Morgunblaðið - 23.11.1989, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1989
35
Þorsteinn Pálsson um gármálaráðherrann:
Ekkert ftninkvæði að
skattkerfisbreytingum
Sleggjudómar og kjaftæði, sagði Qármálaráðherrann
FRUMVÖRP þingmaiina Sjálfstæðisflokks um skattalega meðferð arðs
af hlutabréfum og skattfrádrátt vegna fjárfestingar í atvinnulífi komu
til framhaldsumræðu í neðri deild Alþingis í gær. Frumvörpin miða
að því, að sögn Friðriks Sophussonar fyrsta flutningsmanns, að laða
sparifé inn í atvinnulífíð og auka eigið fé fyrirtækja, með því að skapa
þess konar sparnaði skattalega jafhstöðu við annan spamað.
Hliðstæðar leiðir
Guðmundur G. Þórarinsson (F-
Rv) tók jákvætt undir nokkur frum-
varpsákvæði, m.a. um sveiflujöfnun-
arsjóði [heimild fyrirtækja til að
geyma 30% af hreinum tekjum á
bundnum reikningum], og minnti á,
að þingmannanefnd á vegum þing-
flokks framsóknarmanna hafi bent
á hliðstæðar leiðir til að styrkjaeig-
infjárstöðu fyrirtækja. Hann gágn-
rýndi annað, t.d. væri ofgert í því
að gera allt í senn ráð fyrir heimild
t.il að færa 30% tekna í sveiflujöfnun-
arsjóð, 30% í varasjóð og lækka
tekjuskattshlutfall úr 50 í 48%.
Jafiistaða við utan-
aðkomandi samkeppni
Friðrik Sophusson (S-Rv) sagði
mikilvægt að búa íslenzkum atvinnu-
vegum og fyrirtækjum jafnkeppnis-
stöðu við atvinnurekstur í helztu við-
skipta- og samkeppnislöndum okkar.
Oi-va þyrfti almennan sparnað og
laða hann til þátttöku í atvinnulíf-
inu, bæði til að styrkja eiginfjárstöðu
fyrirtækja og stuðla að atvinnuör-
yggi. Hlutabréfakaup þyrftu að
verða arðbær spamaður til jafns við
aðfar spamaðarleiðir. Þingmaðurinn
upplýsti að Sjálfstæðisflokkurinn
styddi framvarp Guðmundar G. Þór-
arinssonar (F-Rv) um að lækka
stimpilgjöld úr 2% í 0,5%, og sterkar
líkur stæðu til þess, að það yrði að
lögum. Hann lét í ljós væntingar um
að samstaða gæti tekizt milli þing-
manna úr stjómarliði og stjórnar-
andstöðu í viðkomandi þingnefnd um
breytingar á framvörpunum sem
tryggði þeim meirihlutafylgi á AI-
þingi og afgreiðslu á þinginu.
Sjálfstæðisflokkurinn brást
Ólafiir Ragnar Grímsson Ijár-
málaráðherra sagði að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði í engu staðið fyrir
skattalegum leiðréttingum 1983-
1987, þegar hans hafi verið fjár-
málaráðuneytið. Flokkurinn hafi
skilið við þjóðarbúskapinn í rúst.
Hann sagði óraunhæft að búast við
að ná fram breytingum á skattalegu
umhverfi atvinnulífsins hérlendis
fyiT en í fyrsta lagi 1991. Fyrst
þyrfti að festa staðgreiðslukerfið í
sessi, hrinda fram virðisaukaskatti
og þar á eftir laga skattalegu stöðu
atvinnulífsins að skattakerfi helztu
viðskiptasvæða okkar [EB og
EFTA].
Skekkir flest en
bætir ekkert
Þorsteinn Pálsson (S-SI) sagði
Olaf Ragnar lýsa svo landsfundi
Alþýðubandalagsins að engu væri
líkara en að hann hafi alls ekki ver-
ið á fundinum. A sama hátt fjallaði
hann um skattamál eins og hann
hefði aldrei í fjármálaráðuneytið
komið. Þorsteinn minnti á að
víðfeðm skattkerfisbreyting hafi
verið undirbúin á áranum 1983-87
og að hluta til hrundið í fram-
kvæmd: staðgreiðslukerfið og lækk-
að skatthlutfall í kjölfar þess, ein-
földun og lækkun tolla og undirbún-
ingur og samning hins fyrsta virðis-
aukaframvarps. Þorsteinn sagði
ekkert af þessu frá Ólafi Ragnari
komið sem fjármálaráðherra. Hann
hefði ekki staðið fyrir neinum grand-
vallar skattbreytingum. Þvert á
móti hefði honum tekizt að skekkja
flest: 1) bijóta niður einföldun telq'u-
skattskerfisins, 2) knýja í gegn
eignaskattsbreytingu, sem feli í sér
fáheyrð rangindi og hafi vakið al-
menna gremju, 3) setja fram kröfur
um breytingu á vöragjöldum sem
hann hafi orðið að eta ofan í sig og
4) kalla fram innbyrðis togstreitu í
stjómarliðinu um stefnumörkun í
skattamálum.
Að því er varðaði rekstrarlegt
umhverfi atvinnulífsins hafi verið
dregið í heilt ár að leiðrétta gengi
gjaldmiðilsins, m.a. með viðblasandi
afleiðingum í rekstrarstöðu fyrir-
tækja og atvinnuleysi fólks. Gengið
var um síðir leiðrétt nokkuð, en
skaðinn var skeður.
Heimdallarræðan
Olafur Ragnar Grímsson §ár-
málaráðherra sagði að Þorsteinn
Pálsson hafi endurflutt gömlu
Heimdallarræðuna sína, sem sam-
anstæði af slagorðum, sleggjudóm-
um og kja'ftæði.
USTAGÓÐUR MATSEÐILL ivai áréttum.) -
MIÐAVERÐ im mati 3600 kr. Húsið opnar kl. 19
KOSTABOD: Aðgöngumiði með mat og gisting i eina
nótt i tveggja manna herbergi með morgunmat 5150 á mann
(Gildir jafnt fyrir borgarbúa sem aðra landsmenn)
Pöntunarsimi Virka daga fra kl. 9-17. s. 29900 Föstud oglaugard eftirkl. 17 s. 20221.
DANSLEIKUR 23.30- 03
1 EINSDÆMI '
sérum fjörið
Midaveró 750
SPRENdÍDAtíUR
á morgun!
íSkífunni Borgartúni 24.
Skífan kynnir sprengidaginn. Á morg-
un seljum við allar vörur í verslun okk-
ar í BORGARTÚNI 24 með 10% af-
slætti. Auk þess bjóðum við fjöldan
allan af plötum með 25% afslætti og
12 tommur á hálfvirði. STÓRKOSTLEG
VERÐSPRENGING!
Framvegis verður sprengidagur í
Skífunni, Borgartúni 24, mánaðarlega.
Merktu við þessa daga í dagatalinu
þínu:
SKOÐAÐU ÍSKÍFUNA!
KRINGLUNNI • BORGARTÚNI • LAUGAVEGI
kAtamaskínan/sek