Morgunblaðið - 15.12.1989, Síða 66

Morgunblaðið - 15.12.1989, Síða 66
Minning: Björgvin Bjarna- son fv. bæjarfógeti Fæddur 12. júlí 1915 Dáinn 10. desember 1989 Björgvin Bjarnason, fyrrverandi bæjarstjóri og síðar bæjarfógeti og sýslumaður, er látinn. Hann andað- ist á Akranesi 10. des. sl. Björgvin Bjarnason tengdist fjöl- skyldunni, er hann giftist systur minni, Sigurbjörgu Guðmundsdótt- ur, fyrir hálfum fimmta áratug. Kynni okkar urðu einstaklega góð og leiddu til einlægrar vináttu, enda var hann gæddur einstakrí ljúf- mennsku og góðvild, sem rann svo vel saman við höfðinglegt yfirbragð hans. Þessa eiginleika rek ég beint til foreldra hans, Svanhildar Einars- dóttur og Bjarna Kjartanssonar, en þau voru Skaftfellingar og áttu fyrst heima í Vík í Mýrdal og síðar á Siglu- firði. Systkínin voru fjögur, Einar, Sólveig, Kjartan og Björgvin. Einar skipstjóri er einn á lífi. Eg kynntist nokkuð systkinunum öllum og for- eldrum þeirra og þar fór svo sannar- lega saman góðvild og gjörvuleiki. Björgvin Bjarnason stundaði menntaskólanám sitt á Akureyri. Síðan lá leið hans í Háskóla íslands, þar sem hann lauk embættisprófi í lögfræði árið 1944. Hann starfaði við kennslu og málflutning á Siglu- firði um skeið og þar reistu þau hjón- in sitt fyrsta heimili. 1947 fluttu þau til Sauðárkróks, þar sem Björgvin gerðist bæjarstjóri hins nýstofnaða bæjarfélags. 1958 tók hann við emb- ætti sýslumanns í Strandasýslu og 1968 varð hann bæjarfógeti á ísafirði og sýslumaður ísfirðinga. Árið 1973 var hann svo skipaður bæjarfógeti á Akranesi. Á þessum vettvangi ávann Björgvjn sér traust allra er kynntust honum. Ég minnist uppbyggingarinnar á Sauðárkróki á bæjarstjórnarárum hans og nefni aðeins hitaveituna og skipulagningu íþróttasvæðisins, sem hann átti svo ríkan þátt í að staðsetja á Fiæðun- um. Björgvin Bjamasyni var margt til lista lagt. Hann var víðlesinn í ljóð- um og öðrum bókmenntum, kunni góð skil á sögu lands og þjóðar, var listelskur, hafði yndi af myndlist og tónlist og söng í kórum. Hann var félagslyndur og íþróttamaður góður og á yngri árum keppnismaður í knattspyrnu og handknattleik. Hann fylgdist vel með á þeim vettvangi og var tíður gestur á knattspyrnu- völlum. Ég minnist þess hve gott var að eiga leik með honum og hvemig hann studdi okkur sem yngri vomm og gaf okkur tækifæri í leikn- um, sem hann hefði sjálfur getað nýtt sér. Ég naut leiðsagnar hans við lax- veiðar og fór með honum í margar laxveiðiár. Dagarnir við árnar eru mér algjörlega ógleymanlegir af ýmsum ástæðum, en fyrst og fremst vegna nærgætni hans við lífríkið allt og drengskapinn er hann sýndi mér við veiðarnar. Ég minnist út- reiða okkar um Gönguskörð og Tröllabotna og víðar um gmndir Skagafjarðar og ótalmargra annarra stunda. Heimsóknir mínar, konu minnar og sonar til Sigurbjargar og Björg- vins urðu líka margar. Ég tjáði þeim áhyggjur mínar og gat rætt við þau um drauma framtíðarinnar. Heimilið var einstaklega glæsilegt, gestrisnin frábær, hver sem í hlut átti. Börnin þeirra þtjú, Svanhildur Dýrleif, Anna Halla og Bjarni Guð- mundur, bera sterkt svipmót for- eldranna. Þau búa á Sauðárkróki, Reykjavík og Egilsstöðum. Tengda- börnin og barnabörnin vom Björgvin einkar kær og hamingjustundir áttu þau margar hjá afa og ömmu. Björgvin Bjarnason var tengdur fjölskyldu minni traustum böndum. Hann var mikill vinur foreldra minna og okkar systkinanna, maka okkar og barnanna og lét sér einkar kært um aldraða móður okkar. Fyrir þetta emm við þakklát og munum ætíð minnast hans er við heyrum góðs manns getið. Sigurbjörg og Björgvin vora ákaf- lega samrýnd hjón, enda áttu þau svo margt sameiginlegt, börnin glæsileg og hæfíleikarík. Veikindin urðu öllum mikið áfall. Hann hafði nokkra fótavist flesta daga, bar sig vel þótt sýnt væri að hverju dró. Ég veit að það var honum mikils virði og Sigurbjörgu og börn- unum einnig, að hann gat verið heima til hinsta dags og notið umönnunar eiginkonu sinnar. Vinum þeirra á Akranesi og annars staðar, sem léttu sporin í veikindunum og nú síðustu dagana, emm við afar þakklát. Við lok jarðvistar Björgvins Bjarnasonar em það minningarnar sem eftir lifa og í þessu tilfelli em þær slíkar að engan skugga ber á. Guð varðveiti Sigurbjörgu, börnin þeirra öll, bróðurinn, frændfólk og vini alla. Ég bið Guð að gefa honum frið, „en hinum líkn, er lifa“. Blessuð sé_minning hans. Árni Guðmundsson Björgvin Bjarnason fyrrverandi bæjarfógeti á Akranesi er látinn. Leiðir okkar lágu saman hin síðari ár og vil ég rita fáein þakklætis- og kveðjuorð, nú þegar hann er lagður til hinstu hvílu. Er ég kom að Brunabótafélagi íslands í júlí 1981 var Björgvin Bjarnason þar fyrir í stjóm félags- ins. Mér er enn í fersku minni hversu vel Björgvin tók mér og hversu fljótt varð með okkur hið besta samstarf og hin dýpsta vinátta. Ég bjó áð vináttu hans og hollráðum æ síðan, uns yfir lauk. í langri og strangri sjúkdómslegu sýndi Björgvin mikið æðraleysi, rólyndi og hugrekki. Sá þáttur mannkosta hans gleymist engum okkar, sem þá reyndum. Björgvin var maður íhugull og rökfastur. Hann fór hins vegar ekki fram með hávaða eða fyrirgangi og hann setti jafnan fram skoðanir sínar og vilja áreitnislaust, þótt aldr- ei leyndi sér málefnalegur þungi og festa. Fáa menn hef ég hitt á lífsleið- inni, sem báru virðingu fyrir skoðun- um annarra með jafn falslausum hætti og Björgvin Bjarnason og óþreytandi hlustaði hann á röksemd- ir og útskýringar annarra á hinum ýmsu hliðum málanna. Aldrei samt lét hann hrekja sig af leið. Alltaf vildi hann hafa það, sem sannara reyndist. Hann fletti hispurslaust öllum umbúðum burtu í leit að kjama hvers máls og var einkar fundvís. Hógværð hans, félagslyndi og greind greiddi mjög götu hans í samskiptum við aðra menn. Maður með þessa eiginleika hlaut að veljast til trúnaðarstarfa og ábyrgðarstarfa í samfélaginu. Þegar breyting var gerð á lögunum um Bmnabótafélag íslands árið 1955 og nýstofnað fulltrúaráð þess kaus í fyrsta skipti félaginu stjórn og varastjórn var Björgvin Bjarnason valinn í þann hóp. Síðan era 34 ár og í hvert skipti síðan var Björgvin endurkosinn í þennan hóp og um hríð var hann formaðúr stjórnar. Hann er raunar eini maðurinn, sem hefur verið í þessari forustusveit Bmnabótafélagsins óslitið frá upp- hafi. Björgvin hafði mikinn áhuga á málefnum félagsins og sinnti þeim af kostgæfni og framsýni. Hann