Morgunblaðið - 15.12.1989, Page 68

Morgunblaðið - 15.12.1989, Page 68
-68 MORGUNBMÐIÐ FÖSTUDAGUR 15, DKSKMBKU 1989 t Eiginmaður minn, KRISTMUNDUR ANDRÉS ÞORSTEINSSON málarameistari, Breiðvangi 26, Hafnarfirði, lést í Landspítalanum 13. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Erla Sigurjónsdóttir. A t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, HELGI AXELSSON, Valdarási, verður jarðsunginn frá Víðidalstungukirkju laugardaginn 16. des- ember kl. 14.00. Sætaferðir verða farnar frá Umferðarmiðstöðinni kl. 9.00. Elisabet Vigfúsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG ÁSGEIRSDÓTTIR, Lönguhlfð, Seyðisfirði, andaðist í Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar föstudaginn 8. desember sl. Jarðarförin fer fram á Seyðisfirði laugardaginn 16. desember kl. 14.00. Kristján Þórðarson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. { * t Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, bróðir og afi, SVEINBJÖRN KRISTINSSON, verður jarðsunginn frá Seljakirkju mánudaginn 18. desember kl. 13.30. Halla Ruth Sveinbjörnsdóttir, Óðinn Kristjánsson, Björn Kristinn Sveinbjörnsson, Kristín Gunnarsdóttir, Gísli Örn Arnarsson, Ragnheiður Jónsdóttir, Guðlaug K. Bergmann, Margrét Dóra Kristinsdóttir og barnabörn. t Okkar innilegustu þakkir til.allra þeirra er sýndu hlýhug og samúð við fráfall og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓHANNS ADÓLFSSONAR, Klettahlfð 10, Hveragerði. Alda Dagmar Jónsdóttir, Margrét Gyða Jóhannsdóttir.Sigurður Guðmundsson, Elín Harpa Jóhannsdóttir, Viðar Ingvarsson, Björn Brynjar Jóhannsson og barnabörn. t Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför RAGNHILDAR JÓNSDÓTTUR Ijósmóður, Analandi 3, Reykjavík, sem lést 25. nóvember 1989. Útför hennar fór fram 7. desember sl. í kyrrþey að hennar ósk. Sigurlína Mari'a Gi'sladóttir. t Innilegar þakkirfyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ELÍNAR MARGRÉTAR JÓSEPSDÓTTUR, Droplaugarstöðum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða. Guðrún Jósepsdóttir, Jón Jóhannes Jósepsson, Málfríður Marfa Jósepsdóttir, Kristján Benedikt Jósepsson, Ingibjörg Sigurðardóttir, Gestur Geirsson, Sigurjón Árnason. Minning: Bjarni F. Halldórs- son fv. skólasijóri F. 6. mars 1922 D. 6. desember 1989 Bjarni Fertam Haildórsson steig skyndilega yfir þröskuldinn til sælli heirna miðvikudagsmorguninn 6. des. sl. Sá atburður kom bæði ætt- ingjum og vinum mjög að óvörum, þar sem hann var enn að allra dómi fjörmikið hraustmenni, sem menn töldu að ætti niarga daga ólifaða við sæmd og heiður. Gömul kynni koma jafnan fyrst í huga við svo sviplegt tilfinningalegt áfall, sem dauði góðs vinar er. Kg hygg að skólasystkinum hans, sem nú eru orðin roskið fólk, verði hann alltaf minnisstæður sökum mikilla mannkosta, sem hann var gæddur og mannlegrar hlýju í viðmóti, sem geislaði frá þessum hraustlega skóla- bróður strax á unglingsáruni. Strax á fyrstu stigum skóla- göngunnar kom skýrlega fram, að Bjarni var fljúgandi greindur og skarpur til náms, en minnisstæðastur er hann gömlum vinum og félöguni fyrir hið sívakandi glaða sinni og óvílsemi, sem feykti hégómlegu þrautavíli út í hafsauga. Hann át.ti ættir að rekja til Snæfjallastrandar og Grunnavíkur. Báðir foreldrar hans, sæmdarhjónin Ólöf Helga Fert- amsdóttir og Halidór Maríus Ólafs- son voru þaðan komin, en þau flutt- ust til ísafjarðar meðan Bjarni var í bernsku. Hann var elstur sjö systkina og óblíð lífskjör þeirra tíma blésu ungu fólki jafnan ekki miklum móð í bijóst til langrar skólagöngu. Hægt er að segja að Bjarni hafi brotist til mennfa, því að hvort tveggja var, að á þeim tíma var til þeirra hluta enga samfélagslega hjálp að fá fyrir efnalítið fólk og leiðin giýtt vegna harðneskjulegrar takmörkunar að menntaskólanámi. Bjarni varð stúdent frá MA 1942 og cand. oecon frá HÍ 1947. Á því ári kvæntist hann Guðrúnu Soffíu Björnsdóttur frá Arney í Breiðafirði, en allir kunnugir báðum vissu gjörla, að segullinn, sem dró þau saman, var gagnkvæm ást