Morgunblaðið - 23.11.1989, Side 30
80
MÖRGIMBLAÐIÐ FIMMTUDAGLR'23I INÓVEMBERI1989 ■
Þorgeir og Ellert:
Smíði Breiðafjarðarfeiju
að ljúka á Akranesi
Akranesi.
SKIPASMIÐASTöÐ Þorgeirs og Ellerts hf. á Akranesi er nú að ljúka
við smíði nýrrar BreiðaQarðarferju og standa vonir til þess að hún
verði afhent fljótlega á næsta ári. Nokkur óvissa er með atvinnu-
ástandið í stöðinni. Verið er að setja saman tvo lóðsbáta, en skips-
skrokkarnir voru fluttir inn frá Hollandi. Næg verkefni eru hinsveg-
ar fyrir rafvirkja stöðvarinnar fram á næsta sumar, aðallega við
stór verk á Nesjavöllum og Borgarspítalanum í Reykjavík.
Fyrirtækið hefur nú nýlega boðið
í tvö stór breytingarverkefni á skip-
um. Annars vegar í Sólborgu SU-
202 og hinsvegar í breytingar á
hafrannsóknarskiginu Árna Frið-
rikssyni RE-100. í báðum tilfellum
var fyrirtækið meðal þeirra sem
áttu lægstu tilboð. I Sólborgu komu
13 tilboð og var það lægsta frá
Þorgeir og Ellert hf., röskar 45
milljónir, Skipalyftan í Vestmanna-
eyjum bauð röskri milljón meira og
í þriðja sæti var Stálsmiðjan í
Reykjavík með rúmar 47 milljónir.
Sjö erlendar stöðvar buðu í verkið
og tilboð frá Danmörku var lægst
þeirra, röskar 50 milljónir. Hæsta
tilboðið hljóðaði uppá 77 milljónir
króna.
í Árna Friðriksson bárust 16 til-
boð, þar af 10 erlend. Lægsta boð-
-ið var frá Póllandi, röskar 43 millj-
ónir og tilboð frá Englandi hljóðaði
uppá 52,7 milljónir. í þriðja sæti
var Þorgeir og Ellert hf. með 56,5
milljónir og síðan tilboð frá Seyðis-
firði og Akureyri. Hæsta boð korn
frá Englandi og hljóðaði það uppá
111,2 milljónir króna. Það vekur
athygli að átta hæstu tilboðin eru
frá erlendum skipasmíðastöðvum.
Enn hefur ekki verið ákveðið hvaða
tilboði verði tekið. Að sögn Guðjóns
Guðmundssonar hjá Þorgeir og Ell-
ert hf. eru þeir bjartsýnir á að til-
boðum þeirra í þessi tvö verk verði
tekið. Ef svo verður sjá þeir fram
á sæmilega gott atvinnuástand í
vetur. Fáist verkin hins vegar ekki
er mikill voði á ferð. „Okkur finnst
athyglisvert mitt í allri umræðunni
um að íslenskar skipasmíðastöðvar
séu ekki samkeppnisfærar við þær
erlendu hve góð útkoma er í þessum
tveim tilboðum hjá íslensku fyrir-
tækjunum á móti þeim erlendu,"
sagði Guðjón.
Hjá Þorgeir og Ellert hf. starfa
nú um 130 manns. í eðlilegu at-
vinnuástandi gætu verið við störf í
fyrirtækinu allt að 200 manns.
- J.G.
Úr myndinni „Engin miskunn" sem Regnboginn sýnir um þessar
mundir.
Regnboginn sýnir
„Engin miskunn“
REGNBOGINN hefur tekið til
sýninga myndina „Engin mis-
kunn“.
Rip er heimsmeistari í fjöl-
bragðaglímu og nýtur mikilla vin-
sælda sem slíkur. Brell, forstjóri
Heimssjónvarpsstöðvarinnar, vill
allt til vinna að hann komi fram í
þeirra stöð sem vegnar fremur illa
en Rip vísar tilboði hans á bug.
Brell kemur því til leiðar að Rip
glímir við Seif sem er ógnvekjandi
kraftajötunn með ljótar bardagaað-
ferðir og þar er barist upp á líf og
dauða.
