Morgunblaðið - 20.12.1989, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989
Sjávarútvegsráðherrar EB:
Tollur lækkaður á 63
þús. tonnum saltfisks
__ BrusseL Frá Kristófer M. Kristinssym, fréttaritara Morgunblaðsins.
Á FUNDI sjávarútvegsráðherra EB, sem lauk í Brussel um hádegið í
gær eftir að hala staðið í 26 klukkustundir, samþykktu ráðherrarnir
innflutningsheimildir fyrir 63 þúsund tonn af blautverkuðum saltfiski
á 7% tolli. Undir venjulegum kringumstæðum eru tollar Evrópubanda-
lagsins (EB) á saltfiski 13%.
Slíkar innflutningsheimildir eru
samþykktar árlega innan EB. Helsta
umkvörtunarefni íslendinga undan-
farin ár, eða allt frá því að helstu
vjðskiptaþjóðir okkar með saltfisk,
Portúgalir og Spánverjar, gengu í
EB, hefur verið viðskiptakjör okkar
með þessa vörutegund.
Heimildirnar eru öllum opnar og
þar eiga íslendingar í harðri sam-
keppni við Norðmenn. Gert er ráð
fýrir að heimildirnar taki gildi 1,
aprí! á næsta ári. Frá áramótum ti!
Meiddist er
mótorhjól valt
14 ÁRA piltur úr Reykjavík hlaut
alvarlega höfiiðáverka þegar hann
missti vald á torfærubifhjóli í
Leirdal í fyrrakvöld. Hann hafði
legið meðvitundarlaus í 2-3 stund-
ir þegar hann fannst, að því er
talið er.
Svipast var um eftir piltinum þeg-
ar hann skilaði sér ekki heim og
fánnst hann meðvitundarlaus um
klukkan tvö að nóttu við Hlíðardals-
veg í Leirdal. Hann var mjög kaldur
og óttast var að hann hefði höfuð-
kúpubrotnað. Pilturinn var enn með-
vitundarlaus þegar Sögreglan í Kópa-
vogi hafði spurnir af í gær.
þess tíma er einungis heimilt að
flytja 25 þúsund tonn af saltfiski
tollfrjálst tii aðildarríkja EB. Eftir
sem áður er heimill innflutningur
með 13% innflutningstollum.
Þá samþykktu ráðherramir inn-
flutning á 1200 tonnum af söltuðum
þorskflökum með 11% tolli, en tollur
er ella 20%. Einnig var heimilaður
innflutningur á 3500 tonnum af sölt-
uðum ufsaflökum með 10% tolli.
Helsta deiiumál ráðherranna voru
heildarkvótar bandalagsins i'nnan
eigin lögsögu annars vegar og á
veiðisvæðumn EB flotans, td. við
Grænland, Nýfundnaland og Noreg
hins vegar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fannfergi á Akureyri
Miklum snjó hefur kyngt niður á Akureyri undanfarna daga og í gær hélt fannfergið áfram. Bæjarbúar
þurftu því að grípa til skóflunnar til að reyna að losa bíla sína úr snjósköflunum.
Ríkið eignist meirihluta í
Islenskum aðalverktökum
Nýtt flugfélag
sækir um flug-
rekstrarleyfi
NÝTT íslenskt flugfélag, Fram-
fari, sótti í gær um flugrekstrar-
leyfi. Það eru þrír flugmenn hjá
Flugleiðum, sem eru í leyfi frá
störfiim hjá flugfélaginu og starfa
hjá erlendum flugfélögum, sem
hafa stofnað nýja flugfélagið.
Flugmennimir eru Mekkinó Bjöms-
son, Atli B. Unnsteinsson og Friðrik
Jónsson. Þeir félagar hafa hug á að
reka leiguflug erlendis. Flugráð
mælti með því í gær að Framfari
fengi flugrekstrarleyfi.
FULLTRÚAR ríkisins, Regins og Sameinaðra verktaka hafa undirrit-
að samkomulag þess efnis að ríkið, sem á 25% eignarhlut í Islenskum
aðalverktökum, eignist meirihluta i fyrirtækinu, þannig að það kaupi
18% hlut Sameinaðra verktaka og 9% hlut Regins. Ekki hefur veríð
samið um kaupverð, en stefnt er að því að ljúka samningum fyrir
aðalfund íslenskra aðalverktaka, sem verður haldinn á vordögum
1990. Heimildir Morgunblaðsins herma að talsvert beri í milli hvað
verðhugmyndir ríkisins og eigenda Sameinaðra verktaka og Regins
varðar, en fúUtrúar ríkisins munu gera sér hugmyndir um að verð-
ið verði verulega lægra en seljendur.
