Morgunblaðið - 15.12.1989, Page 51
MORGÚNBLAÐÍÐ FÖSTDDAGUR 15. D'ESEMBKR 1989
51
Seljum Sambandið
*
eftirArna Sigurðsson
Rúmlega hundrað ár eru síðan
samvinnuhugsjónin fæddist fyrir
norðan. Hún átti ríkan þátt í að
hrinda af stað búháttabreytingum
og efla hagsæld sveitanna. Um það
verður ekki deilt, að upphafsmenn
samvinnuhreyfingarinnar voru
brautryðjendur sem færðu með sér
ferskan andblæ og gengu til góðs
götuna fram eftir veg um það leyti
sem samvinnuhugsjónin sáði því
akarni sem af spratt Sambandið.
Samvinnurekstur er
tímaskekkja
En á meðan veröldin gekk í gegn-
um tvær heimsstyrjaldir og víðtæk-
ari uppstokkun efnahagsumhverfis
en áður hafði gerst á jafn stuttum
tíma, hefur Sambandstréð vaxið
stjórnlaust og í stað þess að vera
glæsitré með styrkan stofn og stóra
krónu, varð úr því risavaxinn
óskapnaður kræklóttra kvista sem
með víðtæku rótarkerfi sogar til sín
lífskraft íslensks efnahagslífs úr
jarðvegi flókins sjóðakerfis og
pumpar því út í lífvana kalkvisti
sem ekki hafa borið lauf í langan
tíma. Meiri kraftur fer í að viðhalda
rótarkerfinu og illgresinu sem
vemdar það, Framsóknarflokknum,
en veitt er út eftir sjúku æðakerfinu
til þeirra örfáu lima sem enn bera
í sér gróanda.
„Eina heilbrigða og
raunhæfa lausnin á
vanda Sambandsins er
að bijóta það upp í litl-
ar rekstrareiningar,
gera þær að hlutafélög-
um og selja þau síðan
starfsfólkinu eða öðrum
sem vilja kaupa.“
Vandi byggðarlaganna
Kaup Landsbankans á Sam-
vinnubankanum, hálfdauðum kal-
kvisti Sambandsins, hefur orðið til
þess að opna löngu tímabæra um-
ræðu um þennan vanda Sambands-
ins, vanda sem á eftir að ganga af
því dauðu. Spurningin núna er að-
eins hvenær það verður. Undan-
farna daga hafa ýmsir talað fjálg-
lega um yfirvofandi gjaldþrot Sam-
bandsins, en það er ekkert grín, því
gerist það, setur það mörg byggðar-
lög í víðtækan vanda og þá hefur
ekkert áunnist. Geysilega stór hóp-
ur einstaklinga og fyrirtækja teng-
ist rekstri Sambandsins; starfs-
menn þess og fyrirtæki sem selja
og líka kaupa af því bæði vömr og
þjónustu. Gjaldþrot Sambandsins
er þannig bæði óhugsandi og hreint
ekki raunhæf lausn vandans.
Rímorðabók eftir
Eirík Rögiivaldsson
IÐUNN hefur sent frá sér
íslenska rímorðabók, sem Eirík-
ur Rögnvaldsson hefúr tekið
saman.
í kynningu Iðunnar segir: „Þetta
er bók sem ætluð er öllum þeim sem
hafa gaman af að velta fyrir sér
orðum og rími og vilja temja sér
leikni í meðferð máls og kveðskap-
ar. Bókin kemur sér vel fyrir alla
sem hafa yndi af að setja saman
vísur og fella orð saman í stuðla
og rím og hún ætti einnig að koma
sér vel fyrir þá sem þurfa að semja
auglýsingatexta og grípandi slag-
orð.
Rímorðabókin skiptist í tvo hluta.
