Morgunblaðið - 23.11.1989, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. NOVEMBER 1989
STOP
eftirSvavar
Ragnarsson
Hættu að fletta og lestu þessa
grein. Hvers vegna? Jú, þessi grein
fjallar um nýjan klúbb, nýjan
áhugamannahóp — Klúbb 17. Þar
sameinast kraftar ungs fólks frá
17 ára aldri sem berst gegn slysum
í umferðinni. Hver hefur ekki lesið
í blöðunum um slys og ölvunarakst-
ur sem tengd eru ungum ökumönn-
um og stundum verða banaslys. I
skýrslu um umerðarmál á Islandi
árið 1988 kemur glögglega í ljós
hvers vegna klúbbur eins og Klúbb-
ur 17 er stofnaður. Á árinu 1988
létust 29 manns í umferðinni. Meira
en einn þriðji var á aldrinum 15 til
25 ára en það er einmitt sá aldurs-
hópur sem Klúbbur 17 vill ná til.
Árið 1988 var fjöldi slasaðra og
látinna alls 940 manns, 385 manns
voru á aldrinum 15-24 ára. Ef við
þrengjum það enn var fjöldinn 202
frá 17 ára til 20 ára og þar af 104
ökumenn.
En hvað veldur þessum háu
tölum? Ef við vissum það fyrir víst
væri vandinn enginn. En við getum
einungis giskað og líklega eru or-
sakavaldarnir fleiri en einn.
Það virðist vera í tísku að taka
sem fæsta tíma í ökukennslu. Marg-
ur unglingurinn heyrist segja: „Eg
tók bara fimm tíma,“ og er afskap-
lega hreykinn af því afreki. En
Klúbbur 17 vill breyta þessum
hugsunarhætti. Það er ekkert afrek
að taka „bara fimm tíma“, það er
ekkert töff. Líklega er sannleikur-
Símar fyrir heimilið og vinnustaðinn
KX-T2135 BE
— Takkasími með sjálfvirku vali — 28 minni — Inn-
byggður hátalari og hljóðnemi — Handfrjáls notkun —
Skjár sem sýnir klukku, valið númer, tímalengd símtals
— Elti—hringing (ef símanúmer er á tali hringir síminn
sjálfkrafa í næsta v^lið númer) — Hægt að geyma
viðmælanda — Endurvalstakki fyrir síðasta númer —
Styrkstillir fyrir hljóð — Púlsval, tónval — Veggfesting
KX-T 2342 E
— Takkasími með sjálfvirku vali og innbyggðum
hátalara og hljóðnema — Handfrjáls notkun — 20
minni — 6 minni fyrir beint útval — Endurvalstakki
fyrir síðasta númer — Hægt að gcyma viðmælanda —
Tónval, púlsval — Veggfesting
KX-T 2386 BE
— Takkasími með símsvara — Sjálfvirkt val — Innbyggð-
ur hljóðnemi og hátalari — 12 minni — 3 minni fyrir
beint útval — Hvert móttekið skilaboð í allt að 150 sek.
— Ljós í takkaborði — Tónval, púlsval — Veggfesting.
Laugavégi 170-174 Slmi 695500
''W/HfVÁ
inn sá að þegar
unglingurinn
er kominn út I
umferðina og
veit sama og
ekkert í sinn
haus, verður hver ökutúr að slys-
agildru og hættuför. Ekki einungs
fyrir unglinginn heldur alla aðra í
umferðinni. En hvernig stendur á
því að svona er látið viðgangast?
Enginn lágmarkstímaijöldi er í
skráðum lögum. Þessu verður að
sjálfsögðu að breyta. Setja ætti lög
um að enginn nemandi fari í próf
nema að hafa tekið í það minnsta
15-20 tíma.
Á okkar dagskrá er líka æfinga-
braut, sem fundinn hefur verið stað-
ur í Kapeliuhrauninu við Straums
vík. Á þessari braut verður hægt
að æfa nemendur í að keyra við
hin ýmsu skilyrði, s.s. í hálku. Þar
verður einnig svæði fyrir byrjendur
og hemlunarbraut. Svona æfinga-
brautir eru dýrar en fljótar að borga
sig upp, vonandi í fækkun slysa.
Úr fyrrnefndri skýrslu má lesa
að mánuðirnir september og októ-
ber eru mestu slysamánuðir í um-
ferðinni á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu. Þá eru skólarnir að byija,
margir að hefja störf að nýju eftir
sumrfrí og allt fer í gang. Vegna
þess vil ég beina máli mínu til allra
ökumanna, ungra sem aldinna, að
stilla hraðanum í hóf, sýna tillits-
semi og aðgát og umfram allt að
sýna ítrustu varkárni, því „líf liggur
viÖ.“
Höfundur er félagi íKlúbb 17.
Símaskrá framhaldsskólanna
SÍMANÁMAN er sameiginleg síma-
skrá framhaldsskólanemanna.
í Símanámunni er að finna upplýsingar
um síma tæplega 8.000 nema á höfuð-
borgarsvæðinu. Símanáman er ávöxtur
af sameiginlegu starfi framhaldsskóla
sem verið hefur blómlegt að undanförnu,
eins og segir í frétt frá útgefanda. Það
voru nemendur Fjölbrautaskólans við
Ármúla sem höfðu frumkvæðið- að
skránni og sáu um útgáfu hennar. Er
það ætlunin að útgáfa símaskrár sem
þessarar verði árlegur viðburður í framt-
íðinni.
Forsíða Símanámunnar.
Apollo-hár á íslandi
Viðbótarhár með nýrri, endurbættri hárlínu að framan
(Wisperfront), sem ereins eðlileg og um þína eigin væri að ræða.
Þú notar Apollo viðbótarhár allan sólarhringinn og við allar
aðstæður, sem þitt eigið hár.
Apollo hentar öllum hvað varðar stærð, hárgæði, þykkt, áferð,
hárgreiðslu og að sjálfsögðu geturþú fengið þina óska kliþþingu.
Hafðu samband og við upplýsum þig um alla kosti Apollo.
Kynning:
Leif Loftsberg, umboðsmaður Apollo í Evrópu, og Ólafur frá
íslandi (20 ára) nota að sjálfsögðu Apollo viðbótarhár og verða
hjá okkur dagana 25.-26. nóvember til ráðleggingar þeim,
sem þess óska að kostnaðarlausu, í fullum trúnaði og án allra
skuldbindinga.
Jb
Pantið í síma 22077.
, RAKARA- 0G HÁRGREIÐSLUSTOFAN
f GHILIII.V’.V
HRINGBRAUT 119 S 22077