Morgunblaðið - 23.11.1989, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1989
15
skapur sem er raunsönn saga af
því sem oft hefur gerst og alltaf
getur gerst í íslenskum smákaup-
stað (þar sem sagan gerist): að ung
kona hleypur frá búi og börnum og
tekur saman við mann sem getur
í andartakinu boðið þægilegra og —
að hún hyggur í fyrstunni — betra
líf. Að öliu samanlögðu finnst mér
þetta vera skemmtilegasta saga
Jóns Dan til þessa.
Ég nefni líka söguna Blinda þar
sem grátbrosleg atvik leiða til þess
að góðborgari nokkur neyðist til að
gera upp reikningana við samvisku
sína. I þeirri sögu má þó einnig
greina hina áðumefndu tilhneiging
höfundar: að láta sannindi þau, sem
honum er í mun að tjá, vega þyngra
en lífsanda frásagnarinnar; og seg-
ir þá of mikið.
Níu eru sögurnar í safni þessu
og er efni þeirra sótt jöfnum hönd-
um til gamla og nýja tímans. Gildis-
mat er hvarvetna höfundarins. í
þeim efnum er hann hvorki bundinn
fortíð né samtíð. Meginþemað í
skáldskap hans hefur verið og er
leitin að innsta kjama manneðlis-
ins; köfun áleiðis að botni hinna
myrku sálárdjúpa, en þar ber stund-
um fyrir augu allt annað en hitt
sem við blasir á sléttu og friðsælu
yfirborði.
Frámlag Jóns Dan til ísienskra
bókmennta er nú orðið bæði mikið
og gott. Hann fór hægt af stað en
hefur haldið því betur á með árun-
um. Safn þetta er jafnbetrá en fyrri
sögur hans. Ekki fer t.d. á milli
máia — og það er gleðilegt tímanna
tákn — að frásagan er aftur að
sækja í sig veðrið. Formtilraunir
eru nauðsynlegar annað kastið,
beinlínis óhjákvæmilegar. lín þegar
form hefur einu sinni verið fundið
upp eða endurnýjað er ekki nema
sjálfsagt að það þjóni tilgangi, sé
meira en umbúðir utan um ekkert.
Og hér er einmitt bók þar sem efnis-
magnið situr aftur í fyrirrúmi.
Bubbi Morthens/Nóttin langa:
Vel heppnuð tilraun
FRYSTIKISTUR - FRYSTISKÁPAR
Hljómplötur
ÁsgeirSverrisson
Hin nýja plata Bubba Morthens,
„Nóttin langa“, sýnir það og sann-
ar eina ferðina enn að hann er
með afbrigðum fjölhæfur tónlist-
armaður. Hann hefúr með aðstoð
þeirra Hilmars Arnar Hilmars-
sonar, Christians Falks, Johanns
Söderbergs og Ken Thomas skilað
írá sér athyglisverðri hljómplötu,
sem óhætt er að telja í hópi hans
bestu.
Lögin á plötunni eru að sönnu
misjafnlega áheyrileg en tiiraunir
þær sem Bubbi Morthens gerir,
bæði hvað varðar útsendingar og
hljóðfæraskipan, eru athyglisverðar
og sýna að hann er óhræddur við
að beita óhéfðbundnum aðferðum
þegar honum þykir henta. Tölvu-
hljóðfæri, sem eru í höndum Hilmars
A«jar, eru mjög áberandi á þessari
plotu auk þess sem fjölmúlavíl þessi
eru látin gefa frá sér alls kyns
„áhrifahljóð" þegar það þykir hæfa.
Annað sem §inkennir „Nóttina
löngu' er framúrskarandi hljóð-
færaleikur Johanns Söderbergs, sem
leikur á hin ýmsu ásláttarhljóðfæri
og gefur tónlistinni mjög sérstakan
blæ. Svo virðist sem Bubbi Morthens
og félagar hans hafi viljað gera
ákveðna tilraun á þessari plötu og
hún hefur tekist ágætlega. Á köflum
hefði þó verið gaman að heyra þá
ganga lengra í átt frá þeim hefð-
bundnu hugmyndum sem einkennt
hafa vestræna rokktónlist, hugsan-
lega allt of lengi. Lykillinn að því
er, að mati þess sem þetta ritar, fjöl-
breyttari og enn óhefðbundnari
hljóðfæraskipan.
Af framansögðu mætti ef til vill
ætla að „Nóttin langa“ sé óaðgengi-
leg hljómplata. Það er nú ekki en
hún þarfnast nokkurrar hlustunar.
Lögin sjálf eru einföld í velflestum
grundvallaratriðum en framsetning
þeirra er á hinn bóginn all óvenju-
leg. Raunar kemur þetta ágætlega
fram í fyrsta laginu „Háflóð“ sem
er vel samið, grípandi lag og er
líklegt til vinsælda. Næsta lag „Sag-
an endurtekur sig“ er sennilega
besta lag plötunnar, framúrskarandi
vel sungið í sérkennilegum flamen-
co-stíl. Ástæða er til þess að vekja
athygli á leik Johanns Söderbergs í
þessu lagi. „Friðargarðurinn" er
þriðja iagið og þar eru tölvurnar í
aðalhlutverki en lagið telst tæpast
til þess besta sem Bubbi Morthens
hefur sent frá sér. Enn er róið á ný
mið í laginu „Sumarið ’68“ er skáld-
ið rifjar upp er haun var dæmdur
til að vera með bursta þegar
síðhærðir hippar ógnuðu verðmæta-
mati íslenskra góðborgara. Útsetn-
ingin tekur mið af „sýru-tónlistinni“
sem var allsráðandi á þessum tíma.
