Morgunblaðið - 15.12.1989, Qupperneq 78
78
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTÚDAGUR 15. DESEMBER 1989
KÖRFUKNATTLEIKUR / KVENNALANDSLIÐIÐ
IMBA-ÚRSLIT
Anna María Sveinsdóttir var
best í gær; skoraði 17 stig og tók 19
fráköst.
„Ovæntur og
góður sigur“
- sagðiTorfi Magnússon, þjálfari,
eftir fimm stiga sigur gegn Wales
„ÞETTA var óvæntur og góður
sigur. Lið Wales kom til íslands
fyrir tveimur árum og sigraði
íslenska liðið þá auðveldlega,
en úrslitin nú sýna að það hafa
verið miklar framfarir hjá okkar
stelpum," sagði Torfi Magnús-
son, þjálfari kvennalandsliðs-
ins í körfubolta, við Morgun-
blaðið í gær eftir 70:65 sigur
gegn Wales íátta liða mótinu
í Lúxemborg.
orfi sagði að baráttan hefði
verið góð; „þetta var sigur liðs-
heildarinnar, en Anna María
Sveinsdóttir var best að öðrum
ólöstuðum og Björg Hafsteinsdóttir
innsiglaði sigurinn með tveimur
þriggja stiga körfum undir lokin.“
Anna María skoraði 17 stig og tók
19 fráköst. Lilja Björnsdóttir skor-
aði 14 stig, Vanda Sigurgeirsdóttir,
sem var sögð Sigurðardóttir í blað-
inu í gær, var með 11 stig, Björg
Hafsteinsdóttir 10, María Jóhann-
esdóttir 6, Vigdís Þórisdóttir 5,
Kristín Sigurðardóttir 3, Linda
Stefánsdóttir 2 og Herdís Ema
Gunnarsdóttir 2 stig.
Eins og greint var frá í gær vann
ísland Kýpur 73:56 í fyrsta leik,
en önnur úrslit hafa verið þ_au að
Austurríki vann Wales 78:43, írland
vann Gíbraltar 104:17 og Lúxem-
borg vann Möltu 129:39. í kvöld
leikur ísland gegn Austurríki, en í
undanúrslitum mótsins á morgun
mæta stúlkurnar annaðhvort stöll-
um sínum frá írlandi eða Lúxem-
borg, en leikið er í tveimur riðlum
og efstu liðin í riðlunum spila síðan
í kross í undanúrslitum.
-3MRAK fRAMHK
SNORRABRAUT 60 - SÍMI 12045
&
..s-
cV° p. -
■ \ ^'
<*+&:*■* -
.v^" ■
Raðgreiöslur
Póstsendum samdægurs
Björg Hafsteinsdóttir innsiglaði
sigurinn með tveimur þriggja stiga
körfum undir lokin.
Leikir í bandarísku NBA-deildinni í
körfuknattlcik aðfararnótt miðviku-
dags:
Atlanta Hawks - San Antonio.......102:94
Indiana Pacers - Minnes. Timberw. .113:112
(Eftir framlengingu)
Lakers - Charlotte Homets.........103:89
New Jersey Nets - Philad. 76ers....97:82
Chicago Bulls - Dallas Mavericks..105:97
Houston Rockets - Phoenix Suns....105:83
Milwaukee Bucks - Orlando Magic ..106:103
Detroit Pistons - Denver Nuggets.... 121:108
Portland - Los Angeles Clippers....99:92
Golden State - Sacramento Kings....118:103
Fimmtudagur:
Boston Celtics - Seattle Supersonics..109:97
Philadelphia 76ers - Atianta.....112:103
Los Angeles Lakers - Miami Heat...102:75
Cleveland Cavaliers - Miiwaukee....99:93
Dallas - Minnesota Timberwolves....90:87
Utah Jazz - Phoenix Suns..........102:95
LA Clippers - Detroit Pistons......93:79
Golden State - Denver Nuggets....134:114
í kvöld
Handknattleikur
1. deild karla
Akureyri, KA-Stjaman...kl. 20:30
1. deild kvenna
Garðabær, Stjarnan-FH..kl. 18:45
2. deild karla
Njarðvík, UMFN-Haukar....kl 20
3. deild karla
Hveragerði, UFHÖ-ÍS......kl. 20
Seltj.nes, Grótta b-Völsungur .kl. 20:15
Kiwanismót yngstu flokka
Þriðja Kiwanismótið í handknattleik
fyrir 5. flokk kvenna og 6. flokk karla,
fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu
í Hafnarfírði í kvöld og á morgun. í
kvöld verður leikið í 6. fl. karla frá kl.
