Morgunblaðið - 15.12.1989, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989
27
Púkablístran og fleiri
sögur af Sæmundi fróða
Bókmenntir
Sigurður Haukur Guðjónsson
Sagnaþulur: Njörður P. Njarðvík
Myndir: Gunnar Karlsson
Prentun: Prentsmiðjan Oddi hf.
Útgefandi: Iðunn
„Púkablístran og fleiri sögur af
Sæmundi fróða er fyrsta bókin í
nýjum flokki sem hlotið hefur heitið
Sagnasjóður íslenskra barna og á
að gegna því mikilvæga hlutverki
að flytja börnum sígilt og vandað
lestrarefni við þeirra hæfi.“ Svo
segir á bókarkápu, og var það fyrsta
er vakti fögnuð minn, er ég tók
þessa bók í hendur. Hversu oft hefi
ég ekki hvatt ungt fólk, sem vill
auka orðaforða sinn og tilfinningu
fyrir hljómfalli íslenzkrar tungu, til
að taka sér í hendur þjóðsögurnar,
lesa þær og lær? Sumir hafa haft
nennu til, orðið æ síðan þakklátir,
aðrir ekki, verið hræddir við að ég
væri að benda á eitthvað sem lífinu
kæmi ekki lengur við. Satt er það,
margt brotið úr gömlum sögnum,
sem kynnt er í skólum, styður þá
skoðun, því miður. Því hafa færri
reynt en ég vildi. Forráðamenn Ið-
unnar eru auðsjáanlega sömu skoð-
unar og ég, að hollt er ungum að
kynnast gullsjóði íslenzkrar tungu.
Og þessi frábæra bók sannar mér,
að þeir kunna ráð til að færa klið
liðinna alda að eyrum æskunnar í
dag. Þeir fá listrænan sagnaþul til
þess að verma sögurnar við hjarta
sér og segja okkur þær svo á ný.
Nota því sömu aðferð og gengnar
kynslóðir beittu.
í þessari fyrstu bók er haldið
langt aftur í aldir, allt til Sæmund-
ar fróða Sigfússonar (dáinn 1133)
í Odda. Slíkur var lærdómur hans,
kunnátta bæði í orði og verki, að
fólk ekki aðeins laut honum sem
höfðingja og presti, heldur leitaði,
í fáfræði sinni, skýringa á mætti
þessa sérstæða manns, komst að
þeirri furðulegu niðurstöðu, að að-
eins við fótskör myrkrahöfðingjans
væri slíka þekking að finna. Það
þóttist vita það líka, fólkið, að gjald-
ið við vizkubrunninn væri sál nem-
ans ein. Stundum verður læri-
sveinninn meistaranum meiri, því
fékk Kölski að kynnast hjá Sæ-
mundi. Fólk kunni af því margar
sagnir, hvernig sveitungi þeirra
hinn fróði, dró gráðugan myrkra-
höfðingjann á asnaeymnum, lofaði
fögm, er hann ginnti til verka, en
galt alltaf með fláttskap, komst
þannig hjá verkalaunum. Eins
hjálpaði hann öðrum til slíkra við-
skipta.
Njörður segir hér 12 sagna sem
urðu til á vömm þjóðar af þessum
bellibrögðum. Það gerir hann meist-
aralega vel, málið ljúft og fagurt,
myndrænt lokkar það til nánari
kynna. Það var tilgangurinn, og vel
hefir því til tekizt. Eg hirði ekki
um að rekja sögurnar, það væri
svik við lesandann.
Gaman hefði verið að sjá formála
að slíkri bók, sjá skýringar Njarðar
á því, hví Sæmundur týndist í út-
löndum svo lengi. Hvar var hann?
Hvar fann Jón Ógmundsson, síðar
biskup, þennan frænda sinn, er
hann lokkaði hann með sér heim?
Eins hvað veldur, að öll ný þekk-
ing, er talin frá Kölska komin, ekki
aðeins aftur í öldum, heldur enn?
Kannske er ætlunin, að skýringar
við Sagnasjóðinn komi allar á einni
bók síðar. Slíkt yki gildi hans.
Myndir Gunnars eru fullar af
dulúð, unnar í lotning fyrir efni
bókar, og því að þeim mikill fengur.
