Morgunblaðið - 01.12.1989, Síða 10

Morgunblaðið - 01.12.1989, Síða 10
Jtf 10 ee&t híiíi (ímíí.jcí .1 irjíwairraði <bcíaj8M'jomom MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1989 Kvartett Kristjáns Magriússonar. mmBmmi HASKOLANAMIKERFISFRÆÐI Innritun í kerfisfræðinám Tölvuháskóla Verzlunarskóla íslands á vorönn 1990 fer fram á skrifstofu skólans til 1. desember. Markmið kerfisfræðinámsins er að gera nemendur hæfa til að skipuleggja og annast tölvuvæðingu hjá fyrirtækjum og stunda kennslu og þjálfun starfsfólks sem notar tölvur. Hægt er að hefja nám í september og janúar. Stúdentar af hagfræðibraut ljúka námi á þremur önnum, en aðrir geta þurft að sækja tíma í fornámi í öldungadeild Verzl- unarskólans, sem or ein önn til viðbótar. Kennt er eftir hádegi, en nemendur, sem vilja halda áfram að vinna hluta úr degi jafnframt námi, þurfa að ræða við kennslu- stjóra um möguleika á því. Eftirtaldar námsgreinar verða kenndar: Fornám: Bókfærsla Rekstrarhagfræði Tölvufræði Stærðfræði Vélritun Önnur önn: Gluggakerfí Gagnaskipan AS/400 Gagnasafnsfræði Forritun í Cobol Verkefni á 2. önn Fyrsta önn: Vélamál Forritun í Pascal Kerfisgreining og hönnun Stýrikerfí Forritahönnun Verkefni Þriðja önn: Hugbúnaðargerð Fyrirlestrar um valin efni Forritunarmál Lokaverkefni 'Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Verzlunarskólans, Ofan- leiti 1. Kennslustjórinn verður til viðtals á skrifstofu skólans fyrir hádegi á meðan innritun stendur yfir og í síma 688400. TVI TÖLVUHÁSKÓLI V.í. ■ DJASSTÓNLEIKAR verða í Heita pottinum í Duus-húsi sunnudagskvöldið 3. desember. Þar leikur kvartett píanóleikarans Kristjáns Magnússonar, en auk hans skipa hljómsveitina saxafón- leikarinn Þorleifur Gislason, bassaleikarinn Tómas R. Einars- son, og trymbillinn Guðmundur R. Einarsson. Sérstakur gestur á tónleikunum verður hinn lands- kunni tónlistarmaður Árni Sche- ving, en hann spilar á víbrafón á þessum tónleikum. Á efnisskránni eru lög frá yngri sem eldri skeiðum í djassögunni, eftir höfunda eins og Dexter Gordon, George Gersh- win, Sam Jones og fleiri. ■ SPORTKLÚBBURINN Borg- artúni 32 hefur hafið starfsemi. Á fyrstu hæð er boðið upp á ókeypis kennslu i einn tíma í „pool“ auk þess sem þar eru beinar sjónvarps- útsendingar frá öllum helstu íþróttaviðburðum. Á annarri hæð er ókeypis kennsla í einn tíma í snóker auk þess sem þar er boðið upp á allar veitingar. Á þriðju hæð er svo aðstaða til mannfagnaða eins og árshátíðir, jólaböll, þorrablót, skólaböll og fundi og ráðstefnur. Opið er í Sportklúbbnum frá 11-23.30. EIGIMASALAIV REYKJAVIK Yfir 30 ára reynsla tryggir öryggi þjónustunnar OFANLEITI - 3JA - NÝL. VÖNDUÐ ÍBÚÐ 3ja herb. íb. á hæð í nýl. fjölbhúsi við Ofanleiti. íb. er öll í mjög góðu ástandi. Parket og flísar á gólfum. Flísalagt bað- herb. (sturta og baðkar). Þvottaaðstaða í íb. Suðursv. Mjög góð sameign. KJARRHÓLMI - 4RA - TIL AFH. STRAX 4ra herb. íb. á hæð í fjölb. íb. skiptist í stofu og 3 svefnherb. m.m. Sér- þvottah. í íb. Búr innaf eldh. Suðursv. Gott útsýni. íb. er í ákv. sölu og getur losnað strax ef þörf er. EIGNASALAN REYKJAVIK Ingólfsstræti 8 Sími 19540 og 19191 Magnús Einarsson ÚTSÖLUSTAÐIR: Skæði.Kringlunni • Skæði, Laugavegi 74 • Efraim, Laugavegi 89 • Skóstofan, Eiðistorgi • Ríma, Austurstræti 6 Mílanó, Laugavegi 20 • Kaupstaður, í Mjódd • Skóverslun