í hinum fyrri er fjallað um endarím
og þar má finna nær 20.000 aigeng
einkvæð og tvíkvæð rímorð og orð-
myndir. Síðari hlutinn sýnir innrím
og skothendingar. Þar eru yfir
18.000 uppflettiorð sem nota má
til að finna hundruð þúsunda rím-
Eiríkur Rögnvaldsson
orða, þegar dýrt skal kveðið.“ Bók-
in er 270 blaðsíður.
Gátuvísur eftir Sig
urkarl Stefánsson
SKAKPRENT heíúr gefið út
Gátuvísur Sigurkarls Stefánsson-
ar.
Gátur Sigurkarls komu fyrst á bók
1985 og í þessu nýja safni eru 76
gátuvísur. I formála segir Guðmund-
ur Arnlaugsson um gátuvísur Sigur-
karls:„Gáturnar eru flestar furðu
snjallar og bera vitni mikilli og fjöl-
þættri þekkingu höfundar á íslenskri
menningu, á þjóðlífi, atvinnuháttum
og bókmenntum fyrr og nú.“
Ög Jón Hnefill Aðalsteinsson hef-
ur skrifað um vísur Sigurkarls:,,
Gátur Sigurkarls Stefánssonar sýna
glögglega hve lifandi gátuíþróttin er
enn hér á iandi. Þær gefa hugmynd
umn hagleik höfundar við gátusmíð-
ina, en allt kverið er með sérstöku
snilldarbragði. Þá eru gátúr Sigur-
karls mátulega þungar til þess að
góð dægrastytting geti verið að
glíma við ráðningu þeirra."
Pólitísk klókindi
En þau vinnubrögð og hneykslis-
mál sem tengjast Sambandinu hafa
hleypt illu blóði í almenning sem
horfir upp á þetta allt saman ger-
ast án þess að hann fái rönd við
reist. Þannig komu kaup Lands-
bankans á Samvinnubankanum
engum á óvart, örfáum mánuðum
eftir að einn aðaláhrifamaður Sam-
bandsins, stjórnarformaður þess og
kaupfélagsstjóri, er gerður að
bankastjóra Landsbankans. Hvar í
heiminum getur það gerst nema á
íslandi, að slík-ur maður, einn vold-
ugasti maður helsta skuldunautar
stærsta viðskiptabanka landsins er
settur í bankastjórarstól hans og
stjórni þaðan björgunaraðgerðum
eftir að allt er komið í óefni?
Kannski er einn angi skýringarinn-
ar fólginn í því að fari Sambandið
á hausinn dregur það Landsbank-
ann með sér í fallinu. En hvar er
þessi maður í umræðunni? Hvorki
heyrist stuna né hósti frá honum
né heldur fulltrúa Alþýðuflokksins
á bankastjórastóli. Pólitísk klókindi
af hálfu framsóknarmanna og krata
virðast ráða því að í þeirra stað er
fulltrúi Sjálfstæðisflokks í banka-
stjóm látinn vaða eld og eimyrju í
umræðunni um kaup Landsbankans
á Samvinnubankanum. Viðbrögð
hans hafa verið mörgum sjálfstæð-
ismanninum ógeðfelld auk þesss em
þau hafa neytt formann Sjálfstæð-
isflokksins til að lýsa því yfir að
þessi ákvörðun væri flokksforyst-
unni algerlega óviðkomandi.
Hver vill kaupa?
Eina heilbrigða og raunhæfa
lausnin á vanda Sambandsins er
að brjóta það upp í litlar rekstrar-
einingar, gera þær að hlutafélögum
og selja þau síðan starfsfólkinu eða
öðrum sem vilja kaupa. Það sem
ber að óttast er að á þessari stundu
gæli ýmsir frammámenn Sam-
bandsins og Framsóknar við duldar
hugmyndir um að ríkið hlaupi und-
ir bagga og slái erlendar lánastofn-
anir um nokkurra milljarða króna
langtímalán með ríkisábyrgð, til að
endurskipuleggja Sambandið. En í
stað þess að veita þeim fjármunum
beint í hriplekar fjárhirslur Sam-
bandsins ætti að setja á fót fjárfest-
ingarlánasjóð sem gæfi starfs-
mönnum og almenningi kost á að
kaupa þær rekstrareiningnar Sam-
bandsins sem enn eiga nokkra von.