Bolungarvík:
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 22. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 70,00 29,00 57,09 27,340 1.560.709
Þorskur(ósL) 76,00 36,00 59,59 14,029 836.045
Ýsa 83,00 35,00 72,71 5,877 427.336
Ýsa(ósl.) 70,00 28,00 58,52 18,835- 1.102.299
Karfi -24,00 24,00 24,00 0,099 2.376
Ufsi 24,00 18,00 21,20 0,780 16.533
Steinbítur 40,00 20,00 20,89 1,262 26.348
Langa 44,00 30,00 37,35 3,108 116.081
Lúða 210,00 100,00 143,61 1,474 211.747
Keila 18,00 15,00 17,97 4,042 72.644
Keila(ósL) 18,00 15,00 15,53 3,081 47.854
Skata 66,00 66,00 66,00 0,022 1.419
Samtals 55,24 80,299 4.435.591
í dag verða m.a. seld 35 tonn af þorski, 20 tonn af ýsu, 20 tonn
af karfa, 1 tonn af ufsa, 2 tonn af steinbít, 3 tonn af keilu og
0,5 tonn af lúðu úr Krossnesi SH og bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 103,00 30,00 62,03 42,840 2.657.431
Ýsa 75,00 35,00 50,86 20,426 1.038.870
Ufsi 20,00 20,00 20,00 0,054 1.080
Hlýri+steinb. 42,00 20,00 37,25 1,847 68.793
Langa 41,00 41,00 41,00 2,284 93.656
Lúða 220,00 100,00 156,23 0,936 146.230
Keila 15,00 15,00 15,00 0,725 10.875
Lýsa 6,00 6,00 6,00 0,250 1.500
Tindabikkja 15,00 13,00 13,80 0,152 2.099
Samtals 55,90 72,707 4.063.998
í dag verða meðal annars seld 30 tonn af þorski og 100 tonn
af karfa úr Margréti EA, Gissuri AR og fleirum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 80,50 38,00 63,89 32,938 2.104.356
Ýsa 79,00 25,00 61,20 10,757 658.346
Karfi 34,00 15,00 33,39 8,698 290.412
Ufsi 24,00 22,00 23,64 1.526 36.074 .
Steinbítur 15,00 15,00 15,00 0,748 11.220
Hlýri 15,00 15,00 15,00 0,152 2.280
Langa 39,00 15,00 33,13 1,813 60.060
Lúða 310,00 110,00 175,88 0,085 14.950
Skarkoli 40,00 40,00 40,00 0,007 280
Keila 14,00 10,00 11,06 3,471 38.390
Skata 110,00 110,00 110,00 0,152 16.720
Lax 190,00 190,00 190,00 0,068 12.920
Samtals 53,28 61,343 3.268.162
Selt var úr Nirði EA, Benna KE Happasæli KE, Ólafi GK og
Sigrúnu GK. I dag verða meðal annars seld 57 tonn af þorski,
4 tonn af ýsu, 1 tonn af löngu og 1 tonn af keilu úr Skarfi GK,
svo og 30 tonn af þorski og 20 tonn af ýsu úr dagróðrabátum.
Heilbrigðisneftid krefiir
utanríkisráðherra svara
Bolungarvík.
HEILBRIGÐISNEFND Bolung-
arvíkurkaupstaðar kom saman
til fundar í gærmorgun vegna
olíulekans frá ratsjárstöðinni á
Bolafjalli í síðustu viku.
Niðurstöður fundarins voru þær
að nefndin óskar eindregið eftir því
að heilbrigðisfulltrúi afli upplýsinga
um hvað orsakaði þennan leka og
hve mikið magn af olíu hafi lekið
niður. Hann afli jafnframt upplýs-
inga um jarðfræði fjallsins þ.e. jarð-
lagahalla og jarðlög og leiti álits
sérfræðinga á líkum á mengun
vatnsöflunarsvæðis bæjarins.
Nefndin óskar eftir því að fjallið
verði hreinsað svo fljótt sem auðið
er af allri olíu. Þá verði gengið
' tryggilega frá þeim olíubirgðum
sem nú þegar eru á flailinu. Þá
gerir nefndin kröfur um að daglegt
eftirlit verði með stöðinni héðan í
frá og utanríkisráðherra gefi skýr
svör um það hvaða aðili beri ábyrgð
á stöðinni nú og einnig hver muni
bera ábyrgð á stöðinni þegar hún
hefur verið tekin í notkun.
Kristinn H. Gunnarsson, fulltrúi
Alþýðubandalags í nefndinni, skil-
aði séráliti þar sem hann taldi nauð-
synlegt að flytja olíuna svo fljótt
niður sem aðstæður leyfa.
Brotist inn í Biskupsstofu
BROTIST var inn í Biskupsstofu við Suðurgötu um síðustu helgi og
stolið þar úr herbergi biskupsritara ýmsum stimplum embættisins,
gömlu ávísanahefti frá Landsbanka Islands og lykli að húsinu. Skipt
hefur verið um allar skrár á hurðum. Biskupsstofu hefur borist vitn-
eskja um að stimplar embættisins hafi verið notaðir til að reyna að
koma fölsuðum ávísunum í umferð.
Lögreglan í Reykjavík handtók í
fyrrakvöld menn sem grunaðir eru
um innbrotið og hafa þeir margoft
áður komið við sögu lögreglu, að
sögn varðstjóra.
Að sögn Ragnhildar Benedikts-
dóttur, skrifstofustjóra Biskups-
stofu, uppgötvaðist á mánudags-
morgun að farið hafði verið inn um
glugga á skrifstofu biskupsritara
og þaðan stolið. Teljandi skemmdir
voru ekki unnar. Áð sögn Ragn-
hildar fann starfsfólk skrautur og
sprautunálar í kjallaratröppum
hússins sem talið var að þjófarnir
hefðu skilið eftir sig og notað til
að sprauta sig með vímuefnum.
