Morgunblaðið - 23.11.1989, Page 42
42
MORGUNBLAÐH) FIMMTUDAGUR ,23. NÓVEMBER 1989
t Móðir mín JÓRUNN STEFÁNSDÓTTIR, Hátúni 10, lést í Borgarspítalanum 21. nóvember. Hrönn Aðalsteinsdóttir.
t Konan mín og móðir okkar, GUÐRÚN HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR, Sólvallagötu 36, Keflavík, lést í sjúkrahúsi Keflavíkur 21. nóvember. Þórður Guðmundsson og börn.
t Systir okkar ÁSTA SIGRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR frá Bolungarvík, Skiphoiti 51, Reykjavík, andaðist í Landakotsspítala miðvikudaginn 22. nóvember. Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Halldórsdóttir, Guðri'ður Halldórsdóttir.
Móðurbróðir minn, ,,llll", SÖRENSÖRENSON, Akurgerði 23, andaðist í Borgarspitalanum að morgni 22. nóvember. Aðalheiður Sigurðardóttir.
t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, fósturfaðir ' og afi, ÞÓRÐUR Þ. ÞÓRÐARSON, Kirkjubraut 16, Akranesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness 22. nóvember. Sigriður Guðmundsdóttir, Ástríður Þ. Þórðardóttir, Guðmundur Magnússon, Þórður Þórðarson, EsterTeitsdóttir, Ævar H. Þórðarson, Þórey Þórólfsdóttir, Sigurður Þórðarson, Sigríður Guðmundsdóttir, Þórður Valdimarsson, Ólafía Sigurdórsdóttir, Jóna Valdimarsdóttir, Þórður Egilsson, Ársæll Valdimarsson, Aðalheiður Oddsdóttir, og barnabörn.
t Útför móður minnar, MARÍU FINNBJÖRNSDÓTTUR, Furugerði 1, Reykjavík, ferframfrá Fossvogskirkju föstudaginn 24. nóvemberkl. 13.30. Fyrir hönd ættingja, . _. . . _ Birgir Sigurbjartsson.
t Hjartkær eiginkona mín, 1 GUNNÞÓRUNN RÚTSDÓTTIR, Byggðavegi 148, Akureyri, lést í Borgarspítalanum laugardaginn 18. nóvember. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 24. nóvember kl. 13.30. Fyrir hönd foreldra hennar, barna okkar og annarra vandamanna, Eðvarð Jónsson.
t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, AXEL V. MAGNÚSSON, garðyrkjuráðunautur, Reykjum, Ölfusi, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 24. nóvember kl. 15.00. Þeim er vildu minnast hans, er bent á Minningarsjóð Félags nýrnasjúkra, sími 681865, og Landspítalasjóð. Sigurlína Gunnlaugsdóttir, Hulda Axelsdóttir, Halldór Þorsteinsson, Álfdfs Axelsdóttir, Martin Kennelly, Erla Dís Axelsdóttir, Pétur H. Hannesson, Ari Víðir Axelsson og barnabörn.
Sigurður Eiðs-
son - Minning
Fæddur 29. október 1908
Dáinn 15. nóvember 1989
I dag fer fram frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði útför Sigurðar Eiðs-
sonar, fyrrum sjómanns. Sigurður
fæddist á Klungurbrekku á Skógar-
strönd 29. október 1908, sonur
hjónanna Sigurrósar Jóhannesdótt-
ur og Eiðs Sigurðssonar er þar
bjuggu. Sigurður var annar í röð:
inni af átta börnum þeirra hjóna. í
uppvextinum fór Sigurður snemma
að taka til hendi og aðstoða við
þau verk sem vinna þurfti og varla
var hann almennilega af barnsaldri
þegar hann var orðinn fullgildur til
sjósóknar.
Árið 1926 flytjast þau Siguírós
og Eiður ásamt börnum sínum til
Hafnarfjarðar og er Sigurður þá
sautján ára. í Hafnarfirði hefur eins
og flestum er kunnugt verið rekin
mikil útgerð alla tíð og hefur sú
atvinnugrein jafnan krafist dug-
mikilla manna. Sagan segir að skip-
stjórnarmenn fyrri ára hafi valið
úr mannskap á skip sín þannig að
aðeins þeir duglegustu komust í
skiprúm, en þeir sem einhverra
hluta vegna fengu á sig stimpil
veikleikans eða liðleskjunnar þurftu
ekki að hafa fyrir því að biðja um
skiprúm. Með þetta veganesti legg-
ur sautján ára drengur nýkominn
vestan úr Breiðafirði af stað í
brauðstritið og það segir ef til vill
best hvernig hann stóð sig, að sjó-
mennsku stundaði hann í hart nær
hálfa öld og var ávallt eftirsóttur
og það rúm á skipi talið vel mann-
að,_ sem hann skipaði.
í Hafnarfirði hitti Sigurður Eiðs-
son sinn lífsförunaut, Fjólu Páls-
dóttur, dóttur hjónanna Ragnhildar
Magnúsdóttur og Páls B. Jónsson-
ar, trésmiðs. Þau voru gefin saman
5. nóvember 1932 og hafa búið á
Suðurgötu 39 í Hafnarfirði allan
sinn búskap. Þeim Sigurði og Fjólu
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
GUÐMUNDUR BJÖRNSSON,
fyrrum kennari á Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 24. nóvember
kl. 14.00. Pálína Þorsteinsdóttir,
Ormar Þór Guðmundsson,
Gerður Birna Guðmundsdóttir,
Björn Þ. Guðmundsson,
Ásgeir R. Guðmundsson,
Atli Freyr Guðmundsson.