var vel að sér í sögu félagsins og aðdrag- anda að stofnun þess og taldi það kallað til þýðingarmikilla samfélags- legra hlutverka í öndverðu. Fyrir árið 1955 sinnti Bmnabótafélagið einvörðungu brunatryggingum en með lagabreytingunum á því ári fékk félagið lögheimildir til alhliða vá- tryggingarstarfsemi. Það var því í stjórnartíð Björgvins, að félagið sótti fram á öllum sviðum vátrygginga og starfrækti í ársíok 1988 allar greinar vátrygginga, sem tíðkaðar em á íslandi. Hann var mjög áhuga- samur um stofnun BÍ Líftrygginga gt. árið 1985 og einnig um stofnun Vátryggingafélags íslands hf. á þessu ári, enda stjórnarmaður í þeim félögum báðum til dánardægurs. Ég hlýt því á þessari stundu að færa fram þakkir Brunabótafélags íslands, stjórnar þess og fulltrúaráðs íyrir það fórnfúsa og farsæla starf, sem Björgvin Bjarnason vann í þágu félagsins á hinum langa stjórnar- ferli sínum. Ennfremur flyt ég þakk- ir til hans frá Vátryggingafélagi ís- lands hf. Björgvin Bjarnason var hlýr og ljúfur persónuleiki og hrókur alls fagnaðar. Hann var söngmaður mik- ill, íþróttagarpur, hafði vísnamergð á hraðbergi og kunriTvel að segja sögur. Jafnframt var hann kurteis maður með afbrigðum og samúðar- fullur, þegar það átti við, og lá ekki á liði sínu, ef hann gat leyst vanda einhvers. Það var unun að vera sam- ferða slíkum manni, það var gott að vera í návist hans og finna hjarta- hlýjuna og gleðina, sem streymdi ævinlega frá honum. Sár harmur er nú við fráfall Björgvins kveðinn að Sigurbjörgu konu hans, bömum þeirra og barna- börnum. Sigurbjörg stóð við hlið manns síns gegnum tíðina og sóttu þau styrk hvort í annað, en svo virt- ist sem þau væru ætíð nýtrúlofuð. Þó reyndi mest á Sigurbjörgu, þegar baráttan við hinn geigvænlega sjúk- dóm var sem grimmilegust og báðum ljóst, að hún var vonlaus. Við sem stóðum hjá og fundum hvílík stoð hún var, undruðumst og dáðumst að styrk hennar. Ég og Ragna kona mín sendum Sigurbjörgu, börnum hennar og barnabörnum hugheilar samúðarkveðjur. Ingi R. Helgason Kveðja til bekkjar- bróður og vinar Fimmtán ára var ég þegar ég var fyrst sendur að heiman til vanda- lausra og þá í Menntaskólann á Akureyri. Þetta var snemma árs 1933. Svo vildi til að ég hafði aldrei setið í skóla áður, ekki einu sinni barnaskóla, og kunni því lítt að haga mér í þess háttar samfélagi. Ég fékk að setjast sem óreglulegur nemandi í annan bekk, og þó að ég kæmi norður á miðjum vetri var mér holað niður í heimavistinni í þeirri vistar- vem á háalofti Norðurvistanna, sem kölluð var „Baðstofa“, enda undir súð á báða vegu, en þó sæmilega rúmgóð eftir því sem þá var talið, enda voru þarna hýstir 5-6 nemend- ur, kannske 7 þegar flest var. Þarna átti ég samastað þennan fyrsta hálfa vetur í skólanum. Heimalningum, sem ég var, leið þarna vel, og her- bergisfélagarnir urðu allir vinir mínir. Þrír þeirra urðu prestar: Sr. Sigurður Kristjánsson á ísafirði, sr. Guðmundur Helgason í Neskaup- stað, sem voru miklu elstir okkar, og sr. Erlendur Sigmundsson á Seyðisfirði, síðar biskupsritari, sem var á mínum aldri. Samt varð það líklega Björgvin Bjarnason sem helst varð sálusorgari minn þennan fyrsta vetur fjarri foreldrahúsum. Hann