Morgunblaðið - 15.12.1989, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989
L-200 er minnsta og fullkomnasta segulbandstækið frá
OLYMPUS, og kemst það fyrir í brjóstvasa.
Tækið hefur raddrofa, þriggja tíma upptöku, tvo hraða og margt fl.
Notað t.d. af lögreglu, ráðherrum, læknum, blaðamönnum og skólafólki.
Heildsaia - smásala
Einnig fáanlegar í fríhöfninni
Sendum ipóstkröfu
Týsgata 1 • Pósthólf 1071 • 121 Reykjavík
Símar 10450 & 20610-
PICTIONARY
síðan koma vetrarins var alvöru-
þrungin og bauð mönnum ótta. Ef
heyin þrutu og sáðféð féll, dó fólk-
ið líká. Það var ekki á fiskinn að
treysta í verstu vetrum. Þá var erf-
itt að sækja sjó og þorskurinn lagð-
ist frá vegna kulda í sjónum. Og
það þykir nær fullsannað að þá fór
mannfjöldinn eftir sauðfjártölunni.
Kemur því úr hörðustu átt að marg-
ir gera sér að reglu að hnýta í
sauðkindina. Þeir „væru sennilega
ekki til“ hefði hennar ekki notið við.
Ég hafði tal af einum spámannin-
um hér og spurði hvernig veturinn
yrði. Helst skildist mér að veðráttan
mundi versna í febrúar og að vorið
yrði kalt. Þetta var samt allt óljóst
og í véfréttastíl. En nú er hér mjög
skemmtilegt veður, léttskýjað og
frostlítið. Vonandi er að þessi veðr-
átta nái fram í febrúar. Og best
væri að spádómurinn rættist ekki.
— Vilhjálmur
Væru sennilega ekki til ef sauð-
kindarinnar hefði ekki notið við
Morgunblaðið/Olafur Bemódusson
Hofskirkja.
Skagaströnd;
Endurbyggingu Hofskirkju lokið
Skagaströnd.
ENDURBYGGINGU á kirkjunni á
Hofi í Skagahreppi er nú lokið.
Kirkjan, sem er 120 ára um þessar
mundir, er elsta kirkjan í Austur
Húnavatnssýslu og er hún endur-
byggð í upprunalegri mynd.
Þar sem kirkjan er svo gömul fór
endurbyggingin fram í samvinnu við
Húsfriðunardeild Þjóðminjasafnsins
og hafði Hjörleifur Stefánsson, arki-
tekt, umsjón með verkinu fyrir hönd
safnsins. Kári Þorsteinsson annaðist
framkvæmdir fyrir trésmiðjuna Borg
á Sauðárkróki sem sá um endurbygg-
inguna. Verkið kostaði um 2,7 millj-
ónir króna en sóknarbörn Hofskirkju
eru ekki nema um 60 talsins.
í tilefni af því að endurbygging-
unni er nú lokið var haldin guðs-
þjónusta í kirkjunni 26. nóvember.
Þar prédikaði séra Sigurður Guð-
mundsson vígslubiskup og þjónaði
fyrir aitari ásamt sóknarprestinum
séra Ægi Fr. Sigurgeirssyni. Margt
góðra gesta var við athöfnina, þar á
meðal prófasturinn í Húnavatnspróf-
astsdæmi, séra Guðni Þór Ólafsson,
og fyrrverandi sóknarprestur, séra
Pétur Þ. Ingjaldsson.
Að lokinni messu bauð formaður
sóknarnefndar, Kristján Kristjáns-
son, bóndi á Steinnýjarstöðum, til
kaffisamsætis á heimili sínu. Þar
voru margar ræður fluttar og kirkj-
unni bárust góðar gjafir í tilefni end-
urbyggingarinnar.
- ÓB.
Iinausum, Meðallandi, 9. des.
