Morgunblaðið - 15.12.1989, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989
F y rirmenn og framkvæmdir
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Gils Guðmundsson: ÞEIR
SETTU SVIP Á ÖLDINAIII. 280
bls. Iðunn. Reykjavik, 1989.
íslenskir athafnamenn er undir-
titill þessa rits. Ritstjórinn, Gils
Guðmundsson, kveður þetta bindi
munu verða hið síðasta. Höfundar
þess eru tólf en æviágripin sautján.
Sjálfur skrifar Gils um þijá menn:
Alexander Jóhannesson, Baldur
Eyþórsson og Björn Kristjánsson.
Allt eru það greinagóðir þættir.
Stefán Júlíusson rekur lífshlaup
Augusts Flygenring og Lofts
Bjarnasonar og leitast við að lýsa
persónum þeirra jafnt sem athöfn-
um. Ásgeir Jakobsson ritar um
Geir G. Zoéga og brestur ekki þekk-
inguna fremur en fyrri daginn þeg-
ar útgerðarsagan er á dagskrá.
Bergsteinn Jónsson dregur fram
meginatriðin í athafnasögu Gunn-
ars Óiafsson sem lengi setti svip á
mannlífið í Vestmannaeyjum og er
gömlum Vestmannaeyingum í
fersku minni. Lára Ágústsdóttir
segir frá Haraldi Böðvarssyni, þeim
mikla föður Akraness. Halldór
Kristjánsson rekur sögu hugsjóna-
mannsins, Hákonar Bjamasonar,
sem varði langri starfsævi til að
sannfæra Islendinga um að hér
mætti rækta skóg og varð, þegar
á allt er litið, furðumikið ágengt.
Guðmundur H. Garðarsson minnist
Jóns Gunnarssonar sem títt var
getið í blöðum — og ekki alltaf lof-
samlega — á árunum eftir stríð.
Guðjón Friðriksson, sem öðru frem-
ur hefur kafað ofan í sögu
Reykjavíkur, skrifar um Magnús
Th. S. Blöndahl, Ragnar Ólafsson
og Þorstein Guðmundsson. Andrés
Kristjánsson bregður upp minnis-
stæðri svipmynd af Vilhjálmi Þór.
Þórarinn Þórarinsson ritar um Þor-
stein Jónsson er iengi var kaup-
félagsstjóri á Reyðarfirði. Og að
Gils Guðmundsson
lokum ritar Jón Guðnason um Þor-
varð Þorvarðarson prentsmiðju-
stjóra.
Allt voru þetta heiðurs- og sóma-
menn. Allir settu þeir svip á nán-
asta umhverfi. Sumir urðu lands-
kunnir. Fáeinir eru fyrir skömmu
látnir. Því má vera afsakanlegt að
sumir þáttanna skuli bera nokkurn
eftirmælasvip. Svo virðist sem rit-
stjórinn hafi gefið höfundunum til-
tölulega fijálsar hendur. Það sem
sagt er almennt um bókina á því
meira við sumt, minna við annað.
í sumum þáttanna er fjölyrt um
athafnasvið það sem viðkomandi
helgaði krafta sína. í öðnim segir
meira frá manninum sjálfum. Sem
heild er þetta þó athafnasaga fyrst
og fremst, minna hrein persónu-
saga. Sumir þessara manna drógust
með óbeinum hætti inn í stjórn-
máladeilur og er þá getið um það
án þess að sú saga sé yfirhöfuð
rakin nánar. ^
Skemmtirit verður þetta varla
taiið enda mun sá alls ekki hafa
verið tilgangurinn. Miklu fremur
má kalla þetta drög til atvinnusögu.
En í bókunum þrem hafa alls birst
ævágrip 54 manna. Allir lifðu menn
þessir umbrot þau sem nýir atvinnu-
hættir ollu með þjóðinni. Og allir
\/^ TECHNICS W FYRIR
WtÓNLISTARMENN SEM VILJA
NÁ TÖKUM Á TÆKNINNI
Technics orgel sx_
EX35-EX25L-EX15L
Nýjar gerðir af orgelum með fleiri sólóhljóðfær-
um en áður. Taktar fyrir undirleik og bassa,
undirspil er meö nýjum og bættum útfærslum.
Samspil efra og neðra borðs gefur möguleika á
fjölbreyttum undirleik og röddunum. Bassaleikur
er nú með ýmsum valmöguleikum og trommur
með upphafi, sólóum og endingum. Einnig:
reverbtæki, minni fyrir hljómstillingar og takta,
kristalskjár með upplýsingum um tóntegund,
hljómval og takthraða og samtengingar
orgelsins. Allar hljóðmyndanir í orgelunum eru
gerðar með stafrænum hætti (digital) og með
stereo hljóm.
GREIÐSLUKJÖR
Ykkur bjóðast afborgunarskilmálar til allt
að 24 mánaða. Hafið samband eða komið
í verslunina og kynnist tækninni.
HLJÓÐFÆRASALA - STILLINGAR - VIÐGERÐIR
ÁRMÚLI 38, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 91-32845
Nýja Technics rafmagnspianóið er með
hamraverki og sama nótnaáslætti og venjulegt
píanó. Technics rafmagnspianóið er með
stafrænum (digital) hljóðmyndunum. Ný
innbyggð hljómtækni sem gefur betri víddir í
endurhljómi og tónsvörun líkt og t.d. stór
hljómleikasalur eða lítil koníaksstofa. Hljómval:
píanó (lítil og stór), rafmagnspíanó, harpsichord,
harpa, gítar, klarinett o.m.fl. Einnig: tónval,
taktmælir, innbyggð hljóðritunartæki, tenging
við tölvur eða önnur hljómborð (midi), 2x30w og
2x20w stereo magnari, hátalarar. Hægt er að
spila á píanóið og æfa sig með heyrnatólum.