19 til 20, en í 5. fl. kv. frá kl. 20 til
21 og er aðgangur ókeypis.
Blak
HSK og ÍS leika í átta liða úrslitum
bikarkeppni karla og hefst viðureignin
kl. 20 að Laugarvatni.
HANDBOLTI / DOMARAHORNIÐ
Flautað of snemma
Mér hafa borist ábendingar
frá nokkrum leikmönnum
varðandi það, að dómarar flauti
stundum of fljótt, og kosti það
oft á tiðum mark.
Rétt er það, að það kemur fyr-
ir alla dómara og verður erfitt að
koma alveg í veg fyrir það.
Eins og ég hef áður sagt, þá
byggist ákvörðun dómara á mati
þeirra á því, sem er að gerast á
vellinum, og þeir hafa oftast ekki
mikinn tíma til að hugsa málið.
Þá sjá þeir einnig það, sem er að
gerast, frá öðru sjónarhorni en
leikmenn, og eru því skoðanir oft
skiptar. Með þessu er ég ekki að
afsaka dómarana, en eins og allir
vita, þá gera þeir mistök eins og
leikmenn.
Algengt er að dómarar sýni að
tekin hafí verið of mörg skref og
skýri með því af hverju þeir flauta,
þegar leikmönnum finnst þeir
hafa flautað of fljótt. Staðreyndin
er sú, að í lang flestum tilvikum
hafa dómararnir rétt fyrir sér í
því efni, og frekar að þeir flauti
of sjaldan en ekki.
Annað, sem kemur til, er að
oft taka dómarar ákvörðun um
að „flauta strax“, þegar leikmenn
eru að kljást, og vilja þannig koma
í veg fyrir að þau átök þróist út
í eitthvað meira og verra, þannig
að ekki verði við ráðið.
Grundvallarreglan er þó sú, að
dómarar eiga að bíða þar til að
úr t.d. markfæri hefur ræst, þó
þannig að sá, sem er með bolt-
ann, brjóti ekki af sér. Ef þeim
tekst það og sá, sem er með bolt-
ann, nær að losa sig úr brotinu
og skora, eiga þeir að sjálfsögðu
að dæma mark. Takist honum það
ekki skal dæma aukakast eða
vítakast. Nái hann hins vegar
fullri stjórn á sjálfum sér og bolt-
anum skal ekki dæma honum
auka- eða vítakast, en hugsanlegt
er að refsa megi þeim, sem braut
af sér með áminningu, brottvísun
eða útilokun.
Það er rétt að benda á, að það
er mun oftar í kvennahandbolta
heldur en karla, að dæmt er of
snemma. Eg hygg skýringuna
vera þá, að brot eru oftast mun
hreinni hjá körlunum og minni
vafi hvort um brot sé að ræða og
jafnframt fyrr ljóst, hvort leik-
manninum tekst að losa sig.
Þegar dómarar gera þau mistök
að flauta of snemma, þá ættu
þeir bara að viðurkenna mistökin
fyrir leikmönnum, því það er
margsannað að dómari, sem „seg-
ir“ með bendingu eða látbragði
að honum hafi orðið á mistök, nær
oftast betri stjórn á leiknum.
Eg get lofað þeim leikmönnum,
sem hafa bent á þetta, að dómara-
nefnd mun ræða þetta á næsta
fundi dómara, sem verður nú á
næstunni.
Kveðja,
Kjartan Steinbachj formaður
dómaranefiidar HSI.
Knattspyrnuþjálfari óskast
UMF Víkingurfrá Ólafsvík óskareftir að ráða knatt-
spyrnuþjálfara fyrir komandi keppnistímabil. Um er að
ræða þjálfun á meistaraflokki félagsins, sem leikurí
4. deild. Einnig gæti komið til greina þjálfun yngri flokka.
Þeir, sem hafa áhuga og vilja fá nánari upplýsingar,
geta haft samband við Guðmund Óttarsson í síma
91-79022 eftir kl. 21 eða Magnús Gylfason í síma
93-61200 fyrir hádegi.
Knattspyrnuráð Víkings,
Ólafsvík.