Morgunblaðið - 15.12.1989, Side 69

Morgunblaðið - 15.12.1989, Side 69
Hafnargötu 27, Keflavík. Fyrst í mjög smáum stíl, en þetta fyrirtæki okkar dafnaði bærilega með árunum og höfum við rekið það saman óslitið síðan. Samstarf okkar Bjarna á þess- um vettvangi er því orðið langt og náið, hefur gengið einstaklega vel og hann átti sinn stóra þátt í því. Ekki vil ég meina að við höfum far- ið fremstir í flokki, hvað varðar vél- væðingu á skrifstofu okkar, eða glæstan búnað innanhúss, en til okk- ar hefur sótt fólk í ríkum mæli héð- an af Suðumesjum og viljað hafa viðskipti og fyrir það þökkum við nú félagarnir. Fyrir þetta langa sam- starf vil ég nú þakka að leiðarlokum. Skyndilegt fráfall þessa góða vinar og velgerðarmanns að morgni dags 6. desember kom mér mjög á óvart og í opna skjöldu, þar sem mér fannst bæði andleg og líkamleg heilsa hans ekki gefa slíkt til kynna. Giaður og hress gekk hann á fund skapara síns og ég veit að þar verð- ur honum vel tekið. Bjarni var mjög vel gerður maður, sem gott var að umgangast og eiga að vini, hann var vel gefinn, jafnlynd- ur, þolinmóður og vinnusamur. Þess- ir góðu eiginleikar komu honum vel í starfi hans við fasteignasöluna. Hann var vandvirkur við alla samn- ingsgjörð og lagði á sig mikla vinnu að skýra út fyrir fólki, undir hvað væri verið að skrifa og hvaða ábyrgð það væri að takast á hendur. Þá var hann einstaklega þolinmóður að jafna ágreiningsefni, sem stundum geta komið upp við slík viðskipta- störf og breytti þá engu hvort í það færi skemmri eða lengri tími, sam- komulagi vildi hann ná og langoftast tókst honum það. Hann var einstak- ur sáttasemjari og hafði mikla rétt- lætiskennd. Bjarni var félagslyndur maður, hann sat í hreppsnefnd Njarðvíkur árin 1968-76 fyrir Framsóknarflokk- inn, einnig sat hann í ýmsum nefnd- um fyrir flokkinn, m.a. í skólanefnd og framtalsjnefnd. Formaður Fram- sóknarfélags Keflavíkur var hann í nokkur ár, eftir að hann flutti til Keflavíkur, en þangað flutti hann árið 1976. Var hann þar sem annar- staðar góður liðsmaður. Þá var Bjarni virkur félagi innan Oddfellow- reglunnar. 22. febrúar 1947 kvæntist Bjarni eftirfarandi eiginkonu sinni, Guð- rúnu Björnsdóttur, ættaðri úr Breiða- fjarðareyjum. Börn þeirra hjóna eru þessi eftir aldursröð: Gunnar Öm Amarson (stjúpsonur Bjama), kerfisfræðing- ur, Keflavík, Anna Olöf, húsfreyja í Hafnarfirði, gift Jóni Erlendssyni forstjóra, Bjöm, lögregluvarðstjóri í Njarðvík, giftur Guðrúnu Skúladótt- ur, matreiðslum., Einar Sigurður, rafvirki, Akureyri, giftur Sigríði Gísladóttur, fóstm, Fanney Sigur- laug, húsfreyja í Keflavík, gift Þor- valdi Ólafssyni, rafvirkja, Bjarni Svanur, viðskiptafræðingur, Hafnar- firði, giftur Guðrúnu Erlu Ríkharðs- dóttur, húsfreyju. Miklu barnaláni eiga þau hjón að fagna og er.fjölskyldan mjög sam- rýnd og hefur Guðrún átt sinn stóra þátt í því. Allur heimilisbragur að Háteig 7, Keflavík, er tii mikillar fyrirmyndar og þar em allir velkomn- ir, þar skapaði Guðrún eiginmanni sínum þann griðastað, sem hann svo sannarlega þurfti á að halda, eftir oft erfiðan vinnudag. Eins og gefur að skilja þurfti Bjarni að vinna mikið til að sjá fyrir sinni stóru fjölskyldu. Á þeim ámm, sem hann vann við kennslustörf, vann hann á sumrin ýmsa erfiðis- vinnu, m.a. stundaði hann sjó- mennsku í nokkur sumur, af miklum krafti. Fyrir nokkrum árum komu þau hjón sér upp sumarhúsi, sem þau dvöldu í á sumrin, þegar færi gafst. Þar leið þeim virkilega vel, börn þeirra komu í heimsókn ásamt mök- um sínum og svo blessuð barnabörn- in. Bjarni var mjög bamgóður mað- ur, oft tók ég eftir því, hvað hann gaf sér góðan tíma til að tala við börn, sem komu með foreldrum sínum á skrifstofu okkar. Æði oft kom þaðfyrir, að þau vildu ekki fara, svo vel leið þeim í návist hans. Þessi þáttur í fari hans segir raunar mikið hvaða mann hánn hafði að geyma. Ég og fjölskylda mín sendum eig- inkonu, börnum hans og fjölskyldum þeirra innilegustu samúðarkveðjur. Ykkar missir er mikill. Hilmar Pétursson MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESÉMBER 1989 869 Hinn athafnasami skógarhöggs- maður var að starfi snemma mið- vikudags, 6. þessa mánaðar, eins og aðra daga. Ekki eru það fremur kalviðir éða volar, sem hann nemur burt. Stundum velur hann bein og óbeygð tré. Enginn skilur hans val. Bjami var í fullu fjöri og hafði ekki kennt Sér neins meins þegar hann um morguninn gekk frá baði, féll niður og var örendur. Svona er sjálf- sagt gott að gera sína hinstu göngu en sárt finnst aðstandendum að fá ekki tækifæri til að kveðja og þakka samfylgdina. Bjarni Fertram Halldórsson var fæddur á Hesteyri í Sléttuhreppi í N-Ísafjarðarsýslu. Faðir hans, Hall- dór Marías Ólafsson, var sjómaður á Hesteyri en fluttist að Beijadalsá á Snæfjallaströnd þegar Bjarni var ungabarn. Fluttist hann tiljfnífsdals árið 1926 og þaðan til ísafjarðar 1931. Hann var fæddur 2. nóvember 1894 en lést í Reykjavík.12. septem- ber árið 1955. Foreldrar Halldórs voru Ólafur Bjarnason, útvegsbóndi í Gestshúsi og Bjamabæ við Beijadalsá á Snæ- fjallaströnd, og Margrét Bjarnadótt- ir. Móðir Bjarna, Ólöf Helga Fertr- amsdóttir, er enn á lífi og dvelur á Hrafnistu í Reykjavík. Hún er fædd 2. nóvember 1893. Foreldrar hennar voru Fertram Gídeonsson, útvegs- bóndi í Nesi í Grunnavík, og Margr- ét Magnúsdóttir. Ólöf er ern vel og heldur góðu, andlegu atgervi enn þann dag í dag þrátt fyrir sinn háa aldur. Börn Halldórs og Ólafar voru sjö auk fósturdóttur, Margrétar Frið- bjamardóttur, sem lést 1986. Bjami var elstur, f. 6. mars 1922; þá Guð- björg Halldóra, f. 28. maí 1924; Guðmundur Gunnar vélsmiður, f. 10. apríl 1926; Ólafur, sjómaður í Hafn- arfirði, f. 19. nóvember 1928; Ingólf- ur Siguijón, kennari í Keflavík, f. 8. janúar 1930; Margrét Indiane í Reykjavík, f. 10. júní 1931, ogRagn- heiður, f. 