og uinhyggja. Börn þeirra eru sex: Gunnar Orn Arnarson, kerfisfræðingur (stjúpson- ur Bjarna), Anna Ólöf, húsfreyja í Hafnarfirði, Björn, lögreglumaður í Njarðvík, Einar Sigurður, rafmeistari á Akureyri, Fanney Sigurlaug, hús- freyja í Keflavík, og Bjarni Svanur, viðskiptafræðingur í Reykjavík. Öll eru systkinin sérlega velkynnt fjöl- skyldufólk. Þegar þau hjón fluttust til Ytri- Njarðvíkur 1949 og Bjarni réðst til kennslustarfa vissu allir kunnugir málum, að þar settist hámenntaður og starfafús maður í kennarastólinn. Veraldleg efni voru rýr, en þó voru þau hjón allra manna auðugust af verðmætum, sem vaxa því meir sem af þeim er gefið. Jafnframt kennslu- starfinu lagði hann stund á norræn mál og uppeldisfræði við HÍ, og tutt- ugu árum seinna notaði hann orlofs- ár sitt til að endurlífga nytsöm fræði við Kennaraháskólann í Kaupmanna- höfn. Eðlileg rás þróunarinnar var sú, að Bjarni gerðist kennari og síðar yfirkennari við Gagnfræðaskólann í Keflavík. 1973 tók hann við skóla- stjórn grunnskólans í Ytri-Njarðvík, en lét af því starfi 1983. Samhliða skólastarfinu tók Bjarnj þátt í ýmis- konar sveitarstjórnamálum í Njarðvíkurhreppi, að allra dórni öll- um til góðs. Undanfarin ár rak hann fasteignasölu með Hilmari Péturs- syni og var því í fullu starfi, þegar hann kvaddi. Margs er að sakna af fornum vin- áttukynnum við þennan ágæta skóla- bróður, en þá líka mikið að þakka á þessari ótímabæru kveðjustund. Hugheilar samúðarkveðjur sendum við hjónin til allra vandamanna hans. Andrés Davíðsson Enn verður okkur stundum hugs- að til þeirra haustdaga, þegar við sátum fyrst saman í lítilli kjallara- stofu í Menntaskólanum á Akur- eyri, haustdagana 1939. Þangað m.a. hvarflaði hugurinn sem snöggvast, þegar við óvænt fréttum andlát bekkjarbróður okkar og vin- ar, Bjarna F. Halldórssonar. Þessa haustdaga fyrir hálfri öld bjó okkur í grun, að næstu 3 árin ættum við eftir að þola saman súrt og sætt, þar sem gleði eins væri annarra gaman, ósigur eins væri hinum hnekkir. Og svo náið reynd- ist þetta samfélag næstu misseri. Síðan kvöddumst við vorbjartan dag, og þá fundum við glöggt, hvernig þetta líf okkar „undir skólans menntarnerki" hafði verið skrýtið og stutt ævintýr. Vel man ég handtak hans þá að kvöldi 19. júní. Og við hurfum hvert og eitt á vit nýrri reynslu. Enda þótt við höfum síðan farið hvert sína leið, þá höfðar dulinn máttur þessarar sarfiveru oft og einatt til okkar bekkjarsystkinanna á kyrr- látum stundum. Bjarni féll vel inn í þennan glað- væra hóp, þar sem hver dagur markaðist af heillandi baráttu sam- eiginlegra viðfangsefna. Og svip- mót hans er ómissandi í myndmál og yfirbragð þessara daga. Við sjáum hann fyrir okkur, bros- ljúfan mann, ekki ýkja háan í lofti, en þykkan undir hönd, ötulan, vask- an og áhugasaman. Umfram allt vissum við þó, að þar sem hann fór, áttum við traustan og góðan félaga, sem kunni þá list mörgum öðrum betur að gleðjast með glöð- um og blanda geði við samferðar- menn. Og við sáum út undan okkur, þó að leiðir skildu, að honum farnaðist vel, svo sem manndómur hans stóð til, þar sem hann gerðist farsæll skólamaður í Njarðvík og Keflavík og giftusamur félagsmálamaður suður þar. Það vissum við og fyrir, að hann var drengur góður og hon- um var gott að treysta. Og heilla- drjúg urðu handtök hans í sam- skiptum við meðborgarana eins og ljúfmennska hans stóð til. Þessir friðsælu desemberdagar með ávæning af hátíð hafa minnt okkur á það enn á ný, að allt, sem við höfum mætur á eða okkur þyk- ir vænt um, er fyrr en varir á hverf- anda hveli. Við bekkjarsystkinin sendum Guðrúnu og fjölskyldu þeirra hjóna hugheilar samúðarkveðjur okkar. Bjarni Sigurðsson Bjarni Fertram Halldórsson er dáinn. Lokið er ævi einstaks sóma- manns. Minningamar, sem hann lætur eftir sig eru okkur, sem kynnt- umst honum, ákaflega hugljúfar, drenglyndi heiðarleiki og einstakt vinarþel voru dyggðir, sem endur- spegluðu líferni hans. Bjarni fæddist á Hesteyri í Jökulfjörðum, sonur hjónanna Halldórs Ólafssonar og Ólafar