SIEMENS
Árni Sigurðsson
íslenskt efnahagslíf er mjög sveiflu-
kennt þar sem velgengni fylgir því
að vera ekki of stór, þar sem eigend-
ur þeirra verða sjálfir að vinna
hörðum höndum við flesta þætti
rekstrarins og geta á grundvelli
þess tekið skjótar ákvarðanir og
lagað reksturinn að breyttum for-
sendum. Stirðbusalegan sam-
vinnu-stórrekstur skortir þann
sveigjanleika og þau skjótu við-
brögð sem einkennir þau rekstrar-
form sem njóta velgengni jafnvel á
samdráttartímum. Upp er runnin
öld nýrra viðskiptahátta. Samband-
ið he'.Hst úr lestinni og lagaði sig
ekki að nyju.r raunveruleika — í
því kristallast vanai þ?ss.
Dýrkeyptur gálgafrestur
Ástæða væri til bjartsýni ef sú
framsýni einkenndi forystu Sam-
bandsins að hún gerði sér grein
fyrir því að sá tími er runninn upp
að hún þarf að sníða Iífvænlega
græðlinga af fúnum stofni Sam:
bandsins, selja þá starfsmönnum
sem gerst til þekkja með rekstur
þeirra en snúa sér sjálf að öðrum
verkefnum. En það sorglega er, að
í marmarahöll Sambandsins inn við
Kirkjusand fá þessar hugmyndir
vafalítið ekki mikinn hljómgrunn.
Allt bendir ti! að fimm flokka ríkis-
stjórnársamsuða Steingríms Her-
mannssonar sitji út kjörtímabilið og
að almenningur borgi brúsann af
björgunaraðgerðum sem halda
Sambandinu á floti enn um stund.
Sá gálgafrestur verður þjóðinni
dýrkeyptur.
Höfundur situr í stjóm Sambands
ungra sj&lfstæðismanna.
AHA! Ekki
er allt sem sýnist
eftir Martin Gardner
Hin fræga rakaraþversögn var sett fram af
Bertrand Russell. Ef rakari hefur þetta skilti í
glugganum, hver rakar þá rakarann?
Ef hann rakar sjálfan sig, þá er hann í hópi ,
þeirra manna sem raka sig sjálfir. Enskiltið |
segir að hann raki aldrei neinn sem rakar j
sig sjálfur. Því getur hann ekki rakað sig. (
Ef einhver annar rakar rakarann, þá er hann
maður sem rakar sig ekki sjálfur. En skiltið
segir að hann raki alla slíka menn. Þess ;
vegna getur enginn annar rakað rakarann.
Það virðist sem enginn geti rakað þennan
mann!
. I
Bók í máli og myndum um þver- j
stæðurogundarlegsannindi. Bók j
um hvíta hrafna, tímaferöalanga,
morðiö á Hitler 1930 og margt
fleira. Bókin sem sannar að hiö
ósennilega cr mjög sennilcgt. Bók
fyrir hugsandi fólk, 15 ára og eldra
Fæst í bókabúöum.
Útgefandi:
Talnakönnun hf,
Síðumúla 1.
Litlu raftœkin frá SIEMENS gleðja
augað og eru afbragðs jólagjafir!
kaffivélar
hrærivélar
brauðristar
vöfflujárn
strokjárn
handþeytarar
eggjaseyðar
dj úpsteikin garpottar
hraðsuðukönnur
dósahnífar
áleggshnífar
kornkvarnir
„raclette“-tæki
veggklukkur
vekjararklukkur
rakatæki
bílryksugur
handryksugur
blástursofnar
hitapúðar
hitateppi o.m.fl.
CO
Sigurkarl Stefánsson
Lítið inn til okkar og skoðið vönduð tœki.
Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið!