Morgunblaðið - 15.12.1989, Page 26

Morgunblaðið - 15.12.1989, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989 Fyrsti vatnamælingamaðurinn Bókmenntir Sigurjón Bjömsson Vadd’út í. Sigurjón Rist. Vatna- mælingamaður. Æviminningar. Hermann Sveinbjömsson skráði. Bókaútgáfan Skjaldborg. Reykjavík 1989. 247 bls. Sigutjón Rist vatnamælingamað- ur er löngu þjóðkunnur. Einhvern- veginn hefur maður alltaf vitað af honum og starfi hans, þó að ekki hafi verið nein ósköp fjallað um hann í fjölmiðlum. Hér segir svo Sigutjón sögu sína. Hún er fróðleg og merk, einföld, blátt afram, útúrdúralaus og skerpu- leg. Ég gæti trúað að þessi einkunn- arorð eigi sömuleiðis við um sögu- manninn, þó að ekki geti ég stað- fest það af eigin raun. Sigutjón kemur úr stórum barna- hópi norður á Akureyri. Ungur miss- ir hann móður sína og er komið í fóstur á sveitabæ frammi í Eyja- firði. Þar var hann svo láhsamur að eignast góða fósturforeldra sem ólu hann upp sem son sinn til fullorðins aldurs. Eftir stúdentspróf hélt Sigutjón ti! náms í haffræði við Kaupmanna- hafnarháskóla. Heimsstyijöldin síðari batt þó skjótan endi á það nám. Sigutjón fór’til íslands og úr reglubundnu háskólanámi varð ekki meira. Næstu árin dvaldist hann á Akureyri og fékkst við sitt af hveiju, einkum þó við bifreiðarviðgerðir. A þessum tíma tók hann mikinn þátt í fjalla- og öræfaferðum með Ferða- félagi Akureyrar. Hvoru tveggja kom sér vel þegar hann hóf störf sem vatnamælingamaður hjá Ra- forkumálaskrifstofunni (síðar Orku- stofnun) árið 1947. Starfsferill hans þar varð fjörutíu ár. Sigutjón var fyrsti vatnamælinga- maður landsins að aðalstarfi og þar ■hefur hann tvímælalaust unnið ákaf- lega merkt og mikilvægt starf. Þar hygg ég að hafi verið réttur maður á réttum stað. Engan sérfræðing þarf til að gera sér grein fyrir því að góð þekking á ,;hegðun“ vatnsfalla er okkur mikil nauðsyn og ein af hinum veigameiri forsendum virkjana og brúargerða, svo að ekki sé meira nefnt. I þessum efnum var að vonum fátt vitað þég- ar Siguijón hóf störf. Eins og glöggt kemur fram í þess- ÆVIOG ÁTÖK JAKANS IHRESSILEGRIOG STORSKEMMT11K5RIBOK Gustmikil bók um Jakann! HELGAFELL SÍÐUMÚLA 29 SlMI 6-88-300 Hreinskilni og sönn frásagnargleði Guðmundar J. Guðmundssonar skapar bókinni Jakinn í blíðu og stríðu sérstöðu á jólabókamarkaðnum. Svipmikill baráttumaður með einstaka kímnigáfu fer hér á kostum í samfylgd Ómars Valdimarssonar blaðamanns sem skráð hefur þessa þætti úr sögu Jakans. Meiri styrr hefur staðið um Guðmund Joð en flesta aðra samtímamenn. Hann hefur staðið í fylkingarbrjósti íslenskrar verkalýðshreyfingar frá lokum seinni heims- styrjaldarog baráttuhugurinn er enn hinn sami. Hér gefst landsmönnum einstakt tækifæri til að kynnast þessum litrika manni, skyggnast á bak við tjöldin og fá að heyra álit hans á mönnum og málefnum. Hermann Sveinbjömsson ari bók, þó að látlaus sé hún að yfir- bragði, hefur það oft verið mikil karlmennskuraun að gegna þessu starfi. Til þess hefur þurft mikið líkamlegt þrek, áræðni samfara gætni, þrautseigju og útsjónarsemi, auk hinnar faglegu þekkingar. Þess- um kostum hefur Siguijón verið gæddur. Ekki efa ég að Siguijón hefði gegnt hveiju því starfi með sóma sem honum hefði verið falið. En ein- hvern veginn finnst mér þó skína í gegn að „vatnið" hafi átt undra stór- an sess í huga hans alla tíð frá því að hann var að svamla í Eyjafjarð- ará sem ungur strákur. Faðir hans, Lárus J. Rist, sundgarpur og sund- kennarinn frægi, var svo sannarlega einnig maður „vatnsins". Bók þessi er í 52 stuttum köflum. í fyrstu 18 köflunum segir frá æsku, námsárum og fyrstu starfsárum þar nyrðra. En síðan taka „vatnamæl- ingaárin" við. Þetta er svo sannar- lega fróðlegur og skemmtilegur lest- ur. Hér er að finna mikinn fjölda frásagna og atvikalýsinga af ferða- lögum, sumum ærið hrikalegum — og ýmiss konar uppákomum. Inná- milli eru skarpar athuganir og hollar ráðleggingar reynds manns. Koma þær mörgum að gagni, sem sam- skipti eiga við hið erf iða land okkar. Hermann Sveinbjömsson hefur fært þessar ævinminningar í letur og gert það vel. Hann lætur Sigur- Jón segja frá í fyrstu persónu og fer vel að því. Sjálfur kemur hann ekki við sögu fyrr en í síðasta kafla, þar sem hann talar frá eigin bijósti. Lokaorð hans eru þessi; „Kynning mín af Siguijóni hafa