Morgunblaðið - 11.11.1989, Page 42
42
MDRGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
LAjtí.GARDAiGUR II. NÓVEMBER 1989
FRJALSARIÞROTTIR
ÆT
Agúst í tækninef nd Evrópu-
sambands ólympíunefnda
Agúst Ásgeirsson, formaður
Ftjálsíþróttasambands ís-
lands, hefur verið kjörinn í tækni-
nefnd Evrópusambands ólympíu-
nefnda (AENOC). Kosningin fór
fram á ársfundi AENOC, sem 34
ríki eiga aðild að.
„Það var að frumkvæði Gísla
Halldórsspnar, forseta Ólympíu-
nefndar íslands, sem ég var til-
nefndur í nefndina. Ég lít á kjör
mitt í nefndina fyrst og fremst sem
vott um góðan orðstýr hans í al-
þjóðaólympíuhreyfingunni," sagði
Agúst í samtali við Morgunblaðið.
í nefndinni sitja 11 menn frá
jafnmörgum Evrópuríkjum og er
framkvæmdastjóri AENOC form-
aður hennar. Þá á fulltrúi Vestur-
Þýskalands í nefndinni, August
Kirsch, sæti í stjórn Alþjóðaftjáls-
íþróttasambandsins.
„Það er von mín að kjör mitt í
nefndina eigi eftir að verða
Ólympíunefnd íslands og íslenskri
íþróttahreyfingu til framdráttar.
Þarna skapast kynni sem orðið
geta heillavænleg síðar,“ sagði
Agúst.
Nefndin mun fjalla um tækni-
mál er varða íþróttakeppni á
Ólympíuleikum og vera stjórn Evr-
ópusambands ólympíunefnda til
ráðgjafar í þeim efnum. Þetta er
í fyrsta sinn sem íslendingar eign-
ast fulltrúa í fastanefnd sam-
bandsins. Örn Eiðsson var í fyrra
kjörinn í vinnunefnd sambandsins
um íjölmiðlun. í ráði er að gera
hana einnig að fastanefnd innan
AENOC.
Agúst Asgeirsson, formaður
Frjálsíjiróttasambands íslands.
ítfémR
FOLK
■ RAGNAR Már Steinssen, sigl-
ingamaður úr Ými í Kópavogi, var
útnefndur „Siglingamaður ársins
1989“ á siglingaþingi sem haldið
var um síðustu helgi. Ragnar, sem
er aðeins 14 ára, var íslandsmeist-
ari í flokki „Optimist“ báta í sum-
ar. Hann keppti nokkrum sinnum
á mótum erlendis á árinu og náði
ágætum árangri og á unglingamóti
í Esbjerg í ágúst hafnaði í 4. sæti-
af 31 keppanda. Valdimar Krist-
insson, Brokey, var kjörinn besti
seglbrettamaðurinn og Óttar
Hrafnkelsson, Ými, besti siglinga-
maðurinn í flokki kjölbáta. Þá voru
Unnur Jökulsdóttir og Þorbjörn
Magnússon útnefnd „Sæfarar árs-
ins 1989“ en þau hafa siglt um
heimshöfin undanfarin fimm ár.
■ ARI Bergmann Einarsson var
endurkjörinn formaður Siglinga-
sambands Islands á þinginu um
helgina.
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN
ffÆtlum okkur að
komast áfram“
- segir Þorbjörn Jensson, þjálfari Valsmanna
„VIÐ ætlum okkur að komast
áfram í keppninni og með
stuðningi áhorfenda ætti það
aðtakast," sagði Þorbjörn
Jensson, þjálfari Vals, um
síðari leik Vals og ungverska
liðsins Raba ETO Györ í Evr-
ópukeppni meistaraliða. Leik-
urinn fer fram í Laugardalshöll
annað kvöld kl. 20.30. Ung-
verska liðið vann fyrri leikinn
með sex marka mun, 29:23.
u
ngverska liðið Raba ETO, sem
er í eigu ungverska járnbraut-
arfélagsins, er mjög sterkt. Liðið
hefur þó staðið í skugganum af
\Æ
mm
IbM
HERRAKVOLD BREIÐABLIKS
KNATTSPYRNIIDEILD
i Félagsheimili Kópavogs n.k. föstudagskvöld.
Miöasala í Bókaversluninni Vedu.
