.
Vonandi tekur borgarstjóm skyn-
samlegri ákvörðun.
Reykjavík, 9. nóv. 1989,
Rannveig Tryggvadóttir.
Opið í dag frá kl. 9-18
og á morgun frá kl. 13-17
Glæsilegar baðinnréttingar á gáðu verði.
Aðeins 20% ntborgiui.
EDI framtíðin:
Pappírslaus viðskipti í Evrópu
Ráðstefna þriðjudaginn 14. nóvember
kl. 9.30-16.30 á Hótel Loftleiðum,
í salnum Höfða.
Erlendir gestir ráðstefnunnar:
Hans B. Thomsen frá Útflutningsráði Noregs
og Maurice Walker frá tollaráðuneyti
Evrópubandalagsins.
Aðrir, sem flytja erindi:
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastj. Verslunarráðs íslands,
Karl F. Garðarsson, Ríkistollstjóra,
Jón H. Magnússon, Vinnuveitendasambandi íslands,
Gunnhildur Manfreðsdóttir, bókasafnsfræðingur,
Arnþór Þórðarson, Félagi ísl. iðnrekenda,
Sigmar Þormar, Verslunarráði Islands,
Þór Svendsen Björnsson, Reiknistofu bankanna.
Pappírslaus viðskipti eru framtíðin. íslensk fyrirtæki
verða að tileinka sér þær nýjungar, sem nú ryðja sér
til rúms hvarvetna í helstu viðskiptalöndum okkar. Með
notkun EDI, staðlaðra skjaiaskipta milli tölva, munu þau
njóta verulegs hagræðis.
Það er mikilvægt að stjórnendur kynni sér þessi mál,
því uþptaka pappírslausra viðskipta er 80°/o stjórnunar-
mál en 20% tæknilegt viðfangsefni. Opinberir aðilar,
t.d. tollurinn, hafa sýnt þessum nýjungum mikinn áhuga
og Ijóst er, að í framtíðinni munu upplýsingar vegna
inn- og útflutnings berast til tollsins fyrst og fremst í
tölvutæku formi.
Á ráðstefnu EDI félagsins þann 14. nóvember munu
tveir erlendir gestir skýra frá vinnu innan Evrópubanda-
lagsins varðandi notkun EDI við tollafgreiðslu og laga-
legum atriðum, sem tengjast pappírslausum viðskiptum.
Ennfremur verður fjaliað um þá frumvinnu, sem farin
er af stað hér á landi og framtíðarmarkmið.
Ég vil því eindregið hvetja þig til að mæta.
Vilhjálmur Egllsson,
framkvæmdastjóri Verslunarráðs Islands
og formaður EDI félagsins.
Vinsamlegast tilkynnið þáttöku
í síma 83088.
Ráðstefnan er öllum opin. Þátttökugjald kr. 6.000.
Viðtalstimi borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum í vetur f rá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Laugardaginn 11. nóvember verða til viðtals Árni Sigfússon, formaður félagsmálaráðs
og í stjórn heilbrigðisráðs, og Anna K. Jónsdóttir, formaður stjórnar Dagvistar barna og
í stjórn heilbrigðisráðs og veitustofnana.
w s/ w f y y y