Allur frágangur til fyrirmyndar.
Heillandi, skemmtileg bók, sem
ætti að komast í hendur sem flestra
unglinga. Kannske gætu skólar
komið hér að liði? Það væri við
hæfi á ári helguðu íslenzkri tungu.
Hafi þeir er að unnu heila þökk
fyrir.
Einar Kárason
ÚT ER komin hjá Máli og menn-
ingu bókin Innan garðs sem hef-
ur að geyma ljósmyndir Þórarins
Oskars Þórarinssonar með texta
eftir Einar Kárason.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„í bókinni eru ljósmyndir úr undir-
djúpum mannlífsins, í Reykjavík,
Danmörku og Bandaríkjunum. Þór-
arinn hefur lag á því að láta eina
mynd segja langa og dramatíska
sögu, og þótt myndir hans virðist
Þórarinn Óskar Þórarinsson
miskunnarlausar og naprar leynir sér
ekki næmi höfundar fyrir hinu átak-
anlega í fari manneskjunnar. Þórar-
inn beinir linsum sínúm að ýmsum
þeim hliðum þjóðlífsins sem sjaldan
eru gerð skil og eiga eftir að koma
mörgum á óvart. Þetta er óvenjuleg
og afhjúpandi bók sem fær lesandann
til að sjá umhverfi sitt í nýju ljósi.
Bókin er 69 blaðsíður í stóru broti.
Auglýsingastofan Næst sá um útlit.
Prentun annaðist Prentsmiðjan Oddi
hf.
Lj ósmyndabók
Álitlegur kostur til að lækka tekju- og eignaskatt
Kaup á hlutabréfum í traustum fyrirtækjum er
mjög álitlegur kostur fyrir þá sem vilja umtals-
verða skattalækkun, efla íslenskt atvinnulíf og
fjárfesta á öruggan hátt.
Umtalsverð skattfríðindi
Hlutabréf að nafnverði allt að 1.080.000 kr. eru
undanþegin eignaskatti. Þessi upphæð er
2.160.000 kr. hjá hjónum.
Tekjuskattur hjóna lækkar allt að 75.000 kr.
Ef hlutabréf eru keypt fyrir áramót lækkar tekju-
skattstofninn um þá upphæð sem keypt er fyrir
ailt að 100.000 kr. hjá einstaklingi og 200.000 kr.
hjá hjónum.
Arður allt að 10% af nafnverði, hæst 108.000 kr.
eða 216.000 hjá hjónum, mun verða skattfrjáls.
Vænleg fjárfesting
Til að hlutabréfaeigendur njóti þessara fríðinda
þurfa viðkomandi fyrirtæki að uppfylla ákveðin
skilyrði ríkisskattstjóra. Hjá Verðbréfamarkaði
Fjárfestingarfélagsins liggur frammi skrá um
hvaða fyrirtæki það eru.
í þessum hópi eru traust fyrirtæki á borð við
Verslunarbankann, Iðnaðarbankann, Flugleiðir,
Eimskip, Tolivörugeymsluna, Hampiðjuna o.fl.
Efiing atvinnulífs
Um leið og þú bætir eigin afkomu með hlutabréfa-
kaupum tryggir þú að fjármunir þínir efli ísienskt
atvinnulíf og renni þannig styrkari stoðum undir
afkomu komandi kynslóða.
Þannig virka hlutabréfakaupin:
Hjón sem kaupa hlutabréf fyrir 200.000 kr. fyrir
áramót fá endurgreiddar rúmar 70.000 kr. frá
skattinum á næsta ári.
Auk þess eru hlutabréfin eignaskattsfrjáls að
vissri fjárhæð, og arðgreiðslur að vissu marki
tekjuskattsfrjálsar.
Höfum til sölu hlutabréf í
eftirtöldum fyrirtækjum:
EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
HAMPIÐJAN
IÐNAÐARBANKINN
OLÍUFÉLAGIÐ
ÚT GERÐ ARFÉLAG AKUREYRINGA
TOLLVÖRUGEYMSLAN
ATH: Upphæðirnar hér að framan eru
samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi frá Alþingi.
VERÐBREFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF
Hafnarstræti 7
28566
Kringlunni
689700
Akureyri
25000