Nánari uppl. í símum: 46415, 40082 og 45031
Dagskrá:
Villibráðarhlaðborð ásamt fjallalambi. Ræðumaður kvöldsins:
Ólafur Ragnar Grímsson. Ómar Ragnarsson skemmtir.
Leynigestur kemur. Glæsilegir happdrættisvinningar o.fl. o.fl.
Laugardagur kl.14:55 w w ~
45. LEIKVIKA- 11. nóv. 1989 II! m m
Leikur 1 Coventry - Southampton
Leikur 2 C. Palace Luton
Leikur 3 Derby - Man. City
Leikur 4 Everton - Chelsea
Leikur 5 Miliwall - Arsenal
Leikur 6 Norwich - Aston Villa
Leíkur 7 Q.P.R. - Liverpool
Leikur 8 Sheff. Wed. - Charlton
Leikur 9 Tottenham - Wimbledon
Leikur 10 Bournemouth - Sheft. Utd.
Leikurll Sunderland - Wolves
Leikur 12 West Ham - Newcastle
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN S. 991002
Fjórfaldur pottur! IV 1» II
Honvet og Tatabania undanfarin
ár. Raba ETO varð IHF-meistari
1986 og er nú í efsta sæti ung-
versku deildarinnar. Með liðinu
leika fjórir landsliðsmenn, mark-
verðirnir báðir og hornamennirnir.
„Raba-liðið spilar mjög kerfis-
■ bundið, en er þó mjög léttleikandi.
Sterkasta vopn liðsins í fyrri leikn-
um var hægri vængurinn. Hægri
hornamaðurinn er mjög skæður og
eins skyttan hægra megin. Varnar-
leikur þeirra var einnig góður. Þeir
hafa verið góðir í hraðaupphlaupum
en okkur tókst að koma í veg fyrir
þau í fyrri leiknum," sagði Þorbjörn
Jensson.
Brynjar Harðarson, markahæsti
leikmaður Vals og 1. deildar, var
mjög bjartsýnn á að Valur kæmist
áfram. „Þetta lið er mjög skemmti-
legt og íeikut' hraðan handbolta sem
gaman er að horfa á. Þeir tóku
mjög fast á mér í leiknum úti og
ég ætla að launa þeim það hérna
heima. Það er okkur mikið kapps-
mál að komast í þriðju umferð því
við erum eina íslenska liðið sem
eftir er í Evrópukeppninni. Það er
mikilvægt fyrir íslenskan handbolta
að Valur komist áfram,“ sagði
Brynjar sem skoraði ellefu mörk í
fyrri leiknum.
Það ætti ekki að vera óvinnandi
vegur fyrir Val að vinna upp sex
marka mun ef tekið er tillit til þess
að ungversk og rúmensk lið hafa
átt mjög misjöfnu gengi að fagna
á útivöllum síðustu árin. Gott dæmi
um þetta et' Evrópuleikur FH og
rúmenska liðsins, Baia Mare, í
Einar Þorvarðarson, landsliðs-
markvörður hjá Val. Hvernig tekst
honum upp?
fyrra. Rúmenska liðið vann fyrri
leikinn á útivelli með níu marka
mun, en FH vann síðari leikinn í
Hafnarfirði með 13 marka mun og
kotpst áfram.
Valsmenn höðfu í hyggju að leika
að Hlíðarenda, en hafa fallið frá
því og leika í Laugat'dalshöll kl.
20.30 á sunnudagskvöld. Forsala
aðgöngumiða hefst kl. 17.00 í Höll-
inni. Dómararnir eru þeir Andersen
og Petersen frá Danmörku.
GETRUNIR
Fyrsti vinningur
sex milljónir
Leikur QPR og Liverpool sýndur beint
Fjórfaldur pottur er hjá íslenskum getraunum í dag. Að sögn
Hákons Gunnarssonar, framkvæmdastjóra íslenskra getrauna,
gekk salan mjög vel í gær. Hann sagði að potturinn hafi verið
kominn í þtjár milljónir króna í gærdag. „Það stefnir í metsölu og
miðað við fyrri reynslu má reikna með að potturinn verði ekki
undir sex milljónunTkróna. Föstudagssalan var óvenju góð enda
mikið í húfi,“ sagði Hákon.