8. ágúst 1936. Barnaskólanám Bjarna hófst í Hnífsdal en því lauk hann á ísafirði og gagnfræðaprófi lauk hann þar einnig árið 1936 og settist í III bekk menntaskóla Akureyrar þar sem hann lauk stúdentsgrófi 1942. Cand. phil. frá Háskóla íslands 1943 og cand. oecon. frá sama skóla 1947. Tvö stig í dönsku og uppeldisfræðum við HÍ 1954. Við nám í Kennarahá- skólanum í Kaupmannahöfn 1968-69. Bjarni hefur víða komið við í margs konar sýslu. Skrifstofustjóri hjá Innkaupasambandi rafvirkja hf. 1947-48, starfsmaður við eigna- könnunina 1948, kennari við Barna- og unglingaskóla Njarðvíkur 1949-53, kennari við Gagnfræða- skólann í Keflavík 1953-73, skóla- stjóri þess skóla 1963-64 og yfir- kennari í nokkur ár. Skólastjóri var Bjarni við Grannskóla Njarðvíkur 1973-83 og í ailmörg ár rak hann fasteignasöluna Hafnargötu 27 I Keflavík ásamt Hilmari Péturssyni. í Njarðvík gegndi Bjarni ýmsum félags- og trúnaðarstörfum. í hreppsnefnd Njarðvíkur 1968 til 1976, á sama tíma í ýmsum nefndum hjá Njarðvíkurhreppi, svo s_em fram- talsnefnd og skólanefnd. í allmörg ár var hann í stjórn Unginennafélags Njarðvíkur. Bjarni kvæntist árið 1947 Guð- rúnu Soffíu Björnsdóttur. Guðrún fæddist í Arney á Breiðafirði 27. apríl 1923. Fore.ldrar hennar voru Björn Jóhannsson, bóndi í Arney og síðar skipasmiður í Stykkishólmi, f. 17. ágúst 1893, d. 14. júní 1963. Móðir Guðrúnar var Guðrún Eg- gertsdóttir húsfreyja, f. 6. október 1881, d. 9. mars 1983. Böm þeirra Bjarna og Guðrúnar eru Gunnar Örn Amarson kerfisfræðingur (kjörson- ur Bjarna), f. 21. október 1945; Anna Ólöf, húsfreyja í Hafnarfirði, f. 14. júní 1947; Björn, lögreglu- þjónn í Njarðvík, f. 23. ágúst 1948; Einar Sigurður, rafvirki á Akureyri, f. 6. mars 1951; Fanney Sigurlaug, húsfreyja í Keflavík, f. júní 1957, og Bjarni Svanur, viðskiptafræðing- ur og fjármálastjóri hjá Sindrastáli hf., f. 28. maí 1958. Framanskráð er það, sem hægt er að lesa í bókuðum heimildum um minn gamla vin, nokkuð hefi ég fundið í Arnardalsætt, útg. 1959, og í Æviskrám MA-stúdenta. Allt er það gott og blessað en hins vegar er lífshlaup Bjarna og sjálf ævisagan hvergi skráð nema í minni þeirra manna, sem þekktu hann. Ég á því láiii að fagna að hafa verið einn af þeim. Við fluttumst hingað í Ytri- Njarðvík um svipað leyti. Fyrsta veturinn bjó Bjarni hjá Hauki Hall- dórssyni á Brekkustíg 4 en 1950 fluttist hann með fjölskyldu sína að Borg og bjó þar í átta ár áður en flust var í húsið á Grandarvegi 15, í nábýli við okkur hjónin á Grundar- vegi 17. Ekki get ég að því gert, að í öllum okkar vinskap og samvinnu á ýmsum vettvangi hef ég alltaf séð í mistri Snæfjallaströndina á bak við Bjarna. Að vísu var hann skamma hríð á Beijadalsá, aðeins um fjögurra ára bil, en börn læra margt fyrstu fjög- ur árin. Snæfjallaströndin er engri byggð iík.