Morgunblaðið - 15.12.1989, Síða 54

Morgunblaðið - 15.12.1989, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989 ÍTÖLSK LEÐURSÓFASETT TLkta nautshúð í nokkrum gerðum á frábœru kynningarverði. Einnig nokkrar gerðir afsófaborðum. Itölsk borðstofusett Leðurklœddir stólar Frábært verð Opið laugardag frá kl. 10-22 og sunnudag frá kl. 10-18 •• HUSGOGN Helluhrauni 10, Hafnarfirði, sími 65-1234. LÁTTU EKKI VÍ SA ÞÉR Á BROTT eftirÓlafG. Vigfússon „Ég sá fyrir nokkru auglýsingu í blaði.þar sem þessi fyrirsögn er notuð. Um er að ræða auglýsingu frá greiðslukortafyrirtæki.þar sem fólk er hvatt til að sýna fyrirhyggju og sækja um greiðslukort á næsta afgreiðslustað." Ekki var það nú kortið sem vakti athygli mína, né heldur að ég finni hjá mér þörf fyrir greiðslukort. Heldur það að auglýsingin er mynd- skreytt; par er að ganga brott frá þeim stað sem þau dvöldu á að því er virtist í góðu yfirlæti. Nú voru þau sem sagt á leið út úr þessum aldingarði, fremur döpur á svip, en dýrin horfa með undrun á eftir þeim og skilja ekki neitt í neinu. Einnig segir í textanum: að allt frá upp- hafi mannkyns hafi það þótt synd að þurfa að hverfa frá þegar „við“ höfum ákveðið eitthvað annað. Þessi auglýsing minnir mig á atburð sem varð fyrir langa löngu og Heilög Ritning fjallar um í l.M- ósebók, þegar Adam og Eva syndg- uðu og var vísað úr Eden. Hvort hugmyndin að auglýsingunni er sótt þangað, veit ég ekki, en ef svo er, þá mætti höfundur hennar læra betur biblíusögumar, því hún lýsir þeim atburði ekki rétt, eins og frá er greint í 1. Mósebók. Annars er það merkilegt hve það er ríkt í huga fólks að ávöxtur trés- ins sem etið var af hafi verið epli, það er fjarri öllu sanni. Þótt epli geti verið falleg þá hef ég að minnsta kosti ekki þótt þau girnileg til fróðleiks. Nei, það er af og frá að epli hafi á nokkurn hátt átt sök þar á. Ekki var það skortur á greiðslu- korti sem orsakaði það að Adam og Evu var vísað brott. Þar kom annað til, sem er miklu alvarlegra en að geta ekki dregið upp kortið á heppilegum tíma. Guð hafði skap- að þeim hin bestu skilyrði í aldin- garðinum Eden, en þrátt fyrir það hlýðnuðust þau Satan er hann tældi þau til óhlýðni við Guð. Það segir svo í 1. Mósebók: „Og Drottinn Guð bauð manninum og sagði: „Af öllum tijám í aldingarð- inum máttu eta eftir vild, en af skilningstrénu góðs og ills mátt þú ekki eta, því að jafnskjótt og þú etur af því, skalt þú vissulega deyja.“ 2. kap.16.v_ „Höggormurinn var slægari en öll önnur dýr merk- ur- innar, sem Drottinn Guð hafði gjört. Og hann mælti við konuna: „Er það satt, að Guð hafi sagt: „Þið megið ekki eta af neinu tré í aldingarðinum?" Þá sagði konan við höggorminn: „Af ávöxtum tijánna í aldingarðinum megum við eta, en af ávexti trésins.sem stendur í miðj- um aldingarðinum, „af honum," sagði Guð, „megið þið ekki eta og ekki snerta hann,ella munuð þig deyja.“ Þessi orðaskipti urðu til þess að efi um áreiðanleik orða Guðs varð í hjarta okkar fyrstu foreldra. „En er konan sá, að tréð var gott að eta af, fagurt á að líta og girnilegt til fróðleiks, þá tók hún af ávexti þess og át, og hún gaf einnig manni sínum, sem með henni var, og hann át.