„Nú kemur kaldur vetur, ó, kom
þú líka Drottinn minn.“ Svo kvað
Matthías. Nú finnst okkur vetrar-
koman ekki eins alvarleg og áður
var. Nú eru húsin upphituð og vél-
tæknin komin í stað handaflsins.
Er því óvíst að menn biðji Guð sér-
staklega um vernd, vegna þessara
tímamóta. Sjóferðabænin lagðist
niður þegar vélarnar komu í bát-
— , ana. En við megum samt minnast
þess, að við búum við heimskauts-
bauginn og það mun þurfa að nálg-
ast suðurskautið til að finna meira
illviðrasvæði. Vetrarveðráttan hér
hefur ætíð tekið sinn toll í mannslíf-
um og gerir enn. Sálmur þjóð-
skáldsins fellur því seint úr gildi.
Stutt sumar
Sumarið kom mjög seint, um
mánaðamótin júní-júlí. Það máti
heita að vorið kæmi ekki og áttir
voru oft vestlægar. En eftir að
sumarið kom, var ágæt veðrátta
hér austan Mýrdalsjökuls, og hefur
það varað til þessa. Óvenju lítið
hefur frosið á þessu hausti og hafa
verið stillur og mjög gott veður,
oftast það sem af er vetri.
Búskapur og ferðamál
Þeir bændur sem höfðu nóg hey,
fengu góða lambavigt í haust. Það
þarf mikil hey í vondum vorum og
aldrei meira en á sauðburði: Þeir
sem þá þurfa að spara og komast
illa yfir að sinna lambfénu, þurfa
ekki að búast við fallegum vigtar-
seðlum.
Heyfengur mun vera nokkuð
góður og það viðraði ágætlega á
sláttinn. Eitthvað eru þó hey minni
að vöxtum en verið hefur síðustu
sumur.
Móttaka ferðamanna er orðin ein
búgreinin hér, þótt í litlum mæii
sé. Það var mikið um ferðafólk hér
á „milli sanda“ þetta sumar.
Eftir mesta ferðamannatímann
efndi Hótel Edda til tiiboðsferðar
hér um sveitirnar og fékk kunnuga
menn til leiðbeiningar. Skrifleg
könnun leiddi í ljós, að þátttakendur
voru óvenju hrifnir af ferðinni.
In memoriam
Fastur liður hér í tilverunni er
að á hverju sumri aka rallkappar
Meðallandshringinn. Sérstaklega er
vegakaflinn milli Leiðvallar og Asa
vinsæll og fyrst og fremst sá hluti
hans sem er með ótal beygjum.
Þessi vegur er frá því eftir Skaftár-
elda og aðeins borin möl í og lag-
fært fyrir bíla. Þarna á beygjuveg-
inum sat einn rallbíllinn fastur á
moldarrofi. Og svo mikil tilþrif urðu
í íþróttinni, að einn heimilisköttur-
jnn hér í Meðallandi varð fyrir rall-
inu og dó.
Spámenn
Nú líður ört að 1000 ára afmæli
kristnitökunnar. Þetta var að
nokkru leyti málamiðlun og máttu
menn halda í heiðna siði ef ekki
var hægt að kíkja. Seinna var þetta
aftekið, að sagt er. Ekki er þó víst
að þessi seinni tilskipun hafi náð
fullkomlega hingað austur. Höfum
við lengi verið afskekktir hérna á
milli vatnanna. í Biblíunni mun
vera bannað að fara með spár og
fjölkyngir en það var nú samt viss-
ara að reyna að spá fyrir vetri, og
þótt að færi eitthvað á skjön við
Ritninguna.
Það er í raun og veru ekki langt
T 1 j\ fONSTi
í2J SMlUt |
ÚTILJÓS
Gerðu jólalegt í garðinum
40 ljósa keðja
80 ljósa keðja S&
Tvær 40 ljósa keðjur '
er hægt að samtengja.
24 v straumbreytir
f* •* •
Þessar keðjur eru viðurkenndar
af Rafmagnseftirliti ríkisins
SÆNSK
SMÍÐI
Gunnar Asgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780