Morgunblaðið - 23.11.1989, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1989
Vegna greinar Vilhjálms I.
Árnasonar 2. nóvember sl.
eftir Steinunni
Hreiðarsdóttur
Ég ætla að byrja á að óska
Rafni til hamingju með Nuddskól-
ann sinn, og vona að hann „dafni“
vel.
Það er gott að vita að ísland á
enn menn sem starfa af sannfær-
ingu, en ekki eintóma „kerfis-
þræla“.
. Einnig finnst mér jákvætt að
það séu ekki eingöngu erlendir
nuddarar sem kenna nudd hérlend-
is.
Rafn, þú átt heiður og þökk
skilið fyrir framtakssemina og
ábyrgðina sem þú tekur á þig.
Og það er meira en hægt er að
segja um forsvarsmenn Sjúkra-
nuddarafélags íslands.
Fyrir nokkrum árum birtist grein
í blaði frá þeim, þar sem fólk er
kvatt til að fara í skóla og læra
nudd og þeir bjóða aðstoð við að
velja skóla fyrir íslenskar aðstæður.
Gott, við vorum nokkur sem
höfðum áhuga á námi í Banda-
ríkjunum. Jú, þeir lögðu blessun
sína yfir það og við fórum út að
læra. Komum heim full af starfs-
orku, og þá er sagt: Því miður,
skólínn stenst ekki kröfur Sjúkra-
nuddarafélags íslands.
Svo við sem höfðum eytt tíma
og peningum (sem við fengum úr
Lánasjóði íslenskra námsmanna)
eigum að standa jafnfætist ólærðu
fólki, fólki sem kallar sig „nuddara“
og stundar huglækningar, krafta-
verk o.fl., fólk með stutt eða engin
námskeið, útlenda nuddara sem
halda hér námskeið (skattfijálst)
og hefur starfað hér óáreitt árum
saman.
Fólk er sum sé dregið á asnaeyr-
unum erlendis með lán frá lands-
mönnum. Þetta kalla ég ekki ábyrg
vinnubrögð og sæmir varla fólki
sem gerir „miklar" kröfur.
Samkeppni er ágæt, ekki síst ef
hún er heiðarleg, og best ef fólk
getur starfað saman að sameigin-
legum hugðarefnum. En Sjúkra-
nuddarafélag íslands hefur sýnt
„svart á hvítu“ að það hefur ekki
áhuga á slíku.
Ég vil geta þess að ég er mjög
ánægð með skólann sem ég fór í
þar sem mér finnst heildrænt nudd
og fyrirbyggjandi meðferð jafn
mikilvægt og sjúkranudd, sem
byggist upp á partanuddi. Auðvitað
þarf að gera kröfur til að fólk læri
nudd og er skóli Rafns örugglega
betri undirbúningur heldur en þau
námskeið sem hér hafa tíðkast.
Þannig að fólk skaði ekki með því
að fara út fyrir sín takmörk og
kunnáttu.
Að lokum vil ég segja að ég skil
ekki af hveiju er stríð milli sjúkra-
þjálfara og nuddara, þar sem þetta
eru tvær ólíkar stéttir sem ættu
mjög vel að geta starfað hlið við
hlið.
Höfundur er löggiltur
sjúkranuddari úr BSMT í Félagi
íslenskra sjúkranuddara.
Steinunn Hreiðarsdóttir
„Ég skil ekki af hverju
er strið milli sjúkra-
þjálfara og nuddara,
þar sem þetta eru tvær
ólíkar stéttir sem ættu
mjög vel að geta starfað
hlið við hlið.“
KÆLI- OG FRYSTISKÁPUR
ÓTRÚLEGA LÁGT VERÐ
34.216»*,
Samt. stærð: 275 1.
Frystihólf: 45 1. * * ❖ ❖
Hæð: 145 sm. Breidd 57 sm.
Dýpt: 60 sm.
Vinstri eða hægri opnun.
FULLKOMIN VIDGERDA- OG
VARAHLU TAÞJÓNUS TA
Heimilis- og raftækjacieiid.
M SÝNING Bjargar Þorsteins-
dóttur hefst laugardaginn 25. nóv-
ember íSlunkaríki, Aðalastræti 22
Isafirði. Á sýningunni verða 12
olíukrítarmyndir unnar á síðasta
ári. Björg hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga víða um heim, og einn-
ig hefur hún haldið á annan tug
einkasýninga. Sýningin hefst
klukkan 16 á laugardaginn, og
stendur hún yfir til 9. desember.
Slunkaríki er opið frá fimmtudegi
til sunnudags frá kl. 16—18.
■ ARGENTÍNA-steikhús opnaði
nýlega við Barónsstíg llaÞar er
boðið upp á matargerð að arg-
entískum ætti, og hefur kokkur frá
Argentínu verið fenginn til að
fylgja eftir ströngustu kröfum arg-
entískrar matargerðar. Nær allur
maturinn er grillaður fyrir framan
gestina, sem gefur þeim kost á að
fylgjast með matseldinni.
Argentína-steikhús er opið alla
daga vikunnar frá klukkan 18, og
í vetur er einnig ætlunin að hafa
opið í hádeginu alla daga vikunnar.
Eigendur staðarins eru Ingþór
Björnsson, Tryggvi Agnarsson,
Jörundur Guðmundsson og An-
ton Narvazne.
Starfslið Argentína-steikhús, frá
vinstri: Róbert, Stefán, Luciano
og Óskar
■ BÓKAVERSLUN Sigfúsur
Eymundssonnv hefur fært út
kvíarnar og opnað nýja verslun í
Kringlunni. Hægra megin á mynd-
inni er Ingibjörg Sigurðardóttir
verslunarstjóri og við hlið hennar
Sólveig Einarsdóttir afgreiðslu-
stúlka.
(ZyuzL bómullarpeysur — 30% afsláttur
Rýmum fyrir nýjum
peysum og veitum
30% afslátt
af dömu- og herra-
bómullarpeysum
íslenskur heimilisiðnaður
Sími 11785 — Sendum í póstkröfu