- Hún er afar snjóþung en snjó leggur gjarna á ófrosna jörð svo hún kemur græn undan fönninni á vorin. Að vísu eru nöfnin Snæfjöll og Snæfjallaströnd köld nöfn en Unaðsdalur er í þeirri sveit. Þessi byggð var og er afskekkt og í upp- vexti Bjarna var enginn stuðpúði á milli lífsins sjálfs og fóiksins, fátt keypt en lífsbjörgin sótt í náttúrana, í safaríka grasið á þessari mjóu land- ræmu milli fjalls og fjöru og hins vegar í þetta síkvika og oft blikandi haf. Húsin spruttu upp úr landinu, fötin voru búin til heima, maturinn líka, hlýjan og þroskinn voru heima- fengin. I tækniþjóðfélögum er þetta víst kallað sjálfsþurftarbúskapur og tvímælalaust náinn ættingi villi- mennskunnar. Nú eram við svo langt komin, að við seilumst lengra og lengra til þess að kaupa lífsþarfirnar og oft verður lítið á reikningnum því margt þarf að kaupa. En í öllu þessu kapp- hlaupi er verst þegar reikningur til- finninganna tæmist, það er ekki hægt að fá kreditkort fyrir þeim viðskiptum. Bamaskólinn, unglingaskólinn, sveitarfélagið og ungmennafélagið héma í Njarðvík eiga Bjarna margt gott að þakka og væri of langt upp að telja í stuttri kveðjugrein en verk- in hans lifa og gæfumaður var hann að eiga svo langa og mikla samfylgd með öllu þessu unga fólki, börnunum sínum og nemendum. í því starfi er unnið fyrir framtíðina og farsæld vors lands. Af því ég er kominn á raupsaldurinn þá set ég það niður í þessum línum, að sporin, sem við mörkuðum þegar við sátum í sveitar- stjórn hér í Njarðvík, eru ekki enn og verða ekki þurrkuð út jafnvel þótt nokkur kjörtímabil líði. • Undir lokin vil ég þakka Bjarna og fjölskyldu hans nábýlið hérna við Grundai-veginn meðan það stóð. Margra hluta vegna held ég, að þau ár hafi verið þau bestu í lífi mínu og Bjami átti sinn þátt í því. Þetta var samvalinn hópur þótt honum væri smalað víða að, Bjarni úr Djúp- inu, Guðrún úr Breiðafirði, Ester undan Jökli, Sigmar frá Borgarfirði eystra, Fjóla undan Esjunni og ég úr Öræfunum. Öll að vissu marki börn landnámskynslóðarinnar. Margt, sem sagt var og gert, minnir mig á Grimmsævintýri og væri vissulega gaman að segja eins og eina skemmtilega sögu en það má ekki í kveðjugrein, setjarinn myndi sennilega sleppa henni, en allt þetta þakka ég og hún Fjóla. Bjarni er kært kvaddur og ég veit, að hann gengur rakleitt á fund Drottins síns hátt yfir Hljóðabungu og Hrollaugsborg. Stóru fjölskyldunni hans Bjarna Fertrams vottum við samúð okkar. Oddbergur Eiríksson Lofta- plötur og lím Nýkomin sending Þ.ÞORCRlMSSON&CO Ármúla 29, Reykjavík, sími 38640 JÓLAUÓSIN í HAFNARFJARÐAR- KIRKJUGARÐI Jólaljósin í Hafnarfjarðarkirkjugarði verða afgreidd frá og með laugar- deginum 16. desember til og með laugardeginum 23. desember. Opið erfrá kl. 10-19 alla dagana. Guðjón Jónsson, s. 43494, Ingibjörg Jónsdóttir, s. 54004, Ásdís Jónsdóttir, s. 622246. I tilefni af ákvörðun verðlagsráðs um gjaldskrá dagmæðra og yfirtýsingu þeirra um að fara ekki eftir henni er eftirfarandí gjaldskrá birt til upplýsingar fyrký ; almenning. Bent skal á að ólöglegt er að hækka gjald fyrir gæslu barna ( heimahúsum meira en kemur fram í ákvörðun verðlagsráðs. Taxti dagmæðra I Reykjavík verður eins og hér að neðan kemur fram í samræmi við ákvörðun ráðsins. I GJALDSKRA VEGNA GŒSLU BARNA í HEIM AHUSUM I Fæöi: F. mánuð Ein máltfð Morgunmatur 1540 70 Hádegishressing 3828 174 Síðdegishressing 1540 70 6908 314 Hálftfæði 3454 I Kauptaxti fyr ir gæslu barna frá tveggja ára aldri 1 KL = klukkustund 3 KL. 4 KL. 5 KL. 6 KL. 7 KL. 8 KL. 9 KL. 1. Taxti 3806 5074 6344 7612 8881 10149 11418 Viðh./Leikf. o.fl. 710 947 1185 1424 1658 1896 2134 SAMTALS 4516 6021 7529 9036 10539 12045 13552 2. Taxti 4162 5549 6937 8324 9712 11099 12486 Viðh./Leikf. o.fl. 710 947 1185 1424 1658 1896 2134 SAMTALS 4872 6496 8122 9748 11370 12995 14620 3. Taxti 4433 5910 7388 8866 10344 11821 13299 Viðh./Leikf. o.fl. 710 947 1185 1424 1658 1896 2134 SAMTALS 5143 6857 8573 10290 12002 13717 15433 4. Taxti 4723 6297 7872 9446 11020 12594 14169 Viðh./Leikf. o.fi. 710 947 1185 1424 1658 1896 2134 SAMTALS 5433 7244 9057 10870 12678 14490 16303 Tímakaup er tekið fyrirfram fyrir umsaminn tíma. . 1. Taxti 2. Taxti 3. Taxti 4. Taxti Tímakaup kr. 126 139 148 159 Eftirvinna er tekin fyrir óumsaminn tíma og fyrir kl. 7 að morgni og eftir kl. 18 síðdegis. 1. Taxti 2. Taxti 3. Taxti 4. Taxti Tímakaupkr. 284 300 309 317 Sólarhringsgæsla 41300 Kr. á mánuði ' 1 Kauptaxti fyrir gæslu barna frá fæðingu til átta mánaða KL = klukkustund 3 KL. 4 KL. 5 KL. • 6 KL. 7 KL. 8 KL. 9 KL. 1. Taxti 5918 7890 9864 11836 13809 15781 17754 Viöh./Leikf. o.fl. 710 947 1185 1424 1658 1896 2134 SAMTALS 6628 8837 11049 13260 15467 17677 19888 2. Taxti 6274 8365 10457 12548 14639 16730 18821 Viðh./Leikf. o.fl. 710 947 1185 1424 1658 1896 2134 SAMTALS 6984 9312 11642 13972 16297 18626 20955 ' 3. Taxti 6545 8726 10909 13090 15272 17453 19635 Viðh./Leikf. o.fl. 710 947 1185 1424 1658 1896 2134 SAMTALS 7255 9673 12094 14514 16930 19349 21769 4. Taxti 6835 9113 11392 13670 15948 18226 20505 Viðh./Leikf. o.fl. 710 947 1185 1424 1658 1896 2134 SAMTALS 7545 10060 12577 15094 17606 20122 22639 I Kauptaxti fyrir gæslu barna frá átta mánaða til tveggja ára 3 KL. 4 KL. 5 KL. 6 KL. 7 KL. 8 KL. 9 KL. I.Taxti 4862 6482 8104 9724 11345 12965 14586 Viðh./Leikf. o.fl. 710 947 1185 1424 1658 1896 2134 SAMTALS 5572 7429 9289 11148 13003 14861 16720 2. Taxti 5218 6957 8697 10436 12175 13914 15654 Viðh./Leikf. o.fl. 710 947 1185 1424 1658 1896 2134 SAMTALS 5928 7904 9882 11860 13833 15810 17788 3. Taxti 5489 7318 9149 10978 12808 14637 16467 Viðh./Leikf. o.fi. 710 947 1185 1424 1658 1896 2134 SAMTALS 6199 8265 10334 12402 14466 16533 18601 4. Taxti 5779 7705 9632 11558 13484 15410 17337 Viðh./Leikf. o.fl. 710 947 1185 1424 1658 1896 2134 SAMTALS 6489 8652 10817 12982 15142 17306 19471 J Verðlagsstofnun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.