varð mér brátt sem traustur og tryggur eldri bróðir. Aðrir sem þarna áttu skemmri vist síðari hluta þessa vetrar vom Þorsteinn frændi minn Halldórsson, síðar hárskeri hér syðra, og Oddur Sigurjónsson skólastjóri í Neskaup- stað og í Kópavogi. Oddur var einn- ig talsvert eldri en við sem yngstir vorum í þessum hópi, en miseldri í skólum var þá miklu meira en nú gerist. Einhvern veginn tókst svo til, eins og áður var látið í skína, að nánust vinátta tókst með okkur Björgvin Bjamasyni frá Siglufirði sem var einn þessara herbergisfélaga. Hann var tveimur ámm eldri en ég, stór- myndarlegur maður og glæsilegur þá þegar og íþróttamaður. Ekkert af þessu var ég. En samt tókst með okkur einlæg vinátta sem entist lengi. Þegar dvöl okkar í heimavist- inni lauk, gerðumst við herbergis- félagar í leiguhúsnæði í nágrenni skólans, nánar til tekið í Hrafnagils- stræti 4 hjá Jóni Guðlaugssyni bæj- argjaldkera á Akureyri_ og spari- sjóðsstjóra og frú Maríu Árnadóttur, konu hans, en sonur þeirra var Árni Jónsson, sem var bekkjarbróðir okk- ar um skeið, síðar amtsbókavörður á Akureyri, bráðgáfaður maður, skáldmæltur og listhneigður, en heilsuveill og varð m.a. þess vegna ekki samferða okkur til stúdents- prófs. Síðustu tvo vetur okkar Björgvins í Menntaskólanum á Akureyri deild- um við með okkur tveimur litlum herbergjum í kjallaranum á Hrafna- gilsstræti 4, höfðum annað fyrir svefnherbergi en hitt fyrir „stofu“. Við vorum ólíkir um margt. Hann var manna samviskusamastur við lestur, íþróttaiðkanir og aðrar dyggðir góðra „skólaþegna", eins og Sigurður meistari kallaði okkur, en það var víst meira en hægt var að segja með sanni um mig. Samt bar aldrei skugga á vináttu okkar Björgvins, og var sambúð okkar þarna með öllu árekstralaus. Get ég vart hugsað mér dagfarsprúðari mann en Björgvin Bjarnason, og það get ég vel játað nú á skilnaðar- stundu, að um margt varð hann mér til fyrirmyndar, enda að öllu vel gerður, og vona ég að ég beri þess enn einhver merki. Það var ekki laust við að maður tæki eftir því undir lok skólavistar okkar á Akureyri að Björgvin væri farinn að draga sig í eftir skag- firskri heimasætu, Sigurbjörgu Guð- mundsdóttur, sem þarna var í Akur- eyrarskóla um þessar mundir. Það var svo sem ekkert einsdæmi að pilt- ar og stúlkur drægjust hvort að öðru, en hjá þeim stóð þessi samdráttur lífið á enda. Með þeim var hið mesta jafnræði, og fram á síðustu ár vöktu þau hvarvetna athygli fyrir glæsileik og fagra framkomu.' Sigurbjörg kveður nú 'ífsfömnaut sinn eftir meira en 45 ára sambúð, ásamt þremur uppkomnum börnum þeirra. Eftir að skólavist okkar Björgvins lauk áttum við sjaldan samleið, bjuggum lengst af fjarri hvor öðram, ég ýmist hér syðra eða erlendis, hann var bæjarstjóri á .Sauðárkróki/ sýslumaður á Hólmavík og síðar á ísafirði, loks bæjarfógeti á Akra- nesi. Það var helst að fundum bæri saman á stúdentsafmæium á margra ára fresti, nú síðast á 50 ára af- mælinu 1987. Þó má ég ekki gleyma því, að þeir bekkjarbræður mínir, Björgvin og Jón Eiríksson, fyrmm skattstjóri á Vesturlandi, gerðu mér báðir þann sóma að heimsækja mig, ásamt kon- um sínum, á sjötugsafmæli mínu sama haust. Það gerðu