Morgunblaðið - 15.12.1989, Page 36
s esci aaaMagaa .?.r auoAauTsöa cnoAjaviuoaoM
36 ~-------------------------------M0R6tíNfitA£>IÐ-P0STUBAGURrU5r DESEMBEft T98&
Hong Kong:
Flóttamenn mólniæla
nauðungarflutningum
Breska ríkisstjórnin sætir vaxandi þrýstingi
Hong Kong. Reuter.
ÞING Evrópúbandalágsins fordæmdi í gær þá ákvörðun ríkisstjórnar
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, að láta flytja 51 Víet-
nama nauðungarflutningum frá Hong Kong aftur til landsins sem þeir
höfðu flúið. Þúsundir Víetnama sem hafast við í flóttamannabúðum í
Hong Kong mótmæltu stefhu þessari í gær annan daginn í röð og fregn-
ir hermdu að einna þeirra hefði reynt að svipta sig lífi. Bretar hyggj-
ast flytja 40.000 Víetnama frá Hong Kong aftur til síns heima.
Sú ákvörðun bresku ríkisstjómar-
innar að flytja Víetnamana frá Hong
Kong í skjóli myrkurs hefur verið
fordæmd víða um heim og skapað
spennu í samskiptum Bretlands og
Bandaríkjanna. I gær sammþykktu
85 af 518 fulltrúum á þingi Evrópu-
bandalagsins sams konar yfirlýsingu
þar sem breska ríkisstjórnin var
hvött til þess að hætta nauðungar-
flutningunum. Fimm þingmenn ski-
luðu auðu, 12 voru á móti en aðrir
Bandaríkjaþing:
Nefiid kannar úran-
viðskipti við Rúmeníu
Washington. Daily Telegraph.
NEFND á vegum öldungadeild-
ar Bandaríkjaþings skýrði frá
því á þriðjudag að hún hygðist
kanna nánar áform um að selja
Rúmenum úran til nota við
vísindarannsóknir. Slík við-
skipti hafa farið fram árum sam-
an en margir telja að ástandið
í Rúmeniu og Austur-Evrópu
valdi því að ekki sé veijandi að
gera stalínistastjóra Rúmeníu
ef til vill kleift að framleiða
kjamorkuvopn.
ig er tekið fram að fyllsta öryggis
verði gætt við flutningana ef til
þeirra komi.
tóku ekki þátt í atkvæðagreiðslunni.
Breska stjórnin ákvað fyiT í vikunni
að fresta frekari brottrekstri Víet-
namanna og mæltust þingmenn EB
til þess að Bandaríkjamenn aðstoð-
uðu við að finna fólkinu nýjan sama-
stað.
Þúsundir Víetnama, sem hafast
við í flóttamannabúðunum í Hong
Kong, efndu til friðsamlegra mót-
mæla í gær. Fólkið hrópaði í kór:
„Nauðungarflutningar eru ómannúð-
legir“ og lýsti yfir því að fyrr myndi
það deyja en að snúa aftur til Víet-
nam. Verðir björguðu með naumind-
um lífi manns sem reynt hafði að
hengja sig í búðunum en yfirvöld
kváðust ekki vita hvort sjálfsmorð-
tilraunin tengdist beinlínis nauðung-
arflutningunum. Yfirvöld hafa reynt
að koma á fréttabanni frá búðunum
og uppskorið ásakanir um pukur og
ieyndarhyggju bæði í Hong Kong og
erlendis.
Um 57.000 Víetnamar eru í Hong
Kong en af þeim falla aðeins um
13.000 undir flóttamannaskilgrein-
ingu Sameinuðu þjóðanna.
Flóttamenn firá Víetnam mótmæla nauðungarflutningunum í Sham
Sui Po-búðunum í Hong Kong í gær. A borðanum sem fólkið heldur
á segir: „Yfirvöld í Hong Kong myrtu 51 víetnamskan flóttamann".
