Morgunblaðið - 20.12.1989, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 20.12.1989, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989 KEA býður Háskól- anum frítt húsnæði STJORN Kaupfélags Eyfirðinga hefur boðið Háskólanum á Akureyri tvær neðstu hæðir Glerárgötu 26 til afnota endurgjaldslaust í þrjú ár. Þarna er um að ræða um 800 fermetra rými samtals. Jóhannes Sigvaldason formaður stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga sagði að hugmyndin hefði komið snögglega upp í kjölfar umræðna um vandræði Háskólans á Akureyri þar sem fjár- magn skorti til kaupa eða byggingar húsnæðis fyrir sjávanátvegsdeild. Hann sagði einnig að það væri álit stjórnar kaupfélagsins að stofnunin væri styrkur fyrir byggð á Norður- landi. „Við vildum leggja okkar lóð á vogarskálina til að stuðla að því að skólinn geti starfað hér og þar með að eflingu byggðar hér,“ sagði Jóhannes. Umrætt húsnæði hefur lítið verið notað frá því byggingavörudeild KEA var flutt þaðan og að Lóns- bakka fyrir um tveimur árum, en öðru hvoru hafa ýmis konar markað- ir verið starfandi þar um tíma. Jón Þórðarson forstöðumaður sjávai’útvegsdeildar sagði að boð kaupfélagsins sýndi að mönnum stæði ekki á sama um skóiann. „Við erum afar ánægðir með þetta boð, það er höfðinglegt og lýsir mikilli framsýni," sagði 'Jón. Enn ríkir óvissa um hversu mikið fc Háskólinn á Akureyri fær af fjár- lögum næsta árs, en þrátt fyrir það hafa innritaðir stúdentar í sjávarút- vegsdeild verið boðaðir í skólann 4. janúar næstkomandi. Morgunblaðið/Rúnar Þór Dómneftid kom saman til ftindar í gær til að fara yfir hugmyndir sem bárust í hugmyndasamkeppni atvinnumálanefndar Akureyrar, en í dómnefnd eru Torfi Guðmundsson, Stefán Jónsson og Emil Thoroddssen. Morgunblaðið/Rúnar Þór Á litlujólunum Litlu jólin voru haldin á leikskólanum Iðavelli í gær og að sjálfsögðu við slík tækifæri örkuðu jólasveinar til fundar við börnin og komust klakklaust í hús þrátt fyrir snjókomu og erfiða færð á götum bæjarins. Akureyrarbær, verkamannabústaðir og Húsnæðisstoftiun: Samið um rekstur hús- næðisskrifstofu á Akureyri Hugmyndasamkeppmatvinnumálanefhdar: 33 hugmyndir bárust ALLS bárust 33 hugmyndir í hugmyndasamkeppni atvinnumálanefndar Akureyrar, en frestur til að skila inn hugmyndum er runninn út. Dóm- nefnd kom saman til fyrsta fundar sem höfðu borist. Hólmsteinn Hólmsteinsson for- maður atvinnumálanefndar sagði að menn væru þokkalega ánægðir með þátttökuna, en hefðu jafnvel vonast til að fá inn fleiri hugmyndir. „En við vonum auðvitað að einhveijar þein-a hugmynda sem okkur bárust muni skila sér inn í atvinnulíf á Akureyri," sagði Hólmsteinn. Dómnefndar bíður að fara yfir hugmyndirnar og meta þær og hefur í gær og skoðaði þær hugmyndir verið óskað eftir því að hún ljúki störfum í lok janúar, en 15. febráar næstkomandi er ætlunin að veita verðlaun fyrir þijár bestu hugmynd- irnar. í dómnefnd sitja Torfi Guð- mundsson forstjóri Odda fyrir at- vinnumálanefnd, Stefán Jónsson frá Háskólanum á Akureyri og Emil / Thoroddssen frá Iðntæknistofnun íslands. BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefur samþykkt samning á milli Akur- eyrarbæjar, stjórnar verkamannabústaða á Akureyri og Húsnæðis- stofnunar rikisins um að þessir aðilar stofiii, eigi og reki sameign- arstofnun er nefiiist Húsnæðisskrifstofan á Akureyri. Samningur- inn er til tveggja ára og verður endurskoðaður að þeim tíma lokn- um. í samningnum er gert ráð fyrir að aðilarnir þrír geri hver í sínu lagi þjónustusamning við skrif- stofuna um þau verkefni á sviði húsnæðismála sem þeir fela henni. Þá mun hver aðili um sig tilnefna einn fulltrúa í rekstrarnefnd skrif- stofunnar og hún síðan fram- kvæmdastjóra sem hefði með dag- legan rekstúr hennar að gera. Þau verkefni sem skrifstofan kemur til með að annast eru m.a íyrir AKureyiaroæ, uppgjör og viðskiptamannabókhald vegna bygginga, kaupa og sölu félags- legra íbúða, kaup, bygging, sala, endursala og leiga á almennum og félagslegum kaupleiguibúðum. Útleiga og umsjón með leiguíbúð- um í umboði öldrunarráðs, félags- málaráðs, skólanefndar og ann- arra stofnana og nefnda bæjarins sem og bygginga íbúð fyrir aldr- aða á Akureyri. Bæjarstjórn Akureyrar: Vinnubrögð við tilboð vegna hafiiarmannvirkja undarleg - segir Sig'ríður