Fertramsdóttur, sem lifir son sinn í hárri elli. Bjarni fékk fljótt að kynnast kröppum kjörum sinnar kyr>» slóðar, þar sem allir er vettlingi gátu valdið urðu að leggjast á eitt um það að hafa í sig og á. Með eljusemi og dugnaði, sem alla ævi einkenndi þennan drengskaparmann, braust hann til mennta og lauk háskóla- prófi sem viðskiptafræðingur, þó hans aðalstarf yrði kennsla og skóla- stjórn. Bjarni var um árabil yfirkenn- ari við Gagnfræðaskólann í Keflavík og síðar skólastjóri Grunnskólans í Njarðvík, þar til fyrir nokkrum árum, að hann lét af starfi sem skólastjóri. Eitt atvik frá skólaárum mínum í Gagnfræðaskólanum rifjast oft upp fyrir mér, en það ár var Bjarni skóla- stjóri við skólann. Hann studdi okkur nemendur með ráðum og dáð og lagði mikið upp úr því að félagslíf í skólan- um væri blómlegt, og veitti okkur stjórnarmönnum í nemendafélagi skólans mikið svigrúm og fijálsræði til að auðga félagslífið. En þá sann- aðist máltækið, að mikið vill meira. Við héldum dansleik í trássi við skólayfirvöld, sem var skýlaust brot á reglum skólans. Vorum við því kallaðir fyrir skólastjóra og vorum mjög skelkaðir og áttum von á alvar- legri hegningu. Refsing Bjarna í þessu máli fellur mér seint úr minni. „Eg hef ekki í hyggju að skammast við ykkur með hávaða og látum, en mig tékur það sárt, að þið, sem ég hef sýnt mikið traust, hafið ekki reynst þess trausts verðir, og það væri verðugt verkefni fyrir ykkur að rifja upp vísdóm orðanna traust og heiðarleika." Að þeim orðum sögðum bauð hann okkur að hverfa aftur til kennslustofu. Ég hygg að þessi að- ferð, að höfða til skynsemi og vilja manna til að standa við orð sín, hafi verið aðalsmerki hans. Aðalstarf Bjama eftir að hann lét af skóla- stjórn, var rekstur fasteignasölu, sem hann átti og rak í félagi með Hilm- ari Péturssyni í Keflavík. Samstarf þeirra var alla tíð með eindæmum gott og farsælt, enda byggt upp af miklu trausti og vináttu, svo aldrei bar þar skugga á. Bjarni starfaði mikið að félagsmálum og sat um skeið í hreppsnefnd Njarðvíkur, sem fulltrúi Framsóknarflokksins. Eftir- lifandi eiginkona hans er Guðrún Björnsdóttir, áttu þau fimm börn saman, auk þess gekk hann syni hennar, er hún átti áður, í föðurstað. Þau sjá nú á bak traustum og ástrík- um heimilisföður, ég og fjölskylda mín færum þeim, aldraðri móður og barnabörnum hugheilar samúðar- kveðjur. Megi trúin á algóðan guð styrkja þau og hugga. Að leiðarlok- um þakka ég forsjóninni, fyrir að hafa eignast vináttu slíks drengskap- armanns, sem Bjarni Halldórsson hafði að geyma. Far þú í friði, friður guðs þig blessi. Hilmar Hafsteinsson Jarðsunginn verður í dag frá Ytri- Njarðvíkurkirkju Bjarni F. Halldórs- son. Hann fæddist á Hesteyri í Norð- ur-ísafjarðarsýslu 6. mars 1922, en ólst upp að mestu leyti á ísafirði. Foreldrar hans voru hjónin Halldór Maríus Olafsson, sjómaður, og Ólöf Helga Fertramsdóttir, sem lifir nú son sinn háöldruð, fædd 1893. Bjarni ólst upp í foreldrahúsum ásamt stór- um systkinahópi og þurfti snemma að taka til hendinni eins og algengt var í þá daga og vinna fyrir sér. Hann var alla tíð vinnusamur og ósérhlífinn. Ungur að árum ákvað hann að ganga menntaveginn eins og sagt var og lauk hann stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1942 og viðskiptafræðingur varð hann frá Háskóla íslands 1947. Eftir háskólanám vann hann eitt ár hjá Innkaupastofnun rafvirkja, en árið 1949 flyst Bjarni til Njarðvíkur ásamt eiginkonu sinni og elstu börn- um þeirra og hefur þar kennslustörf, sem átti eftir að verða hans aðal lífsstarf. Bjarni var kennari við Barna- og unglingaskóla Njarðvíkur 1949-53, kennari við Gagnfræðaskóla Kefla- víkur 1953-73, skólastjóri 1963-64 og yfirkennari í nokkur ár, en skóla- stjóri Grunnskóla Njarðvíkur 1973-83. Hann var góður kennari og kunni vel að umgangast nemend- ur sína og var þá sama á hvaða ald- ursskeiði þeir voru og öllum þótti þeim vænt um hann. Á árinu 1962 byijuðum við Bjarni að reka saman Fasteignasöluna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.