Kópavogs, Hamraborg 3 • Skóhöllin, Hafnarfirði Skóbúð Sauðárkróks • Skótískan, Akureyri • Skóbúðin Selfoss • Skóbúðin Keflavík Heim úr skólanum glöð Umsjón: SAMFOK, Guðni Olgeirsson Samband foreldra- og kennarafélaga í grunn- skólum Reykjavíkur (SAMFOK) SAMBANDIÐ hefúr frá stofhun þess 1983 reynt að stuðla að virku starfi foreldrafélaga í Reykjavík. Sambandið telur brýnt að foreldrar ræði um málefhi sem snerta skólagöngu barna sinna. Markmið SAMFOKs Markmið sambandsins eru a) að stuðla að skipulegu samstarfi aðildarfélaganna, b) að annast sameiginleg málefni og verkefni, c) að vera sameiginlegur málsvari gagnvart stjórnvöldum og d) að vinna að auknum áhrifum foreldra á mótun skólamála almennt. Öll foreldra-/ og kennarafélög í grunn- skólum Reykjavíkur eru aðilar að sambandinu. Kristín Traustadótt- ir er núverandi formaður sam- bandsins. StarfSAMFOKs Samtökin hafa með ýmsum hætti unnið að settum markmið- um. Rödd þess hefur heyrst víða og mörg mál verið rædd. Síðastlið- ið vor gaf sambandið m.a. út vandað tímarit, Með fólki, með fjölda áhugaverðra greina um uppeldis- og menntamál. Það er ómetanlegur stuðningur fyrir foreldra- og kennarafélög í borginni að eiga vísan aðgang að sameiginlegum vettvangi til að ræða um skólamál, annars vegar um ytri málefni, s.s. húsnæði, aðbúnað og umferð og hins vegar um innri málefni skóla, þ.e. sjálft skólastarfið. Sambandið á m.a. fulltrúa í fræðsluráði Reykjavíkur, skóla- málaráði og umferðarnefnd Reykjavíkurborgar. Þessir fulltrú- Hefiir þú hug-leitt ☆ að greiðasta leiðin til að örva og styrkja mál ungra barna er að tala mikið við þau og lesa mikið fyrir þau? Það er mikilvægt þótt þau skilji ekki nema sumt af því sem sagt er eða lesið. Af því læra börnin málið sem fyrir þeim er haft. Veistþú — ☆ að menntamálaráðuneytið hefur gefið út nýja aðaln- ámskrá grunnskóla? ☆ Hvernig kennarar barns- ins þíns líta út og hvað þeir heita? ☆ Hvað foreldrafélagið við þinn skóla gerir? Er for- eldraráð við skólann? ☆ Hvaða námsefni barnið þitt er með í skólanum og hvernig það er? ☆ Hvað SAMFOK er? ar eru áheyrnarfulltrúar með málfrelsi og tillögurétt. Það er heilladrjúgt að hafa talsmann for- eldra á fundum þar sem ákvarðan- ir eru teknar. Sambandið reynir að nota hvert tækifæri til að styrkja skólastarf og stuðla að opinberri umræðu um skóla- og uppeldismál. Þessi pistill í Morg- unblaðinu er m.a. ákjósanlegur vettvangur fyrir slíka umræðu. Heim úr skólanum glöð SAMFOK hefur samið við rit- stjórn Morgunblaðsins um að sambandið sjái reglulega um pist- il um skólamál í blaðinu í stað þess að gefa út sérstakt tímarit. Þess er vænst að með reglulegum þáttum í dagblaði megi fjalla um skólamál líðandi stundar með markvissum hætti. Þess verður gætt að efni pistlanna verði fjöl- breytilegt. Mest áhersla verður lögð á hagnýtar upplýsingar fyrir foreldra og foreldrafélög. Einnig er ætlunin að minna foreldra á mikilvægar staðreyndir um skóla- mál og stefnumótun yfirvalda. Líklega verða u.þ.b. tveir pistlar í mánuði fyrstum sinn. Umsjónar- maður vinnur pistlana í samráði við stjórn félagsins og eru hug- myndir um efnisatriði vel þegnar. Næstu pistlar í næsta pistli verður fjallað um skóla og umferð. Síðan verður vikið að nokkrum atriðum í nýrri aðalnámskrá grunnskóla, m.a. samvinnu heimila og skóla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.