Morgunblaðið - 15.12.1989, Síða 60

Morgunblaðið - 15.12.1989, Síða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989 HELGAFELL SlÐUMÚLA 29 SlMI 6-88-300 yAmmmm steinsteypu. Lettir meöfærilegir viðhaldslitlir. FTtniittuiBt tútfsiipivfiit • trrft rjömt - bæibi STETrmtu uunrau situuli - vu iJóhanna Kristjónsdóttir hefur einstakt lag á að leita uppi framandi fólk og staði og leggur áherslu á að njóta ævintýra augnabliksins á hverjum stað. Hún fékk einróma lof gagnrýnenda fyrir bók sína Fíladans og framandi fólk sem út kom í fyrra en nú birtir hún landsmönnum ferskar og ævintýralegar ferða- minningar frá enn fleiri furðuströndum. í nýju bókinni Dulmál dódófuglsins fer Jóhanna á kostum og er skemmtilegri og hressari en nokkru sinni fyrr. Lesandinn fylgir henni meðal annars til Rúanda, Máritíus, Malawi, Kúwait, íraks og Japans og það er sama hvar hún fer, spennandi, skondnir og óvæntir atburðir gerast nánast við hvert fótmál. Sértu að leita að verulega skemmtilegri lesningu í jólapakkann handa einhverj- um í fjölskyldunni, þá er þetta bókin. Dulmál dódófuglsins - óborganlegar ferðaminningar! DUÐ GLINGABO eftir Helga Jónsson. "Skemmtilegt efni, krökkum a gelgjuskeiði hollt til umhugsunar...bók sem unglinga mun gleöja." Sigurður Haukur Guöjónsson, Morgunblaðinu. 1 i 78 - 62558 Símar: Akraneskirkja ■ TÓNLEIKAR Á AKRANESI- Kirkjukór Akraness heldur jólatón- leika í safnaðarheimilinu Vinaminni sunnudaginn 17. desember og hefj- ast þeir klukkan 17. Flutt verða aðventu- og jólalög frá ýmsum lönd- um. Með kórnum koma fram söng- konurnar Guðrún Ellertsdóttir, Dröfri Gunnarsdóttir, Helga Að- alsteinsdóttir og Unnur Arnar- dóttir. Hljóðfæraleikarar verða Fríða Lárusdóttir píanó, Guðjón Magnússon 1. fiðla, Guðlaugur Ingi Hauksson 2. fiðla, Bryndís Bragadóttir lágfiðla, Ásdís Arn- ardóttir knéfiðla, Ólafúr Flosason óbó og Eðvarð Lárusson gítar. Stjórnandi verður Einar Örn Ein- arsson organleikari Akraheskirkju. Lofta- plötur og lím Nýkomin sending Þ.ÞORGRfMSSON&CO Ármúla 29, Reykjavík, sími 38640 vciöimannsins Ótrúlegt en satt! Verð aóeins kr. 2.950.- stgr'. RADIOVIRKINN S.10450/20610 Ríó skiptír um ham Hljómplötur Sveirtn Guðjónsson ÞEGAR menn fara að nálgast miðjan aldur grípur oft um sig torkennilegur fíðringur, sem brýst fram með ýmsu móti. Sum- ir skilja við konuna sína og fá sér aðra yngri. Sumir láta sér nægja að skipta um hárgreiðslu eða breyta til í klæðaburði og enn aðrir gerast poppsöngvarar. Á nýrri hljómplötu Ríó, „Ekki vill það batna“, eru ískyggileg teikn um hið síðastnefnda þar sem poppsveitin Ríó, skipuð sex eða sjö manns, er að ryðja sér til rúms á knstnað gamla, góða Ríó triósins, gleði- og þjóðlaga- söngsveitarinnar ástsælu, sem yljað hefúr mörgum hölum og sprundum um hjartarætur á undanförnum áratugum, og er það skaði. Og þó, ef til vill er það bara fjárans íhaldssemin í mér eða einhver misskilin fortí- ðardýrkun, sem fær mig til að fella dóma með þessum hætti, ekki síst þar sem þarna eiga í hlut ágætir kunningjar mínir og góðir drengir. En ég vil ekki hræsna gagnvart þeim og þess vegna segi ég hreint út: Ég sakna dálítið þess hugljúfa þels, sem jafrian fylgdi liinu eina, sanna Ríó tríói. Margt er þó ánægjulegt við þessa nýju plötu. Fyrir það fyrsta sannar hún að Gunnar Þórðarson býr enn yfir neista tónsmiðsins og hefur ekki glatað þeim hæfiieika að semja góða og skemmtilega popptónlist. í annan stað kemur Jónas Friðrik aftur fram á sjónar- sviðið eftir iangt hlé, með öndvegis kveðskap í farteskinu, eins og fyrri daginn. Hljóðfæraleikur á plötunni er líka með miklum ágætum eins og við er að búast þegar í hlut eiga menn á borð við Gunnar Þórðar- son, Gunnlaug Briem, Jon Kjell, Eyþór Gunnarsson, Árna Scheving og Magnús Einarsson, en sá síðast- nefndi er nú orðinn fastur liðsmað- ur í Ríó- poppflokknum. Á stöku stað örlar þó fyrir ofhlöðnum hljóð- gervla-útsetningum með yfirþyrm- andi „brassi“, í líkingu við þann óskajinað sem var nærri búin að ganga frá Gunna Þórðar í þessum bransa fyrir nokkrum árum. Sem dæmi um þetta má nefna lagið „Það reddast“. En þetta er auðvitað sparðatín- ingur. Mörg lögin eru bráð- skemmtileg og vel flutt og vil ég þar nefna titillagið „Ekki vill það batna“, síðustu lögin á báðuip hlið- um „Ástfanginn" og „Létt“, sem bæði eru gullfalleg og vel sungin og „Ellilaunin", sem sver sig dálí- tið í ætt við þá tónlist sem Ríó flutti hér á,árum áður. Niðurstaðan er sem sagt sú, að ef menn geta sætt sig við hamskipti Ríó, má hafa talsverða ánægju af þessari plötu og það skiptir jú öllu máli. Ekið á Subaru EKIÐ var á Subaru-bifreið á bíla- stæði við austurgafl verslunar- innar Fjarðarkaupa í Hafnarfirði síðdegis á þriðjudag. Sá sem tjón- inu olli ók á brott. Subaru-bifreiðin, sem er ný, grá skutbifreið, er mikið skemmd á hægri afturhurð. Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við rannsóknarlögregluna í Hafnar- firði. Skotin! Saga um vináttu ncfgi Jamuuon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.