Morgunblaðið - 15.12.1989, Síða 59
MORGyNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989
59
Ingvar Agnarson
Leiðarvísir
um sijörnu-
merkin
SKÁKPRENT hefur gefið út bók-
ina Leiðsögn til stjarnanna eftir
Ingvar Agnarsson.
Undirtitill bókarinnar er: Stuttur
leiðarvísir með myndum til að
þekkja björtustu stjörnur himins og
nokkur stjörnumerki, ásamt fáein-
um skýringum um stjörnugeiminn.
Það kemur fram í. bókinni, að hún
er hugsuð sem sú fyrsta í þriggja
bóka flokki og að þær seinni muni
heita Leiðsögn um sólkerfið og
Leiðsögn til vetrarbrautanna.
Fyrsti kafli þessarar bókar heitir
Fróðleiksmolar um stjörnurnar og
annar kaflinn Stjörnumerki og
stjörnur. Síðan eru atriðaskrá og
viðauki í myndum og máli.
Bókin er 136 blaðsíður.
Nonni og
Manni
HJÁ Almenna bókafélaginu er
komin út bókin Nonni og Manni.
I kynningu AB segir: „Nonni og
Manni er sannkölluð ævintýrabók.
Henni er skipt í tvær sögur, Nonni
og Manni fara á sjó og Nonni og
Manni fara á fjöll. í fyrri sögunni
segir meðal annars frá því þegar
þeir bræður lenda í sjávarháska á
Eyjafirði, sleppa með naumindum
úr stórhættum og er loks bjargað
af frönsku herskipi. Síðari sagan
er ævintýri á fjöllum. Þar komast
þeir bræður meðal annars í kynni
við mannýgt naut og hitta jafnvel
útilegumenn."
Nonni og Manni er 155 blaðsíður
að stærð. Prentvinnslu annaðist
Steinholt hf. en bókband Félags-
bókbandið-Bókfell hf.
VEISLUELDHUSID
ÁLFHEIMUM 74
• Veislumatur og öll áhöld.
• Veisluráðgiöt.
• Salarleiga.
• Málsverðír í fyrirtæki.
• Tertur. kransakökur.
• Snittur og pinnamatur.
686220-685660
Fróðleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
fflovjyunMnfrifo
VERÐLAUNA-
SKALDSAGA
SEM GRÍPUR LESANDANN
STERKUM TÖKUM
Sigríöur Gunnlaugsdóttir hlaut 1. verölaun í
skáldsagnakeppni I.O.G.T.fyrir þessa athyglis-
veröu sögu, LÍFSÞRÆÐI. Sagan segir frá
endurfundum átta kvenna, sem voru skóla-
systur í menntaskóla. Ýmislegt hefur á dag-
ana drifið; margt farið öðruvísi en ætlaö var;
annaðeins og aö varstefnt.Þaö er tilhlökkun-
aref ni að hittast. Samt reynist sumum það sárt.
Lífsþræðir eru stundum einkennilega ofnir.
Þeir sem velja vandaðar, viðurkenndar og
skemmtilegar bókmenntir velja LÍFSÞRÆÐI.
HERMANNS
VILHJÁLMS-
SONAR FRÁ
MJÓAFIRÐL
Skráð af Vilhjálmi Hjálmarssyni
fyrrverandi ráðherra.
Reykvíkingar þekktu Hermann undir
nafninu Hemmi, oft meö viðurnefni dregiö
af því aö hann togaðist stundum á við
stráka um túkall eða krónu.
Viihjálmur Hjálmarsson segir sögu
föðurbróður síns á gamansaman og
hugþekkan hátt. Þess vegna er unun
að lesa hana þó að hún fjalli um
óvenjulegt I ífshlaup manns er aldrei fékk
notið hæfileika sinna.
FRÆNDI KONRÁÐS -
FÖÐURBRÓÐIR MINN er bók fyrir þá
sem vilja ÖÐRUVÍSI ævisögu sagða af
hfeinni snilld.
Almenna auglýsingostofon hf. / SlA