Morgunblaðið - 15.12.1989, Side 4

Morgunblaðið - 15.12.1989, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989 Akranes: Missa bæturnar eftir 260 daga á atvinnuleysisskrá Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Jólahreingerning á vegvísum FÉLAGAR úr Lionsklúbbnum Keili í Vogum tóku sig til siðastliðinn sunnudag og þrifu óhreinindi af vegvísum á Reykjanesbraut við Vogaaf- leggjara. Stefán Albertsson, formaður Keilis, sagði að skiltin væru þrifin til að auka öryggi vegfarenda þar sem það reyndist erfitt að sjá vegvísana vegna óhreininda. Myndin sýnir frá hægri Stefán, Jón Bjarnason og Helga Valdimarsson við einn vegvísinn eftir þrifin. - E.G. NOKKRAR konur á Akranesi hafa verið svo lengi á atvinnu- leysisskrá að þær fá ekki lengur greiddar atvinnuleysisbætur. Það gerist þegar fólk hefiir ver- ið 260 daga á skrá, en siðan tekur við 16 vikna biðtími. Fjórar konur hafa nú misst at- vinnuleysisbætur af þessum sökum og að sögn Hervars Gunnarssonar formanns Verkalýðsfélags Akra- ness bætast fleiri í hópinn á næst- unni. Hann sagði að ástand í at- vinnumálum á Akranesi væri nú almennt slæmt aðallega hjá konum en einnig körlum og miðað við reynslu fyrri ára er versti tími árs- ins í atvinnumálum nú að ganga í garð og stendur venjulega að minnsta kosti fram í janúar. Ýmis fyrirtæki á Akranesi hafa fækkað starfsfólki og fyrirtækinu Hennes, sem rak saumastofu, hefur nú verið lokað. Þar voru 25 stöðu- gildi. VEÐUR IDAG kl. 12.00. Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) VEÐURHORFURIDAG, 15. DESEMBER. YFIRLIT I GÆR: Norðaustlæg eða breytileg átt á landinu, kaldi norðvestanlands en annars gola. Léttskýjað sunnanlands en skýjað að mestu í öðrum landshlutum. Snjókoma var á Norður- og Norð- vesturlandi. Frost 0 til 14 stig. SPÁ: Norðaustlæg eða breytileg átt, víðast gola í kvöld en síðan norðaustan kaldi eða stinningskaldi. Skýjað og snjómugga norðan- lands og einnig vestanlands í kvöld og nótt en léttskýjað um allt sunnanvert landið á morgun. Talsvert frost um allt land. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðaustanátt og áfram kalt í veðri um allt land. Él víða norðan- og austanlands en þurrt og víða bjart veöur sunnanlands og vestan. TAKN: Heiðskírt s, Norðan, 4 vindstig: F Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma ...*.**. -jq° Hitastig: 10 gráður á Celsíus SJ Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld CO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður Nú eru 164 á atvinnuleysisskrá á Akranesi og sagði Hervar að ástandið væri dökkt framundan þar sem frystihúsin væru að draga sam- an seglin um áramótin og skipin að stöðvast-vegna kvótaleysis. Stj órnarfrumvarp um umhverfisráðuneyti: Vonandi afgreitt sem fyrst eftir áramótin - segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra „ÉG VONA að hægt verði að afgreiða frumvarp um umhverfisráðu- neyti sem fyrst eftir áramótin," sagði Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra i samtali við Morgunblaðið. Ólafur G. Einarsson, formað- ur þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sagði að engar líkur væru á að frumvarpið yrði afgreitt fyrir áramót og sagðist spá því að það yrði afgreitt í mars eða apríl næstkomandi. Júlíus Sólnes, ráðherra Hag- stofu íslands, telur ekki koma til greina að fresta gildistöku laga um umhverfisráðuneyti fram yfir þinghlé. Kristín Einarsdóttir, formaður þingflokks Kvennalistans, sagðist telja litlar líkur á að frumvarp ríkis- stjórnarinnar um umhverfisráðu- neyti yrði afgreitt fyrir áramót, þar sem frumvarpið hefði einungis verið rætt einu sinni í neðri deild og það væri nú í nefnd. Kristín sagði að stjórnarliðar hefðu ekki rætt við Kvennalistann um að frumvarpið yrði afgreitt fyrir áramót. Hreggviður Jónsson, þingmaður FVjálslyndra hægri manna, sagðist ekki hafa trú á að frumvarpið kæmi úr nefnd fyrir jól. Hreggviður sagði að áætlað væri að síðasti þingfundur fyrir jól yrði 20. desember og fýrsti þingfundur eftir jólafrí yrði í lok janúar. „Það hastar ekkert að af- greiða þetta frumvarp fyrr en á næsta ári, einn til tveir mánuðir breyta engu. Ríkisstjómin hlýtur að leggja áherslu á að afgreiða frum- varp um virðisaukaskatt og ýmis önnur skattafrumvörp fyrir áramót- in,“ sagði Hreggviður. Páll Pétursson, formaður