Stefánsdóttir. Bæjarstjóri vísar gagnrýninni á bug SIGRÍÐUR Stefánsdóttir bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins í bæjar- stjórn Akureyrar spurðist fyrir um það á fundi bæjarstjórnar í gær í hvers nafni Sigfús Jónsson bæjarstjóri hefði talað er hann gekk á fund Jóns Sigurðssonar iðnaðarráðherra og tjáði honuin að sveitarfé- lögin í Eyjafirði væru tilbúin að kosta byggingu og rekstur hafnar- mannvirkja kæmi til þess að álver yrði reist í Eyjafirði. Sigríður kvaðst hafa orðið undrandi er hún heyrði fréttir af þessu tilboði í fjölmiðlum og sagði hún vinnubrögð vegna þessa máls undarleg. Töluverðar umræður urðu um þetta mál á fundi bæjarstjórnar í gær og lagði Sigríður Stefánsdótt- ir, sem hóf umræðuna, fram fyrir- spumir til Sigfúsar Jónssonar bæj- arstjóra m.a. um í hvers umboði hann hefði talað, hveijir stæðu að þessari samþykkt og hvort núver- andi og verðandi héraðsnefndir Eyjafjarðar gætu gert samþykktir sem væru fjárhagslega skuldbind- andi fyrir sveitarfélögin. „Ég tel að hér hafi verið gengið of langt og þessar starfsaðferðir eru móðg- un við starfandi sveitarstjórnir á svæðinu," sagði Sigríður. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir (B) tók undir orð Sigríðar og sagði þessi vinnubrögð furðuieg. I svari Sigfús- ar Jónssonar kom fram að héraðs- nefnd Eyjafjarðar hefði kosið þriggja manna nefnd sl. vor sem ætti að vera eins konar viðræðu- nefnd vegna hugsanlegs álvers og inn í þá nefnd hefðu síðar komið bæjarstjóramir á Akureyri, Dalvík og í Ólafsfirði. Nefnd þessi hafði starfað ásamt framkvæmdastjóra Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar. Sigf- ús sagði að er í ljós hafi komið í haust að ekki yrði um frekari stækkun álversins í Straumsvík að ræða hefðu menn talið meiri mögu- leika á því að álver risi í Eyjafirði og í viðræðum á bak við tjöldin hefði komið í ljós að Eyfirðingar ættu lítinn möguleika nema þeir hefðu eitthvert tromp á hendi sem þeir gætu spilað úr. Að vandlega athuguðu máli hefði verið ákveðið að bjóðast til að reisa og reka hafn- armannvirki í tengslum við álverið. Bæjarstjóri svaraði því til varð- andi spurningu Sigríðar, að hann hefði fengið heimild frá meirihluta bæjarstjórnar og talað í umboði hennar og sagði hann að á öðrum stöðum hefði sami háttur verið hafður á, en á fundi með iðnaðar- ráðherra hefði hann talað í umboði viðræðunefndarinnar. Sigurður Jóhannesson (B) sagð- ist hafa vitað af þessu máli og styddi hann hugmyndina. „Ég tel þetta góðan leik í skákinni," sagði Sigurður. Sigríður tók aftur til máls og sagði það sérkennilega mynd af lýðræðinu sem birst hefði og hún teldi að umfjöllun málsins væri ábótavant. Fi-eyr Ófeigsson (A) og Björn Jósef Arnviðarson (D) sögðu báðir að ekki væri um að ræða brot á lýðræðisreglum, ákvarðanir af þessu tagi væru iðu- lega teknar án þess að þær hefðu verið formlega samþykktar. Þá væri einnig viðurkennd leikregla í lýðræði að meirihlutinn réði og ljóst væri að meirihluti bæjarstjórnar styddi þessa hugmynd. í umboði stjórnar verkamanna- bústaða annast skrifstofan kaup, byggingu, sölu og endursölu íbúða í verkamaunabústöðum og annast ráðgjafaþjónustu við húsbyggj- endur og kaupendur húsnæðis fyr- ir Húsnæðisstofnun ríkisins, auk þess að hafa umsjóri með hús- bréfum, afgreiðslu og upplýsing- um um lánsumsóknir. Á fundi bæjarstjórnar í gær kom fram ánægja með að Hús- næðistofnun skuli nú loks ætla að bjóða upp á þjónustu í bænum. Á - fundinum var samþykkt að tiln- efna Dan Jens Brynjarsson, hag- sýslustjóra, fulltrúa Akureyrar í rekstrarnefnd. Ólafsfjörður: Yill leigja rekstur á sjúkradeild Ólafsfirði. KRISTÍN Torberg hjúkrun- arfi-æðingur á Akureyri hefiir sent stjórn Elli- og dvalarheimilisins Horn- brekku í Ólafsfirði bréf og óskar eftir því að taka rekstur sjúkradeildar dval- arheimilisins á leigu frá og með næstu áramótum. Kristín, sem starfaði um skeið við dvalarheimilið -Horn- brekku, tekur fram í bréfinu að sjúkradeildina hyggist hún starfrækja i anda Vinarsam- þykktarinnar um hjúkrun. Stjórn Dvalarheimilisins Hornbrekku hefur nú vísað erindi Kristínar til heilbrigðis- ráðuneytisins en við breytta verkaskiptingu rikis og sveit- arfélaga sem gildi tekur um áramót flyst rekstur sjúkra- deildarinnar til ríkisins. - SB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.