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins þær að nýir íslenskir aðalverk-
takar, með breyttu eignarhaldi hafi
til umráða öll þau tæki og þá að-
stöðu sem félagið hefur yfir að ráða,
en leggi auk þess til með sér fjár-
muni sem nægi til þess að reka
fyrirtækið á eigin spýtur, án þess
að strax þurfi til bankafyrirgreiðslu
að koma. Enn hefur ekki verið
metið um hversu stórar fjárhæðir
ræðir.
Stefán Friðfinnsson, stjórnar-
formaður íslenskra aðalverktaka,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að samningaviðræður hæfust
á næstunni, en enn væri ekkert
hægt að segja til um hvert kaup-
verð þeirra 27% sem ríkið hygðist
kaupa yrði.
„íslenskir aðalverktakar hafa
samkvæmt ákvörðun íslenskra
stjómvalda einkarétt ti! fram-
kvæmda fyrir vamarliðið á grund-
velli varnarsamningsins," segir í
frétt frá utanríkisráðuneytinu.
„Eignaraðild að íslenskum aðal-
verktökum er nú þannig háttað að
Sameinaðir verktakar eiga 50%,
Reginn hf. 25% og íslenska ríkið
25% í félaginu. Einkaréttur félags-
ins til framkvæmda fyrir vamarlið-
ið og sérstaða þess að öðru leyti
gerir það að verkum að eðlilegt er
að íslenska ríkið ráði meirihluta í
félaginu. Fyrr á þessu ári gerði
utanríkisráðherra samkomulag við
Leiðin fyrir Horn
lokuð út vikuna
DIMMVIÐRI var í gær við Hornbjargsvita í Látravík en að sögn
Þórs Jakobssonar veðurfræðings hafði Veðurstofúnni borist til-
kynning um að engin sjáanleg breyting væri á hafísnum, sem
er landfastur við strönd Vestfjarðarkjálkans, allt frá Munaðar-
nesi á Ströndum og vestur um að ísafjarðardjúpi. Útlit er fyrir
að siglingaleiðin fyrír Horn verði lokuð út þessa viku þar sem
áfram er spáð norðaustlægri vindátt.
Þór sagði að breyting gæti
orðið á veðri á aðfangadag jóla
og vindur snuist í suðaustlæga
átt. „Það gæti þó Iiðið langur
tími áður en vindurinn nær að
hrekja ísinn frá landi,“ sagði Þór.
Mikill hafís er á Húnafióa og
óttast er að stakir jakar berist
um síðir inn í Skagafjörð.
Valdimar Thorarensen, bóndi
á Gjögri, sagði að ísinn væri ekki
énn kominn inn á Reykjarfjörð
en hann kvaðst vita af honum
skammt úti af ströndinni.
Hann sagði að svona mikill
hafís hefði ekki lagst við landið
í nokkur ár og núna næði hann
austanmegin Vestjarðarkjálkans
allt suður í Steingrímsfjörð.
„Ég veit ekki gjörla hve mikill
, A'VJKÍMWb liiþs.yegar
hefur hafís fyllt í Trékyliisvík svo
það hlýtur að vera talsvert mik-
ið.“
Valdimar sagði að samgöngur
við Gjögur væru gloppóttar en
flogið hefði verið til staðarins á
mánudag. „Flugið dróst lengi
fram eftir degi vegna dimmviðris
en þeir gátu loks lent undir kvöld-
ið. Núna gengur á með kafalds-
byl,“ sagði Valdimar.
Aðspurður um hvort íbúar
Gjögurs óttuðust heimsóknir
ísbjarna sagði Valdiman „Þeir
hafa aldrei látið sjá sig hér en
fyrir nokkrum árum gengu hvíta-
birnir á land í Skutulsfirði. Við
megum alltaf eiga von á þeim
þegar svona háttar til en ég vona
að dráttur verði á þeim kynn-
um,“ sagði Valdimar.
eignaraðila um að áhrif stjómvalda
á stjóm fyrirtækisins yrðu aukin
umfram það sem eignaraðild gefur
tilefni til og skipar utanríkisráð-
herra nú tvo af fimm stjómarmönn-
um og er annar formaður."