Biskupsstofa hefur sent frá sér
fréttatilkynningu þar sem fólk er
varað við að taka við ávísunum með
stimpli Biskupsstofu án þess að
kynna sér málið betur. Um getur
verið að ræða gamalt og úrelt áví-
sanahefti frá Vegamótaútibúi
Landsbankans og númer ávísana
gæti hafist á 2147284.
Þá telur Kristinn jafnframt nauð-
synlegt að umferð upp á Bolafjall
frá Skálavíkurheiði verði háð sam-
þykki heilbrigðisnefndar eða starfs-
manns hennar þar til a.m.k. að ut-
anríkisráðhera hefur gefið skýr svör
við þeim spurningum sem til hans
er beint og að daglegu eftirliti hafi
verið komið á við stöðina.
- Gunnar
■ UNDIR grein Gísla Helgason-
ar í blaðinu í gær stóð að hann
væri forstöðumaður Blindrabóka-
safnsins, en hann er forstöðumaður
Hljóðbókagerðar Blindrafélags-
ins. Biðst blaðið velvirðingar á þess-
um mistökum.
■ TRÍÓ Guðmundar Ingólfsson-
ar heldur jasstónleika í menningar-
miðstöðinni Haftiarborg í Hafnar-
firði, í kvöld kl. 21.00. Tríóið skipa
Guðmundur Ingólfsson píanóleik-
ari, Guðmundur Steingrímsson
trommuleikari og Gunnar Hrafhs-
son bassaleikari, en með tríóinu
leikur þetta kvöld Stefán S. Stef-
ánsson saxófónleikari.
■ Slysarannsóknardeild lögregl-
unnar í Reykjavík lýsir eftir vitnum
að því er svörtum Daihatsu var
ekið á vínrauðan Colt í Faxafeni
um klukkan 7.30 á mánudagsmorg-
un. Ökumaður svarta Daihatsu-ins
ók af staðnum án þess að sinna
þeim skyldum sem lög gera ráð
fyrir í tilfellum sem þessu. Lögregl-
an skorar á hann eða vitni að at-
burðinum að gefa sig fram.
T/í
Nýkomnar hljóðritanir
með Russ Taff, Kim Boyce,
Bloodgood, Deniece Williams
o.fl. Einnig lofgjörðanónlist.
Mikið úrval af bókum, kortum
með ritningargreinum, gjafavöru
o.m.fl.
l/<?rslunin
05lííykjov*
35/25155
t*JÓNUSTA
Rafl. og dyrasímaþj.
Gestur rafverkt. s. 623445,19637.
W ÉLAGSLÍF
I.O.O.F 11=17123118'/2=E.T.1
I.O.O.F. 5 = 1711123872 =
E.T.1. Sk.
AGLOW
-kristileg samtök kvenna
verða með fund á Hótel Loftleið-
um, mánudaginn 27. nóvember
kl. 20.00 til 22.00 i Kristalssaln-
um. Hefst fundurinr, með kaffi
og kostar það 350,-. Sagt verður
frá alheimsmóti Aglow sem var
í San Antonio i Texas nú i mán-
uðinum. Munið nýjan fundar-
stað. Takið með ykkur gesti. All;
ar konur velkomnar.
Hjálpræðisherinn
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30 i umsjá flokksforingj-
anna. Bœn, lofgjörð og bæna-
nótt föstudagskvöld kl. 20.30.
Allir velkomnir.
fnmhjólp
i kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma i Þríbúðum, Hverfisgötu
42. Fjölbreytt dagskrá með mikl-
um almennum söng. Samhjálp-
arkórinn tekur lagið. Vitnisburð-
ir. Raeðumaður verður séra Ólöf
Ólafsdóttir. Allir velkomnir.
Samhjálp.
V*
Frá Sálarrannsóknar-
félagi íslands
Af óviðráðanlegum orsökum fell-
ur niður fundur með Vern
Overlee sem áætlaður var 24.
nóvember. Þeir, sem áttu miða
á þann fund, vinsamlegast hafi
samband við skrifstofu félags-
ins, Garðastræti 8, 2. hæð, simi
18130, sem fyrst.
Stjórnin.
meo tuuf
fwíÍSl YWAM - ísland
Almenn samkoma
Aimenn samkoma verður í
Grensáskirkju í kvöld kl. 20.30.
Ræðumaður séra Halldór
Gröndal.
Allir velkomnir.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Aðventuferð til Þórsmerkur
helgina 24.-26. nóv.
Brottför kl. 20.00 föstudag. Gist
i Skagfjörðsskála/Langadai.
Gönguferðir um fjöll og láglendi
í Þórsmörk. Það er auðvelt að
mæla með ferð til Þórsmerkur í
skammdeginu.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofunni, Öldugötu 3.
Ferðafélag islands.
Skipholti 50b, 2. hæð
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Allir velkomnir.
KFUM & KFUK iew-lse3
90 Ar fyrir ecsbu Lslands
AD - K.F.U.M.
Fundur í kvöld kl. 20.30 á Amt-
mannsstíg 2b. Forskot á sæl-
una II. Séra Sigurður Pálsson.