Fjölmargar innbyggðar digital hljóðmyndanir.
Sambyggt er í tækinu undirleikur (bassi,
trommur, alls konar hljómgrunnar) með um 80
taktafbrigðum. Ótrúlegir möguleikar á samsetn-
ingu nýrra hljóöa eða tónmynda (sound
creation). Innbyggö eru um 30 ólík hljóðfæri,
magnari og hátalarar, midi tenging, pitch bend
og geymsluforritun.
Nýtt Technics hljóðfæri sem byggt er á stafræn-
um (digital) hljóðmyndunum. Hver tónn er
nákvæm eftirliking náttúrulegra hljóöa. Píanó-
hljómurinn er bylting á rafhljóðfæri og með
píanó áslætti. Aðrir hljómmöguleikar eru t.d.
orgel (jazz/pípu), málmblástur, tréblástur.
gítarar, harpichord, strengir. bassi (raf/kontra),
clavi, vibetone, vocal ensamble, synth o.m.fl.
Þetta hljóðfæri er með hljómsveitarundirleik i
mörgum taktmöguleikum, samtengdum tromm-
um og bassaundirleik. Innbyggöur stereo
magnari og hátalarar.
JAPISS
AKTOI
SKIPAGATA 1 - SIMI 96 25611
HLJÓÐFÆRAVERSLUN
PÁLMARS ÁRNA HF
Stafræna Technics píanóið
Technics sx PR300
Stafrænn Technics hljóðgervill
Technics orgel sx EX5L
Dæmigert orgel með heföbundnum röddum, en
nú með stafrænum hljóðmyndum. Fyrir hefð-
bundinn orgelleik bjóðast margir raddmöguleik-
ar og samhljómun ásamt tuttugu sólóröddum
(hljóðfæri) í efra borði. Prjár bassaraddir,
hefðbundinn orgelbassi og kontra- og rafmagns-
bassar, sextán taktar fyrir undirleik. m.a. vals,
swing, samba, shuffle o.fl. Innbyggöur 40w
magnari og tveir hátalarar.
áttu þeir þátt í að skapa það þjóð-
félag sem nú er. Því er vel að minn-
ingu þeirra skuli á loft haldið með
þessum hætti. Hitt hefði ég kosið
að heildarblær ritsins hefði mátt
vera nokkni líflegri. Fjörleg frásögn
getur sómt hvaða efni sem er.
Að mínu viti rýrir það ekki gildi
ritsins þótt áður hafi verið skráðar
langar og ýtarlegar sögur af sum-
um þeirra manna sem þama er fjall-
að um. Hér eru það aðalatriðin, sem
haldið er til haga, eða þeim þáttum
atvinnusögunnar sem meginmáli
skipta.
Saga af
íslenzkum
dýrum
Kaupstaðaferð dýranna heitir
bók eftir Atla Vigfússon með
teikningum eftir Hólmfríði
Bjartmarsdóttur sem Skjaldborg
hf. hefur gefið út.
í kynningu útgefanda segir að
þetta sé saga af íslenskum dýrum
sem ákveða að fara í kaupstaðinn
og gera jólainnkaupin. Stóra-Branda,
Rauður risaboli, Gráskinna frænka,
Kussa kvíga og Sjúsjú litii tuddi
ákveða að fara til Dýrabæjar. Ferðin
til Dýrabæjar verður söguleg enda
lenda þau í ófærð á leiðinni.
Margrét Sölvadóttir
Skáldsaga eft-
ir Margréti
Sölvadóttur
ÚT ER komin hjá Erni og Örlygi
fyrsta skáldsaga Margrétar Sölva-
dóttur. Sagan sem heitir Vínviður
ástarinnar er íslensk ástarsaga
sem gerist í Reylqavík og New
York.
I kynningu útgefenda segir m.a.
um söguefnið: „Eiturlyf, morð og
barnsrán koma við sögu, en ástin
lætur líka til sín taka. Edda er ung
stúlka, sálfræðingur á stóru sjúkra-
húsi, sem í frístundum sínum starfar
með lögreglunni. Hana dreymir um
öryggi, hjónaband og börn, og eitt
kvöldið kynnist hún lögreglumannin-
um Birgi, en hann er kvæntur. Birg-
ir er að rannsaka niál Erlu, ungrar
stúlku, sem hafði fundist nær dauða
en lífi eftir sjálfsmorðstilraun — eða
var það kannski morðtilraun? Hilmar
er ungur, einhleypur læknir á sjúkra-
húsinu þar sem Edda vinnur. Erla
er lögð inn á sjúkrahúsið í umsjá
Hilmars, og hann verðhr ástfanginn
af henni, en ekki er allt sem sýnist."
Bókin Vínviður ástarinnar er
prentuð hjá Prentstofu G. Benedikts-
sonar en bundin hjá Arnarfelli hf.
Kápu gerði Nýr dagur.
Heilræðabók
ÚT HEFUR verið gefin bókin
Regimus — horft til nýrrar aldár
eftir Gunnþór Guðmundsson.
í kynningu segir að þetta sé and-
legt rit, örlítið safn heilræða og
umhugsunarefna í dagsins önn og
amstri. Bókin boðar frið öllum mönn-
um, hið innra sem hið ytra. Úlfur
Ragnarsson læknir ritar formála að
bókinni og teiknar í hana eina mynd
við hvert efni.
Bókin var prentuð í Prentstofu
Akraness og gefin út á kostnað höf-
undar en Bókaútgáfan Reykholt sér
um dreifingu.