í fréttinni segir jafnframt að nú
hafi verið gert samkomulag við
stjórnir Sameinaðra verktaka og
Regins hf. um það að stefnt verði
að því að ríkið eignist meirihluta í
íslenskum aðalverktökum. „Stjómir
félaganna hafa lýst þvi yfir að þær
séu reiðubúnar til að ganga til
samninga um endurskipulagningu
íslenskra aðalverktaka, sem m.a.
feli það í sér að þau selji ríkinu af
sínum eignarhlut, þannig að ríkið
eignist meirihluta. Að því er stefnt
að samningum verði lokið fyrir aðal-
furid á næsta ári,“ segir í niðurlagi
fréttarinnar.
Hugmyndir seljenda, eru sam-
Langholtskirkja:
Sameiginleg athöfn
kristinna trúarhópa
ALLIR kristnu trúarhópamir á
Islandi hafa ákveðið að halda
samkirkjulega athöfn í Lang-
holtskirkju annað kvöld kl. 20.30.
Biskup íslands herra Ólafur
Skúlason segir að það hafi verið
áliugamenn sem vilja sýna sam-
stöðu krístinna manna hér á
landi sem fóm þess á Ieit við
oddvita krístinna trúarhópa að
halda slíka samkomu.
Biskupinn sagði að í janúar á
hveiju ári hafi verið haldnar sam-
kirkjulégar bænavikur. Það héfur
koniið í ljós að janúar er ekki heppi-
legur mánuður fyrir þær og ákveð-
ið var að fresta bænavikunni fram
á vor. Hann sagði að það hefði því
farið mjög vel á að hafa eina stóra
allsheijarsamkomu í desember.
„Samkoman verður aðdragandi
að jólahátíðinni sjálfri og það er
hugmyndin að samhæfa hugi í bæn
fyrir friði á jörðinni og vemdun
þess sem okkur er falin ábyrgð á,
jafni fólki sem náttúru," sagði
biskupinn.
Samningaviðræður:
• *
Stjórnvöld lofa frestun
verðhækkana um áramót
ÞORSTEINN Ólafsson, efnahagsráðgjafi forsætisráðherra mætti á
fúndi með samninganefndum Alþýðusambands Islands og Vinnuveit-
endasambands íslands í gær og greindi frá því að stjórnvöld væm
fyrir sitt leyti reiðubúin að beita sér fyrir því að þeim verðhækkun-
um hjá opinberum fyrírtækjum og stofiiuuum sem áform hefðu ver-
ið um um næstu áramót, yrði frestað, þannig að samningsaðiljum
gæfist frekara svigrúm til samninga. „Ég lít á þetta sem mjög jákvæð-
an áfanga," sagði Einar Oddur Kristjánsson, formaður VSI í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. „Við lítum á þetta sem fyrsta skrefið til
að veita hér öflugt verðlagsaðhald á næsta ári,“ sagði Ásmundur
Stefánsson, forseti ASI í samtali við Moi-gunblaðið að afloknitm samn-
ingafúndinum síðdegis í gær.
„Það kom fram í máli efnahags-
ráðgjafans að ríkisstjómin er reiðu-
búin til þess að beita sér fyrir því
að þessum opinberu hækkunum
verði frestað, jafnframt því sem
hann sagði að ríkisstjómin væri
reiðubúin til frekari umræðna um
hvernig yrði tekið á þeim málum í
framhaldi af frestuninni," sagði
Ásmundur Stefánsson.
Ásmundur sagði að þetta vilyrði
ríkisstjómarinnar gerði það að
verkum að aðiljar vinnumarkaðar-
ins hefðu janúarmánuð til þess að
skoða málin og átta sig betur á
stöðunni. Auðvitað væri með þessú ■
ekki fengin nein endanleg niður-
staða, en það hefði verið gefið svig-
rúm til þess að skoða málið, „og
við lítum á þetta sem fyrsta skref
í þá átt að veita hér öflugt verðlags-
aðhald á næsta ári,“ sagði forseti
ASÍ.
Þá hefur Morgunblaðið upplýs-
ingar um, að á fundinn í gær hafi
borist skilaboð frá Stéttarsambandi
bænda þess efnis að fyrstu viðbrögð
sambandsins væru mjög jákvæð í
garð þeirra hugmynda að engar eða
litlar kauphækkanir komi i hlut
bænda á næsta ári til þess að
tryggja megi stöðugt búvömverð.
Nýr fundur hefur verið boðaður
með samningsaðilum milli jóla og
SlípBtfSliAAát fblAlfciiÉw