Sölukössum verður lokað kl. 14.55 eða fimm mínútum áður en
leikirnir hefjast. Leikur QPR og Liverpool, sem er á seðlinum, verð-
ut' sýndur í beinni útsepdingu í Ríkissjónvarpinu. Á tneðan á leikn-
um stendur verður fylgst með gangi mála í öðrum leikjum og úr-
slit sett upp á skjáinn.
Um helgina
Handknattleikur
Laugardagur
1. deild karla:
Garðabær Stjaman—FH...kl. 16.30
Seljaskóli ÍR-KR.......kl. 16.30
Seltjarnam. Grótta—HK.kl. 16.30
1. deild kvenna:
Garðab. Stjarnan—Haukar ..kl. 15.00
Seltjarnarn. Grótta—Valur ..kl. 15.00
3. deild karla:
Seljaskóli KR b—Stjarnan b .kl. 15.00
Seítj’nes Grótta b—Reynir ...kí. 13.30
2. deild kvenna:
Selfoss Selfoss—Þór Ak.kl. 14.00
Seljaskóli ÍR-ÍBV......kl. 13.30
Sunnudagur
Evrópukeppni meistaraliða:
Höllin Valur—Raba......kl. 20.30
2. deild karla:
Valsheimili Valurb—FH b ...kl. 14.00
Körfuknattleikur
Laugardagur
1. deild karla:
Grundaríj. Snæfell—ÍS..kl. 14.00
Hagaskóli Víkveiji—UMFB .kl. 14.00
Sunnudagur
Fjölliðamót í yngri aldurs-
flokkum drengja og stúlkna.
Blak
KA leikur síðari leik sinn
gegn Srassen frá Luxemborg
í Evrópukeppninni á Akureyri
í dag kl. 15.30 í íþróttahöll-
inni.
Hlaup
Laugardagur
Hið árlega Öskjuhlíðarhlaup
ÍR fer fram í dag og hefst við
Hotel Loftleiðir kl. 14.00.
Hlaupnir verða tveir ht'ingir
fyrir karla 17-34 ára, en aðr-
ir hlaupa einn hring. Keppt
verður í nokkrum aldursflokk-
um karla og kvenna. Skráning
hefst kl. 13.00.
Sunnudagur
Hið árlega minningarhlaup
um Jóhannes Sæmundsson,
íþróttakennara við Mennta-
skólann í Reykjavík, fer fram
í dag kl. 12.00. Keppt verður
í boðhlaupi 4, x 2 km um-
hverfis tjörnina í opnum flokki
karla og 3 x 2 km í opnum
flokki kvenna. Einnig verður
keppt f opnum einstaklings-
flokki karla og kvenna ásamt
skólaboðhlaupi nemenda MR
frá kl. 12.00 til 12.30. Bún-
ingsaðstaða vejður í íþrótta-
húsi skólans. íþróttaráð MR
sér um framkvæmd hlaupsins
í samvinnu við íþróttakennara
skólans.
Fimleikar
Norðurlandamótið í fimleikum
drengja, 14 ára og yngri,
verður haldið að Laugarvatni
um helgina.
Pílukast
í dag fer fram seinni hluti
forkeppni karla og undanúr-
slit kvenna á íslandsmóti IPF
í pílukasti í húsnæði
Fríklúbbsins við Súðavog 7. Á
morgun, sunnudag, verður
leikið í mílliriðlum níður í fjög-
urra manna úrslit. Keppnin
hefst kl. 10.00 báða dagana.
Skylmingar
Islandsmótið í ólympískum
skylmingum á vegum ný-
stofnaðs Skylmingasamband
íslands hófst í ÍR-húsinu við
Túngötu á fimmtudag og
stendur fram á sunnudag. I
dag fara fram undanúrslit frá
kl. 14.00. Á morgun sunnu-
dag kl. 15.00 verða úrslita-
leikir.
Borðtennis
Punktamót Stjörnunnar í
borðtennis fer fram í Ásgarði
í Garðabæ á morgun, sunnu-
dag. Keppni hefst í 3. flokki
karla kl. 13.00, 1. flokki karla
og kvennaflokki kl. 15.00 og
meistaraflokki kl. 16.30.
FELAGSLIF
Uppskeruhátíð
Fram
Uppskeruhátíð knattspyrnu-
deildar Fram verður í félags-
heimili félagsins að Safamýri mánu-
daginn, 13. nóvember kl. 18.00.