“ 3. kap. Þar með var syndin komin inn í heiminn, og afleiðing- arnar sjáum við allt í kringum okk- ur, hvers konar hörmungar mann- legs lífs; styrjaldir, fátækt, hung- ursneyð, sjúkdómar og annað böl sem fylgt hefur mannkyninu æ síðan. En það alvarlegasta í öllu þessu er þó það að manninum var vísað frá Guði. Það innilega sam- band sem var milli Guðs og manns var rofið, maðurinn hafði saurgast og var því alls óhæfur til að vera í nálægð Guðs, sem er heilagur. Því varð maðurinn að hverfa frá Guði. En þrátt fyrir það, að maður- inn hefði syndgað gegn Guði með því að óhlýðnast fyrirmælum Hans, þá eiskaði Guð manninn jafnt eftir sem áður, en Hann hatar syndina sem maðurinn var nú bundinn. Synd er allt sem stríðir gegn boðum Guðs. Hún er ekki aðeins eitthvað sem við gerum. Hún getur einnig verið það sem við erum. Hneigð okkar til hins illa, vantraust okkar á Guði, er synd, sem gerir okkur að syndurum. Syndin er nokkuð sem skilur okkur frá Guði, og veidur því að við erum ekki hæf í nálægð Hans og okkur líður ekki Ólafúr G. Vigfíisson vel þar. Það er eðliseiginleiki hjá okkur sem gerir okkur óhæf til Guðs ríkis. Syndin býr í hjarta okk- ar.Þess vegna er syndin svo alvar- leg. Þrátt fyrir þetta ástand mannsins elskaði Guð hann. Takmark kær- leika Guðs er að ávinna okkur aft- ur, og því var það, að Guð sendi son sinn í heiminn til þess að frelsa fallið mannkyn. Það dugði ekkert kort hvorki greiðslukort né annað kort, ekkert sem við eigum, eða höfðum yfir að ráða gat hjálpað okkur til þess að eignast frið við Guð, eða að bijóta á bak aftur vald syndarinnar; við vorum guðvana. Jesús sagði: „Ég er dyrnar. Sá sem kemur inn um mig, mun frels- ast.“ Jóh.10.9. Hann sagði einnig: „Ég er vegurinn sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föþurins, nema fyrir mig.“ Jóh.14,6. Hér sjáum við von okkar, lausn frá synd og dauða. Meginefni Ritningarinnar er, að segja okkur frá því að Guð hafi í Jesú Kristi átt frumkvæðið að því að leysa okkur frá syndum okkar. „Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn til þess, að hver, sem á hann trúir, glatist ekki heldur hafi eilíft líf.“ Jóh.3,16. „Því að í honum þóknað- ist Guði að láta alla fyllinguna búa og að koma fyrir hann öllu í sátt við sig.hvort heldur er það, sem er Kœliskápur, gerð KF-265, 200 Itr. kœlir og 63 Itr. frystir. NILFISK Ryksuga með nýjum lOOOw mótor. EKKERT ELDHUS AN EMIDE Brauð- og áleggshnífur. (DeLonghi) Örbylgjuofn og grillofn í einum og sama ofninum. ASKO ASEA Þvottavél, gerð 11002. Rétt verð kr. 54.220 JÓLATILBOÐSVERÐ K R . 4 7.4 9 0 * Rétt verð kr. 18.780 JOLATILBOÐSVERÐ K R . 1 5.9 9 0 * Rétt verð kr. 5.760 JOLATILBOÐSVERÐ K R . 4 . 9 9 0 * Rétt verð kr. 34.200 JOLATILBOÐSVERÐ K R . 2 9.9 9 0 * Rétt verð kr. 76.990 JOLATILBOÐSVERÐ K R . 6 9 . 9 9 0 * ' uppgefið verð er staðgreiosluverð. jFOnix HATÚNI 6A REYKJAVIK • SÍMI 91 -24420

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.