þing- flokks Framsóknarflokksins, sagði að þetta mál væri á forgangslista ríkisstjórnarinnar. Páll sagði að sér væri ekki kunnugt um að stjórnarlið- ar hefðu gert samkomulag við stjórnarandstöðuna um að frum- varpið yrði afgreitt fyrir áramót. Éiður Guðnason, formaður þing- flokks Alþýðuflokksins, sagðist telja að rætt yrði við stjórnarandstöðuna um að afgreiða frumvarpið fyrir ára- mót. „Ég tel hins vegar að bragðið geti til beggja vona með það hvort hægt verði að afgreiða þetta frum- varp fyrir áramót, þar sem það er nú í nefnd og lítill tími gefst til ráð- rúms,“ sagði Eiður. Ólafur G. Einarsson sagði að nefndin, sem nú fjallaði um málið, vísaði því til umsagnar fjölda aðila. „Nefndin setur ákveðin tímamörk, sem ég veit ekki hver verða, en ég tel að hægt verði að taka málið fyr- ir aftur á Alþingi í lok janúar.“ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veftur Akureyri +12 hálfskýjað Reykjavik +8 léttskýjað Bergen +6 léttskýjað Helsinki +19 heiðskírt Kaupmannah. +1 alskýjað Narssarssuaq 1 skýjað Nuuk 0 léttskýjað Osló +9 snjókoma Stokkhólmur +15 hálfskýjað Þórshöfn 0 léttskýjað Algarve 18 þokumóða Amsterdam 11 rigning Barcelona 17 kmistur Berlín 3 rigning Chicago +15 snjókoma Feneyjar 4 þoka Frankfurt 12 skýjað Glasgow 1 úrkoma Hamborg 1 slydda Las Palmas 21 léttskýjað London 13 skúr Los Angeles 11 léttskýjað Lúxemborg 11 rigning Madríd 9 skýjað Malaga vantar Mallorca vantar Montreal +23 léttskýjað New York +8 heiðskírt Orlando 3 léttskýjað París 14 skýjað Róm 16 skýjað Vín 15 skýjað Washlngton +7 þokumóða Winnipeg +32 ísnálar 182 milljónir greiddar í vexti og verð- bætur af skyidusparnaði 1957-1980: 312 ávísanir hærri en 50 þúsund kr. HÚSNÆÐISSTOFNUN ríkisins hefur sent út ávísanir til 30.602 manna, alls liðlega 182,4 milljónir króna, sem eru greiðslur vaxta og verðbóta af skyldusparnaðarreikningum sem voi*u í notkun frá 1. júní 1957 til l.júlí 1980. Greiðslurnar eru til allra sem eiga rétt á að fá 200 krónur eða meira, hæsta ávísunin er fyrir 179.532 krónum og alls voru sendar út 312 ávísanir fyrir meira en 50 þús- undum króna, að sögn Sigurðar E. Guðmundssonar framkvæmda- stjóra stofnunarinnar. Stefnt var í prófmáli 1981, eftir að upp höfðu komið deilur um verð- tryggingu skyldusparnaðarfjár, sem ungmenni áttu í vörslu Hús- næðisstofnunar. Það var að frum- kvæði félagsmálaráðuneytis sem málarekstur hófst. Dænjt var í málinu í undirrétti í maí 1983 og voru fæstar af kröfum sækjanda á hendur Húsnæðisstofnunar tekn- ar til greina, að sögn Sigurðar. Voru sækjanda dæmdar tæpar 13 krónur í viðbótarverðbætur. Fé- lagsmálaráðuneytið og húsnæðis- málastjóm töldu þó að um svo víðtækt mál væri að ræða, að rétt væri að láta á það reyna fyrir Hæstarétti. Stefnt var til Hæstaréttar og dæmdi hann í málinu 24. mars 1986. Þar var Húsnæðisstofnun dæmd til að greiða stefnanda við- bótarverðbætur að fjárhæð 12,22 krónur. Húsnæðissmálastjórn ákvað í framhaldi af dóminum, að sambærilegar verðbætur skyldu greiðast á reikninga sem voru í gangi á fyrrgreindu tímabili. Sigurður segir að engan veginn hafi verið létt verk að afla upplýs- inga um reikningana sem verð- bæturnar greiðast á, þar sem á þessum tíma hafi gögn verið á spjaldskrám og komin í geymslur hjá Landsbankanum á nokkrum stöðum. Ráðnir vora fimm starfs- menn til að tölvufæra gögnin og vinna úr þeim sem þegar vora komin í tölvu, frá síðari hluta tíma- bilsins. Ávísanirnar vora sendar út mið- vikudaginn 13. desember. Upp- hæðin í heild er annars vegar vext- ir, um 63 milljónir króna, hins vegar verðbætur, um 119,4 millj- ónir. „Á þessum tíma sem bæturn- ar ná til, var Húsnæðisstofnun eina stofnunin í þjóðfélaginu sem verð- tryggði innlánsfé almennings, eng- in önnur gerði það, og þá voru engin iög og engar reglur til um það, hvernig ætti að haga verð- tryggingu sparifjár. Einu klásúl- urnar um það voru í húsnæðislög- unutn sjálfum og eftir þeim var farið. Það er ekki fyrr én 1979, 22 árum eftir að við byijum að verðtryggja allt sparifé ungmenna hér á landi, sem bankar og spari- sjóðir loksins byija að verðtryggja, sparifé almennings, svo að ég álít að okkur hafi mjög vel til tekist,,: þótt þarna hafi þetta orðið útund an,“ segir Sigurður. A *-í *• M / k i * * i t ? t ■■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.