Sljórnarandstæðingar í A-Þýskalandi:
Áætlun kynnt um sam-
Embættismenn í þinginu segja
að þingmannanefnd undir forystu
Johns Glenns muni reyna að fá
úr því skorið hvort úranið sé bráð-
nauðsynlegt til að hægt sé að
starfrækja Triga-kjamakljúfinn i
Rúmeníu. Þar eru m.a. framleiddir
ísotópar sem notaðir eru við lækn-
isfræðirannsóknir. Ríkisstjórn
Ronalds Reagans samþykkti við-
skiptin en úranið er þó enn í Oak
Ridge í Tennessee þar eð Rúmen-
um tókst ekki að sannfæra
bandarisk yfirvöld um að þeir
gætu flutt efnið með öruggum
hætti yfir hafið til Evrópu.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
segir að útflutningurinn hafi upp-
fyllt öll skilyrði bandarískra laga
um sölu á kjamorkueldsneyti;
Rúmenar hafi heitið því að engar
sprengjur yrðu framleiddar. Einn-
emmgii þýsku ríkjaima
V-Þjóðverjar ft*esta staðfestingu landamærasamnings
Austur-Berlín. Reuter.
Stjórnarandstöðusamtökin „Lýðræði strax“ lögðu í gær fram áætlun
um sameiningu þýsku ríkjanna. Eru þetta lyrstu formlegu tillögurnar
frá Austur-Þjóðverjum um sameiningu. Þar eru einnig hugmyndir um
þær breytingar sem þyrlti að gera í Vestur-Þýskalandi. Hingað til
hefur hin skipulagða stjórnarandstaða hafnað sameiningu við Vestur-
Þýskaland. Stjórnvöld í Vestur-Þýskalandi ákváðu í gær að fresta undir-
ritun samnings við fjögur nágrannaríki um aJhám vegabréfaskoðunar
og eftirlits á landamærum á þeim forsendum að ekki væri tryggt að
samningurinn tæki ennfremur til Austur-Þjóðveija.
Áætlun stjórnarandstöðunnar er í
þremur liðum. Fyrst myndu Vestur-
Þjóðveijar hjálpa Austur-Þjóðveijum
við efnahagslegar umbætur og á
sviði umhverfisvemdar sem myndu
Ieiða til markaðshagkerfis, fijálsra
kosninga og lýðræðis. Greidd yrðu
atkvæði um nýja stjórnarskrá þar
sem kveðið yrði á um einingu þýsku
þjóðarinnar.
I Vestur-Þýskalandi yrðu gerðar
umbætur sem leiddu til aukins fé-
Richard von Weizsacker, forseti V-Þýskalands:
Þýsku ríkin tvö
vaxi saman í eitt
RICHARD von Weizsacker, forseti Vestur-Þýskalands, hvatti
Austur-Þjóðveija til rósemi og varaði þá við óðagoti á yflrstand-
andi umbrotatímum í viðtali við austur-þýska sjónvarpið í fyrra-
kvöld. Hann sagði að ekki mætti ganga milli bols og höftiðs á
öllum þeim sem gert hefðu mistök í liðinni tíð og hvatti til þess
að farið yrði hægt í sakirnar við sameiningu þýsku ríkjanna.
„Ég tel að hjá ykkur hafi menn
barist fyrir frelsi af miklu hug-
rekki með háleitum hugsjónum
og friðsamlegum aðferðum og
þannig hafi árangur náðst. Það
þýðir hirts vegar ekki að þið séuð
að öllu leyti undir lýðræðislega
samkeppni búin eða þau skref sem
þarf að stíga í átt til að unnt sé
að innleiða efnahagslegar umbæt-
ur. Þetta krefst þolinmæði. Okkur
verður einnig að lærast að þið
þurfið tíma. Hvernig mætti annað
vera? .. Auðvitað eru menn mjög
miður sín og reiðir yfir misbeit-
ingu valds og spillingu og til þess
er réttarríkið, að refsa fyrir slíkt,
en ekki réttlætistilfinning hvers
og-eins eða hefndarþorstinn sem
ekki leiðir til neins. Þar fyrir utan
er sú stétt manna sem þörf er á
tii að byggja upp lýðræði ekki
rrijög stór. Það má ekki ganga
milli bols og höfuðs á því fólki sem
fyrir hendi er. Maður þarf líka á
því fólki að halda sem hefur gert
mistök. Mér hafa orðið á mistök
eins og öllum öðrum . . Það eru
fleiri en hetjurnar færir um að
móta framtíðina."
Síðar í viðtalinu var von Weiz-
sácker spurður um álit sitt á sam-’
einingu þýsku ríkjanna. „Mín af-
staða er þessi: Við erum ein þjóð
Richard von Weizsacker.
og það sem heyrir saman mun
vaxa saman. En hlutarnir tveir
verða einmitt að vaxa saman.