verið bæði einkar fróðleg og skemmtileg. Hann er maður sem mótast af erfiðleikum en bugaðist ekki. Hann vann úr hveijum vanda — sigraðist á honum eða fann sér einfaldlega nýjan far- veg eins og fallvatnið, þegar einhver fyrirstaða verður". í bókinni er mesti fjöldi mynda sem eykur gildi hennar verulega. Mamma fer á þing Bókmenntir Jenna Jensdóttir Steinunn Jóhannesdóttir: Mamma fer á þing. Ljósmyndir: Ib Rahbek Clausen. Norðurlandaráð 1989. Það er óneitanlega gaman fyrir íslendinga, að Norðuriandaráð fól íslenskum rithöfundi að rita barna- sögu, þar sem markmiðið yrði að: „ .. . sýna börnum og unglingum að starf stjórnmálamannsins er virð- ingarvert starf — og til hvers það leiðir ...“, eins og stendur í formála. Og það er enginn viðvaningur á ritvelli sem leitað var til. Aðalvettvangur sögiinnar sýnist mér vera Akranes. Kannski er það engin tilviljun að sjómannsfjölskylda og líf hennar er meginþáttur sögunn- ar. Steinunn er sjálf sjómannsdóttir og gjörþekkir það líf er hún lýsir í sögunni. Hún var einnig baráttukona utan heimilis og veit vel til ýmissa innri og ytri þátta sem þá samtvinn- ast heimilislífi. Þessi lífsreynsla sameinuð er tvímælalaust aflvaki að sterkum innviðum sögunnar. Höfundur felur tæplega tólf ára telpunni Unni að segja frá. Þótt sá frásagnarmáti sé alltaf vandmeð- farinn, kemst höfundur býsna vel frá því. Fullorðinslegt viðhorf ríkir að vísu alltaf í vitund telpunnar, og út frá því tjáir hún sig. En tilfinninga- leg viðbrögð hennar gagnvart átök- um sem eðlilega verða innan fjöl- skyldunnar við svo breyttar aðstæð- ur eru sannferðug og oft grípandi. Unnur á tvö systkini, Óla Kára 8 ára og Sunnu 4 ára. Faðir þeirra er sjómaður. Móðirin er kennari. Hún hefur boðið sig fram til Al- þingis og nær kjöri. Undirbúningur kosningabaráttunnar og allt til- standið eftir að úrslitin eru kunn róta upp í heimilislífinu. Það veldur meifi kvíða hjá lítilli stúlku en sig- urvíman og öll uppsprottin vinahót megna að gleðja hana. Höfundur gerir sér far um að flétta íslenskt afhafna- og þjóðlíf til lands og sjáv- ar inn í söguna. Ferðalag fjölskyldunnar um kjör- dæmi móðurinnar er eftirminnilegt. Þar er höfundur sérlega laginn við að koma þjóðarsögunni í dreifbýlinu að. Hvort sem börnin fara á sjó með föðurnum eða eru viðstödd setningu Alþingis, virðist höfundur gæta þess ve! að barnsaugu og -hugur meðtaki það sem gerist frásagnarvert og þjónar tilgangi bókarinnar. Öll fræðsla, sem móðirin veitir Unni um störf Alþingis og stjórn- málasöguna, ásamt því sem hún Steinunn Jóhannesdóttir kynnist sem þingmaður á ferðum sínum til hinna Norðurlandanna, og setu á þingi Norðurlandaráðs, kemur til lesenda í hugsun og túlkun telp- unnar. Þar leynir sér ekki náinn skyldleiki við góðar ritgerðir og svör við spurningum varðandi sama efni — þar sem afburða börn eiga hlut að máli í skólum. Það sýnir vel inn í heim konu og móður þegar þingkona leggur sig í lífshættu við að komast heim seint að kvöldi, til þess að vera hjá börnum sínum og vinna að ýmsu, sem heimil- ið þarfnast, áður en haldið er til opinberra skyldustarfa að morgni. Þótt afi og amma séu hjálpleg er svo ótal margt _sem móðir ein getur sagt og gert. Ég tel að niðurstaða verði sú sem vænst er í lýsingu á markmiði bókarinnar, að „börn ann- ars staðar á Norðurlöndum heldur en á íslandi, ættu með lestri bókar- innar að verða nokkurs vísari um ísland, Aþingi og norrænt sam- starf.“ (Æ, leiðindaprentvilla í svo mikilvægu orð!) Margar ljósmyndir prýða bókina. Frá mínu sjónarmiði er ekki æskilegt að persónur í svona sögu séu ákveðn- ar þannig. Af áratuga reynslu í kennslu barna og unglinga hefi ég fundið það að sögur standa nær þeim þegar myndskreytingar vísa ekki til neinna sérstakra persóna. Teikningar auðga ímyndunarafl þeirra og þau smjúga — ef svo má að orði komast — gegnum myndirn- ar inn í atburðarás sögunnar og leita þar viðburða og atvika, sem einnig fela í sér þeirra eigin reynslu. Sagan og sögupersónur verða þá eins konar hluti af þeirra eigin vitund meðan þau eru á valdi frásagnarinnar. Þessi nánd næst mun síður þegar ljósmyndir eru af sögupersónum — þær þannig ákveðnar fyrirfram. Þá er hætt við að þessir lesendur sjái allt fyrir sér sem dálítið óviðkom- andi og innlifun verður því takmörk- uð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.