raunar fleiri bekkjarsystkin mín, en ekki munu önnur hafa verið lengra að komin. Kynni mín af Björgvin Bjarnasyni ungum voru á þá leið, að hann hef- ur verið mér kær alla tíð. Þá sjaldan fundum hefur borið saman hefur mér fundist sem ég væri að hitta kæran bróður eftir langan aðskilnað. En þó hefur jafnan verið eins og ekkert hafi breyst sem máli skipti: Við skildum hvor annan eins og fyrr, hvort sem taiað var í góðlátlegum stríðnistón, sem okkur var báðum nokkuð lagið, eða í fyllstu alvöm og trúnaði. Svipað mætti raunar segja um fleiri af bekkjarsystkinunum sem urðu stúdentar frá Menntaskólanum á Akureyri 1937. Þetta var eins og stór systkinahópur. Kæra Sigurbjörg! Um leið og ég þakka ykkur Björgvin ágætar og ógleymanlegar — en alltof fáar — samvemstundir á liðnum áratugum, votta ég þér og þínum hjartanlega samúð okkar hjóna á þessari skilnað- arstundu og bið ykkur öllum Guðs blessunar á ókominni tíð. Jón Þórarinsson Kveðja frá Lions- klúbbi Akraness í dag er gerð frá Akraneskirkju útför Björgvins Bjarnasonar, fyrr- verandi bæjarfógeta á Akranesi, sem andaðist hinn 10. desember sl. Björgvin fæddist í Vík í Mýrdal hinn 12. júlí 1915 og vora foreldrar hans hjónin Svanhildur Einarsdóttir og Bjarni Kjartansson, sem þá var kaupfélagsstjóri í Vík en gerðist síðar forstjóri Áfengis- og tóbaks- verslunar ríkisins á Siglufirði. Þegar Björgvin hafði aldur til stundaði hann nám við Menntaskólann á Akureyri og brautskráðist þaðan sem stúdent vorið 1937. Síðan lá leiðin í Háskóla íslands, en þar lauk hann kandidatsprófi í lögfræði lýð- veldisvorið 1944. Að loknu prófi stundaði Björgvin málflutning á Si- glufirði og kenndi við gagnfræða- skólann á Siglufirði til vorsins 1947, er hann var ráðinn bæjarstjóri á Sauðárkróki. Gegndi Björgvin starfi bæjarstjóra til 15. febrúar 1958 er hann var skipaður sýslumaður í Strandasýslu. Hann var skipaður sýslumaður í Isafjarðarsýslu og bæj- arfógeti á ísafirði frá 1. október 1968 og loks bæjarfógeti á Akra- nesi frá 1. október 1973, en því embætti gegndi hann til 1. nóvem- ber 1985. Eins og rakið hefur verið var starfsvettvangur Björgvins Bjarna- sonar víður og fjölbreyttur, en þó mest á sviði sveitarstjórnar og sýslu- stjórnar. Honum vom og falin marg- háttuð trúnaðarstörf á því sviði. Sem bæjarstjóri sat hann í og stýrði störf- um margra nefnda bæjarfélagsins. Hann var formaður skólanefndar Hólmavíkur 1958-1968. í yfirkjör- stjóm Vestíjarðakjördæmis 1959- 1973. í stjóm Brunabótafélags ís- lands frá 1961 ogformaðurDómara- félags íslands 1972-1973. Þegar Björgvin Bjarnason fluttist til Akraness gerðist hann félagi í Lionsklúbbi Akraness, en hann hafði áður starfað í tveimur öðmm Lions- klúbbum og hafði ríka reynslu af klúbbstarfi. Við félagarnir í Lionsklúbbi Akra- ness nutum samskiptanna við Björg- vin Bjarnason og ekki síst glæsilegr- ar framkomu hans, prúðmennsku og hógværðar. Hann var maður tineke Folkers og o;oy 0„.o, 'l ,0.. \ g&’ •p?yA. • —•-* Jbv#í:n ;0:. '0& fjr-b -o /y.“-. t> AS émm Sérhönnuðir á fatnaði íyfirstærðum. Jóiafatalínan komin. HánA. Sérverslun Miðbæ Reykjavík Sími 32347 Nafnnr.: 0684 1511

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.