Ekki má gera tilraun til að þvinga
þá í eitt mót. Við megum ekki
rasa um ráð fram. Ef við ætlum
að vaxa saman í eitt þá verður
það úr þeirri stöðu sem við erum
nú í; nefnilega tvö ríki einnar þjóð-
ar.“
lagslegs réttlætis, minna atvinnu-
leysis og meiri ábyrgðar í neyslu og
framleiðslu gagnvart umhverfinu.
í öðru lagi myndu bæði ríkin ger-
ast aðilar að Evrópubandalaginu og
Comecon, efnahagsbandalagi ríkja
Austur-Evrópu. Er þá gert ráð fyrir
því að allir íbúar hins nýja Þýska-
lands hefðu tvöfaldan ríkisborgara-
rétt. Lokastig áætlunarinnar kveður
hins vegar á um afvopnun Þýska-
lands og brottflutning erlends her-
afla.
Vestur-þýsk stjómvöld frestuðu í
gær staðfestingu Schengen-samn-
ingsins svonefnda sem m.a. kveður
á um óheft ferðalög fólks innbyrðis
milli Benelúx-landanna þriggja, auk
Frakklands og Vestur-Þýskalands.
Ráðgert hafði verið að samningurinn
yrði undirritaður í dag, föstudag.
Heimildarmenn í Bonn sögðu að mjög
hefði verið þrýst á Helmut Kohl,
kanslara V-Þýskalands, um að fresta
staðfestingu samningsins þar eð ekki
væri tryggt að hann tæki einnig til
ferðamanna frá A-Þýskalandi. Höfðu
heimildarmenn á orði að þessi
ákvörðun kynni að vekja ugg meðal
bandamanna V-Þjóðveija og að hún
kynni að verða túlkuð á þann veg
að þeir síðamefndu legðu nú höfuðá-
herslu á að færa sér í nyt breyting-
arnar í Austur-Evrópu í stað þess
að beina kröftum sínum að samein-
ingu ríkja Vestur-Evrópu á grund-
velli Evrópubandalagsins.
Samið í Tékkóslóvakíu:
Þingið mun kjósa
forseta í stað Husaks
Prag. Reuter.
FULLTRÚAR tékknesku andófssamtakanna Borgaravettvangs og
kommúnista náðu í gær samkomulagi um að þing landsins skuli kjósa
nýjan forseta í stað harðlínumannsins Gustavs Husaks. Þingflokkur
kommúnista hafði borið fram þá tillögu að forseti yrði þjóðlyörinn en
féll frá henni. Samþykkt var einnig að veittur yrði frekari frestur en
gert er ráð fyrir samkvæmt lögum til að velja forseta svo að ráðrúm
gæfist til að tilneftia nýja þingmenn í stað þeirra harðlínumanna sem
verst eru þokkaðir.
Nýr utanríkisráðherra landsins,
Jiri Dienstbier, segir að Tékkar æski
þess að sameining þýsku ríkjanna
tveggja verði hluti af sameiningar-
þróun í Evrópu allri. Jafnframt segir
ráðherrann þó að ekki sé hægt að
neita nokkurri þjóð um sjálfsákvörð-
unarrétt til langframa. Að sögn Di-
enstbiers, sem sat árum saman í
fangelsi vegna andstöðu við komm-
únista, mun landið ekki segja sig
einhliða úr Varsjárbandalaginu eða
efnahagsbandalagi kommúnist-
aríkja, Comecon.
Samkvæmt stjórnarskrá ríkisins
mega forseti og forsætisráðherra
ekki vera báðir frá sama sambands-
ríki, þ.e. sé annar Tékki verður hinn
að vera Slóvaki. Cestmir Cisar, sem
var menntamálaráðherra í umbóta-
stjórn Dubceks 1968, nýtur stuðn-
ings stúdenta í forsetaembættið en
líklegast er talið að leikskáldið Vac-
lav Havel hreppi embættið. Hann er
frambjóðandi Borgaravettvangs og
rekinn er gífurlegur áróður fyrir
honum í Prag og fleiri borgum.
Frantisek Tomasek, hinn níræði
kardínáli kaþólsku kirkjunnar í
landinu, hefur lýst stuðningi við
Havel.