Faðir okkar,
EINAR GUÐJÓNSSON
bókbindari,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju, Hafnarfirði, föstudaginn
24. nóvember kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Valdimar Einarsson,
Ingvi Einarsson,
Guðný Einarsdóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SVEINN SIGURÐSSON,
málari,
Aðallandi t,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni föstudaginn 24. nóvember kl.
13.30.
Fyrir hönd aðstandenda.
Sigurður Ingi Sveinsson, Halldóra Salóme Guðnadóttir,
Sigrún Sveinsdóttir, Vignir Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir og stjúpmóðir okkar,
GUÐRÚN BJARNADÓTTIR,
Granaskjóli 15,
verður jarðsungin laugardaginn 25. nóv. kl. 14.00 frá Hofskirkju
í Öræfum.
Minningarathöfn verður í Neskirkju föstudaginn 24. nóv. kl. 10.30.
Sigurður Ingvarsson,
Svafa Sigurðardóttir, Jóhann Þórsson,
Arndís Sigurðardóttir, Einar Ingólfsson,
Sigríður Sigurðardóttir, Kristján Ólafsson,
Magnús Sigurðsson, Charlotta Traustadóttir,
Ólafur Sigurðsson, Pálína Þorsteinsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför,
VILMUNDAR STEFÁNSSONAR
frá Akri,
Grindavik.
Sérstakar þakkir til hjúkrunar- og starfsfólks á Hrafnistu,
Reykjavík, sem önnuðust hann, er hann dvaldi þar.
Guðriður Vilmundsdóttir, Jón Þórðarson,
Sæbjörg Vilmundsdóttir, Svavar Svavarsson,
Sigurður Vilmundsson, Salbjörg Jónsdóttir,
Björgvin Vilmundsson, • Sigriður Þórðardóttlr,
barnabörn og barnabarnabörn.
varð fimm bama auðið, en þau eru:
Soffía, fædd 1933, gift Markúsi
Kristinssyni, Eiður, fæddur 1936,
ókvæntur, Hrafnhildur, fædd 1937,
gift Ólafi Pálmasyni (þau skildu),
og tvíburarnir Páll og Ragnar,
fæddir 1946, Páll kvæntur Benný
Þórðardóttur og Ragnar kvæntur
Unni Guðnadóttur. Barnaböm
þeirra Sigurðar og Fjólu eru sautján
og barnabarnabörnin þegar orðin
átján.
Sigurður Eiðsson átti ekki langa
skólagöngu að baki, en það var
einmitt hlutskipti margra ung-
menna á fyrri hluta þessarar aldar,
að verða að byija að vinna strax
og getan leyfði, en hugsa ekki um
bóknám, jafnvel þó að húgurinn
stefndi í þá átt. Hann hafði þó alla
tíð yndi af lestri góðra bóka og
vissi þannig margt, sem aðrir höfðu
ekki hugmynd um þó skólagengnir
væru.
Meðan Sigurður Eiðsson var enn
í fullu. starfí á sjónum tók hann
virkan þátt í störfum sjómannasam-
takanna, var m.a. í samningsnefnd-
um fyrir þeirra hönd. Hann var
einlægur fylgisnmaður þess að hinn
almenni sjómaður og verkamaður
fengi þann hlut af tekjum þjóð-
félagsins, sem honum bar. Árið
1978 var Sigurði veitt heiðursmerki
sjómannadagsins, en það er orðinn
árviss viðburður að samtök sjó-
manna heiðri á sjómannadaginn
aldna félaga sína, sem taldir eru
hafa verið stétt sinni til sóma.
Eftir að Sigurður hætti sjó-
mennsku starfaði hann um tíma
við frystihús Hvals hf. í Hafnar-
firði, en hætti þar störfum þegar
elli og sjúkleiki tóku að sækja á
hann og honum fannst hann ekki
skila sínu verki eins vei og hann
vildi.
Sigurður Eiðsson var kappsamur
og ósérhlífinn við vinnu og er án
vafa í hópi þeirra manna, sem lyft
hafa íslenskri þjóð úr fátækt fyrri
ára til veimegunar nútímans.
Slíkum mönnum verður seint þakk-
að sem skyldi.
Siðasta ár Sigurðar var honum
erfitt. I huganum var hann
sívinnandi, en sjúkur líkaminn neit-
aði. Sigurður dvaldi síðustu vikur á
St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og
þar lést hann 15. nóvember sl.
Ég vil að iokum þakka Sigurði
samfylgdina, sem staðið hefur frá
vordögum 1949. Eftirlifandi eigin-
konu, börnum og öðrum skyld-
mennum votta ég mína dýpstu
samúð.
Blessuð veri minning Sigurðar
Eiðssonar.
Markús B. Kristinsson •
Minningarkort
Blindrafélagsins,
Hamrahlíö 17,
slmi 587333.