Leikni millikaflinn er einkum góður
og sítar-hljómurinn lýsir vel þessu
tímabili sem margir syrgja enn. „Tíu
fingur" nefnist síðasta lagið á fyrri
hliðinni. Textinn er prýðilega
„erótískur" og lagið, takturinn og
útsetningin, hæfir yrkisefninu ágæt-
lega.
Seinni hliðin hefst á laginu
„Stri'ðsmenn morgundagsins" en það
mun vera eftir Christian Falk. Þetta
er kraftmikið lag þar sem arabískum
áhrifum er blandað saman við tölvur
og brotna gítarhljóma. Líkt og gildir
um mörg lögin er útsetningin á þessu
lagi mjög góð. Næsta lag nefnist
„Þau vita það“ og er það nokkuð í
anda þess sem Bubbi Morthens hef-
ur sent frá sér áður, einfalt og
grípandi lag. „Skrifað í snjóinn"
nefnist annað einfalt og fremur
þunglyndislegt lag þar sem ásláttar-
hljóðfærin vekja eina ferðina enn
sérstaka athygli. „Þú varst svo sæt“
er á hinn bóginn ólíkt öllu öðru sem
heyrst hefur hér á landi og textinn
er í skemmtilegu ósamræmi við út-
setninguna. Síðasta lagið „Ég er að
bíða“ er rólegt lag þar sem vælandi
gítarar túlka örvæntingu eiturþræls-
ins er hann bíður eftir dópsalanum,
sem ekki lætur sjá sig.
Það er ánægjuefni að eftir tíu ára
þrotlausa velgengni heldur Bubbi
Morthens enn áfram að leita nýrra
ieiða til að koma hugmyndum sínum
til skila. Á allra síðustu árum hefur
hann sýnilega lagt mun meiri vinnu
í tónlist sína og texta og árangurinn
hefur ekki látið á sér standa eins
og „Nóttin langa“ ber glögglega
með sér.
FRYSTISKÁPAR FRYSTIKISTUR
100 Itr.
kr. 33.750 (krt 31.990 stgr.)
146 Itr.
kr. 41 890 (kr. 39.880 Stgr.)
175 Itr.
kr. 44.280 (kr. 42.060 stgr.)
240 Itr.
kr. 55.260 (kr. 52.490 stgr.)
330 Itr.
kr. 69.990 (kr. 66.490 stgr.)
kr. 37.900 (kr. 35.990 stgr.)
348 Itr.
kr. 43.900 (kr. 41 705 stgr.)
462 Itr.
kr 54.900 (kr. 54.150 stgr.)
576 Itr.
kr. 69.500 (kr 65.990 stgr.)
GÓÐIfí SKILMÁLAR, TRAUST ÞJÓNUSTA
3JA ÁRA ÁBYRGÐ
/rQniX
HÁTÚNI 6A • REYKJAVlK ■ SlMI 91-24420
MMC Pajero langur 1986
Blásanseraður. Skipti og skuldabréf.
Ekinn 75 þús. Verð kr. 1.480 þús.
MMC Lancer 1500 GLX,
1989
Vinrauður. Skipti og skuldabréf.
Ekinn 20 þús. Verð kr. 850 þús.
BILATORG
BETRIBÍLASALA
NÓATÚN 2 - SÍMI621033
AMC Cherokee 1987
Grásans. Skipti og skuldabréf. Ekinn
30 þús. Verð kr. 1.750 þús.
Citroen BX 19 TRS 1989
Hvítur. Skuldabréf. Ekinn 10 þús.
Verð kr. 1.090 þús.
Toyota Corolla GTI 1988
Svartur. Skipti og skuldabréf.
Ekinn 39 þús. Verð kr. 990 þús.
Volvo 740 GL station ’86
Gullsans. Skipti og skuldabréf.
Ekinn 50 þús. Verð kr. 1.150 þús.
MMC L-300 4x4 1988
Grásans. Skipti og skuldabréf.
Ekinn 48 þús. Verð kr. 1.380 þús.
Ford Econoline 350 4x4
Disel 7,3
Grásanseraður. Skípti og skulda-
bréf. Bill með öllu. Ekinn 19 þús.
Verð 3.800 þús.
Buick Cenrury LTD 1986
Hvítur. Skipti og skuldabréf. Ekinn
50 þús. Verð kr. 980 þús.
Merceders Benz 190E'87
Gulur. Skipti og skuldabréf. Ekinn
16 þús. Verð kr. 1.750 þús.
Eigum einnig ’85, ’86, '87 og '88 árg.
Merceders Benz 260E ’87
Blásanseraður. Skipti og skuldabréf.
Ekinn 35 þús.
Verð kr. 2.500 þús.
Subaru 1800 st. 1988
Blár. Skipti á ódýrari. Ekinn 30 þús.
Verð kr. 1.050 þús.
SAAB 9000 Turbo 1988
Grásans. Skipti og skuldpbréf.
Ekinn 26 þús. Verð kr. 1.800 þús.
Isuzu Tropper 1.
Turbo Diesel 1986
Blár og hvitur. Skipti og skuldabréf.
Ekinn 66 þús. Verð kr. 1.450 þús.
Nýtt - Nýtt! Höfum opnað bónstöð
Látið okkur um að þrífa bílinn.
Bóntorg, s: 626033.
BILATORG
BETRIBÍLASALA
NÓATÚN 2-SfMI 621033
Efbíllinn á að seljast
er Bílatorg rétti staðurinn.